Leita í fréttum mbl.is

Á međan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hverja hámessuna á fćtur annarri

prestur15Frá klukkan sex í gćrkveldi hefir síra Baldvin sungiđ fjórar stórar hátíđarmessur í höfuđmusteri sínu og tvćr í annexíunum, ţrátt fyrir ađ úti hafi geisađ samfellt fárviđri međ enn gríđarlegri hryđjum inn á milli. Mikiđ fjölmenni hefir veriđ í öllum ţessum messum og sóknarpresturinn, síra Baldvin, fariđ á kostum í skörunglegum rćđubrögđum og allri messugjörđ. Á međan á athöfn stóđ í annarri annexíunni fauk ţakiđ af fjárhúsunum í Bćli og stóđu ćrnar, sem og hrútarnir, eftir berrössuđ, ef svo má segja, í ţessum vođalega veđurham. Ađ guđsţjónustu lokinni vóđ síra Baldvin sjálfur í ađ bjarga sauđfénu međ ţví ađ reka ţađ allt inn í fjós á Stórumelum, kúnum ţar til stórkostlegrar skelfingar.

Í morgun notađi svo síra Baldvin tćkifćriđ er hann flutti sóknarbörnum sínum hátíđarmessu og veittist ađ ţjóđkirkjunni, prestlingum hennar og bysskubbsnefnu, sem hann kallar svo. Sagđi hann ţjóđkirkjuna vera orđna hundheiđna fémínístastofnun handa fábjánum, prestana villuráfandi sauđskepnur og bysskubbinn gjörsamlega trúlausa vofu í bysskubbskufli. Viđ ţessi snöfurmannlegu ummćli síra Baldvins stóđu sóknarbörn hans upp og klöppuđu ákaflega fyrir mćlskulist hans og trúarhita, en klerkur svarađi fyrir sig međ ţví ađ hefja upp raust sína og syngja söfnuđinum pater noster á latínu međ nýju lagi sem hann samdi um leiđ á ţessari helgu stund.

Á međan messugjörđ síra Baldvins stóđ klöngrađist bysskubbinn yfir Íslandi upp í stólinn í Dómkirkjunni og japlađi á hinu fémíníska kapítalistaguđspjalli milli ţess ađ svelgjast á og súpa hveljur af messuvíninu, sem var óvenju sterkt og bragđvont í dag. Ađ öđru leyti var hátíđarprédíkun bysskubbs bragđlaus, tíđindalaus, kraftlaus og allslaus međan prédíkun síra Baldvins ljómađi af andagift og sannri guđstrú og fćrđi bjarta gleđi í döpur hjörtu. Sitthvađ hafast klerkar og bysskubbar ađ. 


mbl.is Biskup: Guđleysi er ekki hlutleysi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband