Leita í fréttum mbl.is

Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar upp um blóðhunda NATO

krat1Það eru meiri andskotans ósköpin sem það getur rignt upp í krataeðlisnasirnar á stúlkukindinni henni Kristrúnu hérna frá Kvikubanka fínifólksins. Nú gengst hún upp eins og rígmontinn íhaldskrakki, sem hún auðvitað er, upp í meintum gríðarlegum vinsældum hennar í skoðanakönnunum og álfarnir og bjálfarnir, sem nóg er af í Samfylkingunni, eru hættir að halda vatni yfir þessum óskaplegu vinsældum og vafra um götur og torg í einu allsherjar meðvirknislosti og þykjast ekki sjá að keisarinn er ekki í neinum fötum.

rússÞetta á vafalaust eftir að fara illa hjá krataeðlissjúklingunum, sem eins og fyrri daginn þykjast vera svona og svona undur aumingjagóðir og vók, en sleikja sig í sömu andrá upp við glæpahyski heimsins í ESB, USA, og NATO. Þegar ábyrgir forustumenn þjóða þyrpast til Moskvu til að fagna því að 80 ár eru frá því að Sovétríkjunum tókst að yfirbuga Þýskaland nasismans eftir innrás og þriggja ára umsátur Þjóðverja, sem í raun var ætluð til að kveða byltingu sósíalista í Sovétríkjunum niður í eitt skipti fyrir öll. Vart þarf að taka fram, að innrás Þjóðverja í Sovétríkin, sem kostaði óstjórnlega eyðileggingu og 20-30 milljónir mannslífa, var gerð með velþóknun gömlu nýlenduböðlanna í Evrópu og Bandaríkjaauðvaldsins. Með þessar staðreyndir í huga, þá sitja varðhundar auðvaldsins á Vesturlöndum heima hjá sér og dilla rössum sínum ólundarlega, hver í kapp við annan, enda uppteknir við að halda stríðnu við Rússa áfram, þar sem fyrr var frá horfið af Þjóðverjum, að þessu sinni í gegnum hálfbrjálaða og albrjálaða fasista í Úkraínu.

Og meðan krataeðliskonan úr SamfylkingarKvikunni situr skælbrosandi með lítilmennum auðvaldsþjónustunnar á Norðurlöndum, og hrærir í auðvalds- og krataeðlispottinum fyrir blóðhunda NATO og USA, fagna þjóðhöfðingjar valinkunnra ríkja með Rússum sigrinum yfir nasismanum fyrir áttatíu árum. En krataeðlið er samt við sig og hefur verið það síðan það skipaði sér í lið með auðvaldinu í forleiknum af fyrri heimstyrjöldinni; síðan hefur leikurinn hjá þessu vandræðaslekti gengið út á að freista fátæklinga á annað borðið með plástrum á bágtið, það kalla krataeðliseignirnar velferð, en á hitt borðið nuddar það sér upp við leggina á auðvaldinu og heimsvaldasinnum og skríður fyrir því með sleikjusakap og nautnastunum.     


mbl.is Kristrún um Trump: Ánægður að heyra frá okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Frábærlega, venju samkvæmt, að orði komist.

Jónatan Karlsson, 9.5.2025 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband