Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011
12.2.2011 | 20:28
Miskunsami Samverjinn í öðru veldi starfar á meðal vor.
Ekki trúi ég að stórsósíalistarnir í bæjarstjórn Kópavogs, Óli góði og varastýra hans, Guðný Dóra Svavarssystir á Gljúfrasteini, hafi verið með í að sparka öðlingnum Jónasi Ingimundarsyni eins og illa þefjandi hundskvikindi frá störfum fyrir Kópavogsbæ og draga hann síðan inn aftur lemstraðan og forugan.
Óli góði, stórsosíalist og Svavarssystirin á Gljúfrasteini eru nefnilega heilagir hámenningarsinnar (sumir segja skinheilagir) og taka ekki þátt í að ausa merkileg menningarljós kamarafurðum og ýldu. Ekki hefur enn að minnsta kosti heyrst að Guðný Dóra, staðarheldari og bitlingsþegi að Gljúfrasteini í Mosfellsdal, hafi nokkru sinni tekið í hornin á Haldóri Laxness og sveiflað honum öfugum útum stofugluggann á Gljúfrasteini. Og um menningarást og listelsku Óla góða þarf ekki að fjölyrða: hann er sjálfstætt listaverk útaf fyrir sig og af honum slær björtum bjarma sannarar menninga svo fólk fær ofbirtu í augun hvar sem hann ber fyrir.
Það liggur því í augum uppi, að það vóru Guðríður (ekki Tyrkja-Gudda) og bæjarstjórinn á bílnum sem lögðu höndur á tónlistarráðunautinn og vörpuðu honum fáklæddum útá strætið. En Óli góði og Gvöðný Dóra báru hann inn aftur eins og miskunsami samverjinn í öðru veldi, vöskuðu hann upp, hátt og lágt, með grænsápu, kreólíni og helvítissteini, bundu um sár hans og settu hann loks niður við píanóið og buðu honum að leika Hamraborgina.
Á þessu má sjá hverjir það vóru sem reyndust náungar Jónasar þegar í harðbakkann sló.
Uppsögn Jónasar afturkölluð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.2.2011 | 23:53
Þegar afturúrsiglarar gera sig að enn meiri fíflum
Hvaða bölvaðir ekkisens hlandaular og afturúrsiglarar eru það eiginlega sem hafa látið sér til hugar koma að dóttir frægs og ástsæls sendiherra og samningamanns fari að segja af sér útaf einum skitnum hæstaréttardómi, eða öllu heldur Sjálfstæðisflokksréttardómi. Það eru þó ljótu vitleysingarnir sem láta sér dreyma þvílíka reginheimsku um hábjartan dag.
Nei, hún Swandéesý okkar lætur ekki einhverja labbakúta, auðvaldsperverta og stóriðjuöfgadólga hræða sig og mun ótrauð halda áfram að velgja þessháttar dusilmennum undir uggum með skeleggri framgöngu og stórbrotnum ræðuhöldum í kansellístíl, sem löngum hafa verið mjög í tísku hjá flokkseigendaelítu VG. Hún mun taka þá einn af öðrum á kné sér og flengja þá stórhýðingu eins og ódæla smásveina, - sem betur fer.
Annars væri allmörgum stjórnmálauppskafningum Sjálfstæðisflokksins nær að huga að eigin afsögnum en gera sig að fíflum með því krefjast digurbarkalega afsagnar Swandeesar. Þeim hlotnaðist, sem maður segir, sá góði heiður og vitnisburður, að verða kallaðir menn að meiri ef þeir létu sig hverfa orðalaust af vettvangi stjórnmálanna.
Svandís segir ekki af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.2.2011 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.2.2011 | 23:07
Raunir Bjarnhéðins bryta og vélabrögð Andskotans
Þetta er því miður ekki í fyrsta skipti sem menn lenda í vandræðum í með potta, þá andstyggilegu uppáfindningu Satans.
Við sem órum skipsfélagar Bjarnhéðins bryta, hér fyrir margt löngu, munum eins og gerst hafi í gær þegar hann komst í mestu ógöngur með potta sína. Tildrög þess máls voru á þá leið að Bjarnhéðinn hafði þá um nokkurt skeið verið býsna öfgafullur í áfengisneyslu, var eiginlega orðinn óreglumaður sem átti það til að gleyma að gefa okkur að éta á venjulegum matmálstímum; átti til að hafa stórsteikur á boðstólum klukkan hálfsjö á morgnana og eldaði þá gjarnan ekkert næstu 1 - 2 sólarhringana á eftir.
Svo kom að því dag einn að Bjarnhéðinn kom afar áhyggjufullur að máli við mig, kvaðs alveg ráðalaus með helvítis pottana því honum tækist ekki með nokkru móti að koma svo mikið sem einum vatnsdropa ofaní þá, hvað þá meir. Ég brást vel við erindi míns ástkæra yfirfóðrara og gekk með honum fram í eldhús. Þar sá ég tvo potta á rauðglóandi eldavélinni og sneru báðir botnumum upp. Ég bað matreiðslumeistarann sýna mér í hverju vandi hans væri fólginn og tók hann þá þegar að ausa vatni á pottana, sem rann auðvitað beint útaf þeim og ofaná eldavélina þar sem það varð samstundis að gufu með háværu hvissi og snarki. - Helvítis vatnið tollir með engu móti í pottunum, sagði Bjarnhéðinn, svo gjörsamlega mát að hann átti ekki fóður undir fat. - Nú, þeir snúa öfugt, svaraði ég og sneri pottunum á réttan kjöl. Þegar Bjarnhéðinn sá eftir dágóða umhugsun að ég hafði lög að mæla þakkaði hann mér innilega fyrir og varð svo glaður að hann sauð okkur í snarheitum kekkjótta aspassúpu, sem hann fullyrti að væri heimsins besta súpa og dásamlegur matur.
Eftir að hafa leyst vandamál Bjarnhéðins bryta hefi ég haft hálfgerða skömm á pottum og jafnan talið þá lymskufyllri vélabrögðum Andskotans. Enda kvað Andskotinn upphaflega fundið pottinn upp til að sjóða í sálir vondra manna og kvenna.
Pottur gleymdist á eldavél | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2011 | 17:57
Frægur fyrir að læsa sig úti á alltof litlum nærbuxum
Það telst vart til tíðinda á vissum bæjum að húsráðandinn læsi sig úti á nærbuxunum. Til dæmis þekki ég vinsælan viðskiptafræðing, sem einnig er gott tónskáld, sem hefur hvað ofaní annað staðinn að því að vappa í alltof litlum nærbuxum fyrir framan læstar útidyrnar hjá sjálfum sér.
Eitt sinn læsti þessi frumlegi viðskiptafræðingur og tónskáld, GJH, sig frammi á gangi á virðulegu hóteli. En í stað þess að leita umsvifalaust til starfsfólk hótelsins með vandræði sín óð hann um ganga eins og uppvakningur, meig þrívegis í blómapotta sem stóðu á göngunum og einu sinni í öskubakka í lyftunni.
Í annað skipti sprangaði GJH um götur heimabæjar síns á hinum sígildu alltof litlu nærbuxum eftir að hafa læst sig úti. Þetta var að morgni dags og krakkar komnir út að leika sér. Skipti engum togum, að þegar börnin sáu nærbuxnakarlinn koma aðvífandi, hófu þau þegar í stað að grýta hann með moldarkögglum og hrossataði og tóks með því að hrekja hann á flótta.
Í enn eitt skiptið af mörgum birtist umræddur GHJ á alltof litlu nærbuxunum á eldhúsgófinum hjá kvenmanninum B.B, Bjútý eftir að hafa anað óforvandis uppúr rúminu og útá stétt og læst útihurðinni kyrfilega á eftir sér. Kvenmaðurinn B.B. Bjútý rak samstundis upp gegnumnístandi ramavein þegar hún sá komumann, því henni datt ekki annað í hug en nú væri komið að einhverju afar ósiðlegu af hans hálfu, svo hún smeygði sér útum stofugluggann í hendingskasti og leitaði á náðir lögreglunnar.
Og svona mætti áfram telja útí hið óendanlega þau tilfelli sem viðskiptafræðingurinn og tónskáldið, GJH, hefur læst sig úti og vakið í framhaldi af því skelfingu samborgara sinna með tiltektum sínum.
Læstist úti í óveðri á nærbuxunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2011 | 20:59
Nú fær Karl á Hóli í Flóa miljonir á miljonir ofan. Húrra fyrir því.
Hann heitir Karl og er frá bænum Hóli í Flóanum. Hvers son hann er veit ég ekki, en faðernið mun, að því sagt er, vera á reiki, en Karli er víst nákvæmlega sama um það og trúir því að hann hafi, hvað sem öðru líður, hafa erft lífsgleðina frá föðurnum, hver svo sem hann er.
Það kom nefnilega snemma í ljós að Karl frá Hóli í Flóa var sérstakur gleðinnar maður og fór snemma að stunda böllin á Suðurlandi þar sem hann dansaði, drakk og hló öllum öðrum meira. Og þótt hann færi hratt yfir á dansleikjum og væri ekki beinlínis gáfulegur, laðaðist hvenfólk að honum eins soltnir úlfar að feitu holdanauti. Fyrir vikið eignaðist Karl fjölda karlkyns óvildarmanna, sem reyndu að ná sér niður á honum með því að uppnefna hann Flóafíflið. En Karli var alveg sama um uppnefni og rógburð um sig og hélt sínu striki, enda var enginn á landinu konum eins kær og Karl á Hóli í Flóa og þakkaði hann þeim fyrir með því gera eins mörgum af þeim og hann gat glatt í geði í hinum og þessum skúmaskotum, að nóttu sem degi.
En þegar Svandís kerling Sendiherradóttir setti upp stertinn og bannaði Flóamönnum að gera Flóann að einu allsherjar stöðuvatni til að búa til rafmagn fyrir útlenda álbræðslukarla og nokkra innlenda auðvaldsperverta, rann Karli á Hóli heldur betur blóðið til skyldunnar og kærði Svandísi kerlingu fyrir stjörnusýslumanninum Stones á Selfossi, Héraðsdómi Suðurlands og Hæstarétti, - og hafi frækinn sigur.
Nú sér Karl á Hóli, sem núorðið hefur það orð á sér að vera kaldasti karlinn í Flóanum, fram á að geta losað sig við helvískan Hólinn fyrir hundrað milljónir, en í staðinn fá álbræðslukarlarnir og auðvaldspervertarnir að sökkva Hólnum niður á 50 metra dýpi með því að gera volduga stíflu svo gott sem í túnfætinum hjá honum Kalla, sem alltaf hefur að öðru leyti kunnað best við vínföng og kvenfólk.
Mun staðfesta skipulagið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.2.2011 kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.2.2011 | 20:43
Fólskuleg og tilefnislaus árás á frelsið
Sú merka kona, Máría borgargagn, sagði eitt sinn: -Ef einhver dirfist að setja útá eða banna mér að ganga nærbuxnalaus þegar mér sýnist er það gróf aðför að frelsinu. Enn fremur mælti Máría borgargagn af munni fram í fjölmenni: Ég hefi sérstaka vanþóknun á fólki sem þykir eitthvað athugavert við vinskap okkar hjóna við hjónin frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra. En hins vegar viðurkenni ég fúslega að ótrúlegustu karlar og kerlingar hafa verið að stíga í vænginn við mig síðustu mánuði og ég hefi leyft mér fullt frelsi til að afgreiða það vængjatraðk að eigin geðþótta í hverju tilviki. Ég er nefnilega sönn frjálshyggjukona. Og ef ég vil reka eiginmann minn, Indriða handreð, af höndum mér, hvað svo sem gömlu geitinn, mömmu hans, finnst um það.
Því er svo við að bæta, að það var áminnst móðir Indriða handreðs, þá rétt og slétt jómfrú, sem orkti fræga vísu um lífið um borð í síðutogara meðan verið var að landa úr honum:
Í togurum er gleði og gaman, hopp hopp hopp.
Þar toppa allir og skoppa saman, flopp flopp flopp.
Og guðaveigum gerum skil
uns geyspum við golunni hér um bil.
Hopp hopp hopp.
Ingimar Karli sagt upp á Stöð 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.2.2011 | 18:43
Glæsilegur stuðningur LSS og þögn hlandprestanna á ASÍ-kontórnum
Glæsilegt hjá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna að lýsa af krafti yfir fullum stuðningi við verkfallsboðun verkamanna í loðnubræðslum meðan skrifstofusjakalahjörð ASÍ undir forystu Gylfa Arnbjörnssonar þegir þunnu hljóði eins og fýlugjarnir hlandprestar.
Það virðist sem Gylfi og hans vesældarlið ætli að haga sér á sama hátt gagnvart yfirvofandi kjaraátökum og þeir gerðu þegar búsáhaldabyltingin var gerð: skríða ýlfrandi og skjálfandi undir borð af hræðslu, bæði við fólkið og auðvaldið.
Sem betur fer virðist vera að skapast jarðvegur fyrir uppreisn gegn auðvaldsmafíum eins og samtökum atvinnurekenda sem og auðvaldsþýinu og verkalýðsdragbítunum í ASÍ sem haldið hefur verkalýðshreyfingunni í gíslingu til fjölda ára.
Meðfylgjandi mynd er af sællegum ASÍ-sjakala að reyna að fela sig fyrir fólkinu sem borgar honum laun.
Styðja bræðslumenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2011 | 14:07
Saklausi framkvæmdastjórinn í Sviðinsvík
Ætli færi ekki betur á Pétur Pálsson, alnafni Péturs Pálssonar framkvæmdastjóra í Sviðinsvík, og aðrir af hans kalíberi stígi, þó ekki væri nema 60 mínútur, útúr sínu hefðbunda umhverfi einkahagsmuna , frekju og tillitsleysis og íhugi vandlega, af heiðarlegu hlutleysi og opnum huga, réttmæti þeirrar gagnrýni sem kvótakerfið hefur orðið fyrir. Getur ekki verið að einhverjir útgerðaraðilar hafi gert einhverja þá hluti sem samrýmast ekki lögum og reglum, þverbrotið almennar reglur um siðferði, gert eitthvað mikið á hluta fjölda manns og fjölda byggðarlaga ? Ætlar alnafni Péturs framkvæmdastjóra í Sviðinsvík að halda því fram að ekkert óeðlilegt hafi farið fram í sjávarútvegsmálum síðan kvótakerfið var sett á ? Menn hafi bara verið að leigja og selja sín á milli aðgang að auðlind, - sem þeir eiga ekkert í umfram aðra landsmenn og búið til froðupeninga sem engin verðmætasköpun var á bak við. Stundað brottkast, framhjálandanir og tegundasvindl baki brotnu, öllum til heilla. Allt aldeilis sárasaklaust og öllum til hagsbóta.
Meðan útgerðarmenn eru jafn staurblindir á eigin misgjörðir er ekki við nokkru að búast af viti úr þeirri átt.
Talað til útgerðar eins og glæpamanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.2.2011 | 10:59
Helsjúkt samfélag í sálarkreppu
Það hlýtur að vera mjög forvitnilegt fyrir félagsfræðinga, félagsráðgjafa, sálfræðinga og geðlækna að kanna ofaní kjölinn hvað um er að vera í einkennilega samfélagi Reykjanesbæ. Það eitt, að stjórn og varastjórn Verkalýðs- og sjómannafélaags Keflavíku, skuli lýsa yfir fyllsta trausti á Krisján Gunnarsson, formann félagsins, sýnir að ruglið, meðvirknin, afneitunin og dómgreindarhömlunin þar á bæ er í þeim hæðum óraunveruleikans sem einkennt hefur helstu hrunsvaldana, sem keppst hafa frá hruni að lýsa yfir sakleysi sínu þrátt fyrir að hverju mannsbarni sé ljóst að þeir eru jafn syndugir eins og sá gamli Skratti sem átt hefir heimilisfesti í neðra síðan honum sinnaðist við Jahve karlinn fyrir margt löngu.
Það er og ljóst að þessi fáránlegi stuðningur sjórnar og varastjórnar VSFK við verkalýðsdragbítinn Kristján er af sömu geðkrabbarót runnin og óskiljanlegur og skammarlegur stuðningu íbúa Reykjanesbæjar við bæjarstjórnanefnuna, Árna Sigfússon.
Og eitt er alveg víst: Það er eitthvað stórkostlega mikið að í Reykjanesbæ.
Bera fyllsta traust til Kristjáns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.2.2011 | 07:39
Maður veit nú hvaða kónar þetta eru
Skipulögð þjófagengi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 60
- Sl. sólarhring: 132
- Sl. viku: 218
- Frá upphafi: 1539501
Annað
- Innlit í dag: 52
- Innlit sl. viku: 186
- Gestir í dag: 52
- IP-tölur í dag: 51
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007