Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2024

Þingkvendi stráir söltum bitlingi í sár Brynjars með ófyrirsjánlegum afleiðingum

hundur4Nú er heldur skammt stórra högga millum hjá vini órum, Brynjari Níls. Fyrr í morgun var hann leiddur fyrir forseta Alþingis og látinn afhenda honum bréf upp á afsögn varaþingmennsku og skömmu síðar fær þingkvendi Sjálfstæðisflokksins þá flugu yfir höfuðið að nú sé rétti tíminn til að rétta að aumingja karlinum dálitla sárabót fyrir varaþingmannsmissinn með stjórnarbitlingi í Mannréttindastofnun. Þetta er afar fallega hugsað þingkvendinu, sem ku að öðru leyti vera formenni þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sona upp á punt, er oss sagt. Það er ekki nóg með að Brynjari sé veitt djúpt holundarsár af vinum sínum og félögum í Flokknum, heldur þarf sérkennileg stúlkukind á framagosabraut endilega að strá salti í skurð karlsins með því að klína ofan í hann óviðeigandi mannréttindagamsi. Þessi aðför að einum valinkunnum sómamanni líkist því helst að grimmri búrtík væri arrað af handahófi að saklausum borgara á götu úti.

Hins ber þó að minnast í sambandi við bitlinginn góða í stjórn Mannréttindastofnunnar, að Brynjar er manna frægastur hér á landi fyrir ofboðslega óeigingjarna mannréttindabaráttu sína. Árum saman hefir hann ekki unnt sér hvíldar frá umfangsmiklum og fórnfúsum mannúðarkenjum og mannréttindastöfum, því ekkert má hann aumt sjá. Öll munum vér eftir Brynjari Níls í fylkingarbrjósti helstu bardagasveitarinnar fyrir réttindunum allra jaðarhópa, flóttamann, hælisleitenda, hinseginfólks, transara og skransara, leigenda, gjaldþrotamanna, sprautudjönkara, ræfla og róna. Og hver hefir öðrum fremur keyrt upp stemmninguna og fjörið í Gleðigöngunum en þessi nýútsprungni bitlingshafi í Mannréttindastofnun? Og ef til vill hlotnast Brynjari enn meiri frami áður en dagurinn er á enda, því frést hefir að nú vanti tilfinnanlega varamann í hundahreinsunarnefndina á Seltjarnarnesi, sem enn þann dag í dag er ,,lítið og lágt".

xdEn vegir Mammóns og poletikurinnar eru órannsakanlegir. Þannig er flugan í höfði forkonu þingflokks Valhellinga, Mogga og Sjálfstæðisflokksins um kynlegan bitling til handa Brynjari aumingjanum, þókt hann sé allra góðra gjalda verður, það er segja Brynjar en ekki bitlingurinn, alveg framúrsakarandi illskiljanleg og umfram allt skammarleg og niðurdrepandi fyrir bitlingsþegann sjálfan, þegar öllu er á botninn hvolft. Það er nefnilega ekki nóg með að Brynjari hafi verið þröngvað til að segja af sér varaþingmennsku og leiddur með valdi af illum öflum fyrir forseta Alþingis og látinn afhenda þeim manni tárvott uppsagnarbréf. Hefir þetta lið ekkert leitt hugann að því hvernig þessi framkoma hefir á sálarlíf fórnarlambsins, lifur þess og skeifugörn? Það er andskotann ekki einleikið hvernig Sjálfstæðisflokkurinn fer með einstaklinga nú til dags og engin takmörk virðast fyrir hugmyndafluginu um hvernig best sé að skensa og pína náungann.


mbl.is Brynjar líklega í stjórn Mannréttindastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraksmánarleg framkoma við Valhallarinnar besta son

sparkÞá eru þeir nú búnir að hrekja Brynjar aumingjann úr Sjálfstæðisflokknum. Bölvuð ekkisens illfygli eru þetta fólk. Karlgreyið hefir um árabil paufast um fúafen þessa hættulega Flokks, fórnað lífi sínu og mannorði fyrir hann, og fær nú að lokum gríðarlegt spark í afturendann frá því versta af öllu vondu sem fyrirfinnst í Valhöllu. Heldur þetta ósiðaða óreiðulið að hann Brynjar sé einhver palestínskur yazan eða yatzi í hjólastól og því verði endilega að kasta honum fyrir sextugan hamarinn?

En vér skulum ekki örvænta. Brynjar finnur sér nýtt heimili og skjól innan tíðar; vér gætum trúað að hann sé dulítið eins og flækingskettirnir sem finna sér aðra húsbændur jafnhraðan og þeir yfirgefa þá gömlu sem alið hafa önn fyrir þeim, gefið þeim að éta og leyft þeim að liggja á strigadruslu í þvottahúsinu eða forstofunni. Nú þykir og blasa við að Miðjúngsflokkur klausturjúnkara og einkennilegra manna standi ekki aðeins opinn fyrir Brynjari, heldur galopinn. Og brátt muni hinir brottreknu dómsmálaráðherrar, Nonnýboy, frú Andersen og Hanna Birna, fylgja í kjölfar Brynjars og bætast í tölu heimilismanna hjá Sigmundi í Wintris og Beggó. En mikið déskoti er eitthvað hræðilega vond lykt af þessu öllu.

fugl6Ef hins vegar að það sé tilfellið að Brynjar hafi flippað út við meðferðina í Valhöllu og átakanlegar segulskekkjur og kompásvillur hafi tekið öll völd millum eyrna karlangans, þá gengur hann beint í Pírataflokkinn og gerist þar stjörnuforingi og ofurþingmaður. Það eru sem sé ekki öll sund lokuð fyrir Brynka karlinum, þókt illræðismönnum og skessum Sjálfstæðisflokksins hafi hugkvæmst, vafalaust í drykkjuæði, að nú væri nauðsynlegt að neyða hann til að segja af sér varþingmennsku fyrir hin voðalegu samtök sem eiga sér heimili og varnarþing í Valhöllu við Háaleitisbraut í Reykjavík.  


mbl.is Brynjar Níelsson segir af sér varaþingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frækilegt afrek Mumu litla frá Brúarlandi og öngvit Íhalds og skrímsladeildar

kyr1.jpgÞað er á vissan hátt átakanlegt að horfa upp á Sjálfstæðisflokkinn steinliggja eins og skotinn tarf í svaðinu eftir að hafa farið heldur en ekki halloka fyrir VG í Yazansmálinu góða. Aunginn lifandi maður bjóst við því að Mumu litli frá Brúarlandi væri slíkur afreksmaður og böðull, að hann gæti barið bæði Bjarnaben og Kjöríssprinsessuna í öngvit um miðja nótt og það í einu og sama högginu. En viti menn. Þegar að var komið var það Íhaldið sem lá með buxurnar á hælunum eftir kærleiksrík atlot Mumu litla, sem hingað til hefir ekki haft eitt einasata afreksverk á ferilskránni sinni.

x-d4Ekki linar það heldur sorg hefðbundinna Íhaldsdrjóla og grimmúðlegra Íhaldskérlínga að vita af drengnum Yazani borandi út að eyrum í Rjóðrinu, étandi kók og prins, hamborgara og franskar kartöflur, með Svein Rúnar og Semu sitjandi ekki minna brosandi og sæleg með sigurinn en Yazan. Já, það er ólýsanlegt bakslag fyrir géðrík Íhöld að hafa mistekist að hrinda einum fötluðum drengstaula í hjólastól og auk þess frá Palestínu fyrir björg með hjólastól og öllu saman. Þessi ósköp segir styggur Íhaldskurfur að lýsi þessum fjandans Palestínufjöndum, Semu og Sveini Rúnari betur en flest annað

kross.jpgEn eigum vér nú ekki að vænta þess, að Mumu litli frá Brúarlandi verði skjótt kallaður suðrá Bessastaði til að fá hengdan utan í sig kross af forsetanum? Jú, ef eitthvað er réttlætið á Álftanesi, þá gjörir forsetinn, af fyrra bragði ef ekki vill betur til, kröfu á að fá að krossfesta Mumu, með fullu samþykki orðunefndar og ríkisstjórnarinnar, fyrir frækilega framgöngu hans aðfaranótt síðasta mánudags þegar hann vann á Íhaldinu og skrímsladeild þess með þessháttar höggi sem fagmáli hnefaleikara er kallað ,,knock out" og felst í því að rota andstæðinginn í hringnum, helst dauðrota hann.  


mbl.is Yazan verður ekki fluttur úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann passar vel við Píratahópinn og enn betur inn í kaflann um einkennilega menn

x15Sigmundur Davíð passar einstaklega vel inn í Píratahópinn, því hann er jafnskrýtinn og píratakálfarnir, jafnvel skrýtnari í sumum tilfellum. Þegar kaflinn um ,,einkennilega menn á Alþingi" verður skrifaður verða Sigmundur Davíð og lagsbræður hans í Pírötum í forgrunni og aðalhlutverkum þess kafla. Mér segir svo hugur að Beggó, frú Sæland og kirkjueigandinn sem strauk frá Sigmundi og Beggó yfir í Sjálfstæðisflokkinn fái verðugan sess í kaflanum, sem og Áslaug Arna og Árni Þór Sigurðsson og Jólatréð í VG.

Það má svo sem vel vera að Sigmundur Davíð eigi eftir að smitast illilega að Pírötunum, sem settir hafa verið honum til höfuðs, og sá endir verði á því drullumaki að Sigmundur, ræxnið atarna, verði fluttur með hraði í sjúkrabíl að gula húsinu með rauða þakið inn við sundin blá. Trúlega munu Píratarnir ekki þola að sjúga sálarlíf og visku Sigmundar Davíðs í sig í slíku návígi og því er hætta á að þeir verði brjálaðir allir með tölu.

x25Þið munið eftir honum Gunnari Braga, er það ekki? Hann drakk með Sigmundi, skandílaséraði svo um munaði og kom loks nærbuxnalaus heim daginn eftir og var upp úr því sendur í útlegð. Beggó aftur á móti, stundaði Klaustrið með Sigmundi og Gunnsa Braga, hann fór öðruvísi að og kvæntist, það þóktu tíðindi til næsta bæjar og þykja það enn. En nú er Sigmundur sem sé aftur orðinn vinsælasti bobbingurinn á ballinu eftir mörg mögur ár, sem sést best á því, að nú streyma lukkuriddararnir að honum í von og góð sæti á framboðslistum eða géðslega bitlinga. En lukkuriddararnir mega ekki láta helgar tíðagjörðir í Klaustrinu standa í sér og tóna af raust með Sigmundi ábóta og Beggó kardínála.


mbl.is Mynd: Sigmundur umkringdur Pírötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misheppnaður mótmælafundur, andlaus og geðlaus

femma4Meintur ,,mótmælafundur" á Austurvelli í dag var misheppnaður að flestu leyti. Hann var það sem kallað er ,,flopp" á erlendum málum. Þegar til kom fór ekki milli mála að þeir sem að fundinum stóðu gerðu það með hangandi hendi, enda hefir fátt nýtilegt, hvað þá verkalýðslegt, sést frá yfirstéttarelítu ASÍ og BSRB í mörg herrans ár. Enginn ræðumann dagsins hafði til að bera þann neista sem nauðsynlegur er og andi Guðmundar heitins Joð Guðmundssonar eins víðsfjarri og hugsast getur. Eitthvert loðmullulegt taut um verðbætur, verðbólgu og vexti er heldur óskemmtilegt viðlag þegar krafan ætti að vera afnám hins kapítalíska þjóðskipulags.

Svo var heldur óskemmtilegt að verða vitni að því að manneskja, sem verið hefur á harðahlaupum um ráðuneyti og sali ASÍ, og tók virkan þátt í aðförinni að Sólveigu Önnu Jónsdóttur og stjórn Eflingar fyrir býsna stuttu síðan, skuli hafa verið einn af ræðumönnum dagsins á Austurvelli. Satt að segja setur óhug að manni að horfa upp á slíka óhæfu. Með leyfi að spyrja: Hverjum er verið að ögra með því að láta Höllu Gunnarsdóttur bulla hjartalausan samsetning uppi á palli á útifundi verkalýðshreyfingarinnar? Ég legg til að almennir félagar í verkalýðshreyfingunni taki málin í sínar hendur og standi einir að framkvæmd og skipulagi næstu mótmælafunda og skrifstofusjakalar á ASÍ kontórnum og Halla Gunnarsdóttir komi þar hvergi nærri.

verko10Það dylst ekki hugsandi fólki, að pólitískt og efnahagslegt ástand á Íslandi er hvort tveggja í senn ámælis- og skammarlegt. Það er engu líkara en að alvarlegt kreppuástand sé handan við hornið, ekki bara svona venjulegt og hefðbundið kreppuástand sem er óhjákvæmilegur fylgifiskur kapítalismans, heldur og virðist sem þjóðin rambi á barmi andlegrar og félagslegrar kreppu, sem ekki verður leyst með bankagjaldþrotum, slitastjórnum og hrægömmum. Við verðum að breyta þjóðskipulaginu, við verðum leggja eyrun að þjóðskipulaginu, við verðum að skipta um þjóðskipulag. 


mbl.is Nokkur hundruð manns mótmæltu á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geðslegur broddur atarna. En við skulum samt muna vel eftir auðvaldssvíninu og alþýðumanninum með rauðu málninguna

_gust_a_motmaela.jpgÞað var þó broddur fylkingar atarna og svo gátu þessar dömur ekki setið á sér að hafa Bjarnaben fyrir skrautfjöður í stélinu. En fyrst og fremst ber þó þessi broddur yfirstéttarinnar í landinu vitni þess að hér ræður guðinn Mammón ríkjum. Peningaóð kaupsýslukerling, efrimillistéttarfémínísti með prestakraga og alræmdur fjárglæframaður stórauðvaldsstéttarinnar mynda hið hlálega tríó broddsins á valdstjórninni. Ég vona bara að það verði margir mótmælendur á Austurvelli í dag og að þeir taki toppfígúrurnar sem eru að setja Alþingi auðvaldsins á Íslandi sér til handargagns, fari með þær að Tjörninni og veiti þeim gott skírnarbað þar í andaskítsgrugginu og sendi svo þessi bölvuð endemi til síns heima. Að svo búnu ætti alþýðan að taka öll völd þjóðfélagsins til sín, setja á laggirnar byltingarráð og reka Sjálfstæðisflokkinn á fjöll.

En því miður vantar oss allan manndóm til að taka eftirminnilega í hnakkadrambið á andskotum vorum og kvölurum. Það er því lítil hætta á að mótmælendur á Austurvelli þekki sinn vitjunartíma og kaffæri ríkisstjórnina, forsetafyrirbærið og byskubbsnefnuna dulíð í Reykjavíkur tjörn og sjái til að það fólk gangi hundblautt og andaskítugt heim til sín í kuldanepjunni. Og taka síðan völdin. Völdin eru nefnilega innan seilingar; alþýðau þarf aðeins að rétta út hnefann þá er auðvaldið fallið. En alþýðunni, verkalýðsstéttinni, ætlar seint að skilja aflið sem býr í samtakamætti hennar - en auðvaldið hefir ekki roð við við slíku afli, sé því beitt. Það þarf óskiljanlegt, næstum yfirnáttúrlegt, geðleysi og umburðarlyndi til að þola auðvaldssvínaríið til eilífðarnóns, það skuluð þér og þínir muna.

svínVér munum enn eftir auðvaldssvíninu sem fékk bláfátækan mann til sín í heimsókn í Hruninu. Þessi bláfátæki maður, sem hafði rauða málningu með sér í fjögurra lítra dós, hafði tapað öll því litla sem hann átti, að meðtalinni eiginkonu og börnum, vegna aðfara trylltra nýfrjálshyggjubesefa auðvaldsins. Og nú var hann kominn til að heiðra auðvaldssvínið með því að mála hjá honum útidyrnar, eitthvað af húsveggnum, eldhúsgluggann og stéttina með slitsterku rauðu skipalakki. Um leið og alþýðumaðurinn hófst handa við málningarvinnuna lagðist auðvaldssvínið á gólfið í forstofunni og hágrét; hann grénjaði og grénjaði af sturlaðri hræðslu, því að hann hélt að málarinn við útidyrahurðina mundi innan stunda koma inn með glóandi tengur og klípa hann víðsvegar um líkamann og ljúka svo ofbeldisverinu með því að troða tangarskrattanum, þrjúhundruð gráðu heitum, upp í rassinn á honum. Og þarna lá svínið á forstofugólfinu og grénjaði þar til alþýðumaðurinn með málninguna var farinn leiðar sinnar. Þá stóð auðvaldssvínið upp og setti upp sparibrosið og hélt áfram að telja saman þýfið sem honum hafði tekist að hafa af alþýðumanninum og stéttarbræðrum hans.


mbl.is Halla og Guðrún í broddi fylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn bregst ekki sínum mönnum á ögurstundu

x36Hvaðahvaða, datt einhverjum í hug að Sjálfstæðisflokkurinn mundi bregðast sínum manni á ögurstundu? Ónei, ráðherra Sjálfstæðisflokksins í ráðuneyti sem er þinglýst eign Sjálfstæðisflokksins, fer nú ekki að hlaupa eftir dyntum einhverrar kérlíngar sem Flokkurinn skipaði ekki og aldrei. Já, vinir mínir, þið sem búnir eru að liggja í hugarvíli út af þessu máli getið nú andað léttar og Helgi Mángi getur óhikað haldið áfram að ausa útlendinga, hom-ma og transara, skít og auri úr stóli vararíkissaksókna, og það á fullum launum, skohh. Það er fásinna að ætlast til að svona merkilegur dansherra Sjálfstæðisflokksins sé skikkaður í leyfi eins og hvurt annað hundsspott.

En nú á Sjálfstæðiflokkurinn eftir að draga helvíska grýluna hana Sigríði ríkissaksóknar úr þeim stóli sem hún hefir setið í um hríð í fullkomnu heimildarleysi og óþökk Sjálfstæðisflokksins. Þegar Sjálfstæðisflokkum hefir tekist að þagga niður í kérlíngunni fyrir fullt og fast og hún komin á haugana og Helgi Mángi farinn að klæmast og bölva sem aldregi fyrr, þá fyrst fer Sjálfstæðisflokkurinn að rísa á skoðanakönnunum og hann veðrur vissulega kominn upp í rjáfur í fylgi á kjördag.

Grýla1Nú, það afrek frú Hafsteinsson Kjöríss að segja Sigríði ríkissaksóknara að þegja og bíta í sig er afar hægrisinnuð aðgerð, sem kemur sér vel því aumustu og heimskustu íhaldssálirnar hafa síðustu mánuði öskrað hvað af tekur um að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn alveg ógurlega langt til vinstri og að Vinstrigrænir séu búnir að eyðileggja Flokkinn og forustumenn hans með einhverjum ótilgreindum óþverra; Bjarniben sé kominn í endalausa vörn og stelpugálurnar sem með honum eru hugsi bara um hvítvín, naglalakk og blásara (vonandi að þær hugsi ekki svona mikið um stráka líka, það væri þokkalegur andskoti fyrir Flokkinn). Það er að vísu dálítið sérkennilegt að sjálfstæðishetjurnar skuli aldrei látnar standa fyrir máli sínu og látnar rökstyðja kjaftæðið um að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðið svona líka langt til vinstri. Fréttmenn láta til dæmis algerlega vera að láta rugludalla á borð við Bínga, og marga fleiri álíka sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá þeim, vaða elginn um að Sjálfstæðisflokkurinn, þessi að minnstakosti hálffasíski nýfrjálshyggjuflokkur, hafi færst mjög til vinstri og sé orðinn einhverskonar róttækur vinstrisósíalistaflokkur.   


mbl.is Guðrún hafnar beiðninni: Helgi heldur starfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, sona Ljósanæturgleðir eru oft lengi að fjara út

kol23Ó, þeir eru svo glaðir á Suðurnesjunum í dag eftir Ljósanóttina góðu um síðustu helgi, að sumir þar um slóðar hafa ekki getað hætt gleðinni og því slást þeir í dag í skólanum þarna suðurfrá. Sona gerðist líka á árum áður hér og þar um landið eftir vel heppnuð þorrablót að vetri eða duglegt páskaknall. Á mánudag eftir páska slóst áhöfnin á Þjóðarsómanum, skipi Gunnólfs skipstjóra, út á dekki um hádegisbil og urðu þar margir undir og máttu láta í minni pokann fyrir sér enn minni mönnum. Þegar bardaginn brast á lokaði Gunnólfur skipstjóri brúarglugganum, læsti báðum hurðunum á rórhúsinu og setta á fullt stím í land. Þegar komið var í höfn beið löggrýlan á bryggjunni, sem sé þeir Ásmundur varðstjóri og Hálfdán sem síðar varð frægur Varðstjóri, þá kornungur maður og orrustuglaður.

Þeir félagar, Ásmundur og Hálfdán stukku þegar um borð með kylfurnar á lofti og létu þær ganga á óbótamönnunum. Þegar þeir höfðu járnað seggina á dekkinu brá Hálfdán unglögreglupiltur sér inn í eldhús og handsamaði matsveininn, hr. M. Sckonsukarl, og dró hann nauðugan og hvæsandi frá pottunum og tjóðraði hann á höndum og fótum með snærisspotta sem lá á dekkinu. Að svo búnu fóru fulltrúar valdstjórnarinnar og réttvísinnar með feng sinn upp á stöð og sturtuðu honum í einu lagi inn í þennan eina fangaklefa sem þeir höfðu til umráða og rúmaði varla með góðu móti nema einn mann drukkinn og máttlausan.

perrSvona var nú tekið á alvarlegu ofbeldismálum í þá daga og þókti sjálfsagt og eðlilegt. Í dag lyppast lögreglan varla á lappir, þókt henni sé tilkynnt um morð eða landráð. Nema Hálfdán Varðstjóri. Hann hefir aldrei látið deigan síga hvað sem á hefir gengið og hvernig sem viðrað hefir. Af þessum ósérhlífna dugnaði í starfi hefir Hálfdán Varðstjóri orðið mjög óvinsæll, einkum meðal fémínísta og kannabisjukkara og annars óreiðulýðs, og hefir mátt þola marga kvörtum og kæru frá þessu ólánsfólki, - sem varla er fólk heldur eitthvað allt annað. Eitt sinn stóð Hálfdán alræmdan gluggagægi að verki og handfjatlaði hann soleiðis, fyrir utan gluggann hjá hjónunum sem hann hafði verið að kíkja inn til, að helvítið var búið að míga í buxurnar og samfestingurinn hans allur rifin og tættur eftir föðurleg handtök Hálfdáns Varðstjóra. Aumingja hjónin þökkuðu Hálfdáni voða innilega fyrir vel unnið verk, en kérlíng gluggaægisins varð hins vegar meir en brjáluð yfir meðferðinni á bónda hennar. 


mbl.is Lögreglan kölluð til vegna hópslagsmála í FS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verður fyrsta flokks úrvals pípuhattajarðarför

fullNú er farið að hausta í lífi Hagkaupa, dansinn á grafarbakkanum er hafinn og brátt glymja skellirnir í kistulokinu við eyrum þegar klerkur Mammónskyrkjunnar kastar rekunum ofan á það. Svo verður að ráðast hvort svo óspilunarlega tekst til að einhver sé svo heillum horfinn að kasta fjármunum í legstein yfir hræið, því sannast sagna væri best að leiði slíks óskapnaðar fengi að blíva ómerkt og kollátt um aldir alda.

Já, heilsufar Hagkaupa er orðið viðsjávert og undur bágborið. Hver hefði trúað því á ungdómsárum þessa fræga fyrirbrigðis að það mundi á gamals aldri fara að herja inn á sérsvið leynivínsala, sprúttara, smyglara og bruggara? En nú er það staðreynd að Hagkaup hafa álpast á gamalsaldri út í samkeppni við fyrrnefndar stéttir og ætlar sér að hefja sölu á sprútti, væntanlega landsmönnum og jarðarbúum öllum til heilla. Að vísu hafa örþyrstir gleðimenn getað fest kaup á kardó og hressandi rakspíritusi í Hagkaupum og gjört sér svo glaðan dag á eftir úti á stétt í kalsarigningu eða snjóhraglanda.  

Ekki er að efa að við útför Hagkaupa verður sunginn Brennivínssöngurinn og sálmurinn úr Hvítvínskviðu herra Bacchusar Ben. í flutningi stúlknakórs Valhallar og Heimdalls. Svo verður kassinn með hinu burtsofnaða fyrirbrigði í borinn til hinstu hvílu af vel mektugum mönnum, því þetta verður fyrsta flokks úrvals pípuhattajarðarför með tilheyrandi erfidrykkju í hvítvínsbrennivíni og humarhölum á eftir. En bráðum koma blessuð jólin börnin fá að drekka sprútt. En Hagkaup verður á hauginn borið heldur súrt og niður skorið með allt sitt auma tjúttífrútt. 


mbl.is Selja ekki snyrtivörur af gráum markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband