Leita í fréttum mbl.is

Þorskur úttroðinn af roðflettum síldarflökum !

Mikið er einkennilegt að heimamaður við Breiðafjörð skuli fagna því að síldin í firðinum skuli drepin miskunarlaust af rányrkudöllum kvótafíklana í LÍÚ. Nær væri að útgerðamenn og fiskverkendur í Breiðafirði berðust á móti þessum veiðum með öllum tiltækum ráðum, með það fyrir augum að breiðfirðingar sjálfir nytji síldarstofninn, sem hefur verið á uppleið en er nú í hættu vegna rányrkju. Þá er dálítið broslegt að Runólfur Guðmundsson útgerðarmaður í Grundarfirði slengi því fram ,,að honum sýnist að hver padda sé nýtt", eins og hann orðar það. Það er eins og útgerðarmaðurinn viti ekki að það er með öllu óheimilt að henda veiddum afla. Og í sambandi við góðu nýtinguna, sem Runólfur talar um, er ekki úr vegi að geta þess, að nokkuð hefur borið á því síðustu daga að menn hafi verið að fá þorsk í Breiðafirði, úttroðinn af roðflettum síldarflökum ! Hvaðan ætli þau flök séu ættuð ? Er kanske búið að setja upp síldarflökunarstöð neðansjávar ? Og hvernig ætli Fiskistofustjóri hagi sínu margrómaða veiðieftirliti um borð í síldardöllunum ?  


mbl.is Mikil síldveiði í Grundarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband