Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025

Ískyggilegt ástand í helsta Fjósi landsins

framsÞað er orðið andstyggileg ástandið í Framsóknarfjósinu núna; kýrnar allar með doða og ærnar létu lömbum sínum í gríð og erg á vordögum, einmitt í sama mund og hretið gekk yfir, þannig að vart stendur lengur steinn yfir steini í efnahagsreikningi og hagkerfi gömlu Framsóknarmaddömunnar. Þá hafa afföll orðið stórtæk á griðkvennahaldi Fjóssins, en húskarlarnir flestir veikir af megurð og ókennilegum innanmeinum. Og sjálf er gamla Maddaman ekki heilsuhraust, enda lifað við hungursneið i marga mánuði, - alveg eins og blessuð börnin á Gaza. Þó hefir sú gamla átt fyrir áquavíti og neftóbaki, en það eru þær neysluvörur Maddömunnar sem eru í algjörum forgangi hjá henni og hún hefir selt blíðu sína af skornum skammti til að komast yfir.

Hinsvegar er ráðsmaður Maddömunnar vel í holdum, hann beinlínis rær í spikinu og kumrar eins og veturstaðinn hrútur í stíu. Það er merkilegur andskoti hvað sá maður þrífst forkunarvel meðan griðkonur og húskarlar Framsóknarfjóssins eru við að deyja úr ófeiti og hörgulsjúkdómum. Og gamla Maddaman liggur liggur fyrir dagana langa og og hefir ofan af fyrir sér í hungrinu með aquavíti og neftóbaki. Þá var síðast skoðanakönnun Gallúps ekki til þess fallin að bæta heilsufarið í Framsóknarfjósinu. Þvert á móti mældi Gallúpur framtíðarhorfur Framsóknarfjóssins við dauðamörk. Ennfremur að daginn eftir næstu alþingiskosningar verði gamla Maddaman dæmd dauð og andlátsvottorð verði þegar í stað gefið út. Svo verður kérlíngarálkan grafin að viðstöddu fámenni í Fjóshaugnum undir tilhlýðilegum og og viðeigandi sálmasöng upp úr Hriflungapostillunni. En kjósendur Framsóknarfjóssins fara hreppafluningi á Höfuðbólið samkvæmt erfðaskrá gömlu Maddömunnar.

Íllt veri það allt og bölvað. Því nú er VG-ið dautt og farið til Andskotans, sömuleiðis Píratahænsnaflokkurinn og ef að líkum lætur fær sjálfur Gunnarsmári að fljóta með í rummungskörfu VG-arana. Eins og gefur að skilja ríkir fögnuður í ríki Djöfulsins um þessar mundir, því brátt verða framsóknarflokkarnir á þingi fimm að tölu, og mun fækka fljótlega í hagræðingarskyni. Og meðan gamla Framsóknarmaddaman bíður örlaga sinna, farlama, sífull og útbólgin af nefstóbaksnautn, hefur hún ofan af fyrir sér með því að yrkja. Hún orkti eftirfarandi vísu í síðustu viku. Ljóðmæli þetta er í svokölluðum bí-bí og bö-bö hrynjanda:

Nú er íllt efni,
djöflar allir kafni.
Taðhaugr undir tofveggr
tryggir svefninn mesta.
Áquavítis áhrif
efla tóbaks gleði.
Til Fjandans snýr frúin stefni
í faðminn allra besta.  


mbl.is Fylgið í sögulegri lægð og mikil vinna fram undan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband