Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2024

Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna

bænAldrei hefir sagan orðið hliðholl þeim mönnum sem lagt hafa í vana sinn að afvegaleiða ungdóminn. Fyrst í stað kanna það að þykja töff og kúl hjá rígfullorðnum karlspena að hasla sé völl innan um rótlausra unglinga og spenna þá upp í gera sig að fíflum og jafnvel glapstigadrengjum. Nú, það er svo sem mála sannast að bölvað Íhaldið hefir öðrum fremur lagt sig í framkróka við að sækja sér efnivið í framtíðarkjósendur í hóp fólks á gelgjuskeiði og smala því eins og vankalömbum inn í Heimdall og SÚS, eða hvað þessi óbóbótafélög heita hjá Sjálfstæðisflokknum.

images[36]Sagan segir að í Lundúnum á þar síðustu öld hafi útsmoginn náungi að nafni Fagin laðað til sín félagslega illa stadda stráka og kennt þeim að stela og gert þá síðan út sér til góðrar framfærslu. Ekki þarf að taka fram að Fagin þessi var flokksbundinn í breska Sjálfstæðisflokknum, því það var hann svo sannarlega. Þetta endaði þó allt fremur leiðinlega hjá Fagin, því réttlætislögmál sjálfar náttúrunnar og guðdómsins gómaði litlu þjófabófana hans Fagins og kom þeim fyrir á unglingaheimilum eða hjá góðu fólki, sósíalísku að upplagi, en Fagin sjálfur var leiddur til gálgans. Reynt var eftir megni að láta karlinn iðrast áður en snaran fór að herðast að hálsinum á honum, en við það var ekki komandi og fór því hinn merki íhaldsmaður Fagin til Helvítis án allrar sáluhjálpar. 

hangi5.jpgÞað er því ekki laust við að setji að manni nákaldan hroll að lesa fyrirsögn þar sem segir að ,,Bjarni reyni að höfða til unglinannanna. Og myndin af Fagin gamla kemur ósjálfrátt æðandi upp í hugann, jafn andskoti skuggaleg og þegar hana bar fyrst fyrir sjónir mínar um eða fyrir 1960 í bók Dickens um Ólíver Twist; en í henni voru nokkrar teikningar sem sýndu Fagin karl og bar sú mynd hæst þar sem Fagin er leiddur til að embættast í gálganum, steytandi hnefann framan í hneykslaðan lýðinn sem mættur var til að sjá hvort þessi alræmdi þrjótur mundi ekki örugglega vera hengdur. 

 


mbl.is Bjarni reynir að höfða til unglinganna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans

x-vg3Það er svosem eftir öðru, að Bjarnben hafi sagt ósatt; honum hættir dálítið til þess, aumingjanum svorna, að víkja af götu sannleikans, en það gerir hann þó í góðum tilgangi í því skyni að vinna sér vinskap þeirra sem skipta hann máli í sjálfu lífinu. Að leika á, plata, hafa náungann að fífli, féfletta hann, arðræna, skilja hann eftir í ræsinu og reka svo smiðshöggið á listaverkið með því að telja honum trú um að hann hafi það virkilega gott þegar öllu sé á botninn hvolft, hann sé í raun og veru bölvaður forréttindagosi og eigi alls ekki að gera kröfur til annarra, vinnuveitanda síns, sveitarfélagsins eða ríkisins, að öðrum kosti kunni illa að fara.

Og þó Bjarniben sé pörupiltur, ósannsögull og og stundum einkennilega upptrekktur, eins og til dæmis í kjaftaþætti sjónvarpsins í gærkvöldi, þá er ég ekki alveg viss um að frú Swandeesý hafi alla tíð fetað veg sannleikans á þann hátt sem heiðarlegu guðbarni ber. Og jafnvel eru þeir enn verri, sem ljúga með fólki eins og Bjarnaben og Swandessý með þögninni eða taka undir ruglandina og ,,hálfsannleikann" sem vellur upp úr þeim í tíma og ótíma gegn betri vitund eða í ófyrirgefanlegu hugsunarleysi. Og lítill mannsbragur er af þeim sem hylma yfir með lygum og óheiðarleika ófyrirleitinna stjórnmálamanna með þögninni.

x21Hitt er svo aftur annað mál, að nú fer í hönd svanasöngur VG í poletik, einnig Swandeesýjar, Mumu frá Brúarlandi, Stenngrims og Álfheiðar. Fari þau vel. Ég syrgi þau ekki. Hvar hræið af VG verður urðað kemur mér ekki við við, að öðru leyti en því að þeim sem ganga frá ræksninu geri það á þann hátt að það mengi ekki frá sér, ýldan af því eigi ekki greiða leið í vatnsból saklauss fólks, óféleg lyktin nái ekki að komast upp úr urðinni og valdi eitrun í öndunarfærum manna og dýra, eða að ókindin nái ekki að ganga aftur með öllum þeim hörmungum sem slíkir mórar, skottur og þorgeirsbolar eru vanir að valda í sveitum, bæjum og borgum með óvægnum tiltektum sínum.


mbl.is Svandís segir Bjarna hafa sagt ósatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest

xviðÞað hefir lengi leikið sterkur grunur á að gáfnafar íslensku þjóðarinnar fari mjög hrakandi með samsvarandi dómgreindarleysi og kemur margt til sem rennir styrkum stoðum undir þá kenningu. Í skoðanakönnunum, sem teknar eru um reglubundnum hætti, um fylgi við stjórnamálaflokka landsins sést best á hve alvarlegt stig andlegt atgervi og vitræn heilsa kjósenda er komin. Maður er farinn að efast um að slíkur líður, sem lætur skoðanakannanir á borð við þá sem kunngerð var dag um sig spyrjast geti klætt sig skammlaust að morgni eða ratað á salernið til að kasta af sér vatni.

Og fyrst þjóðin gjörist nú æ heimskari og dómgreindalausari með hverjum degi sem almættið gefur oss, þá þarf enginn að láta sér koma óvart þókt landið, þjóðin og menningin riði til falls og hrynji eins og grútarkaggi á hliðina og innihaldi velli eins og hvur önnur óhreinindi ofan í niðurfallið og blandist þar seyru og sóðaskap. Já, íllt er það allt og bölvað og fátt ef nokkuð til bjargar einni vitgrannri og stórbilaðri þjóð á hjara veraldar. 

xmEn fyrr má rota en dauðrota. Hverjum hefði dottið það í hug fyrir hálfri öld eða svo, að íslenska þjóðin ætti efir að verða svo heillum horfin að ljá forhertum braskaraflokki með alræmda hrunkérlíngu (7 hægri) í forustu tuttugu prósent atkvæða í alþingiskosningum, og flokki stórbilaðra klausturdólga önnur tuttugu? Fyrir nú utan allt það fylgi sem gömlu skipulögðu óyndissamtökin Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eru vís með að fá, en það ku samanlagt vera um það bil fimmtíu prósent. Svo eru menn að fárast yfir því að grunnskólabörn á Íslandi séu ekki lengur hálfdrættingar á börn í öðrum löndum í einhverjum helvískum PÍSA könnunum, séu ekki lengur læs eða skrifandi og viti nákvæmlega ekki neitt í sinn haus ef þau fyrir slysni gjóa heimskum glyrnunum upp úr kókópuffsdiskunum sínum.  


mbl.is Ný könnun: Fylgi Viðreisnar eykst og eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband