Leita í fréttum mbl.is

Bin Ladenstrákurinn og roskna konan

GrýlaSko bara litla Laden, hann hefir verið svo forsjáll að ná sér í roskna konu, sem er líklega tryggilega komin úr barneign. Það má með sanni segja, að ekki eru allir karlmenn svo skynsamir, að afla sér kvonfangs í hópi kvenna sem komnar eru við aldur. En menn af Osamabinladenættum láta ekki að sér hæða þegar kemur að merkisatburðum sem skipta máli. Gamli bin Laden er t.d. einhver sú alhroðalegasta grýla sem kapítalistum á Vesturlöndum hefur tekist vekja upp. Og svo er binladengrýlan römm að kröftum, að á hana bíta engin vopn, ekki einusinni kjarnorku- og napalmsprengjur, hvað þá byssukúlur eða tundurskeyti.

En af því að ladenarnir eru eins kröftugir og raun ber vitni, gæti vel hugsast að litli Laden ætti eftir að barna sína öldruðu eiginkonu, jafnvel þó hún sé algjörlega komin úr barneign. Annað eins hefir nú gerst ...  


mbl.is Sonur bin Ladens fær ekki að koma til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halló strákur.

Pabba strákur.

Cactus Buffsack (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband