Leita í fréttum mbl.is

Óöld í ríki Stjörnusýslumannsins dyggđum prýdda

driver.jpgÉg veit ekki hvernig á ţví stendur, en mér finnst einhvernveginn ađ lögbrjótar gefi sér meira lausan tauminn í Árnessýslu en í öđrum sýslum á landinu. Reynist tilfinning mín fyrir ţessu grafalvarlega málefni rétt, er nćrtćkast ađ ćtla ađ í Árnessýslu séu yfirvöld svo vönkuđ og dofin ađ glćpamönnum finnist tilvaliđ ađ láta gamminn geysa ţar um slóđir eins og ţeim lystir. Ţó hélt ég ađ Árnesingar byggju svo vel ađ eiga einhvern naftogađasta dyggđum prýddasta Stjörnusýslumann landsins.

Ţađ er einhver fjárinn í ţessu dćmi sem ég kem ómögulega saman og heim.

Ţađ er til dćmis yfirmáta dularfullt og kúnstugt ađ lögreglan á Selfossi, sem heyrir beint undir Stjörnusýlumanninn ógurlega, skuli ekki hafi rankađ viđ sér fyrr en blindfulli sextugi karlinn var búinn ađ keyra jeppann sinn útaf og ofan í skurđ. Ţessir kauđar hafa greinilega aldrei heyrt fyrsta bođorđ lögreglumanna: Á skal ađ ósi stemma - međ lögum skal land byggja.

Nú verđur Stjörnusýslumađurinn á Selfossi ađ gjöra svo vel ađ rífa uppum sig buxurnar og hunskast til ađ gera lögregluţjóna sína ađ Lögreglumönnum, annars mun Árnessýsla líđa undir lok vegna óheftra afbrota, glćpa, stigamennsku og ölvunaraksturs. 


mbl.is Grunađur um ölvunarakstur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sćll; gamli góđi spjallvinur !

Kannski; okkur hér í Árnesţingi, skorti hreinlega STJÖRNU STRÍĐS SÝSLUMANN, Jóhannes minn ?

Ţiđ hafiđ ţó; ykkar kyrrláta Ólaf, í Hólminum.

Jah; hvađ skal segja.

Árnesingum; hafa veriđ mislagđar hendur, all lengi - ţó; Heimsborgarar séu, í uppsveitum - en uppfinningamenn góđir, í Flóanum, til dćmis.

Svona; ţér ađ segja, Jóhannes, ađ ţá eykst siđmenningin heldur, ţá komiđ er, austur yfir Ţjórsá - í Rangárţing, svo og; yfir Jökulsá, á Sólheimasandi - til Skaftfellzkra

Ţiđ; á Vesturlandi, njótiđ Snćfellsness, ríkulega - en viđlíka nes, skortir Suđurlandiđ, og má vera, ađ ţađ hafi ýmislegt ađ segja, ađ nokkru, um mun ţann; ótvírćđan, sem á ţesum landshlutum er, ţó vitaskuld, muni vel, um Vestmannaeyjar - okkar megin.

Međ beztu kveđjum; út undir Enni, vestur, ćfinlega /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráđ) 19.8.2009 kl. 01:08

2 Smámynd: Hafsteinn Viđar Ásgeirsson

Hafsteinn Viđar Ásgeirsson, 19.8.2009 kl. 12:48

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband