Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
4.9.2009 | 11:19
Óráðskallinn Askinaski mærir yfirspenntan snobbismaviðbjóð
Helvítis rugludallur getur þessi ekkisens Askinaski verið, segist hafa fengið ,,innblástur" við að tipla um um hið afkáralega minnismerki um vitfirringu frjálshyggjugræðgisáranna í Austurhöfn Reykjavíkur, tónlistarhöllina miklu sem til stendur að henda meira en 30 milljörðum í áður en yfir lýkur. Það væri gaman að vita hverskonar trekkvindur það var sem blés anda sínum inní rörið á Askinaski. Þó að Askinaski sé þrautseigur píanóglamrari og víðfrægur sem slíkur á Íslandi, þá er ekki þar með sagt að fjölmiðlar eigi birta óráðshjalið í karlskepnunni ómelt.
Að mæla með tugmilljarða tónlistarhúsi á sama tíma og þjóðin liggur hryggbrotin í blóði sínu eftir aðfarir allrahanda frjálshyggjubrjálæðinga er raun og sannleika ekkert annað últrafáránlegt óráðshjal. Það er með algjörum endemum að Ríkið og Reykjavíkurborg séu látin ausa ótrúlegum fjárhæðum í slíkan yfirspenntan snobbismaviðbjóð. Það etur andskotann ekki annað verið, en að þeir sem standa fyrir þessum ósköpum eigi við alvarleg geðræn vandamál að stríða, sennilega geðkrabba eða stökkbreytt geðfár.
![]() |
Ashkenazy feðgar í sviðsljósinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.9.2009 | 07:44
Hvað hefur svavarsvæðingin kostað VG
Það er akkúrat það já. Flaggskip svavarsvæðingarinnar í VG, Svandís Svavarsdóttir, er á því að mútugreiðslur Landsvirkunnar til hottinteglana í hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ekki kemur þó fram, samkvæmt mbl.is, hvaða spurningar það eru sem koma upp í kollinn á frú Swandeesi varðandi þetta skítamál utan einhverjar vangaveltur um ,,miðlægan" sjóð sem hreppsnefndir gætu sótt í vegna skipulagsmála.
Hinsvegar væri fróðlegt að vita hvað Svandís og hennar ættingjar og venslamenn hafa önglað saman mörgum krónum úr sjóðum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs síðan svavarsvæðingin hófst í VG. Ennfremur væri uppbyggandi fyrir almenna félaga í VG að fá vel útlistaða skýrslu um hvað það hefur kostað VG að hafa dekurdýrahjörð Steigríms J. og flokkselítunnar á fóðrum síðasliðin 10 ár.
Það er víst víðar spilling en i Hákoti, eins og kerlingin sagði þegar karlinn hennar kom heim með aurana sem hann fékk fyrir að halda kjafti um kvótasvindl sægreifans í þorpinu.
![]() |
Mál sem vekur upp spurningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.9.2009 | 22:57
Jóhanna lætur ekki að sér hæða
Ekki lætur hún að sér hæða fremur en fyrri daginn blessunin hún Jóhanna Sigurðardóttir. Og nú er hún farin að skrifa bréf til starfsbræðra sinna. Ég segi nú eins og gamli maðurinn, sem varð vitni að þegar Sigurður Snorrason bífalningsmaður konungs og Jón Hreggviðsson snærisþjófur ofan af Skaga komu að Þingvöllum til að höggva niður einu sameign íslensku þjóðarinnar, klukkuna á gafli Lögréttuhússins: ,,Og það veit ég. Bréfin eru orðin mörg. Og það er margt bréfið."
Jóhanna Sgurðardóttir á að baki æði skrautlegan feril, ekki vantar það. Árið 1991 stökk hún eins og landafjandi úr ,,vinstristjórn" til að koma á laggirnar stjórn undir forsæti Davíðs Oddssonar. Þar með lyfti hún Davíð uppí hæstu hæðir stjórnmálanna og ruddi brautina fyrir fyrir hina illræmdu frjálshyggjupólitík, sem reið húsum á Íslandi næstu 18 árin, eins og draugurinn Glámr forðum tíð, og reið að lokum efnahagslífi þjóðarinnar til andskotans. Reyndar launaði kálfurinn Davíð krötunum fyrir ofeldið fjórum árum síðar með því að kasta þeim fyrir borð og taka upp eftirminnilegt hórdómssamband við gömlu Framsóknarmaddömuna og húskarla hennar, Halldór Ásgríms og Finn Ingólfs. Þegar Davíð og Halldór höfðu höggvið niður og mölvað flestar sameignir íslendinga, eins og Sigurður böðull og Jón snærisþjófur af Skaganum gerðu nokkrum öldum áður, var Framsóknarmaddaman orðin svo ellimóð og upp að knjám gengin að sjálfstæðisflokksmenn fleygðu henni fyrir borð líka. Ekki var maddaman fyrr sokkin en Jóhanna Sigurðardóttir, nú undir merkjum Samfylkingar, var skriðin uppí útbíað bælið hjá íhaldinu.
Ójá, - það er marg bréfið. Og ég er ekki einusinni viss um hvort Jóhanna frjálshyggjujafnaðarmaður viti nokkurn skapaðann hlut um hvað bréfin hennar til starfsbræðrana ganga útá. Þau geta þessvegna fjallað um mataruppskriftir eða æxlunaraðferðir hunda, - nú eða loforð um áframhaldandi frjálshyggju og skilyrðislausa undirgefni við gamlar nýlenduherraþjóðir í ESB. Hver veit?
![]() |
Bréf til Hollands og Bretland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.9.2009 kl. 07:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.9.2009 | 18:08
Sumir hafa ágætt tilefni til að skemma lúxusbíla
Ef einhver heldur að skemmdarverk á lúxusbílum séu af tilefnislausu þá fer sá hinn sami algjörlega villurvega. Það vill nefnilega svo vel til að smákrökkum og unglingum þykir fjarskalega gaman að rispa rándýra eðavagna með góðum oddhvössum verkfærum. Það fer víst alveg sérstök vellíðunarbylgja um ungar sálir þegar þær urga hníf, skrærum eða skrúfujárni gegnum kolsvart lakk á 10-20 milljón króna bifreiðum. Nú, sumir hafa átt erfitt með að venja sig af þessum sið og átt í heiftarlegri sálarstyrjöld við sjálfa sig þegar þeir hafa séð álitlegan, kyrrstæðan milljónafarskjóta álengdar.
Svo er til önnur manntegund, sem fer öðruvísi að gagnvart bifreiðum í háum veðflokki, en það eru ,,þvagbrandarnir" svo nefndu. Eins og nafnið bendir til sitja þvagbrandarnir um að míga á bíla burgeisa og grósséra, og helst inní þá ef aðstæður leyfa. Ég hefi meira að segja spurnir af konu nokkurri sem er þagbrandur og lætur aldrei tækifæri til að míga á glæsivagna fram hjá sér fara. En hvernig konan ber sig að við iðju sína er mér hulið og læt ég þessvega lesendum þessa pistils eftir að gera sér verklag hennar í hugarlund; sjái hana fyrir hugskotssjónum sínum mígandi á fallegan bíl.
![]() |
Lúxusbílar skemmdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.9.2009 | 22:00
Fyrir 38 árum - meira um geðstygga olísmenn
Samkvæmt orðanna hljóðan í grein mbl.is, ,,Starfsmaður á plani réðist á viðskiptavini" er svo að skilja að umræddur starfsmaður hafi hjólað í hóp af fólki og haft alla undir, að öðrum kosti hefðu aðrir starfsmenn bensínstöðvar Olís í Norðlingaholti ekki þurft að koma fólkinu til aðstoðar. Af því má ljóst vera, að hinn viðskotailli starfmaður er ekki minna en heljarmenni að burðum, margra manna maki eins og það er kallað.
Annars er þetta ekki í fyrsta skipti sem starfsmaður Olís gerir aðsúg að viðskiptavinum. Fyrir nákvæmlega 38 árum varð vini mínum, Jóhannesi Jóhannessyni, sundurorða við svona starfsmann útaf dráttarvélum. Að undangengnum hótunum greip hinn önugi og rökþrota starfsmaður til þess óyndisúrræðis að læsa krumlu sinni í hnakkahárið á Jóhannesi vini mínum og mismuna honum útá stétt með viðeigandi blótsyrðaflaumi og fyrirgangi. Þegar starfsmaðurinn hafði þannig varpað Jóhannesi á dyr og látið aftur hurðina sneri hann sér alvarlegur í bragði að mér og sagði valdsmannslega: - Þetta er nú meira helvítis fíflið þessi drengdjöfull! Þar með var þessu dráttarvélarmáli lokið fyrir fullt og allt.
Með innslaginu um olíssjoppumanninn, Jóhannes nafna minn og dráttarvélarnar er ég alls ekki að ýja að því að náunginn í Norðlingaholtinu hafi ráðist að viðskiptavinum Olís útaf einhverjum traktorum eð þvíumlíku. Fjarri því. Hinu er ekki að neita, að dráttleysi, stundum kölluð ,,brund-íllska" hefur hlaupið með margann góðan manninn í gönur - en ég er heldur ekki að ýja að því að hinn geðstyggi starfsmaður Olís í Norðlingaholti sé haldinn þessháttar sjúkdómi eða öðrum í þeim dúr.
![]() |
Starfsmaður réðist á viðskiptavini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2009 | 20:06
Hafi félagi Ólafur Ragna heila þökk fyrir skjót viðbrögð
Auðvitað staðfesti félagi herra Ólafur Ragnar Grímsson lögin um ríkisábygð vegna Icsave-samningana. Það var heldur ekkert annað í spilunum. Við skulum athuga að Icesave-samkomulagið er komið til vegna þess að hópur Íslendinga framdi stórglæp á erlendri grund, sem öll þjóðin verður að neyðast til að taka ábyrgð á. Nú, þó svo að einhverjir klepraðir snatar úr Stjálfstæðisflokknum og Framsókn hafi tekist að ljúga út undirskriftir nokkurra saklausra einfeldninga á plagg, þar sem skorað var á félaga Ólaf Ragnar að staðfesta ekki lögin um ríkisábyrgðina, datt forseta lýðveldisins aldrei til hugar að ansa þvílíku endemis rugli, hvar undir lá illgirni og sjúkt hugarfar áðurnefndra kleprarakka úr frjálshyggju-hrunaflokkunum.
Hafi félagi herra Ólafur Ragnar heila þökk fyrir að bregðast fljótt við og staðfesta lögin um ríkisábyrgð vegna Icesavesamningana. Við megum heldur aldrei gleyma, að Icesave-glæpurinn er skilgetið afkvæmi Sjálfstæðisflokksins.
![]() |
Forsetinn staðfestir Icesave-lög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
2.9.2009 | 10:45
Fótbrotnaði á flótta undan skapstyggum eiginmanni
![]() |
Slasaðist á hlaupum undan vistmanni á sambýli |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er nú allt gott og blessað með handspregnjuna sem fannst við leikskólann á Norðurbrú. Raunar eru handsprengjur varla nema í meðallagi hentug barnaleikföng, en það er af því að þær geta sprungið í höndunum á krökkunum og gert heilmikinn óskunda. Þó veit ég um pilta, vart af leikskólaaldri, sem sprengdu upp dyrnar á búri ömmu eins þeirra með heimagerðri vítisvél og rændu öllu sem þeim þóknaðist úr búrinu og höfðu á brott með sér. Meðal þess sem drengirnir stálu af ömmunni var nálega full flaska af White horse viskýi, sem þeir drukku úr niðri í fjöru í skjóli við háa bakka.
En svo ég víki loks að öllu alvarlegra máli, þá virðist sem mönnum hafi yfirsést hver hætta er fólgin í svokölluðum hlandsprengjum. Svo ég útskýri málið nánar, þá eru hlandsprengjur digrar konur og þungar með fimmfalda upphandleggi, tröllsleg læri, mikla og þykka síðu og tveggja sæta botn. Ef við bætist að svona hlandsprengja hafist vart við í skinninu af froðufellandi vergirni er sannarlega mikil hætta á ferðum. Vinur minn, Páll heitinn Ólafsson, lét það verða sitt síðasta verk að fara uppí rúm með einni slíkri forynju. Það varð hans banabit. Helblár og steindauður var hann dreginn úr bæli hlandsprengjunnar, sem bar sig að vonum illa því að Páll heitinn kafnaði undir henni í miðjum klíðum.
![]() |
Handsprengja fannst við danskan leikskóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2009 | 16:41
Yfirvaraskegg eins og á Jóni róna
Það er áreiðanega mikil lyftistöng fyrir vesalings Ísland, sem fór svo illa út út alþjóðlegu fjármálakreppunni, að einhverjir auðvaldsbelgir veiti Vigdísi Finnbogadóttur, kerlingaálkunni svornu, það sem þeir af græðgisvæddri fávísi sinni kalla ,,Eldmóðsverðlaun."
Ekki er að efa að frú Vigdís, sem einlægt kann svo undur vel við sig í uppúrskrúfuðum snobbaraselskap, mun taka sig vel út með eldmóðsorðuna framan á bringunni. Verst er að kerlingin skuli ekki hafa komið sér upp dálaglegu yfirvaraskeggi því að svoleiðis skegg fer einstaklega vel við orður í barminum. Aldrei gleymi ég þegar Jóni róna var veitt Stóra Brennivínsorðan fyrir nokkrum árum síðan. Þegar Jón róni tók við orðunni var hann með þykkt, gráspengt yfirskegg sem farið var að gulna örlítið fyrir neðan nasirnar. Og mikið helvíti var karlandskotinn virðulegur með skeggið og orðuna.
Svo má ekki gleyma, að sjálf er Vigdís þrælvön að hengja orður á allrahanda hlandpresta og þurrpumpudrottningar. Fálkaorður, riddarakrossa og stórriddarakrossa hengdi hún í tonnum utaná þetta skringilega fólk. Um slíka iðju hafði Magnús sálugi Kjartansson þau orð, ,,að nú tíðkaðist að hengja krossa á ræningja en ekki ræningja á krossa."
![]() |
Vigdís fær Eldmóðsverðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.2.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 65
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 63
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007