Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
31.8.2009 | 21:47
Að græða á heilsuleysi
Þeir eru ekki af baki dottnir græðgissjúklingarnir. Nú ætla einhverjir andlegir auðnuleysingjar og siðleysingjar sér að hefja byggingu á einkaspítala og heilsuhóteli á Íslandi fyrir ríka útlendinga sem orðnir eru ryðgaðir í knjám og mjöðmum af græðgi og ómennsku. Og ekki stendur á talsmanni þessarar samfélagsfjandsamlegu erkiheimsku að tíunda gjaldeyrisgróðann sem ,,heilsuspekúlasjónin" á að skila þjóðinni.
Nú skilst mér að á bak við íslensku heilsugróðasóttargemlingana standi amrískt ,,heilsufélag" þess albúið að styrkja gróðadæmið og styðja. Hvernig á því stendur að erlent félag vill starta slíku fyrirtæki uppi á Íslandi er mér hulin ráðgáta. Ef þessum endemum dettur í hug að nú sé lag að hreiðra hér um sig í skjóli bágrar stöðu efnahagsmála á Íslandi er aldeilis ekki víst að þeim verði að ósk sinni. Ég geri ráð fyrir að Ögmundur heilbrigðisráðherra slái óviðeigandi græðgisóra PrimaKer og Shiboomi ekki aðeins útaf borðinu heldur alla leið útí hafsauga. Veikindi fólks á ekki að vera náma fyrir veruleikafirrta og ósvífna peningageðsjúklinga. Heilbrigðismál eru samfélagsmál sem ber að nálgast á félagslegum grunni þar sem jöfnuður heilbrigð siðvitund eru höfð að leiðarljósi en ekki ójöfnuður og gróðasjónarmið.
Stefna að byggingu einkaspítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
31.8.2009 | 20:41
Alvarlegt ástand í Árnessýslu - Útgöngubann eina lausnin
Flúði frá lögreglu út á veg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2009 | 18:01
Gamla konan sem braust inn hjá nágrönnum sínum
Skárri eru það andskotans þjófarnir þarna í Reykjavík. Að stela þremur lambalærum úr verslun er enginn smáræðis glæpur. Svona ósvífni va ekki til á Íslandi fyrir fáum árum. Þetta ástand er áreiðanleg ríkisstjórn Samfylkingar og VG að kenna, ef mér skjátlast þá ekki því meir. Það var svo sem viðbúið að alda glæpa færi á stað um leið og vinstristjórn kæmist til valda. Þá var nú staða mála betri meðan Íhaldið og Framsókn búverkuðu. Á þeim góðu tímum keyptu menn hlutina áður en þeir stálu þeim.
Og svo var maðurinn sem þjófstal dilkalærunum þremur á fimmtugsaldri!!! Það hefði verið sök sér hefði þetta verið kona á áttræðisaldri. En karlmaður á fimmtugsaldri ... svoleiðis getur ekki gerst nema í barbaríinu. Ég man eftir gamalli konu sem braust inn hjá nágrönnu sínum að næturþeli og stal frá þeim mat og áfengi og eldhúsklukkunni. Þetta var séð kona, þessvegna komst glæpur hennar ekki upp. En á dánardegi játaði konan þjófnaðinn uppúr þurru auk nokkurra hjúskaparbrota sem öllum var sama um. Svo geyspaði sú gamla golunni, þannig að ekkert var hægt að gera.
Stal lambalærum úr verslun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2009 | 17:14
Fjárdráttur á ódrætti ofan - Nú verður Láfi að sperra stél
Það á ekki af Láfa karlinum Magg að ganga í pólitíkinni. Öll hans pólitíska sigling hefur fram að þessu verið ein alsherjar svaðilför og verður að teljast ólíklegt að hann nái nokkru landi úr þessu. Framganga Láfa minnir um margt á mann nokkurn sem vafraði fótgangandi frá Eyrarbakka í ótryggu veðri um hávetur og ætlaði til Reykjavíkur. Áður en maður þessi komst að Hellisheiði hafði hann dottið ofani þrjá skurði, hálffulla af vatni, orðið fyrir barðinu á vindhviðu sem feykti honum á gaddavírsgirðingu og stungist á höfuðið niður í gjótu sem á vegi hans varð. Og á bæ einum í Ölfusinu var meira að segja sigað á hann grimmum rakka, sem beit han í annan kálfann og reif buxnaskálmina í tættlur frá hné og niðrúr. Ferðin yfir Hellisheiði varð að vonum ein táravekjandi sorgarsaga með vegvillum, byltum og svæsnum reimleikum eftir að tók að skyggja. Viku eftir að hinn ólánssami ferðalangur lagði upp frá Eyrarbakka fannst han freðinn fyrir ofan Elliðavatn, svo illa útleikinn, að stúlkurnar sem gengu fram á líkið hafa aldrei náð sé síðan, ekki verið mönnum sinnandi og grátið flestar nætur af sannri skelfingu.
Og nú stendur til að kæra Láfa Magg fyrir fjárdrátt ofan á alla þá aðra ódrætti sem honum hafa fallið í skaut á síðustu árum. Nú ríður á að Láfi þenji brjóst og sperri stél og segi andskotum sínum að grjóthalda kjafti og fara til fjandans, annars er hætt við að hann verði úti á freðmýrum stjórnmálanna.
Saka Ólaf F. um fjárdrátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.8.2009 | 09:51
Sjúkir tóbaksfasistar farnir þefa af fötum fólks
Satt að segja væri nær að kenna börnunum í leikskólum Stokkhólmsborgar að reykja fremur en að andskotast í borgarstarfsmönnunum útaf meintum tóbaksþef úr fötum þeirra. Og hverskonar fólk er það sem leggur sig í framkróka með að þefa af fötum annarra? Karlmaður sem er uppvís af því að bregða kvennærbuxum upp að vitum sér á almannafæri er er undantekningarlaust tekinn úr umferð og látinn sæta geðrannsókn. Á sama hátt á að taka tóbaksreykingafasista, eins og þessa í borgarstjórn Stokkhólms, og skikka þá í geðrannsókn til að ganga úr skugga um hvort forsvaranlegt sé að láta þá ganga lausa.
Það fer ekki á milli mála að reykingafasismi er orðinn alþjóðlegt vandamál, sem verður að bregðast við af fullri hörku. Hinum illgjörnu og nautheimsku reykingafasistum virðist algjörlega fyrirmunað að sjá hinn mikla þjóðhagslega ávinning sem felst í að starfsmenn fyrirtækja setjist annað slagið niður og fái sér rauðan winston og kaffibolla. Krafa dagsins hlýtur því að felast í slagorðinu góða: Winstoninn aftur inn á vinnustaðina!
Reykpásur bannaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2009 | 07:51
Þegar lúsin hvarf að mestu úr samfélaginu
Ekki eru það góð tíðindi að hin illræmdu samtök, Hells Angels, séu við það að nema land á Íslandi. Það er margfalt meira en nóg fyrir guðsvolaða íslendinga að þurfa að burðast með Sjálfstæðisflokkinn og Framsókarflokkinn svo að Helvítisenglarnir á mótorhjólunum bætist ekki við þá óhuggulegu flóru.
Um aldir herjaði sá hvimleiði fénaður lúsin á skinhoraða kroppa íslendinga. Þegar lúsin lét loks undan og hvarf að mestu úr samfélaginu tóku Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn við og sýndu sig í að vera hálfu verri en lúsin. Og árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa: Kláðagemlingum íhalds og framsóknar tókst loks, eftir harð sókn, að ríða gjörvöllu þjóðfélaginu á slig síðastliðið haust.
Nú er að hefjast, að mér skilst, pólitísk og samfélagsleg aflúsun á Íslandi og liggur mikið við að vel takist til. En ég á nú eftir að sjá að það verði einhverntímann barn í brók.
Hells Angels til Íslands? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2009 | 21:03
Hjónaband Kolbeins er gegnsýrt af kynlífsþrælkun
Út frá hinni skelfilegu frétt um þann geggjaða Garrido og fórnalamb hans, kemur mér í ójálfrátt í hug Kolbeinn, vinur okkar allra, og sá últraterror sem hann hefur mátt þola af frú Ingveldi eiginkonu sinni í stinn 30 ár. Okkur, sem teljumst vinir og kunningjar Kolbeins, hefur aldrei dulist að hjónband hans er gegnsýrt af kynlífsþrælkun og ofbeldi af hendi frú Ingveldar. Frá fyrsta degi hefur frú Ingveldur, af sinni óslökkvandi girndargreddu, notað eiginmann sinn eins og sálarlaust og tilfinningalaust kynlífsverkfæri. Viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, hefur Kolbeinn mætt til vinu sinnar á morgnana úttaugaður og svefnlaus með svarta bauga undir báðum augum og svo heillum horfinn að minnt hefur einna helst á ofspýtt hundsskinn. Þrívegis hefur Kolbeinn verið vistaður á Kleppi, algeggjaður og með froðu um munnvikin, vegna hroðalegrar meðferðar frú Ingveldar á honum. Þó tók steininn úr hér um árið þegar frú Ingveldur tók uppá að lokka vinkonur sínar í kvenfélaginu Árroðanum til að svala ónáttúru sinni á Kolbeini ræflinum. Þá varð honum svo um, að hann gekk af vitinu í heila sex mánuði.
Síðast þegar ég frétti af heiðurshjónunum Kolbeini og frú Ingveldi voru þau komin með malasískan þjón inná heimilið. Þá fór ekki hjá því að eitt og annað kæmi uppí hugann. Og satt að segja kæri ég mig ekkert um að segja frá því opinberlega hvað ég sá fyrir hugskotssjónum mínum. En Kolbeini verður ekki bjargað úr þessu, svo mikið er víst. Hann er nefnilega löngu ánetjaður dýrslegu soraeðli eiginkonu sinnar og lítur á hana sem frelsara sinn og bjargvætt í lífinu; telur sem sé að hann hefði orðið öskutunnuróni og illþýði ef hann hefði ekki borið gæfu til að kvænast frú Ingveldi.
Ber sterkar tilfinningar til Garrido | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.8.2009 | 16:12
Til hvers að fara í nærbuxur, eska?
Yfirlýsing bjartsýnisboltans Gunnars Jósefssonar, þess efnis að hann ætli að opna vídeó sitt aftur eins fljótt og auðið er eftir að eldur hafi verið lagður að því, minnir mig á samtal tveggja heiðurseinstaklinga fyrir 35 árum. Þannig var að maður nokkur, mætur og glaðsinna, hringdi í frillu sína laust eftir hádegi á sunnudag og óskaði eftir að hún kæmi til fundar við sig. Frillan var eitthvað treg til, kvaðst ekki vera komin á fætur, auk þess hálfslöpp og af sér gengin eftir jörvagleði laugardagins. Minn maður var ekkert uppá það kominn að gefast upp við svo búið og eggjaði frillu sína lögeggjan að hafa sig á kreik. Loks kom þar að, að frillan var að því komin að láta undan þrýstingnum og sagði sem svo, að þá yrði hún víst að byrja á því að fara í nærbuxurnar. - Til hvers eska?, spurði maðurinn forviða. - Til hvers að fara í nærbuxur eska?, - það er bara til að fara úr þeim aftur, eska. Við að heyra skoðun elskhugans á umræddu nærbuxnamáli féll frillunni allur ketill í eld og afþakkaði alfarið heimboðið með þeim orðum að hún væri fárveik, með 40 siga hita og bullandi niðurgang.
En næstu helgi var frúin búin að ná sé að fullu og brunaði eins og tignarleg freigáta til fundar við kunningja sinn magakveisulaus, hitalaus, og að sjálfsögðu nærbuxnalaus!
Já, eska.
Opnum eins fljótt og hægt er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2009 | 13:27
Það verður stríð ef eineltinu linnir ekki
Það er með eindæmum hvað helvískum dönunum er umhugað að koma óorði á íslendinga. Við munum öll þegar þessi gerpi réðust eins og hýenur að íslenskum fjáraflamönnum og íslensku efnahagslífi með fáheyrðu orðbragði um sjónhverfingar, spilingu og yfirvofandi hrun. Þá vildi svo vel til að við höfðum einörð stjórnvöld og grandvör, sem brugðust við dónaskap dananna með því að senda Gjeir forsætisráðherra og skörunginn Ingibjörgu Sólrúnu á vettvang til að skakka leikinn og troða lygum dana óþvegnum ofan í kokið á þeim.
En illgjörnum dönum er ekkert heilagt þegar Ísland og íslendingar eiga í hlut. Nú ráðast þeir af heift á íslenska ferðakonu og bera henni á brýn að hafa í fórum sínum eiturlyf í föstu og blautu formi. Auðvitað er þessi áburður á konuna helber lýgi, það segir sig sjálft. Við þessum tíðindum verða stjórnvöld að bregðast, eki síðar en í dag. Nú verður Jóanna að gjöra svo vel að taka Steingrím J. með sér til Danmerkur og freista þess að frelsa konuna og troða aðdróttunum dana í hennar garð oní rassgat á þeim.
En eitt er víst: Ef einelti dana á hendur okkur linnir ekki verðum við að leita hefnda. Í því sambandi liggur beinast við að taka Færeyjar af dönum, með vopnavaldi ef ekki vill betur. Það verður stríð. Meira segi ég ekki.
Stöðvuð í Billund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.8.2009 | 19:42
Samansafn höfuðveikra skammarkvikinda eða glæpasamtök?
Bjarni Ben II og aðrir hottinteglar og skoffín í Sjálfstæðisflokknum ættu að láta ógert að tala opnberlega um að ríkisstjórnin eigi að segja af sér. Þessháttar ósmekklegur kjaftháttur hljómar eins og þegar brennuvargar hafa á orði að nauðsynlegt sé að reka slökkvilið burt frá brennandi húsi. En svokallaðir ,,sjálfstæðismenn" kunna ekki að skammast sín og eiga víst aldrei eftir að læra þá list, vegna þess að fluga nokkur hefur komið því inn í heilabú þeirra lítil, að þeir eigi allt og megi allt.
Látum nú vera ef Sjálfstæðisflokkurinn væri einugnis samansafn höfuðveikra skammarkvikinda. Þá væri óþarfi að hafa nokkrar áhyggjur. Staðreyndin er hinsvegar sú, að Sjálfstæðisflokkurinn er fyrst og fremst slóttug glæpasamtök, sem tekist hefur að gera Ísland að einu alsherjar ræningjabæli og hórdólga, sem komið hefur þjóðinni á vonarvöl fátæktar og landflótta.
Í ljósi ofangreindrar staðreyndar er algjör óþarfi að láta dragast úr hömlu að ganga hreint til verks og banna þessi skugglegu samtök ódáma og óyndismanna með lögum frá Alþingi. Það varðar nefnilega við þjóðarhag og þjóðaröryggi að láta illræmd mafíusamtök, jafnvel þó þau sigli undir fölsku flaggi stjórnmálaflokks, fá að athafna sig að vild eins og ekkert hafi í skorist. Tómlæti réttkjörinna stjórnvalda gagnvart slíkri vá flokkast hiklaust undir glæp gegn fólkinu í landinu.
Víki verði fyrirvörum hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 11
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 236
- Frá upphafi: 1539527
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 203
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007