Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2025

Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu

ingSíðan Bjarniben lagði á flótta bæði úr stjórnarráðinu og Valhöllu og yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn í fússi hefir frú Ingveldur verið afar hugsi og látið lítið fyrir sér fara. Og nú eru að koma á daginn allar hennar svörtustu spár. Hún reyndi að koma í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fremdi ekki það axarskaft að gjöra Guðrúnu Hafsteinsdóttur Kjöríss að formanni Flokksins, en hafði ekki erindi sem erfiði.

Þegar svo illa var komið að frú G.H. Kjöríss var orðin formenni, þá spáði frú Ingveldur því umsvifalaust, að þetta makalausa kjör væri upphafið að endinum. En nú hefir heldur betur komið í ljós að að nýi formaðurinn er vægast sagt litlaus pólitíkus (ef pólitíkus skyldi kalla), áhugalaus um þjóðmálin og rúin öllu sem hægt er að kalla kjörþokka. Við þetta bætist að þingflokkurinn saman stendur af fjaðralausum undirmálsdvergum, þar sem enginn nær kjörþyngd eða reiðir vitið í þverpokum. ,,Þetta er búið", tilkynnti frú Ingveldur öldungum flokksins á dögunum með þeirri athugasemd, að nú væri ráð að selja bæði Valhöllu og Moggahöllina í Móunum áður en gjaldþrot og hrun gerðu þessar glæstu eignir að engu. 

Ennfremur hefir frú Ingveldur sagt kunningjum sínum, að mikið megi vera ef Flokkurinn verði ekki seldur á uppboði eins og hvert annað úttaugað gamalhross eða gjörónýtt skipsflak á strandstað. Meira að segja Brynjar Vondalykt hefir lagt niður öll vopn og útvegað sér vottorð upp á að hann sé geldur orðinn og úr honum allur sá vindur sem gjörði hann að manni með mönnum. Þá er Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, ásamt því að vera eiginmaður frú Ingvelda,r kominn á vergang; hún rak hann burt af heimilinu þegar hann gerði sér lítið fyrir og kom tvívegis buxnalaus heim á sama sólarhringnum, og bar með sér menjar um syndsamlegt líferni á líkama sínum. Það var daginn eftir síðustu kosningar í kjölfar þess að búið var að leggja gömlu geggjuðu Framsóknarmaddömuna inn á líknardeildina. En daginn eftir að gamla Maddaman hafði verið lögð til í bæli á líknardeildinni, gjörðust þau stórmæli á deildinni að þar geispuðu allir sjúklingarnir golunni milli klukkan ellefu og tólf árdegis, nema Framsóknarmaddaman, hún lifði. En en kokkurinn sat uppi með allan hádegismatinn ósnertan þar eð þeir sem höfðu átt að neyta hans voru horfnir á vit feðra sinna. 



mbl.is Svefnlausu næturnar voru allar þess virði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa og mela

samÓsköp sem það er líkt Samfylkingarauðvaldinu að senda frægar afturgöngur sínar, þau Össur og hana Katrínu Júlíusdóttur, sem bæði eru Hrunistar, í sextugsafmæli nýfrjálshyggjukarlsins Andrésar Magnússonar, sem gjör hefir garðinn frægan í Hádegismóum upp á síðkastið með Stefáni hérna Einari, sem getið hefir sér gott orð fyrir ósvífni og hortugheit á Mogganum. Össur er hins vegar einn af þessum ólánsdrengjum, sem kaus að sóa lífi sínu í að fara huldu höfði í poletikinni; hann hófst upp úr unglingamótþróa á íhaldsheimili til að leika á gamla alþýðubandalagsmenn sem gerðu hann að ritstjóra Þjóðviljans! Já þeir voru litlir mannþekkjarar sumir flokkeigendurnir í alþýðubandalaginu. Síðar skreið Össur í vist hjá krataeðlispáfanum Jóni Baldvini og með honum startaði hann nýfrjálshyggjunni á Íslandi svo um munaði með Eimreiðarstrákunum; því skemmdarverki lauk sem kunnugt er með Hruni. Loks var Össur kosinn út af þingi með glæsibrag og lagðist í brask eftir það eins og góðum auðvaldsdreng sæmir. 

Annars hefir afmælið hans Drésa verið huggulegasta samkoma og má vel kenna afmælisbarnið á því fólki sem heiðraði hann sextugan. Verst er, að nú geta nýfrjálshyggjudraugarnir ekki falið lengur hve slitnir þeir eru orðnir og komnir langt fram yfir síðasta söludag. Ef þessar eftirstöðvar af nýfrjálshyggjumorinu væri matvara í verslun, er viðbúið að heilbrigðiseftirlitið væri kallað á vettvang til að fjarlægja óþrifin og kæra kaupmanninn fyrir að bjóða heilsuspillandi vöru til sölu.

En þó nýfrjálshyggjan í Sjálfstæðisflokknum sé blessunarlega komin að fótum fram; og eimreiðargalsinn í Valhöllu að mestu hljóðnaður; og raddirnar í þeim orðnar draugslega rámar. Þá heldur hliðarsjálf Sjálfstæðisflokksins uppi nýfrjálshyggjumerkinu fyrir auðvöldin og arðræningjanna. Hið glæsilega sett ESB auðvaldsins, þær Kristrún í Kviku, Thorgerður Katrín, sem er fyrrum góðhrunari, og maddama Sæland, hafa fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, með tilheyrandi krataeðli og lýðskrumi, tekið við nýfrjálshyggjukeflinu og eru ekki bara farnar í stríð við Rússa og kvótaeigendur, heldur eru þær í óðaönn að undirbúa stríð við íslensku þjóðina út af ESB innlimuninni. Íllt er þetta allt og bölvað og megi Guð gefa oss byltingu frá öllu þessu herfilega krataeðlisauðvaldsstússi. 



mbl.is 60 ára afmæli Andrésar Magnússonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband