Leita í fréttum mbl.is

Þá barg frú Ingveldur þjóðskipulaginu og var ekki kærð fyrir

kona2_875429.jpgEkki var frú Ingveldur kærð og sló hún þó þrjá lögreglumenn í andlitið og allir lágu þeir í öngviti eftir barsmíðarnar. En frú Ingveldur er hluti af Kerfinu, ein þeirra sem allt má og allt á þó hún hafi aldrei unnið neitt fyrir ríkidæmi sínu.Af þessum sökum er frú Ingveldur afar hlynnt þjóðskipulaginu okkar og er virkur þátttakandi í að verja það og vernda fyrir illræðismönnum kommúnista og Rússa, sem og annarra hálfmenna og aumingja. Það er aunginn smá-akkur í hendi að hafa slíkan varðhund og búrtík sem frú Ingveldur er í húsi sínu til að verja góðan skikk, dásamlegt þjóðskipulag og enn dásamlegra kvótakerfi til lands og sjávar. Svo eru einhverjir ónytjungar að halda því fram að við búum við þjófræði og hálfgerðan fasisma á Íslandi!

Það er ekki lengra síðan en árið fyrir hitteðfyrra sem frú Ingveldur vann á lögregluprjónunum fyrir framan útidyrnar heima hjá sér. Eitthvert fífl í nágrenninu hafi víst hringt á lögreglustöðina og kvartað undan háreysti og orrustugný frá heimili frú Ingveldar og Kolbeins, þar þar fór þá fram eitt af hinum rómuðu helgarsamkvæmum þeirra hjóna þar sem örlög þjóðarinnar eru ráðin af til þess hæfum mönnum og konum. Já. En þegar lögregluna bar að garði tók frú Ingveldur á móti þeim í dyrunum, því hún hafði séð til þeirra út um eldhúsgluggann þegar þeir klöngruðust eftir stéttinni heim að húsinu.

Það skipti heldur engum togum, að strax sló í brýnu milli frú Ingveldar og lögregluprjónanna því þeir rifu kjaft og hótuðu kylfuhöggum og fangavist. Þessum dónaskap lögreglunnar svaraði frú Ingveldur að hætti Skarphéðins og brennunni og Gunnars á Hlíðarenda og rotaði öll kvikindin á örskotsstundu. Þá kom í ljós, að einn lögregluprjónninn var kona, lögreglukona með undirförulan fémínístasvip á vör þar sem hún lá í öngviti við fætur frú Ingveldar. - Það væri réttast ég léti troða þessum helvítum ofan í ruslatunnurnar og það gjörði hún. Kolbeinn, Brynjar Vondalykt, Handreðurinn, ásamt frú Ingveldi og Máríu Borgargagni hjálpuðust við að koma lögregluprjónunum, með höfuðin á undan, í tunnurnar. Á þennan hátt barg frú Ingveldur enn einu sinni þjóðfélaginu, skipulagi þess og innviðum, frá óþægindum sem fylgja því að halda úti duglegri burgeisastétt.  

  



mbl.is Kýldi tvo lögreglumenn í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband