Bloggfærslur mánaðarins, september 2024
Sigmundur Davíð passar einstaklega vel inn í Píratahópinn, því hann er jafnskrýtinn og píratakálfarnir, jafnvel skrýtnari í sumum tilfellum. Þegar kaflinn um ,,einkennilega menn á Alþingi" verður skrifaður verða Sigmundur Davíð og lagsbræður hans í Pírötum í forgrunni og aðalhlutverkum þess kafla. Mér segir svo hugur að Beggó, frú Sæland og kirkjueigandinn sem strauk frá Sigmundi og Beggó yfir í Sjálfstæðisflokkinn fái verðugan sess í kaflanum, sem og Áslaug Arna og Árni Þór Sigurðsson og Jólatréð í VG.
Það má svo sem vel vera að Sigmundur Davíð eigi eftir að smitast illilega að Pírötunum, sem settir hafa verið honum til höfuðs, og sá endir verði á því drullumaki að Sigmundur, ræxnið atarna, verði fluttur með hraði í sjúkrabíl að gula húsinu með rauða þakið inn við sundin blá. Trúlega munu Píratarnir ekki þola að sjúga sálarlíf og visku Sigmundar Davíðs í sig í slíku návígi og því er hætta á að þeir verði brjálaðir allir með tölu.
Þið munið eftir honum Gunnari Braga, er það ekki? Hann drakk með Sigmundi, skandílaséraði svo um munaði og kom loks nærbuxnalaus heim daginn eftir og var upp úr því sendur í útlegð. Beggó aftur á móti, stundaði Klaustrið með Sigmundi og Gunnsa Braga, hann fór öðruvísi að og kvæntist, það þóktu tíðindi til næsta bæjar og þykja það enn. En nú er Sigmundur sem sé aftur orðinn vinsælasti bobbingurinn á ballinu eftir mörg mögur ár, sem sést best á því, að nú streyma lukkuriddararnir að honum í von og góð sæti á framboðslistum eða géðslega bitlinga. En lukkuriddararnir mega ekki láta helgar tíðagjörðir í Klaustrinu standa í sér og tóna af raust með Sigmundi ábóta og Beggó kardínála.
Mynd: Sigmundur umkringdur Pírötum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2024 | 18:39
Misheppnaður mótmælafundur, andlaus og geðlaus
Meintur ,,mótmælafundur" á Austurvelli í dag var misheppnaður að flestu leyti. Hann var það sem kallað er ,,flopp" á erlendum málum. Þegar til kom fór ekki milli mála að þeir sem að fundinum stóðu gerðu það með hangandi hendi, enda hefir fátt nýtilegt, hvað þá verkalýðslegt, sést frá yfirstéttarelítu ASÍ og BSRB í mörg herrans ár. Enginn ræðumann dagsins hafði til að bera þann neista sem nauðsynlegur er og andi Guðmundar heitins Joð Guðmundssonar eins víðsfjarri og hugsast getur. Eitthvert loðmullulegt taut um verðbætur, verðbólgu og vexti er heldur óskemmtilegt viðlag þegar krafan ætti að vera afnám hins kapítalíska þjóðskipulags.
Svo var heldur óskemmtilegt að verða vitni að því að manneskja, sem verið hefur á harðahlaupum um ráðuneyti og sali ASÍ, og tók virkan þátt í aðförinni að Sólveigu Önnu Jónsdóttur og stjórn Eflingar fyrir býsna stuttu síðan, skuli hafa verið einn af ræðumönnum dagsins á Austurvelli. Satt að segja setur óhug að manni að horfa upp á slíka óhæfu. Með leyfi að spyrja: Hverjum er verið að ögra með því að láta Höllu Gunnarsdóttur bulla hjartalausan samsetning uppi á palli á útifundi verkalýðshreyfingarinnar? Ég legg til að almennir félagar í verkalýðshreyfingunni taki málin í sínar hendur og standi einir að framkvæmd og skipulagi næstu mótmælafunda og skrifstofusjakalar á ASÍ kontórnum og Halla Gunnarsdóttir komi þar hvergi nærri.
Það dylst ekki hugsandi fólki, að pólitískt og efnahagslegt ástand á Íslandi er hvort tveggja í senn ámælis- og skammarlegt. Það er engu líkara en að alvarlegt kreppuástand sé handan við hornið, ekki bara svona venjulegt og hefðbundið kreppuástand sem er óhjákvæmilegur fylgifiskur kapítalismans, heldur og virðist sem þjóðin rambi á barmi andlegrar og félagslegrar kreppu, sem ekki verður leyst með bankagjaldþrotum, slitastjórnum og hrægömmum. Við verðum að breyta þjóðskipulaginu, við verðum leggja eyrun að þjóðskipulaginu, við verðum að skipta um þjóðskipulag.
Nokkur hundruð manns mótmæltu á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2024 | 14:56
Geðslegur broddur atarna. En við skulum samt muna vel eftir auðvaldssvíninu og alþýðumanninum með rauðu málninguna
Það var þó broddur fylkingar atarna og svo gátu þessar dömur ekki setið á sér að hafa Bjarnaben fyrir skrautfjöður í stélinu. En fyrst og fremst ber þó þessi broddur yfirstéttarinnar í landinu vitni þess að hér ræður guðinn Mammón ríkjum. Peningaóð kaupsýslukerling, efrimillistéttarfémínísti með prestakraga og alræmdur fjárglæframaður stórauðvaldsstéttarinnar mynda hið hlálega tríó broddsins á valdstjórninni. Ég vona bara að það verði margir mótmælendur á Austurvelli í dag og að þeir taki toppfígúrurnar sem eru að setja Alþingi auðvaldsins á Íslandi sér til handargagns, fari með þær að Tjörninni og veiti þeim gott skírnarbað þar í andaskítsgrugginu og sendi svo þessi bölvuð endemi til síns heima. Að svo búnu ætti alþýðan að taka öll völd þjóðfélagsins til sín, setja á laggirnar byltingarráð og reka Sjálfstæðisflokkinn á fjöll.
En því miður vantar oss allan manndóm til að taka eftirminnilega í hnakkadrambið á andskotum vorum og kvölurum. Það er því lítil hætta á að mótmælendur á Austurvelli þekki sinn vitjunartíma og kaffæri ríkisstjórnina, forsetafyrirbærið og byskubbsnefnuna dulíð í Reykjavíkur tjörn og sjái til að það fólk gangi hundblautt og andaskítugt heim til sín í kuldanepjunni. Og taka síðan völdin. Völdin eru nefnilega innan seilingar; alþýðau þarf aðeins að rétta út hnefann þá er auðvaldið fallið. En alþýðunni, verkalýðsstéttinni, ætlar seint að skilja aflið sem býr í samtakamætti hennar - en auðvaldið hefir ekki roð við við slíku afli, sé því beitt. Það þarf óskiljanlegt, næstum yfirnáttúrlegt, geðleysi og umburðarlyndi til að þola auðvaldssvínaríið til eilífðarnóns, það skuluð þér og þínir muna.
Vér munum enn eftir auðvaldssvíninu sem fékk bláfátækan mann til sín í heimsókn í Hruninu. Þessi bláfátæki maður, sem hafði rauða málningu með sér í fjögurra lítra dós, hafði tapað öll því litla sem hann átti, að meðtalinni eiginkonu og börnum, vegna aðfara trylltra nýfrjálshyggjubesefa auðvaldsins. Og nú var hann kominn til að heiðra auðvaldssvínið með því að mála hjá honum útidyrnar, eitthvað af húsveggnum, eldhúsgluggann og stéttina með slitsterku rauðu skipalakki. Um leið og alþýðumaðurinn hófst handa við málningarvinnuna lagðist auðvaldssvínið á gólfið í forstofunni og hágrét; hann grénjaði og grénjaði af sturlaðri hræðslu, því að hann hélt að málarinn við útidyrahurðina mundi innan stunda koma inn með glóandi tengur og klípa hann víðsvegar um líkamann og ljúka svo ofbeldisverinu með því að troða tangarskrattanum, þrjúhundruð gráðu heitum, upp í rassinn á honum. Og þarna lá svínið á forstofugólfinu og grénjaði þar til alþýðumaðurinn með málninguna var farinn leiðar sinnar. Þá stóð auðvaldssvínið upp og setti upp sparibrosið og hélt áfram að telja saman þýfið sem honum hafði tekist að hafa af alþýðumanninum og stéttarbræðrum hans.
Halla og Guðrún í broddi fylkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2024 | 17:08
Sjálfstæðisflokkurinn bregst ekki sínum mönnum á ögurstundu
Hvaðahvaða, datt einhverjum í hug að Sjálfstæðisflokkurinn mundi bregðast sínum manni á ögurstundu? Ónei, ráðherra Sjálfstæðisflokksins í ráðuneyti sem er þinglýst eign Sjálfstæðisflokksins, fer nú ekki að hlaupa eftir dyntum einhverrar kérlíngar sem Flokkurinn skipaði ekki og aldrei. Já, vinir mínir, þið sem búnir eru að liggja í hugarvíli út af þessu máli getið nú andað léttar og Helgi Mángi getur óhikað haldið áfram að ausa útlendinga, hom-ma og transara, skít og auri úr stóli vararíkissaksókna, og það á fullum launum, skohh. Það er fásinna að ætlast til að svona merkilegur dansherra Sjálfstæðisflokksins sé skikkaður í leyfi eins og hvurt annað hundsspott.
En nú á Sjálfstæðiflokkurinn eftir að draga helvíska grýluna hana Sigríði ríkissaksóknar úr þeim stóli sem hún hefir setið í um hríð í fullkomnu heimildarleysi og óþökk Sjálfstæðisflokksins. Þegar Sjálfstæðisflokkum hefir tekist að þagga niður í kérlíngunni fyrir fullt og fast og hún komin á haugana og Helgi Mángi farinn að klæmast og bölva sem aldregi fyrr, þá fyrst fer Sjálfstæðisflokkurinn að rísa á skoðanakönnunum og hann veðrur vissulega kominn upp í rjáfur í fylgi á kjördag.
Nú, það afrek frú Hafsteinsson Kjöríss að segja Sigríði ríkissaksóknara að þegja og bíta í sig er afar hægrisinnuð aðgerð, sem kemur sér vel því aumustu og heimskustu íhaldssálirnar hafa síðustu mánuði öskrað hvað af tekur um að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn alveg ógurlega langt til vinstri og að Vinstrigrænir séu búnir að eyðileggja Flokkinn og forustumenn hans með einhverjum ótilgreindum óþverra; Bjarniben sé kominn í endalausa vörn og stelpugálurnar sem með honum eru hugsi bara um hvítvín, naglalakk og blásara (vonandi að þær hugsi ekki svona mikið um stráka líka, það væri þokkalegur andskoti fyrir Flokkinn). Það er að vísu dálítið sérkennilegt að sjálfstæðishetjurnar skuli aldrei látnar standa fyrir máli sínu og látnar rökstyðja kjaftæðið um að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðið svona líka langt til vinstri. Fréttmenn láta til dæmis algerlega vera að láta rugludalla á borð við Bínga, og marga fleiri álíka sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá þeim, vaða elginn um að Sjálfstæðisflokkurinn, þessi að minnstakosti hálffasíski nýfrjálshyggjuflokkur, hafi færst mjög til vinstri og sé orðinn einhverskonar róttækur vinstrisósíalistaflokkur.
Guðrún hafnar beiðninni: Helgi heldur starfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2024 | 14:38
Já, sona Ljósanæturgleðir eru oft lengi að fjara út
Ó, þeir eru svo glaðir á Suðurnesjunum í dag eftir Ljósanóttina góðu um síðustu helgi, að sumir þar um slóðar hafa ekki getað hætt gleðinni og því slást þeir í dag í skólanum þarna suðurfrá. Sona gerðist líka á árum áður hér og þar um landið eftir vel heppnuð þorrablót að vetri eða duglegt páskaknall. Á mánudag eftir páska slóst áhöfnin á Þjóðarsómanum, skipi Gunnólfs skipstjóra, út á dekki um hádegisbil og urðu þar margir undir og máttu láta í minni pokann fyrir sér enn minni mönnum. Þegar bardaginn brast á lokaði Gunnólfur skipstjóri brúarglugganum, læsti báðum hurðunum á rórhúsinu og setta á fullt stím í land. Þegar komið var í höfn beið löggrýlan á bryggjunni, sem sé þeir Ásmundur varðstjóri og Hálfdán sem síðar varð frægur Varðstjóri, þá kornungur maður og orrustuglaður.
Þeir félagar, Ásmundur og Hálfdán stukku þegar um borð með kylfurnar á lofti og létu þær ganga á óbótamönnunum. Þegar þeir höfðu járnað seggina á dekkinu brá Hálfdán unglögreglupiltur sér inn í eldhús og handsamaði matsveininn, hr. M. Sckonsukarl, og dró hann nauðugan og hvæsandi frá pottunum og tjóðraði hann á höndum og fótum með snærisspotta sem lá á dekkinu. Að svo búnu fóru fulltrúar valdstjórnarinnar og réttvísinnar með feng sinn upp á stöð og sturtuðu honum í einu lagi inn í þennan eina fangaklefa sem þeir höfðu til umráða og rúmaði varla með góðu móti nema einn mann drukkinn og máttlausan.
Svona var nú tekið á alvarlegu ofbeldismálum í þá daga og þókti sjálfsagt og eðlilegt. Í dag lyppast lögreglan varla á lappir, þókt henni sé tilkynnt um morð eða landráð. Nema Hálfdán Varðstjóri. Hann hefir aldrei látið deigan síga hvað sem á hefir gengið og hvernig sem viðrað hefir. Af þessum ósérhlífna dugnaði í starfi hefir Hálfdán Varðstjóri orðið mjög óvinsæll, einkum meðal fémínísta og kannabisjukkara og annars óreiðulýðs, og hefir mátt þola marga kvörtum og kæru frá þessu ólánsfólki, - sem varla er fólk heldur eitthvað allt annað. Eitt sinn stóð Hálfdán alræmdan gluggagægi að verki og handfjatlaði hann soleiðis, fyrir utan gluggann hjá hjónunum sem hann hafði verið að kíkja inn til, að helvítið var búið að míga í buxurnar og samfestingurinn hans allur rifin og tættur eftir föðurleg handtök Hálfdáns Varðstjóra. Aumingja hjónin þökkuðu Hálfdáni voða innilega fyrir vel unnið verk, en kérlíng gluggaægisins varð hins vegar meir en brjáluð yfir meðferðinni á bónda hennar.
Lögreglan kölluð til vegna hópslagsmála í FS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2024 | 13:12
Þetta verður fyrsta flokks úrvals pípuhattajarðarför
Nú er farið að hausta í lífi Hagkaupa, dansinn á grafarbakkanum er hafinn og brátt glymja skellirnir í kistulokinu við eyrum þegar klerkur Mammónskyrkjunnar kastar rekunum ofan á það. Svo verður að ráðast hvort svo óspilunarlega tekst til að einhver sé svo heillum horfinn að kasta fjármunum í legstein yfir hræið, því sannast sagna væri best að leiði slíks óskapnaðar fengi að blíva ómerkt og kollátt um aldir alda.
Já, heilsufar Hagkaupa er orðið viðsjávert og undur bágborið. Hver hefði trúað því á ungdómsárum þessa fræga fyrirbrigðis að það mundi á gamals aldri fara að herja inn á sérsvið leynivínsala, sprúttara, smyglara og bruggara? En nú er það staðreynd að Hagkaup hafa álpast á gamalsaldri út í samkeppni við fyrrnefndar stéttir og ætlar sér að hefja sölu á sprútti, væntanlega landsmönnum og jarðarbúum öllum til heilla. Að vísu hafa örþyrstir gleðimenn getað fest kaup á kardó og hressandi rakspíritusi í Hagkaupum og gjört sér svo glaðan dag á eftir úti á stétt í kalsarigningu eða snjóhraglanda.
Ekki er að efa að við útför Hagkaupa verður sunginn Brennivínssöngurinn og sálmurinn úr Hvítvínskviðu herra Bacchusar Ben. í flutningi stúlknakórs Valhallar og Heimdalls. Svo verður kassinn með hinu burtsofnaða fyrirbrigði í borinn til hinstu hvílu af vel mektugum mönnum, því þetta verður fyrsta flokks úrvals pípuhattajarðarför með tilheyrandi erfidrykkju í hvítvínsbrennivíni og humarhölum á eftir. En bráðum koma blessuð jólin börnin fá að drekka sprútt. En Hagkaup verður á hauginn borið heldur súrt og niður skorið með allt sitt auma tjúttífrútt.
Selja ekki snyrtivörur af gráum markaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2024 | 11:08
Ólafur Sckans og Walur konan hans
Ólafur Sckans, Ólafur Sckans, ógnar vesalingur,
Walur hans, Walur hans, veit nú hvað hún syngur.
Ólafur, Ólafur, Ólafur Sckans,
voveiflegur vargur er hún Walur konan hans.
You are bull! You are bull! That's how she started talking.
Ólafur shot, Ólafur shot the ass of Walur.
Ólafur, Ólafur, Ólafur Sckans!
A terrible titu-boy, Walur is his wife.
Look how sheepish you are, your bloody scumbag said Walur.
But you. But you, said Ólafur, you are like a whale.
Ólafur, Ólafur, Ólafur Sckans!
now that he's joined the Pirate Party, cursed poor thing.
Þannig fór um sjóferð þá.
En veit einhver hvar Ólafur Sckans er niðurkominn núna?
Gjörðist hann máske nafnskiptingur og flúði til útlanda og hefst þar fyrir?
Eða var hann tekinn af lífi fyrir útboruhátt og annarleg blæti? Best gæti ég trúað því.
Vinurinn kemur út sem trans kona | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2024 | 10:15
Þá barg frú Ingveldur þjóðskipulaginu og var ekki kærð fyrir
Ekki var frú Ingveldur kærð og sló hún þó þrjá lögreglumenn í andlitið og allir lágu þeir í öngviti eftir barsmíðarnar. En frú Ingveldur er hluti af Kerfinu, ein þeirra sem allt má og allt á þó hún hafi aldrei unnið neitt fyrir ríkidæmi sínu.Af þessum sökum er frú Ingveldur afar hlynnt þjóðskipulaginu okkar og er virkur þátttakandi í að verja það og vernda fyrir illræðismönnum kommúnista og Rússa, sem og annarra hálfmenna og aumingja. Það er aunginn smá-akkur í hendi að hafa slíkan varðhund og búrtík sem frú Ingveldur er í húsi sínu til að verja góðan skikk, dásamlegt þjóðskipulag og enn dásamlegra kvótakerfi til lands og sjávar. Svo eru einhverjir ónytjungar að halda því fram að við búum við þjófræði og hálfgerðan fasisma á Íslandi!
Það er ekki lengra síðan en árið fyrir hitteðfyrra sem frú Ingveldur vann á lögregluprjónunum fyrir framan útidyrnar heima hjá sér. Eitthvert fífl í nágrenninu hafi víst hringt á lögreglustöðina og kvartað undan háreysti og orrustugný frá heimili frú Ingveldar og Kolbeins, þar þar fór þá fram eitt af hinum rómuðu helgarsamkvæmum þeirra hjóna þar sem örlög þjóðarinnar eru ráðin af til þess hæfum mönnum og konum. Já. En þegar lögregluna bar að garði tók frú Ingveldur á móti þeim í dyrunum, því hún hafði séð til þeirra út um eldhúsgluggann þegar þeir klöngruðust eftir stéttinni heim að húsinu.
Það skipti heldur engum togum, að strax sló í brýnu milli frú Ingveldar og lögregluprjónanna því þeir rifu kjaft og hótuðu kylfuhöggum og fangavist. Þessum dónaskap lögreglunnar svaraði frú Ingveldur að hætti Skarphéðins og brennunni og Gunnars á Hlíðarenda og rotaði öll kvikindin á örskotsstundu. Þá kom í ljós, að einn lögregluprjónninn var kona, lögreglukona með undirförulan fémínístasvip á vör þar sem hún lá í öngviti við fætur frú Ingveldar. - Það væri réttast ég léti troða þessum helvítum ofan í ruslatunnurnar og það gjörði hún. Kolbeinn, Brynjar Vondalykt, Handreðurinn, ásamt frú Ingveldi og Máríu Borgargagni hjálpuðust við að koma lögregluprjónunum, með höfuðin á undan, í tunnurnar. Á þennan hátt barg frú Ingveldur enn einu sinni þjóðfélaginu, skipulagi þess og innviðum, frá óþægindum sem fylgja því að halda úti duglegri burgeisastétt.
Kýldi tvo lögreglumenn í andlitið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2024 | 22:48
Þessi andskotans ,,pör".
Það er alltaf sama sagan með þessi andskotans ,,pör". Þetta leiðindalið veður um, aftur á bak og áfram, rænandi, stelandi og villandi á sér heimildir. Og nú rændi bölvað parið það veleðla fyrirtæki N1, sem hann Bjarni átti einu sinni og einhverjir hans líkar líka. Var þessi sami Bjarni ekki eitthvað viðriðinn einhvern bótasjóð Sjóvá og þynningu hans? Eða er mig að misminna?
En aftur að þessu dévítis pari eða pörum. Ég man eftir pari sem slóst og slóst við annað fólk og það slóst ævinlega meir af vilja en mætti. Þetta par var sett til húsa hjá vini okkar allra, Eggerti B. Matsveini. Ekki leið á löngu þar til parið fór að gera sig breitt á heimili Eggerts og hafði í frammi ójöfnuð í samskiptum sínum við hann og konu hans. Þessu öllu lauk með því að Eggert yfirbugaði parið með örfáum vel úthugsuðum rothöggum, en konan sá um að draga meðvitundarlausa líkami parsins upp fyrir hús. Nokkru dögum síðar var parið horfið úr þorpinu og Eggert B. Matsveinn gat varpað öndinni léttar og einbeitt sér að mikilvægari málum en að eiga í erjum við par á sínu eigin heimili.
Svo var það parið sem rændi heilu frystihúsi og togara í kaupbæti. Reyndar var það par kallað hjón, því það hæfði þjóðfélagsstöðu slíks fjáraflafólks mun betur en par. Þegar öllu var á botninn hvolft þá var hjónaparið á pari við ójafnaðarparið sem reyndi að berja Eggert B. Matsvein heima hjá honum sjálfum, að minnsta kosti í menningarlegu tillisti, en þegar kom að gripdeildum, einkum vel heppnuðum gripdeildum þá hafði hjónaparið fáheyrða yfirburði. Vér látum því oss í léttu rúmi liggja þókt einhverju pari, sona upp af götunni, hafi hent það að komast yfir eitthvert kort, sem það gat síðan notað til að ræna hið heiðvirða fyrirtæki N1 og lækka þar með um örfá míllípromíll gróða þess í þessari voðalegu dýrtíð.
Par liggur undir grun fyrir fjársvik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig er það annars? Er þessi Píratasöfnuður ekki stjórnmálaflokkur, eða á hann að minnsta kosti að vera eitthvað í þá áttina? Einhvern tíma skildist mér það. Reyndar hefir afar fátt bent til þess að þarna væri um stjórnmálasamtök að ræða, nema sú sérkennilega þversögn þessa kynlega félags að hafa ítrekað staðið í framboðum til Alþingis og sveitastjórna. Það má víst öllum ljóst vera, að atkvæði greitt kynjaklárunum merktum Pírötum eru ónýtt atkvæði og hver einasta króna sem þessum ósköpum er lögð til er glatað fé.
Að reyna að tala við meðlim Pírata um stjórnmál er hættuspil sem enginn ætti að láta etja sér út í. Það væri mikið skárra, svona vitsmunalega og fræðslulega séð, að vaða út á götu og taka þar einhvern ljósastaurinn tali um poletik. Ef þér spyrjið Pírata út í poletik fáið þér í mesta lagi upp úr honum eitthvert æði óljóst muldur um ,,grunnstefnu" og kannski ,,innviði" og ,,regluverk" ef vel tekst til, en samt allt afskaplega óskiljanlegt og innangarnakennt.
Eru þá Píratar aðeins samsafn eðjóta? Þeirri spurningu verðum vér að svara afdráttarlaust játandi. Þetta er ekki naut, það er of kraftaleg myndlíking, en þeir eru nauðalíkir nýfæddum nautkálfi sem kann fótum sínum engin forráð í fjósflórnum og byltist um í mykjukássunni. Þetta er vissulega ófögur lýsing á söfnuðu sem oss var í öndverðu talin trú um að væri stjórnmálaflokkur en reyndist svo, þegar allt kom til alls, vera undarlega vera úr dýrafræðinni en tilheyra þó aungri dýrafræði úr holdi og blóði. Það er lítill akkur af soleiðis kvikindi.
Ný framkvæmdastjórn Pírata | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Hann passar vel við Píratahópinn og enn betur inn í kaflann u...
- Misheppnaður mótmælafundur, andlaus og geðlaus
- Geðslegur broddur atarna. En við skulum samt muna vel eftir a...
- Sjálfstæðisflokkurinn bregst ekki sínum mönnum á ögurstundu
- Já, sona Ljósanæturgleðir eru oft lengi að fjara út
- Þetta verður fyrsta flokks úrvals pípuhattajarðarför
- Ólafur Sckans og Walur konan hans
- Þá barg frú Ingveldur þjóðskipulaginu og var ekki kærð fyrir
- Þessi andskotans ,,pör".
- Er þessi söfnuður stjórnmálaflokkur eða óráðinn fyrirburður ú...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 2
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 664
- Frá upphafi: 1531711
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 542
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007