Leita í fréttum mbl.is

Afturgöngur úr fórum flokkseigenda skrönglast fram á blóðvöllinn

flokkseigendur_786424Þær eru miklir menn og stórir landeyðurnar atarna sem nú skrönglast eins og afturgöngur fram á vígvöllinn að undirlagi Flokkseigendafélags VG og boða ríkisstjórnarsprengingu. Það vita allir sem eitthvað þekkja til, að þessi smámenni, sem nú boða stjórnarslit, mundu aldrei þora neinu í þessa áttina ein og sér, þannig að beinast liggur við að álykta sem svo, að gemsar á borð við Eins Ólafs, Höllu og Steinunni Rögnvalds, og þau hin sem undir sprengitilræðið skrifa, séu einfald lega að ráðast í þetta stórræði að beiðni Swandeesýar, Stenngrims og Álfheiðar Inga.

Þá vaknar sú spurning af hverju ráðherranefnur VG, auk Stenngrims og Álfheiðar, komi ekki hreint fram og leggi sjálf til stjórnarslit á landsfundinum í næsta mánuði. Svarið þeirri spurningu liggur svo sem í augum uppi. Það er einfaldlega af því að helstu númer flokkseigendastóðsins er með eindæmum óheiðarlegt fólk, sem alla tíð hefir gengist upp í að stunda sjónhverfingar og poletiskan loddaraskap til að villa um fyrir samferðarfólki sínu og spila með þessa annarflokks þjóna sem hafa undirlægjukennda glýju í augum gagnvart þeim.

Í gærkvöldi gaspraði Swandeesý ákaft í sjónvarpinu um nú væru burtflognir VG-arar í óðaönn að snú aftur og nýskráningar í flokkinn svo ofboðslegar að vart hefist undan að færa til bókar öll þau ósköp af fólki sem vill ganga til liðs við VG og endurreisa fylgi hans. Það dylst vart nokkrum manni að þetta gaspur Swandeesýar var allt saman haugalýgi frá rótum. Þá hefir henni og fáeinum talsmönnum Flokkseigendafélags VG orðið tíðrætt um að leita að ,,rótum þessa einkennilega flokks, eða jafnvel í ,,ræturnar" eins og liggi ljóst fyrir að þær séu einhvers staðar vísar. Allt tal þessa fólks um ,,rætur" VG er ómerkilegt blekkingahjal, þar eð VG hefur engar rætur; þær voru í raun og veru aldrei neinar og þjóðfélagslegar hugsjónir í samræmi við það. Að vísu væri upplagt fyrir þessi grey, sem þykjast vera stjórnmálaflokkurinn VG, að sprengja ríkisstjórnina á landsfundinum í næsta mánuði, en þau ættu þá líka að hafa þann mannskap í sér að pakka sínum svikavefjum saman og leggja Vinstrihreyfinguna grænt framboð niður, því tilvist hennar er búið spil.


mbl.is Drög að ályktun: VG sprengi ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband