2.9.2007 | 13:45
Benedikt páfi XVI genginn í VG.
Jæja, og Bensi páfi bara genginn í VG. Svona getur nú kaþólskan tekið á sig óvænta mynd, þegar hún vill það við hafa. Ég er viss um að hans heilagleiki kemur til með að taka sig vel út við hlið Hjöla Gutt, Kolbrúnar Halldórs og frú Álfheiðar Inga. Og Bensi páfi mun áreiðanlega ekki telja eftir sér að taka þetta hugljúfa yfirstéttargroms til skrifta, þó telja megi líklegt að það geti tekið nokkuð á taugar hins heilaga föður.
Benedikt XVI hvetur til umhverfsverndar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
- Þegar líkin koma á færibandi inn á borð ráðherra
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 115
- Frá upphafi: 1539337
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 101
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Athugasemdir
Til viðbótar því sem ég áður tjáði mig um þína síðustu færslu langar mig að segja það , að þú Jóhannes virðist virðist innst inni hafa áhyggjur að framgangi Vinstri Grænna?
Þorkell Sigurjónsson, 2.9.2007 kl. 13:58
Eru þá allir þeir sem hvetja til umhverfisverndar í VG?
Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 14:09
Rétt er það Þorkell, að ég hef áhyggjur af VG enda tel ég mig vera einn af stofnendum þess flokks. En ég hef því miður orðið fyrir miklum vonbrigðum þróun VG, því í staðinn fyrir að verða rauverulegur verkalýðsinnaður vinstri flokkur með stéttarbaráttu að leiðarljósi, finnst mér við standa uppi með flokk eftir-millistéttar og yfirstéttarfemínista, nokkurskonar Grænt Kvenfélag, sem hefur andstöðu við vatnsvirkjanir að borgaralegu áhugamáli, hobbýi.
Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2007 kl. 14:11
Það skrifaði kona inn á Málefnin í vor og vetur sem deildi þessum áhyggjum þínum. Mér er kunnugt um að félagar í flokknum voru ekki hressir með skrif hennar. Hún kallaði sig Ragnhildi rauðu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.9.2007 kl. 14:25
Geturðu nokkuð sagt mér Ásthildur hvernig óhamingja flokksfélaga lýsti sér með þessi skrif sem þú talar um?
Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2007 kl. 15:02
ég hef alltaf verið heit fyrir Benedikt páfa, núna er hann bara að gera góða hluti, vonandi er það ekki bara í dag, hehe. ég elska VG af því að hann er umhverfisverndarflokkur - en hann á ekki bara nema staðar þar, að sjálfsögðu ekki
halkatla, 2.9.2007 kl. 15:23
Ekki geri ég lítið úr áhyggjum þínum, Jóhannes, um verkalýðspólitík, en bendi á að aðalefni flokksráðsfundarins á Flúðum var um almannaþjónustuna. Líklega er það þar sem stjórnmálaöfl og verkalýðsfélög þurfa að standa saman á næstu árum gegn enn þá meiri einkavæðingu og gjaldtöku af almenningi, ríkum sem fátækum. Ég er einn af þeim sem telja sig vel geta greitt eitthvað meira í opinber gjöld og vilja ekki sífelldar hækkanir á þjónustugjöldum. En svo eru þó nokkrir sem gætu lagt fram verulega stærri skerf en gera ekki annaðhvort vegna þess þeir borga bara 10% skatt á löglegan hátt eða koma sér undan því einhvern veginn.
Svo og ef þú veist það ekki þá hafa konur að jafnaði lægri laun en karlar og launamunurinn er meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2.9.2007 kl. 16:02
Almannaþjónusta, svo kölluð, er eitt, stéttarbarátta og verkalýðspólitík annað, svo það sé á hreinu. Launamunur kynjana er einhver, um það þarf ekki að deila, en í verkalýðsstétt er þessi munur hverfandi. Og hvaða launamunur er það sem er meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu? En því miður Ingólfur, VG er ekki verkalýðsflokkur og það sem verra er, hann vill ekki vera það. Þar af leiðandi getur VG tæpast talist vinstrihreyfing.
Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2007 kl. 16:29
Varla greinir okkur á um það, Jóhannes, að tryggingar, heilbrigðisþjónusta, skólakerfið o.fl. væri tæpast til ef engin barátta verkalýðssamtaka/samtaka launafólks hefði átt sér stað í tímans rás - þótt okkur kunni að greina á um hvernig VG sé að þróast. Ég vil reyndar að VG rúmi margvíslega baráttu og tel ekki að baráttu launafólks hafi verið úthýst fyrir baráttu með náttúrunni eða fyrir hagsmunum kvenna af öllum stéttum.
Launamunur kynja er meiri á landsbyggðinni, en í augnablikinu finn ég ekki tölurnar sem ég man eftir. Í einni skýrslu frá forsætisráðuneytinu, Nefnd um efnahagsleg völd kvenna (2004), höfðu konur að jafnaði aðeins 72% af heildarlaunum karla. Talan sem ég finn ekki var cirka 65% á landsbyggðinni, en ekki sortéruð eftir stéttum. Allsláandi um aðstöðu kvenna til sjávar og sveita - og þá ekki verið að hrósa aðstöðu karla.
Ég sé láglaunastörf kvenna allt í kringum mig, og ekki eru álverin kvennavinnustaðir þótt Alcoa segist nú hafa ráðið fleiri konur en Norðurál (30% hópsins í stað 15% hjá Norðuráli). Enda eru færri konur á landsbyggðinni hlutfallslega en í þéttbýlinu; eru það þá yfirstéttarfemínistarnir sem þú nefnir svo? Flýja landsbyggðina. Munurinn ein fjögur eða fimm prósentustig á Vestfjörðum og miklu meiri á Austfjörðum sem kann að vera tímabundið.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2.9.2007 kl. 17:09
Annars er ég svolítið hrifinn af þessu orði hjá þér, Jóhannes, í aths. nr 3: eftir-millistéttarfemínistar! Myndi það vera á ensku post middle-class feminists? Fannstu þetta upp eða er þetta úr nýjustu marxísku fræðunum? (Ég hafði bara heyrt post-feminists og það var ekki marxískt!)
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2.9.2007 kl. 17:18
Hvenær hafa sósíalistar eða vinstrisinnar verið hliðhollir alþýðunni ?
ALDREI! Hversvegna ættu þá VINSTRI grænir að vera það ?
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.9.2007 kl. 17:56
Hvar í ósköpunum hefur þú Guðmundur minn, alið manninn s.l. áratugi. Þótt verkamenn geti ekki hoppa hæð sín vegna góðra kjara í dag, leyfi ég mér hiklaust að fullyrða, að þau væru ekki svipur hjá sjón án þátttöku vinstra fólks í verkalýðsmálum undanfarna áratugi og gera enn.
Þorkell Sigurjónsson, 2.9.2007 kl. 18:34
Auðvitað væri velferðarkerfið lítilfjörlegt ef baráttu verkalýðssamtakanna hefði ekki notið við. Á síðustu árum hefur velferðarkerfið átt í vök að verjast og látið undan síga, að sama skapi hafa samtök verkafólks veikst. Þú virðist hafa tekið eftir því Ingólfur, að barátta launafólks á því miður ekki upp á pallborðið hjá VG. Hinsvegar er að sjá að þú hafir ekki áttað þig á, að það sem þú kallar ,,baráttu fyrir hagsmunum kvenna af öllum stéttum" hefur ekki sýnt sig í öðru en efri-millistéttar- og yfirstéttarfemínisma, en þessháttar geðslegheit eru að sjáfsögðu best geymd innan borgaralegra vébanda með slagorðinu ,,stétt með stétt."
Í sambandi við meintan launamun kynja á lansbyggðinni sem þú nefnir, verða allar forsendur að vera á hreinu. Ég þykist vita að á meðal verkafólks er launamunur eftir kynjum lítill. Einnig hef ég grun um að launamunur milli kynja fyrir sömu störf á landsbyggðinni sé langt í frá eins mikill og þú nefnir, eða 65-72%. Hinsvegar eiga konur nokkuð í land með að hreppa feita bita í viðhafnarsak auðvaldsins.
Og komdu sæll og blessaður Guðmundur minn Jónas Kristjánsson, framsóknar maður að mennt og upplagi. Ég lít á það sem óverðskuldaðan heiður að þú skulir hafa lagt lykkju á leið þína og kíkt við á síðunni minni. Að sjálfsögðu mun ég ekki voga mér að andmæla þér enda til lítils að kenna gömlum framsóknarmanni að sitja til borðs með alþýðunni.
Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2007 kl. 19:20
Sæll, Jóhannes, það er ekki vegna femínisma sem verkalýðshreyfingin hefur veikst, og e.t.v. engin ein ástæða fyrir því að hreyfingin hefur veikst. Ég hygg að breytt samsetning atvinnu í landinu og markvissar aðgerðir atvinnurekenda gegn verkalýðshreyfingunni eigi þar stærstu hlutina. VG er því miður ekki nógu öflug hreyfing til að meint áhugaleysi flokksins ráði verulega miklu þar um. En endurtek að málefnið sem rætt var á Flúðum kemur öllu launafólki til góða, sennilega því meira sem launin eru lægri. Kveðjur að norðan
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2.9.2007 kl. 20:04
Sæll Jóhannes í mínum huga telst eftirfarandi til baráttu vekalýðsins: að jafna kjör fólks, að sjá til þess að eðlilegar reglur gildi um réttindi þeirra og standa vörð um þau. Eins og ég hef sagt áður (í svari til þín á blogginu mínu) höfum við í VG haldið umræðu um misskiptingu í þjóðfélaginu á lofti. Ályktun okkar um almannaþjónustu hlýtur að einhverju leyti snerta alla þegna samfélagsins, og þar af leiðandi verkalýðsbaráttuna.
Við höfum einnig talað um að bæta þurfi kjör þeirra lægst launuðu í landinu og er ég á því að þetta sé mjög brýnt verkefni að berjast fyrir því að kjör þessara einstaklinga verði bætt. Við höfum komið með tillögur um tilfærslur í skattakerfinu sem lúta að þessum málum. Þetta eru örfá dæmi. Ég get því ekki verið sammála þér eins og ég hef sagt áður.
Enn og aftur um flokksráðsfundinn, en þar voru saman komin um 70 manns af öllu landinu. Umræurnar voru mjög góðar, farið um víðann völl, kjör almennings í landinu rædd meðal annars.
Ég veit ekki hvort ég telst til þessa Græna kvenfélags sem þú ert að lýsa hér að ofan - sé mig amk ekki alveg í þessari lýsingu. Skil hinsvegar pælinguna í kringum milli- og yfirstéttarfeminista þar sem ég hef rætt svipaðar pælingar við marga og þá aðallega hvernig eigi að virkja allar stéttir kvenna eða konur alls staðar að í réttindabaráttu kvenna. Mér finnst okkur ekki hafa tekist það og hef áhyggjur af því.
Með góðri kv. alma
Alma Lísa Jóhannsdóttir, 2.9.2007 kl. 20:21
Það er víst ekki nóg að láta nægja að tala um, á lokuðum fundum, að það þurfi að ,,bæta kjör þeirra lægst launuðu" þegar því er ekkert fylgt eftir á nokkurn hátt og hugur fylgir ekki máli. Þeir sem halda því fram að VG sé flokkur verkalýðshyggju og stéttarbaráttu eru annaðhvort í mikilli afneitun eða halla vísvitandi réttu máli. Þegar ,,hinir ánægðu" í VG hafa ekkert til að vísa í en einhverjar óljósar hugmyndir sem eiga að sanna að flokkurinn sé ósköp aumingjagóður, er ekki von á góðu. Þessháttar málflutningur sýnir aðeins betur og sannar, að VG er ekki raunverulegur vinstriflokkur þó ráðamönnum þar þyki, ag einhverjum ástæðum, hyggilegt að reyna að lát líta út að svo sé.
Jóhannes Ragnarsson, 3.9.2007 kl. 07:26
Það hringdi í mig kona sem ákveðnir aðilar töldu að skrifaði undir nafni Ragnhildar Rauðu, hún bað mig um að staðfesta að hún væri ekki þessi Ragnhildur, því hún lægi undir þrýstingi frá því sem RR kallaði þotulið Vinstri grænna. Í skrifum RR kom m.a. fram að það ætti að reyna að útiloka Ögmund Jónasson frá því að komast að í prófkjöri. Ég get fundið pistla hennar ef ég leita.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.9.2007 kl. 13:21
Hér eru dæmi úr skrifum Ragnhildar Rauðu. Hún segist vera Vinstri græn, en er með svipaðar áherslur og þú. Hér koma þessar tvær færslur hennar.
félaga. 9 Apr 2006 Read TopicHjákátleg persónudýrkun innan VG. Mikil þó bölvuð hörmung er að verða vitni að þeirri ömurlegu persónudýrkun sem ríður húsum innan stjórnmálaflokksins Vinstriheyfingin - grænt framboð. Ég átti satt að segja ekki von á að þessi flokkur ætti eftir að leggjast svo lágt sem raun ber vitni.Dag eftir dag birtast myndir í lit í auðvaldsblöðunum af Svandísi Svavarsdóttur, stífmálaðri og uppflikkaðri. Og ekki er fyrirsögnin með myndinni neitt slor: "Svandís út um alla borg" skal það heita.
Og Svandís hefur verið að funda út um alla borg. Ekki vantar það. Aftur á móti hefur fundargesti vantað tilfinnalega á þessa fundi hennar. Það hefur orðið hlutskipti hennar að tala yfir tómum kofunum á fundarherferðinni "út um alla borg."
Hins vegar eru Árni Þór, sem skipar sæti númer 2. með Svandísi og Þorleifur, sem skipar það þriðja, ákaflega sárir og reiðir yfir sínu hlutskipti. Enda skiljanlegt, á þá er hvergi minnst þegar framboð VG í Reykjavík er annars vegar. Það getur nefnilega verið sárt að vera niðurlægður frammi fyrir alþjóð með þessum hætti. Í vanmætti sínum hafa þeir félagar brugðist við með því að kenna Svavari Gestssyni, föður Svandísar, og Hjörleifi Gutt um hvernig staðið er að áróðursmálum í kosningabaráttu VG í borginni.
Nú, allir þekkja persónudýrkunina kringum Steingrím formann innan VG. Ungliðarnir eru látnir ganga í rauðum bolum með svartri mynd af Steingrími með alpahúfu, en þessi kyndugheit eiga víst að vísa til vinsælla bola með mynd af che Guevara, þó að þessir menn eigi fátt annað sameiginlegt en að annar var læknir að mennt en hinn kvæntur lækni!
Þá hafa vinstrigrænir sýnt tilbuðrði á þá átt að hefja Hjörleif nokkurn Guttormsson á stall persónudýrkunar. Liður í þeirri viðleitni var að halda karlinum upphafningarmálþing á dögunum. Af því málþingi fer reyndar fáum sögum, utan hvað fáeinir þekktir útigangsmenn heiðruðu samkvæmið og þáðu léttar veitingar í tilefni dagsins.
12 Feb 2006 Read TopicÁtök innan VG Það hafa verið átök innan Vinstri-grænna
sem ekki hafa farið hátt. Átökin felast í því
að hópi flokksmanna finnst menntafólk of
áberandi við stjórnun flokksins og ráði því
sem það vill ráða. Telja þeir að Vinstrihreyfingin
? grænt framboð sé ekki nógu verkalýðssinnuð
hreyfing. Öllum alvöru sósíalistum
hafi verið ýtt til hliðar og ráði litlu. Því
hafi tengslin við verkafólk tapast að einhverju
leyti.
Þetta er ein aðalástæðan sem lá að baki
sigri Baldvins H. Sigurðssonar á Valgerði H.
Bjarnadóttur í prófkjöri VG á Akureyri. Hin
vinnandi stétt reis upp. Fólkið hafnaði
menntakonunni og kaus alvöru vinstri
mann, sem kokkar kjötbollur í alþýðuna í
kaffiteríunni á Akureyrarflugvelli. Við köllum
það alvöru fólk. Valgerður þarf því ekki
að vera svona hissa. Margir innan VG biðu
eftir þessum breytingum og hafa rætt það á
fundum flokksins.
Frambjóðanda eins og Baldvin hefur
vantað í forystusveit VG ? reyndar í forystu
fleiri flokka. Hann þorir. Segist vera róttækur
vinstri maður. Nefnir meira að segja byltingu
í viðtali við fjölmiðla. ?Já, við skulum
ekki hafa hátt um það. Það er orð sem má
ekki heyrast. Hún verður hljóðlát,? sagði
hann á NFS eftir sigurinn. Í mynd.
Það er spurn eftir fólki með skoðanir í
stjórnmálum í dag. Venjulegt fólk sem hefur
eitthvað að segja. Talar til almennings á
máli sem allir skilja. Fólk sem veit hvaða
vandamál mæta íslenskum
fjölskyldum á degi hverjum.
Það er ekki upptekið
af sjálfu sér. Viðtölin
verða ekki froðukennd
heldur skilja eitthvað eftir
sig.
Úr leiðara DV. Höf. Björgvin Guðmundsson.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.9.2007 kl. 13:38
Þakka þér fyrir Ásthildur. Mér er svo sem kunnugt um að Ögmundur Jónasson er mjög einangraður í VG. Auk þess veit ég um nokkra varga sem ávallt eru boðnir og búnir að glefsa í hælana á honum þegar þeir halda sig hafa tækifæri til þess. En þó að Ögmundur sé einangraður í flokksforustunni, á hann sér marga stuðningsmenn innan og utan VG, stuðningsmenn sem myndu ekki telja eftir sér að berjast við hlið hans gegn vörgum valdafólksins í VG.
Jóhannes Ragnarsson, 3.9.2007 kl. 13:44
Ekkert að þakka, RR átti marga góða spretti á Málefnunum í vor. Og það var greinilega að það féll ekki vel í kramið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.9.2007 kl. 20:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.