Bloggfærslur mánaðarins, september 2023
5.9.2023 | 20:16
Hvað er í þverpokunum og hvað eiga þeir sameiginlegt? Ha?
Einhverju sinni hafði manngarmur nokkur gengið svo fram af samborgurum sínum með heimsku og fáráðlingshætti, að hann var handtekinn og tekinn til skoðunar. Það sem almenningi þókti eftirsóknarvert að vita varðandi manninn, var komast að því hvað það væri sem hann reiddi í þverpokum sínum. Um þennan manngarm er það að segja, að hann þókti vera slápur á velli, ógreindarlegur í framan, leiðinlegur og hálf illa upp alinn. En það var snemma spjátrungur í pilti og eins og hann teldi sig á einhver hátt til forustu fallinn í mannfélaginu.
Þegar búið var að taka helvískan slápinn höndum, var skoðað í þverpoka hans í vitna viðurvist. Kom þá í ljós, eins og við var búist, að lítið fannst, en litla, sem þó var til staðar, var fjarska lítilfjörlegt og smátt. Sérstaklega var þó leitað eftir viti í þverpokum kauða, en ekkert slík fannst. Þar með var komið í ljós, sem marga hafði grunað, að þessi maður reiddi að minnsta kosti ekki vit sitt í þverpokum, hins vegar var þeim um meira af heimsku, rembingi, hroka og almennum drullusokkshætti í farteski hans. Í fyllingu tímans það árið, var svo manngarmurinn afskrifaður til meiri óverðskuldaðs frama og færður jólasveininum að gjöf, sem seldi hann aftur á kynsegin hóruhús í Brasilíu.
Það má heita stórmerkilegur fjandi hve aumir slápar með greind undir meðallagi hafa náð að klifra upp framastiga þjóðfélagsins, án þess nokkur maður hugsaði svo mikið sem andartak út í slíka endemis fásinnu. Þetta er það sem á fræðimáli er kallað ,,samfélagslegt ábyrgðarleysi" og hefir farið mjög vaxandi á síðari árum, þannig að nú er helst beðið eftir að keyri um þverbak. Það er géðsleg tilhugsun, er það ekki, að kjósendur telji landinu sínu best borgið með einvalaliði lukkuriddara og fáráðlinga við stjórnvölinn? Hvað eiga Vilmjálmur Grindavíkur, Gunnarsmári og Ásmundur Einar Dalaskáld - já og hr. Bj. Leví og Sigmundur að Klaustri - sameiginleg? Svarið þið því, skýrt og skilmerkilega.
Ítrekar mikilvægi Fossvogsbrúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það má ekki minna vera, en einhver helsti afturúrsiglari krataeðlisins í ,,stjórnmálafræðingastétt", hr. E. Bergmann, sé kallaður til álitsgjafar á broslegum brottrekstri Helgu Völu úr þingflokki Samfylkingarinnar. Hr. Bergmann er, eins og allir aðrir ,,stjórnmálafræðingar" krataeðlisins, afar hlutdrægur í dómum sínum, svo stappar nærri geggjun eða géðrofi; maðurinn hefir liðið áfram árum saman eins og prumpandi skrípamynd og prédíkað ESB, Samfylkinguna, aftur ESB og aftur Samfylkinguna, eins og tunglsjúkur spáprestur grénjar um sjöunda hymmnaríki, sem enginn kannast við.
Best tekst svo hr. Bergmann upp þegar hann er spurður um ástæður fyrir auknu fylgi Samfylkingarinnar. Þá svarar kauði því til, rétt eins og stjórnmálafræðingi í hafvillu sæmir, að það sé nú útaf því að Samfylkingin hafi farið aftur(?) í eitthvað sem hann kallar ,,grunngildi jafnaðarstefnunnar!", sem hann hefir greinilega ekki hugmynd um hvað er, en segir að sé kjarabaráttan. Það kannast auðvitað enginn við neina kjarabaráttu af hálfu Samfylkingarinnar, nema þá að setja saman ,,verkalýðsráð Samfylkingarinnar" til höfuðs Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar og stéttabaráttu Eflingarfélaga. Í einu geta menn nefnilega treyst á krataeðlislýð Samfylkingarinnar, en það er koma þjóðskipulagi kapítalismans, auðvaldsins, til hjálpar ef hætta er talin á byltingartilburðum sósíalista innan verkalýðshreyfingarinnar.
En þókt Helgu Völu sé kastað á haugana, og Oddný og Þórunn fylgi fljótlega á eftir og að allir krataeðlistaumarnir séu færðar í hendur fyrrum aðalhagfræðingi fínimannabankans Kvikubanka, þá er blekkingaleikur Samfylkingarinnar ekki drukkinn þókt í ausuna sé kominn. Vandinn er að leika svo snyrtilega á kjósendur, að þeir hvorki sjái né gruni hvers kyns er fyrr en eftir kosningar, þegar hagfræðilærða Kvikupinsessan krataeðlisins á teinóttu jakkafatadragtinni verður búin að stofna til ríkisstjórnar með Sjálfstæðisflokknum, því markmið ,,jafnaðarstefnunnar" á Íslandi er að vera í stjórn með Íhaldinu, og það er líka hennar eina markmið.
Kristrún með alla þræði flokksins í hendi sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2023 | 12:54
Skyldug hræsni og lýgimál félaganna fylgja hinni brottreknu inn í poletisku eilífðina
Eins og við var að búast, þá fylgir skyldug hræsni og lýgi einatt brottrekstri þingmanns úr þingflokki. Það er sjálfsagt argasta lygastappa hjá Loganum að hann og Kviku-Kristrún hafi viljað hafa Helgu Völu áfram, - því það vildu þau aleilis ekki, annars hefðu þau ekki rekið kérlíngarsauðinn úr þingflokki Samfylkingarinnar.
Annars er meðfylgjandi mynd af framámennum Samfylkingarinnar ákaflega hláleg fyrir margra hluta sakir. Krataeðlið og sýndarmennskan leyna sér ekki og klæðaburðurinn súrrealískur og líkamstellingarnar einnig. Lengst til hægri er Kviku-Kristrún í allt of stuttum buxum, en slíkt kvað vera einkennismerki vissar teundar veiklaðs fólks. Aftar og til hliðar við Kvikuna stendur kona í hræsnisrauðum kjól og glápir út í loftið. Vinstra megin við hægrimiðjuna er svo sjálf Helga Vala í lúðabúningi og lengst til vinstri er svo fermingardrengur með bleyju. Myndin er tekin á deild, sem ég veit ekki hvað heitir, en er trúlega í eigu íslenska ríkisins.
En nú er Helga Vala sem sé komin á götuna og á ekki afturkvæmt. Næstar á höggstokkinn, að skipun Kviku-Kristrúnar, eru svo Oddný Harðardóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir, af því að þær fara í fínustu taugar Kvikuprinsessunnar, en Loginn sér um böðulshanskana og öxina. Hvort eða hvenær þessar sóðalegu aftökur taka enda, er algerlega óráðið á þessari stundu, en undirferli, rottugangur og systramorð hafa löngum verið ær og kýr þeirra sem sýkst hafa af krataeðlinu. En þá er yfir lýkur mun fátt verða eftir uppistandandi í Samfylkingunni.
Hefðum viljað hafa hana áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2023 | 12:33
Ofbeldis- og ofstækisfullir vargar ráðast að sínu besta fólki
Þetta gátu þær, bölvaðar krataeðliseignirnar, þókt þær geti ekkert annað, nema auðvitað að sleikja sig upp við rassinn á auðvaldinu og íhöldunum þegar þarf að verja auðvaldsþjóðskipulagið. En nú hefir þessi óaldarlýður krataeðlisins látið til skarar skríða og rekið Helgu Völu, sem þó er af miklum leikaraættum, ekki bara úr Samfylkingunni heldur og líka af þingi, án kosninga. Ef einhverjar vanmetaskepnur eru spilltar og gjörspilltar, þá eru það þessi ræksni, sem eru undirlögð af krataeðlissjúkdómnum.
Svona fór djöfuls Íhaldið í Valhöllu líka með Brynjar aumingjann Níelsson: Það rak hann eins og skítugan rakka úr hlýjum húsakynnum Alþingis og ráðuneytisins út á gwöð og gaddinn. Það sér hver maður sjálfur, að vart gefur að finna ömurlegra hlutskipti fyrir Helgu Völu og Brynjar en að vera rekin burt af misvitrum húsbændum sínum fyrir engar sakir, aðrar en þær að fara í taugarnar á húsbændunum. En Helga Vala og Brynjar eru samrýmd og ætla að láta sig hafa það leggjast lágt í þurrkuntuleg lögmannsstörf, sem margir fullyrða, og það með nokkrum rétti, að sé lægst af öllu því lága í mannheimum. En fyrr má nú vera meira ekkisens ofstækið og ofbeldishneigðin í bölvaðri íhaldskrataeðlisstéttinni, að ráðast svona að börnum sínum, og hrekja þau á vonarvöl. Aldrei hefir gamla géðbilaða Framsóknarmaddaman gerst sek um annað eins ofbeldi, sem árás Samfylkingarinnar á Helgu Völu og Íhaldsins á Brynjar, síðan hún rak Sigmund Davíð af höndum sér og þar áður Jónas frá Hriflu.
En svo er ekki útilokað að þetta fari allt saman vel; það eru til fleiri heimili en Valhöll og Samfylkingarbælið. Alveg er ég viss um að Gunnarsmári, með sosiflokkinn sinn, sé meir en vís til að bjóða Helgu Völu til vistar hjá sér, og Brynjari líka. Hann er sagður so libbó hann Gunnarsmári; hann er nefnilega það sem á erlendum tungum er kallað útrásarsosialist. Hann gæti sem best alveg eins skipað Helgu Völu og Brynjar í efstu sæti framboðslista sinna við næstu alþingiskosningar, - alveg eins og hann gumsaði bróður Einars Karls Haraldssonar og dóttur Baldurs Óskarssonar í efstu sætin hjá sér síðast. Svo er Inga Sæland alltaf opin fyrir að greiða götu lukkuriddara, svo ekki sé minnst á ruslakisturnar sem heita ýmist Miðflokkur, Viðreisn eða Píratar. Við skulum bara biðja og vona að Helga Vala og Brynjar verði ekki lengi munaðarlaus, því við höfum síst efni á missa svo góða skemmtikrafta í poletikinni sisona í göturæsið.
Helga Vala segir sig frá þingmennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2023 | 13:12
Tökum skipin af labbakútum og kvæum
Það er víst ekkert annaða að gera en að taka taka svokölluðu skipafélög af þessum drengjum sem hafa sölsað þau undir sig, þetta eru greinilega mestu labbakútar og kvæ. Ríkið á auðvitað að reka skipafélög á Íslandi og skipuleggja stafsemi þeirra svo sómi sé að, það er ekki hægt að ætlast til að það geti gerst í höndunum á ábyrgðarlausum kettlingum, sem ekki hafa fengið neitt uppeldi, hvað þá meir. Ég held við munum eftir skipafélaginu sem gerði Het Wapen van Amsturdam út - það sigldi öllu í strand með þeim afleiðingum að viðþolslausir ævintýramenn á Íslandi hafa eytt ævinni, aurum sínum og æru, í að leita að þessum kláf austur á söndum, emð engum árangri.
Það vinnst allt með því að taka skipafélögin af labbakútunum; skilvirkni og gagnsæi blasa við, skipin skráð á Íslandi, farmgjöld lækka um tugi og hundruð prósénta og karlarnir á frökturunum verða svo vel launaðir, að þeir þurfa aldrei meir að leggja sig niður við smygl og leynivínsölu. En hvað með labbakútana og stjórnarskrána? spyrja eflaust einhverjir. Er eignarrétturinn ekki heilagur samkvæmt stjórnarskrá? og er ekki athafnafrelsi einstaklingsins jafnheilagt samkvæmt sömu skrá? Djöhh.
Ekki fór nú vel fyrir spjátrungnum sem gerðist einhverskonar reiðari hjá Einkavædda farmskipafélaginu Októbusi. Sá piltur þrautpíndi hásetana, arðrændi þá og þrælaði þeim út, þar til þeir neyddust til að fara að smygla áfengi, sígarettum, kókaíni og klámblöðum til landsins. Reiðarinn komst í þennan hliðaratvinnuveg hásetanna og og heimtaði toll af honum, sem sem nam níutíu og fimm proséntum af hagnaðinum, án þess svo mikið sem hugsa út í að þetta tiltæki hans kæmi hásetunum á efnahagslegan vonarvöl. Svo einn góðan veðurdag var eiginkona reiðarans horfin eins og jörðin hefði gleypt hana. Málið var falið lögreglunni til rannsóknar, og hún tók reiðarann fastan, grunaðan um að hafa myrt eiginkonu sína. Mörgum mánuðum síðar fréttist af eiginkonunni í barbaríinu í Alsír eða Tyrklandi, þar sem hún hafði verið seld í ánauð af íslenskum farmönnum af skipi í eigu Einkavædda farmskipafélagsins Októbusi. Hásetar reiðarans höfðu sem sé rænt konunni til að hefna sín á reiðaranum fyrir djöfullega arðránsframkomu hans við þá. Fyrir rétti báru hásetarnir, að þeir hefðu selt konuna, samkvæmt skipun eiginmanns hennar, á markaði í Algeirsborg eða Istanbúl. Fyrir þetta voru hásetarnir dæmdir í fimm ára fangelsi en reiðarinn fékk tuttugu og fimm ár.
Ölgerðin leiksoppur skipafélaganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 222
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 192
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007