Leita í fréttum mbl.is

Ţeir sem leiđa leiđindi og rugl á svokölluđum ,,vinstri" vćng

x-krat7Ţessi pistill fjallar reyndar ekki um frambođsskrum ísfirsk lukkuriddara af kvenkyni, sem telur ţjóđin hafi eitthvađ gott af ţví ađ fá hana á ţing fyrir ţann kámuga og illalyktandi flokk sem gengur undir heitinu Samfylking og ţykist vera jafnađareitthvađ. Ţađ eru fleiri sem hafa fariđ skítugum lúkum um flokka, sem í daglegu tali eru kallađir ,,vinstriflokkar", en einn ţeirra er sá frćkni Gunnarsmári og hans klíka.

Ţađ er sérkennileg stađa sem ţeir sem hafa reynt ađ telja fólki trú um ađ Gunnarsmári sé sósíalisti, eru búnir ađ koma sér í. Hiđ sótsvarta íhald og stofnandi flokksins sem hafđi um skeiđ ţađ helst á stefnuskrá sinni ađ vinna ađ ţví ađ Ísland gengi Norđmönnum á vald og gerđist fylki í Noregi, er auđvitađ enginn sósíalisti, - ekki fremur en Pétur Ţríhross sem kvađst á góđri stundu vera ţađ sem kallađ er á erlendum málum sosialist.

Ţegar fyrirbćriđ ,,Sósíalistaflokkur Íslands" er skođađ kemur fljótlega í ljós auvirđilegt spillingardćmi ţar sem atvinnulaus lukkuriddari úr DV-umhverfi íslenskrar fjölmiđlunar, mađur sem allir fjölmiđlar höfđu gefist upp á og vildu og vilja ekki fyrir nokkurn mun sjá í sínum híbýlum, tókst međ hugviti sínu og bírćfni ađ plata hóp af trúgjörnu og einföldu fólki upp úr skónum og fá ţađ til í ađ stofna međ sér stjórnmálaflokk. Hinir einföldu og trúgjörnu héldu sumir hverjir ađ ţeir vćru ađ fara ađ taka ţátt í merkilegum ţjóđţrifum, hugsjónum, og jafnvel ţjóđfélagsbyltingu. En höfuđpaurinn sjálfur, sem aldrei hefur veriđ gefinn fyrir annađ en ţrengstu eiginhagsmuni sjálfs sín, hafđi auđvitađ ekkert hugjónabasl og ţjóđţrifnađ á sínum óskalista, hvađ ţá ţjóđfélagsbyltingu, hann leiddi hina trúgjörnu einfeldninga sína beint út í stofnun ,,sósíalistaflokks" til ađ gera út á ríkissjóđ, sem honum hefur tekist gera međ miklum ágćtum.

Nú er Gunnarsmári kominn međ fína atvinnu viđ fjölmiđlun, og aurarnir streyma fyrirhafnarlaust eins og lygn bergvatnsá á sumardegi frá ríkinu til Sósíalistaflokksins og ţađan gegnum ,,Vorstjörnuna", og yfir landamćrin yfir í ,,Alţýđufélagiđ" og ţađan til Samstöđvarinnar og um leiđ ţráđbeint ofan í rassvasann á hinum hugumstóra fjölmiđlamanni, flokksútgerđarmanni, atvinnurekanda, lukkuriddara og sótsvarta íhaldi.

Fyrir síđustu alţingiskosningar setti Gunnarsmári upp sérlega spennandi og frábćrt leikrit fyrir söfnuđ sinn, taldi ţví trú um ađ ţađ vćri ađ fara ađ bjóđa fram og ráđa hverjir skipuđu frambođslista sosiflokks Gunnarsmára. Á ákveđnu augnabliki tók höfuđpaurinn fram fyrir hendurnar á uppstillingarnefndinni, sem var slembivalin međ vísindalegum hćtti, og dró upp úr rassvasa sínum fullskipađa frambođslista ađ eigin vali og sendi ţá rakleitt út í kjördćmin. Listinn sem hann sendi á kjósendur Norđvesturkjördćmis var til dćmis ţannig, ađ ţegar gamall og reyndur áhugamađur um pólitík sá listann varđ honum ađ orđi ađ ţessi listi vćri greinilega sérhannađur til ţess ađ enginn mundi kjósa hann, og ađrir frambođslistar úr rassbókhaldi Smárans voru eftir ţví.

ÁlfurOg sama leikinn er veriđ ađ leika núna: Kjörstjórn kosin, uppstillinganefnd skipuđ, en á síđustu stundu eru hinir einföldu og trúgjörnu látnir samţykkja ađ svipta öllum tilfćringum í burtu og láta ţađ heita ađ Sanna Magdalena muni ásamt međ óskilgreindum ,,ráđgjöfum" sjá um frambođin; ađ ţví búnu dregur sosialistarekandinn, Gunnarsmári, frambođslistana upp úr rassavasanum, eins og lćknir lyfseđil, ađ skipar hinum lítilsigldu ađ samţykkja sitt fólk. Gunnarismára er nefnilega fjandans sama hvort Sósíalistaflokkurinn fćr engan ţingmann kjörinn eđa einn eđa tvo, bara ef hann nćr lágmarkinu til ađ fá styrinn frá ríkinu, en sá styrkur er ađ sjálfsögđu enginn hégómi međ aumlegum fátćktarbrag yfir sér. Og nytsömu sakleysingjarnir halda áfram ađ vera í pönkaraleik á Hlemmi.


mbl.is Bćjarstjóri Ísafjarđar vill leiđa listann
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband