Leita í fréttum mbl.is

Fékk silfurhamar í hausinn

Það er naumast hvað sútin hefur sest að í hjartanu á Heather Mills; hún heldur ekki einu sinni upp á fertugsafmælið sitt kerlingarrörið ! En svona geta konur farið útúr því að leggja lag sitt við gamla grálynda bítla. Það mætti jafnvel halda að Bítla-Páll hafi lúskrað á vesalings manneskjunni með silfurhamrinum hans Maxwells, sem Páll þessi saung hvað blíðast um hér um árið: Bang! Bang! Maxwell´s Silver Hammer came down upon her head. Clang! Clang! Maxwell´s Silver Hammer made sure that she was dead ...
mbl.is Ein og yfirgefin á fertugsafmælinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Hún er nú ekki dauð samt... látin meina ég.

Markús frá Djúpalæk, 12.1.2008 kl. 11:35

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki alveg dauð, en illa haldin.

Jóhannes Ragnarsson, 12.1.2008 kl. 12:20

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

En, gafst hún upp á rólunum.

Trúi aldrei neinu illu uppá Palla MakkKjartans. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.1.2008 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband