Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2025

Hann missti kerrunan međ ţremur hrossum niđur í djúpt og bratt gil.

imagesŢetta óskakapar veđur á Holtavörđuheiđinni í dag međ ţessu líka vagnatjóni minnir einna mest á ţegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmađur ók eitt sinn kófdrukkinn yfir ónefndan fjallveg međ ţrjú hross í vagni sem hann dró á eftir bifreiđ sinni. Á heldur vondum stađ varđ hestvagninn fyrir slćmri áhlaupsvindhviđu, sem svipti honum á hliđina, kerrubeisliđ sveik og slitnađi, en vagninn sjálfur skondrađist í hendingskasti út fyrir veg og niđur í heldur ţröngt og djúpt gil, sem ţarna er.

Kolbeinn Kolbeinsson var samt ekki af baki dottinn viđ ţetta leiđinlega óhapp, heldur brá hann sér međ vasaljós niđur í giliđ, ţví náttmyrkur var skolliđ á međ smá-krepjufjúki, til ađ huga ađ kerrunni og ţá ekki síđur hestunum. Á gilbotninum komst hann ađ ţeirri óhuggulegu stađreynd, ekki var kerran einast handónýt, snúin og beygluđ í keng, heldur voru og hrossin ţrjú aldeilis steindauđ. - Ţađ er ţá allt fariđ til Andskotans, tautađi Kolbeinn ţvoglumćltur viđ sjálfan sig, - og megi Andskotinn ţá hirđa ţađ allt saman! Ţá mundi Kolbeinn eftir ţví ađ hann var međ ágćta hausingasveđju í farangursrýminu. Svo sókti hann bitvarginn.

Nú kom í ljós ađ Kolbeinn gat vel tekiđ til hendinni. Hann klöngrađist ofan í giliđ međ sveđjuna góđu í annarri hendi en bokkuna hálffulla í hinni og brytjađi líkin af hrossunum niđur og bar ţau í stykkjum upp í bifreiđ sína. Ţađ stóđ líka á endum, ađ ţegar síđasta kjötflyksan var komin í bíl var heldur ekki pláss fyrir meira. Svo hélt Kolbeinn ferđ sinn áfram og staupađi sig geigvćnlega ţar til hann var komin í hlađiđ heima hjá sér, en ţá dreif hann hrossakrofin inn í bílskúr og ţar var ketiđ saltađ niđur í tunnur. Hins vegar veltu ţeir hjá vegagerđinni lengi fyrir sér hver hefđi átt hina blóđugu og beygluđu kerru í gilinu á heiđinni.  


mbl.is Hjólhýsiđ „orđiđ ađ frumeindum“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband