Leita í fréttum mbl.is

Slíkur er máttur andans að stjórnin er farin til Fjandans - já, fari hún vel

x36Þá er endemis stjórnaskepnan okkar sprungin og farin til Fjandans, gwöð friði sál hennar þókt sálarlaus hefi sannarlega verið. Vér gjörum ráð fyrir að flokksómyndirnar sem nú eiga fulltrúa á Alþingi fari ekki sömu leið og ríkisstjórnin er þegar farin, bjóði fram lista sína og og lifi kosningarnar af eða deyði að öðrum kosti. Reyndar erum við með flokka sem mættu alveg missa sín og trúlega verða dagar einhverra þeirra taldir á kjördag þegar búið verður að telja upp úr kjörkössunum í Borgarnesi og annars staðar.

Best væri að flokkar sem óneitanlega draga sterklega dám af skipulögðum glæpasamtökum hverfi á braut, að þjóðin gefi sér þá góðu gjöf að kjósa þá burt úr lífi sínu og þjóðarinnar. Svo eru þarna nokkur flokksgerpi í pöddulíki sem þrifnaður væri af að losna við af fóðrum, svo sem eins og Klausturflokkurinn sem kennir sig við hvítt hross og miðju en er í raun öfgahægriklíka; Flokkur fólksins með sinn hájarmandi lýðskrumara og útlendingaandúð á sér varla tilverurétt; nýfrjálshyggjubarnaflokkar Pírata og Viðreisnar eru þess eðlis að ekkert annað en öskuhaugarnar í eiga tilkall í þá. Samfylkingin hefir haft góðan byr í í skoðanakönnunum undanfarið, en sá góði byr hefir þó stöðvast og brátt slær í bakseglin og þessi hægrisinnaði þunnildis og ímyndaræðisflokkur fer að hrekjast til baka. VG er þegar komið í líkkistuna og Swandeesý, Álfheiður, Stenngrimur og Úlfar Þormóðs þegar búin að setja upp pípuhattana sína og þess albúin að bera hinn burtsofnaðra til urðunar.

Það er því ekki um auðugan garð að gresja fyrir kjósendur þegar þeir staulast að kjörborðinu næst ef ekki standa önnur nöfn á kjörseðlunum en nöfn alræmdra glæpaflokka, flokka poletiskra auðnuleysingja eða steindauðra flokka. Því miður verða kjósendur, ef að líkum lætur , peppaðir upp af samviskulausum og enn hugsjónalausari PR-stofum til að kjósa sömu óaldarflokka og gert hafa sig seka um þjónkun við auðvald, arðrán, glæpastarfsemi og afkáralega idjósku af heldur vandæðalegu tagi. Flokkarnir okkar, þessar átta leiðindaklíkur, sem starfa á Alþingi í dag, eru sama marki brenndir með að vilja hvergi halda sig nema innan ramma kapítalisma og auðvaldsþjóðskipulags í anda USA, ESB og NATO. Fólk talar um breytingar og segist vilja breytingar, spurningin er aðeins: Hvaða breytingar er fólkið að tala um? Er það tala um smávægilegar breytingar innan auðvaldrammana, eða hefur það í huga gagngerar breytingar á þjóðfélagsskipulaginu? Þið vitið væntanlega að það er einungis ein slík þjóðskipulagsbreyting boði? 


mbl.is Ríkisstjórnin sprungin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband