Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2024

Spøgelset í höfn á Jótlandi

fullurOkkur varðar vissulega ekkert um einhverja skítalúsera á vegum krataeðlisins, hvort heldur þeir heita Þórður, Dagur eða eitthvað annað. Nú viljum vér alvörumenn fram á sviðið. fyrir stinnri hálfri öld þyrptust íslenskir síldarbátar með hringnót í Norðursjóinn til síldveiða og lönduðu aflanum í Hirtshals eða Skagen; þá var nú ekki verið að druslast við landa aflanum sitt á hvað á Dalvík og Dagverðareyri, eins og segi í dægurlagatextanum. Og íslensku sjómennirnir tóku sumir fast um stýristaumana og gáfu sig af fullri ábyrg þeim nautnum á vald sem fylgja lífinu í erlendum höfnum.

Einn þeirra sem sigldi suður á bóginn í átt að Bretlandseyjum og þaðan til gömlu herraþjóðarinnar, Danmörku, var gleðimaðurinn Páll Draugur, alltaf kallaður ,,Spøgelset" á danskri grund og undir því nafni þekktu stúlkurnar á Jótlandi hann. En því miður er déskotans lífið ekki allt dans á rósum og því fékk okkar maður, Spögelsið, stöku sinnum að kenna á. Til dæmis, að þegar meðfylgjandi mynd var tekin af honum var hann nýkominn úr misheppnaðri ferð á gleðihús með kvennaþjónustu í Álaborg. Þegar hann kom til baka neitaði hann að borga leigubílinn og greiddi bílstjórnum rothögg þegar hann fór að ganga efir borgun fyrir aksturinn. Á eftir reyndu Spögelsið og félagar hans að hífa leigubifreiðina um borð bátinn og hugðust hafa hana með sér á miðin við Shetlandseyjar. Eitthvað fór samt hífingin úrskeiðis bíllinn skondraðist um borð í bátinn sem lá utan á okkar skipi og fór, sem maður kallar, í klessu.

Þegar þarna var komið sögu, var Spögelsinu orðið mál og hann gekk til kukks í bátnum sem lá utan á þeim sem fékk leigubílinn um borð til sín. Og á salernisskálinni leið svo Spögelsinu í brjóst og hann steinsofnaði, enda mjög þreyttur, úttaugaður, pirraður og búinn að drekka þessi ógnar býsn. Og þegar báturinn hallaðist örlítið í stjór, valt Spögelsið út af setunni og lá eftir það eins og hringormur við klósettið. Morguninn eftir komu djöflar af bátnum þar sem Spögelsið svaf og ræstu okkur með hávaða og orðbragði og skipuðu okkur á fætur og hirða þennan andskota sem lægi eins og dauður brókarsóttargemlingur á taðhúsinu hjá þeim og harðneitaði að vakna eða hreyfa sig yfirleitt nokkuð.


mbl.is Á þriðja hundrað strikuðu yfir eða færðu Þórð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldvins í dag

xxx4Það má vel vera að forseti fundi með Kristrúnu klukkan 0900 í fyrramálið og í kjölfarið með Bjarnaben klukkan 1000. Fari það allt og veri. Hins vegar ætlar forseti að funda með Davíð Oddssyni klukkar 0600 í fyrramálið til að fara yfir með honum hvern mann formannsnefnurnar í stjórnmálaflokkunum hafa að geyma. Vissulega fer mjög eftir því hvernig formennin hafa lagt inn hjá Davíð í gegnum tíðina hvernig þeim mun reiða af í stjórnarmyndunarviðræðunum; þeir sem Daoddson, eins og litlu guttarnir kölluðu hann í gamla daga, hefur illan bifur á þeim mun ganga herfilega.

En allt er þetta auðvitað til einskis. Í hvert sinn sem kosið er kemur Sjálfstæðisflokkurinn upp á öllum teningunum og þegar gengið er til ríkisstjórnarsamstarfs kemur Sjálfstæðisflokkurinn líka upp á öllum teningunum. Á hverjum teningi er u sex hliðar og á hverri hlið stendur skýrum stöfum: Sjálfstæðisflokkurinn. Í stjórnmálastærðfræði dagsins í dag er Sjálfstæðisflokkurinn táknaður með ,,D í sjötta veldi", D6, sem segir okkur það að það hafi sex flokkar náð þingsæti að allir séu þeir Sjálfstæðisflokkurinn þókt þeir heiti sex mismunandi nöfnum.

En í dag, fullveldisdaginn, 1. desember 2024, söng síra Baldvin fullveldismessu í höfuðmusteri sínu og mæltist vel að vanda. Tveir nýkjörnir þingmenn voru viðstaddir guðsþjónustuna og bannfæri síra Baldvin þá báða því hann hafði fundið vínlykt af þeim er þeir olnboguðu sig inn kirkjugólfið. Að vonum brugðust þingmennin illa við og þrættu fyrir að það væri brennisvínsþefur af þeim, en það tjóaði lítið, því síra Baldvin skipaði þeim í Jésúnafni og Erkidjöfulsins að grjóthalda kjafti, loka buxnaklaufum sínum, og fá sér sæti beint fyrir framan predíkunarstólinn. En hvernig á því stóð að nýþingmennin vóðu inn í helgidóminn með opnar buxnaklaufar svo glitti í prjónana helgaðist af því að þeir höfðu kastað af sér vatni við kirkjudyrnar og gleymt að renna upp áður en þeir stigu inn. Fyrir þessi tæknimistök voru svo blessaðir aumingjarnir bannsungnir og færðir Djöflinum á hendur. Og síra Baldvin sagði við söfnuðinn af stólnum: Þessir ræflar og vesalingar sem hér húka fyrir framan oss, angandi af spíritus og viðbjóðslegum gleðikonum og graðkérlíngum, eru nú orðnir formlegir hirðmenn Hins Illa og verður héðan í frá fyrirboðin öll geistleg þjónusta og æðri máttarvalda, þar til þeim verður búinn staður í mógröfinni hérna fyrir neðan hólinn við Innstabæ hér í sveit. Amen. 


mbl.is Kristrún fyrst á fund forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilkynning um andlát, gjaldþrot og útför Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs

x-vg3,,Horfið, glatað, gleðifregn." Þessi frægu orð þjóðskáldsins komu upp í hugann þegar mér var tilkynnt um dauðastríði VG væri lokið og það formlega úrskurðað dautt og horfið úr heimi hér.

Jæja, þá er fyrirtæki Flokkseigendafélags VG, þ.e. Vinstrihreyfingin grænt framboð, farin á hausinn og kominn til gjaldþrotaskipta. Það má ljóst heita, að einhverjir af þeim stórmennum sem á sínum tíma slógu eign sinni á VG, það voru allt stórmenni, munu fara í skuldafangelsi fyrir vikið og ugglaust gjörðir útlægir í framhaldiaf því að fangavist líkur. Í fyrndinni þóktust þessi grey vera sósíalistar og erfingjar Einars Olgeirssonar, en undir síðustu aldamót fóru þau í felur, en skriðu von bráðar út úr holum sínum plötuðu raunverulega vinstrisósíalista og kommúnista til að stofna með sér ,,vinstrihreyfingu" sem ekkert varð úr þegar á hólminn var komið, því þetta varð örfáum árum síðar borgaralegur flokkur efrimillistéttarfémínísta, og umhverfismálasnobbara og dútlara, en kommúnistum og vinstrisósíalistum var gert skiljanlegt að þeirra væri ekki óskað lengur og nú skyldu þeir hafa sig á brott ella hefðu þeir verra af.

Um hríð héldu landsmenn að VG væri vinstriflokkur, jafnvel kommúnískur vinstrisósíalistaflokkur öreiga og tómthúsmanna, þókt allir þeir róttæku væru farnir og steinhættir að kjós þetta apparat sem þeir höfðu verið plataðir til að stofna með óvönduðu fólki af allt öðru sauðahúsi. Svo fór auðvitað að halla undan fæti. Hið kúnstuga Flokkseigendafélag Álfheiðar, Svavarsfjölskyldunnar og Stenngrims hætti að sjást fyrir í sókn sinni inn í samfélag burgeisastéttarinnar, og jafnframt fór það fólk að birtast mönnum sem argvítugir stórvinir samherja af greifastandi og fleiri stórauðvalda; þau settu á krítískri ögurstundu eitt skoðanadauft og hugsjónalaust gluggaskraut sem formennisígildi hjá sér og komust í ríkisstjórn með auðvaldinu, því Flokkseigendurnir kváðust vera í poletik til að hafa áhrif.

Svo fleygði Sjálfstæðisflokkurinn VG og flokkseigendum þess út á guð og gaddinn, en þá var líka hugjónalausa gluggaskrautið horfið, hafði dottið út um gluggann í einu vestanrokinu og brotnað í mél á gangstéttinni fyrir neðan við hliðina á taðhrúgu úr hundi. Og með það sama var VG-ið gjaldþrota og kjósendur snöru, við því baki. Og nú undir morgun, hins 1. desember 2024 gaf sá er öll stjórnar út dánarvottorð á Vinstrihreyfinguna grænt framboð og gat þess í vottorðinu að hið hið látna hafi andast úr ólæknandi innanmeini, ásamt sullaveiki og óheilindum. Engar eignir hafa fundist í þrotabúinu og verður hræið af hinu framliðna óféti því urðað utangarðs á kostnað hins opinbera. 


mbl.is „Sannarlega þáttaskil fyrir okkur öll“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fræðifúskarinn hr. Bergmann hefir talað

RassakissAlltaf er stjórnmála,,fræði"fúskarinn Bergmann að með sína föstu ruglandi til afvegaleiðingar í þá átt að leiða oss fyrir sjónir að hvítt sé svart og svart sé að minnstakosti grátt. Nú talar fræðijöfurinn um ,,jarðskjálfta í íslenskum stjórnmálum," eins og ekkert minna en bylting sé skollin á. En þegar að er gáð er auðvitað ekkert slíkt í spilunum; hægrið styrkti sig vel í sessi um sinn og allar hræringar milli flokka rúmast afskaplega vel innan ramma hins hákapítalíska, vestræna, auðvaldsskipulags þar sem enginn er að fara að breyta neinu nema í átt til enn meiri samfélagseyðileggingar nýfrjálshyggju og gjörspillingar undir væmnislegu yfirskyni kjaftæðis um umbætur og annarra miður geðslegra auðvaldslyga. Þetta er nú allur jarðskjálftinn í höfðinu á hr. Bergmann stjórnfræðispekingi.

Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað sigurvegari kosninganna, hann sem sé gjörsigraði í þessari lotu. Hann fékk um það bil 20% atkvæða sjálfur, en samtals um 90% þegar hjáleigur hans og fylgihnettir eru reiknaðar með, sem skyldugt er að gera. Nú ætti hin margarma ófreskja auðvaldsins á Íslandi að geta með góðri samvisku skellt landamærunum í lás og rekið útlendingana úr landi, gengið í auðvaldsbáknið ESB; einkavætt og gefið allar eigur og stofnanir ríkisins; keypt fullt af vopnum fyrir NATO til að láta Úkraínumenn berja á hálfmennunum í Rússlandi með og stúta þeim helst öllum; senda Síónistunum líka pénínga fyrir vítisvélum til að gleðja konur, börn og gamalmenni á Gaza; og stofna íslenskan her með orrustuflugvélum, skriðdrekum og klasasprengjum; og endilega og nauðsynlega að koma á herskyldu ungra manna úr lægri stéttunum, það er stéttunum fyrir neðan efrimillistéttina. Þá verður gaman að lifa Hannes minn og Björn fær loksins góðan nætursvefn.

Allt er þetta nú gott og blessað, nema hvað hið náttúrulega réttlætislögmál mun liggja í leynum og halda áfram að vinna sína vinnu, hægt og bítandi og örugglega. Og þókt enn eitt þúsundáraríki auðvaldsins virðist vera að rísa innan járntjalds hins borgaralega þjóðskipulags auðvaldsins, mun það hrynja með brauki og bramli fyrr en varir. En hr. Bergmann, kunnáttumaður um fræðilega poletik, gerir sér auðvitað enga grein fyrir svona smámunum, og mun halda áfram að berja hausnum við stein vísvitandi ruglandi og annarra góðra verkfæra þjóðfélagskipulagsins sem hann þjónar eins og tunglsjúkur trúarvitfirringur.  


mbl.is „Jarðskjálfti í íslenskum stjórnmálum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband