22.12.2009 | 15:36
Enn í dag er félagi Stalín elskaður og dáður
Hinir svokölluðu ,,andófsmenn gegn kommúnismanum" á tímum Sovétríkjanna voru sannkölluð þjóðfélagsplága. Þetta voru upp til hópa rottur, uppfullar af blygðunarlausri græðgi, óþverraskap og geðvillu. Þessi ófétu löptu, eins og kettir rjóma, upp allar lygar hinna kapítalísku glæpamanna á vesturlöndum og gerðu hvað þeir gátu, að dreifa þeim heima fyrir. Með tímanum verða þessar lítilmannlegu sálir taldar einhver verstu úrhrök heimsins þegar sagan mun dæma þá.
Mestur hefur áróður og lygar hinna vestrænt þenkjandi glæpahunda beinst að ofurmenninu og snillingnum, félaga Jósef Stalín, sem vissulega er einhver göfugast og besti leiðtogi sem nokkur þjóð hefur fengið að njóta. En þrátt fyrir linnulausar stórlygar og djöfulskap um félaga Stalín, á gamli maðurinn sér enn þann dag í dag, milljónir og aftur milljónir aðdáenda um víða veröld, sem telja eflaust milljarða ef allir væru taldir.
Andófsmenn minnast kommúnismans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:38 | Facebook
Nýjustu færslur
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
- Þegar líkin koma á færibandi inn á borð ráðherra
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 7
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 131
- Frá upphafi: 1539326
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 115
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Athugasemdir
Svona skrif eru móðgun við fórnarlömb kommúnismanns, hvort sem þú skrifar þetta í gamni eða alvöru.
Hrafna (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 15:52
Heill þér félagi Jóhannes.
Vel mælt !
Og skammastu þín Hrafn líklega Gunnlaugsson eða eitthvað þaðan af verra.
Níels A. Ársælsson., 22.12.2009 kl. 16:19
já hvað gerir til þótt kommúnistar hafi murkað líftóruna úr yfir hundrað milljón manns. þótt þeir hafi skotið saklaust fólk, búið til hungursneiðir þar sem konur og börn dóu umvörpum í úkraínu. þót að milljónir hafi verið sendir út í dauðan í Síberíu. þó aftur séu stundað enn í dag í nafni kommúnismans á þeim sem eitt sér til sakar hafa unnið er að tjá sig með jafn opnum hætti og þú gerir núna Jói.
ég verð að segja að ljótari sál og mannílsku hef ég hvergi séð eða hitt en þig. en kannski er ég full harður við þig. þú veist bara ekki betur enda hefur þú verið svo heilaþveigin að þú getur ekki annað en ausið út hatri og illsku til allra þeirra sem þú kemst í færi við.
vonandi finnuru frið í hjarta þínu um jólin og lærir að finna til með meðbræðrum þínum. þó þeir séu nú bara skítugt lið sem ekki hefur komist að sannleikanum um það hversu kommúnismin er göfugur og hversu heillarvænlegt það er að stunda fjöldamorð á konum og börnum.
Fannar frá Rifi, 22.12.2009 kl. 16:51
Fannar.
Þetta er allt lygi.
Það voru kapítalistar og auðvaldssvín með fulltingi Adolfs Hitlers og hans manna sem frömdu þessi voðaverk og klíndu því á kommúnistana.
Níels A. Ársælsson., 22.12.2009 kl. 17:35
Já og Fannar minn, gleðileg jól til handa þér og þínum.
Bestu kveðjur frá Tálknafirði.
Níels A. Ársælsson., 22.12.2009 kl. 17:37
Níels, Þið Jóhannes eruð greinilega álíka siðblindir og geðsjúkir og félagi ykkar Stalín ef þetta eru raunverulegar skoðanir ykkar (sem ég vona ekki).
Hver getur horft á sjálfan sig í spegli eftir að hafa dásamað þennan fjöldamorðingja? Ég vorkenni svoleiðis fólki.
Stalín og Hitler sitja nú á sama stað eftir dauða sinn og megi þeir brenna þar um alla eilífð.
Fólk sem horfir aðdáunar augum á svona samviskulausa, morðóða geðsjúklinga hlýtur að vera veikt.
Hrafna (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 17:37
Áður er liðsmenn hins vestheimska kapítalisma og nytsamir sakleysingjar þeirra fara að telja saman ímynduð fórnarlömb kommúnismans, ættu þeir að slá tölu á allar þeir hundruðir milljóna sem látið hafa lífið af völdum kapítalismans.
Hvað varðar félaga Jósef Stalín, þá hafði hann aðeins einn galla og hann var sá, að hann var dauðlegur eins og aðrir menn. Að öðru leyti var hann alfullkomin.
Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2009 kl. 17:52
Mikið djöfulli ertu sjúkur maður. Vildi innilega óska þess að þú myndir segja þetta opinberlega í Rússlandi eða fyrrum Sovét lýðveldi og ég get lofað þér því það yrði murrkað úr þér lífið.
Að svona komma rotta eins og þú skulir enn vera til í dag er vægast sagt ótrúlegt, og ekki reyna að kalla mig kapítalista því ég er það ekki en ég myndi kjósa það fram yfir kommúnisma viðbjóðinn hvenær sem væri.
Kommúnistar eru mannréttindabrotar, kúgarar, ógeðslega valdasjúkir fávitar sem hirða allt frá almúganum í þeim löndum sem þeir hafa stjórnað og allt gert fyrir blessaða 'jafnréttið'.
Líttu á Kína, Líttu á N-Kóreu, Líttu á fyrrv. Sovét Ríkin, Líttu á Kúbu, Líttu á Kambódíu.. ætlaru að halda áfram að segja að fórnarlömb kommúnista rottanna í þessum löndum séu 'ýminduð'?
Jonnsi, 22.12.2009 kl. 18:13
Ég ætla að vona að þú sért að grínast.
Ætlaru að fara réttlæta morð yfirvalda á saklausu fólki í milljóna tali? Ætlaru að réttlæta eignaupptökuna sem kommúnismar framkvæmdu í þeirri von um að skapa jöfnuð, en endaði með því að bændur sultu í milljónatali? Hvað er eiginlega að þér?
Hvað þykir þér um helförina og stjórnarhætti Hitlers og hver er munurinn á þessum tveim "dýrðlingum" í þínum huga?
Talandi um nytsama sakleysingja. Þú ert einn sá nytsamasti af þeim öllum á hinn veginn.
Hrafna (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 18:14
Kommarottur eins og Jóhannes og Níels púlla alltaf á mann að maður sé Kapítalisti ef maður er ekki sammála sjúku skoðunum þeirra, ótrúlegt.
Jonnsi, 22.12.2009 kl. 18:23
Heill og sæll Jóhannes; sem og þið önnur, hér á síðu hans !
Jóhannes og Níels !
Verð; að viðurkenna, að undrunar mikillar gætir, af minni hálfu, í ykkar garð, sökum orða hnippinga ykkar.
Kommúnisminn; var nákvæmlega, jafn mikill bölvaldur, allri veröldinni, sem Kapítalisminn hefir verið - og er enn, því miður.
Verð; að taka undir meginsjónarmið vinar míns, Fannars frá Rifi, þó; ......... hann hefði mátt útlista betur, hversu Kapítalisminn, og fylgi sveimur hans - andskotans frjálshyggjan, hefir leikið Heims kringluna.
Stalín Georgíski; var álíka hvimleið persóna - og Milton gamli Friedman reyndist vera, hér á Vesturlöndum, eins og á daginn er komið.
Hröfnu; verður að virða til vorkunnar, að hún er af Valhallar uppeldi Háaleitisbrautarinnar Reykvízku, og ber að taka henni, sem slíkri, svo sem.
Með beztu kveðjum þjóðernissinna - af hinum gamla skóla /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 18:26
Ógeðslegt hvernig þið upphefjið kommúnismann enda kannski ekki nema von þar sem þið (vinstri kommarnir) voruð þeir einu sem neituðuð að trúa því sem í ljós kom þegar múrarnir féllu. Þið sáuð bara það sem var þægilegt að sjá en ekki hitt. Segir mest um ykkur sjálfa.
Fórnarlömb kommúnismanns voru margfallt fleiri en nasismanns. Ekki heyrir maður marga dásama nasista nú til dags án þess að skammast sín.
EKKERT stjórnkerfi er fullkomið. Nei, ekki einusinni kapitalisminn. Enda hef ég aldrei haldið því fram.
En Kommúnisminn er eitt það grimmasta og spilltasta stjórnkerfi sem þekkst hefur undir sólinni. Því er ekki að undra að þetta stjórnkerfi er á undanhaldi. Kommúnisminn er falleg hugsjón, en framkvæmdin er hryllileg og getur aldrei orðið neitt annað en hryllileg þar sem kúga þarf múginn ofan í skítinn þar til hann liggur það hreyfingalaus og þorir ekki að opna á sér munninn til að andmæla, enda er sá sem andmælir drepinn samstundis.
Þetta er ÓGEÐSLEGT stjórnkerfi þar sem mannréttindabrot skipta engu máli. Það þarf að halda umheiminum í felum frá þeim þjóðum sem búa við þetta stjórnkerfi til að það átti sig ekki á því að það sé í raun til eitthvað betra og réttlátara stjórnkerfi.
Kommúnisminn er heldur valdhöfunum feitum á meðan almúginn þrælar á samyrkjubúum þar til hann sveltur.
Ég á ekki til orð yfir því að þið séuð að mæla þessu bót.
Hrafna (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 18:38
Skulum ekki gleyma því að Stalín lét loka saklausa andófsmenn hans inn á geðveikrahælum.. Á ég þá ekki heima niður á klepp?
Jonnsi, 22.12.2009 kl. 18:49
Jú Jonnsi. Ætli við yrðum ekki send þangað af Jóhannesi og Co ef þeir fengju að ráða.
Langar annars að spyrja ykkur kommúnistana af hverju allur þessi hungurdauði varð í Rússlandi á tímum Kommúnismanns og af hverju svo margir voru sendir í þrælabúðir á þessum tíma ef þetta var svona mikið snilldar stjórnkerfi með alla þessa snillinga við stjórn?
Þykir ykkur það ekki mikið tiltökumál?
Og af hverju var aldrei nein hagsæld í Rússlandi öll þau hvað, 70 árin sem Kommúnisminn var við lýði þar? Af hverju var engin uppbygging í tugi ára? Af hverju var almenningur bláfátækur með þessa snillinga við stjórn? Og af hverju urðu yfirvöld feitari og lifðu í vellystingum á meðan þjóðin þrælaði sér út og svalt?
Af hverju fékk lýðræðið ekki að njóta sín? Er það vegna þess að gráðugur geðsjúklingur var við völd í fjölda ára sem þorði ekki að sleppa beislinu af þegnum sínum af ótta við uppreysn? Af hverju voru yfirvöld svona hrædd við uppreysn þegnanna öll þessi ár ef allt var svona frábært og yndislegt?
Endilega hjálpið mér að skilja hvað það er sem fær ykkur til að upphefja þetta stjórnkerfi og geðskjúklinginn Stalín.
Hrafna (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 19:06
Þessir menn virðast ekki geta svarað einu né neinu.. ekki furða
Jonnsi, 22.12.2009 kl. 19:16
"Er eigi það einsýnt að við fylgjum ráði Þorgils frænda þíns, spurði Þormóður.
Enda erum við að landslögum réttdræpir hverjum manni hér á landi. Við munum fylgja ráði einskins manns, mælti Þorgeir Hávarsson.
Hitt er viturlegt að grípa nú gás meðan gefst; fara utan og leita á öðrum löndum þeirra konunga eða annara sæmilegra höfðingja er þiggja vilja þjónustu af hetjum og skáldum.
Er mér orðið helsti leitt að hlýða nöldri búkalla í konungslausu landi"
Hafið þið enga kímnigáfu drengir ?
Níels A. Ársælsson., 22.12.2009 kl. 19:39
Það tekur stundum á hjartaræturnar, að bera sannleikanum vitni á sinni eigin bloggsíðu. Hér fær maður yfir sig öskur og óp í brotsjóum af hálfu vanstilltra kapítalista, sem vita uppá sig skömmina.
Það væri svo sem hægt að hjálpa Fannari vini mínum, Hröfnu og Jonnsa að byrja að telja fórnarlömb kapítalismann. Það væri ágætt fyrir þá félaga að hefja samlagninguna á tveimur heimstyrjöldum á síðustu öld, morðherferð kapítalistanna á hendur Víetnömum, kjarnorkusprengingum sömu aðila í Japan og strísglæpinn í Dresden. Við þessa upptalingu geta þeir félagar svo bætt endalaust því glæpir kapítalistanna eru ekki fremur teljanlegir en eyjarnar á Breiðafirði.
Hinsvegar eru vammir og skammir vanstilltra manna á hendur Jósef heitnum Stalín lygaþvættinur frá rótum, sem ber innræti þeirra fremur ófagra sögu.
Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2009 kl. 20:00
Jóhannes. með þínum rökum og sjónarmiðum mætti halda því fram að helförin hefði aldrei átt sér stað. það er alveg jafn vitlaust.
þannig að ég spyr ykkur kommana. átti helförin sér stað?
Fannar frá Rifi, 22.12.2009 kl. 21:43
Jóhannes, Þú ert blindari en hauslaust hænsni.
Eyði ekki frekari orðum í siðleysingja og hræsnara.
Hrafna (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 21:56
Helförin, skilgetið afkvæmi kapítalismans, átti sér því miður stað. En svo kom hinn Rauði her Jósefs Stalín og stoppaði þann viðbjóð af.
En Hröfnu þessari get ég ekki hjálpað. Það er jafnframt borðliggjandi, að þó öll lækna- og lyfjavísindi heimsins legðu saman krafta sína til að líkna umræddum sjúklingi yrði allt það starf til einskis.
Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2009 kl. 22:24
og hvernig veistu að sagan um helförin sé ekki bara jafn mikil lýgi og sögurnar um voðaverk kommúnismans? er það trúinn Jói? er það trúin sem er svo sterk hjá þér?
Fannar frá Rifi, 22.12.2009 kl. 22:37
hahaha skynja ég troll? já ég skynja sko troll...látið hann jóhannes og kallinn hans níels, fara í taugarnar á ykkur...það veldur ykkur bara svefleysi
Sigurður Heiðar Elíasson, 22.12.2009 kl. 23:12
ekki fara í taugarnar á ykkur meina ég auðvitað uhm...
Sigurður Heiðar Elíasson, 22.12.2009 kl. 23:13
Ég ætla að vona, Fannar, að þú sért ekki orðinn einn þeirra múslima, sem afneita helförinni.
Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2009 kl. 23:21
Já kapítalisminn er búinn að gera okkur Íslendingum mikið vont, núna er fólki búið að fjölga sem vantar mataraðstoð í viku hverri. Fólk sem er að borga alla reikningana sína er ekki að geta leyft sér neitt. Er fólk ekki að átta sig á afhverju þetta er að gerast, að kapítalismi Hannesar,Davíðs,Þorgerðar K. og co kom okkur í þetta!
Enda eftir þessa löngu stjórn kapítalismans vorum við þrælar og erum enn meiri þrælar í dag. Við erum ekki að verða meiri þrælar í dag vegna skattlagningar heldur eru skattar að hækka á okkur af því að kapítalisminn(XD)er að láta okkur borga sukk nokkurra útvaldna núna.
Fannar á Rifi og hitt kapítalistalið ykkar sem hafið verið að kjósa sjálfstæðisflokkinn og framsókn eigið að sjá sóma ykkar í að borga skuldir sukksins sem flokkarnir og stefna þeirra kom okkur í!
Þið komuð okkur hinum í þetta!
Ásdís Helga Jóhannesdóttir, 23.12.2009 kl. 00:35
'Helförin, skilgetið afkvæmi kapítalismans, átti sér því miður stað. En svo kom hinn Rauði her Jósefs Stalín og stoppaði þann viðbjóð af'
Segðu mér að þú sért að djóka þarna ????
Rauði herinn kom og hélt ruglinu áfram, nauðgandi, pyntandi og myrðandi saklaust fólk og konur.
Jonnsi, 23.12.2009 kl. 03:24
Haha, þarna náði Jóhannes karlinn ykkur aldeilis upp strákar.
Snorri Bergz, 23.12.2009 kl. 14:36
Já og gleðileg jól Jóhannes. Bið svo að heilsa dóttur þinni...
Snorri Bergz, 23.12.2009 kl. 14:37
Já Stalín kallinn.. eru menn ekki annars búnir að fá sér svona Stalíngalla: http://www.tridentmilitary.com/new-photos25/stalin11b.jpg
Pétur Guðmundur Ingimarsson (IP-tala skráð) 23.12.2009 kl. 18:44
Hvar getur maður pantað svona Stalín galla Pétur ?
Þarf nauðsynlega að fá nokkra slíka.
Níels A. Ársælsson., 23.12.2009 kl. 23:08
Stalín var merkilegur maður. Hann vildi iðnvæða sovíetríkin sama hvað það kostaði, jafnvel þó það kostaði milljónir manna lífið í hungursneyðunum þar sem hann flest alla uppskeru til að eiga fyrir verksmiðjukaupum.
Á hinn bóginn voru fórnir þessar líklegast fyrir því besta þar sem án verksmiðjanna hefðu Þjóðverjar kannski getað sigrað sovétríkin, og þá hefðu enn meiri manns látið lífið.
Aftur á móti er gífurlega umhugsunarvert, hvort hann hafi verið að byggja upp iðnaðinn í landinnu af manngæsku, eða til að undirbúa sig fyrir stríð við þjóðverjanna, og þá er spurning, hefði hann ráðist á þá ef Þjóðverjar hefðu ekki ráðist á Sovétríkin. Eflaust, miðað við hvað Stalín var mikið í mun að útbreiða kommúnismanum í evrópu hefði hann ekki setið á rassinum meðan nasisminn næði völdum.
Það finnst mér samt alveg merkilegt að jafn meingallaður maður, sem Lenín sjálfur varaði við, sem vísvitandi neitaði að senda Leníngrad hjálp í þeirri von að intellectualistarnir(sem voru margir) í Leníngrad dræpust vonandi í umsátrinu, því hugsandi menn voru ljár í þúfu Stalíns, enda fannst honum málþóf og þvaður vera tímasóun. Þess vegna eru skoðanir á Stalín svona skiptar.
Ef þú ert sáttur svo lengi sem þú færð 3 kartöflur í soðið á dag, og villt finna sterkan leiðtoga sem enginn má véfengja(þar á meðal þú sjálfur) ertu Stalínsmaður. Gæti verið kallað maur líka.
Ef menn vilja vera sjálfstæðir í hugsun og gerð, og vilja gera eitthvað sem hjálpar þeim sjálfum í stað þess að strita allan liðlangan daginn til að halda uppi hálaunalífstíl ljúgandi sagnfræðinga í Háskólanum í Moskvu sem fá bankalaun fyrir það eitt að skálda upp sögu sem ríkjandi mönnum líkar, eða annan óþarfa sem ekki er sjálfbær, þá ertu ekki Stalínsmaður.
Arngrímur Stefánsson, 24.12.2009 kl. 12:51
Menn virðast sneyddir öllum húmor um jólin.
Páll Geir Bjarnason, 25.12.2009 kl. 02:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.