Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðismaðurinn Dónóvan og leigumorðingjarnir.

Það má til sanns vegar færa, að Sjálfstæðisflokksmaðurinn og auðvaldskurfurinn Jón J. Dónóvan sé sannkallaður snillingur, enda ekki á færi annarra en afburðamanna, að skálda upp á syni sína að þeir sendi á vettvang leigumorðingja til að vinna á feðrum sínum. En Jón J. Dónóvan er kræfur karl og hraustur og ekki flokksbræðum sínum til skammar, nema síður sé. Og þar sem þessi sanni sjálfstæðismaður, Dónóvan frá Cambridge, er mjög eftirsóttur fyrirlesari væri tilvalið fyrir hina ungu stuttbuxnasperrileggi Sjálfstæðisflokksins, sem ætla að hrella Seyðfirðinga um miðjan september næstkomandi, fá þetta roskna fórnarlamb leigumorðingja til að lesa þeim fyrir hugvekju og bæn í nafni Mammons, drottins þeirra allra.


mbl.is Milljarðamæringur laug til um skotárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband