Leita í fréttum mbl.is

Hvenær verður gerð húsleit í Valhöll?

valholl3.jpgFyrst sérstakur saksóknari er kominn í óstöðvandi húsleitarham, og er auk þess í sérstöku fantaformi, er varla langt að bíða að hann fari með her manns til leitar í Valhöllu, félgasmiðstöðvargreni ræningjaflokksins sem kennir sig við ,,sjálfstæði." Það er hverjum manni auðsjánlegt, að það verður að rannsaka tengsl hinn harðsvíruðu auðvaldssamtaka, sem í daglegu tali ganga undir nafninu Sjálfstæðisflokkur, við sína menn í atvinnulífi og viðskiptum, brennuvargana miklu sem skildu allt eftir í kaldakoli en eru samt óþreytandi við að lýsa yfir sakleysi sínu uppí opið geðið á illa sviknum landsins lýð.
mbl.is Umsvif aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Guðjónsson

Það gerir hann sennilega ekki því málið er tæplega

bankatengt.Hinsvegar hefði efnahagsbrotadeild lögreglunnar átt að vera farin þangað inn fyrir löngu.Hún hefði líka átt að vera búinn að fara á skrifstofu Samfylkingar og Framsóknar og heim til Árna Þórs eiganda VG banka. En margir þingmenn

og sveitarstjórnarmenn þessarra flokka voru sem

kunnugt er keyptir ( mútað). 

Einar Guðjónsson, 7.7.2009 kl. 19:26

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Segðu okkur meira, Einar, af þessum VG-banka og meintum eiganda hans.

Þá væri upplýsandi fá skrá yfir keypta þing- og sveitarstjórnarmenn og hverjir eru löggiltir eigendur þeirra.

Jóhannes Ragnarsson, 7.7.2009 kl. 19:35

3 Smámynd: AK-72

Hverjir eru þetta með Kjartani á myndinni?

AK-72, 7.7.2009 kl. 20:08

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Kannast ekki við neinn á myndinni nema Kjartan. Fæ þó ekki betur séð en að þar fari einhverjir verðlaunahrútar og kórónaðir uxar sem notið hafa sérstakrar velþóknunar framámanna Flokksins góða sem ræður húsum í Valhöll.

Jóhannes Ragnarsson, 7.7.2009 kl. 20:15

5 Smámynd: Kjartan Magnússon

Þegar svín fljúga verður gerð húsleit í Valhöll.

Kjartan Magnússon, 7.7.2009 kl. 20:19

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Fyrir mörgum árum síðan held ég að frímúraramenn hafi verið til húsa á Skúlagötu. Veit ekki hvort þeir eru þar ennþá.

það hefur alltaf snert mig óþyrmilega illa andlega að ekki mætti fréttast hvað þar fer fram. Fannst og finnst ennþá mjög óeðlilegt að ekki megi fréttast hvað þar fer fram. Eitthvað sem ekki þolir dagsins ljós? Hvers vegna þolir það ekki dagsins ljós?

Getur það verið heiðarlegt?

Hef stundum velt því fyrir mér hvort leynistarfsemi frímúraramanna sé komin í valhöll!

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.7.2009 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband