Leita í fréttum mbl.is

Bondevik, Guðbrandur Jón og rauðvínið.

Svona byrjaði sá kunni óreglumaður Guðbrandur Jón að drekka áfengi; á einu rauðvínsglasi. Og árangurinn lét ekki á sér standa. Ég verð að taka það fram, að þegar Guðbrandur Jón hóf feril sinn var hann 13 ára og varð fljótlega álitinn undrabarn í drykkjuiðninni. Og þó að Bóndevík sé að hefja sinn drykkjuskap sextugur, er ekki þar með sagt að hann verði ekki orðinn annálaður drykkjubolti eftir tvö ár og kominn undir græna torfu eftir fjögur. Því menn sem byrja svona seint, eru oft orðnir svo gífurlega þyrstir þegar kemur að sextugsafmælinu, að þeir slá fljótlega úr sér í viðureigninni við brotsjói brennivínshafsins.  
mbl.is Bondevik byrjaður að drekka rauðvín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband