Leita í fréttum mbl.is

Fáheyrð viðurstyggð: Bregður fæti fyrir einn helsta velunnara og styrkjara Flokksins

gun4Þá hefir frú Swandeesý svarað árás Sjálfstæðisflokksins á útlendinga með því bregða fæti fyrir einn af helstu velunnurum og péníngastyrkjara Flokksins á býsna fólskulegan hátt. Frú Swandeesý hefir sem sé af víðkunnum skepnuskap sínum látið sig hafða það að banna hinum kjaftagleiða auðvaldssegg, Stjána Loftssyni að veiða hvali fyrr en í með haustinu og þá mun hún framlengja bannið, - það er að segja ef hún verður ennþá ráðherra, sem aldeilis er óvíst eins og staðan er nú.

Þessum fantaskap Swandeesý mun Sjálfstæðisflokkurinn ekki láta ósvarað og sennilega verður skrímsladeild, grá fyrir rógi og lygum, verða send til höfuðs kérlíngunni og henni gjört ólíft til lands og sjávar. Til viðbótar er Íhaldið líklegt til að gefa brennivínssprúttsölu alfrjálsa, eins og það kallar það; fella niður allar greiðslur frá Tryggingastofnun til öryrkja og aldraðra sem og ríkisstyrki til stjórnmálaflokka; einnig selja heilbrigðiskerfið á slikk til einkaaðila. Já já. Og taka eftirlaunin af Stenngrimi Johoð.

Það er auðvitað bráðíllt fyrir frjálsa framtakið, auðvaldið, arðræningjana og nýfrjálshyggjuna að eitt vanstillt ráðherrarassgat skuli hafa gert sér að leik að snúa hvalaskutlinum að einum af bestu mönnum Flokksins og senda hann rakleitt í miðjan bláendann á karli og byssuna á eftir. Sem betur fer er slík ósvífni fáheyrð. Vitaskuld getur Bjarniben, með einu pennastriki, tekið ráðherraembættin bæði af Swandeesý og Gwöndi litla frá Brúarlandi og látið Katrínu Jakkó sitja eina úti í horni með marklausa forsætisráðherranafnbót í barminum. Og sennilega mun Bjarniben gera það. 


mbl.is Veiðar á langreyðum stöðvaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foringjahersingin blæs í herlúðra og gangsetur rógsvélar og skrímsladeildir

rasiSvo er að sjá að hin hroðalegu samtök, sem kalla sig Sjálfstæðisflokk, hafi loks náð að peppa sig upp í það, sem að þeirra mati kallast ásættanlegur rasismus, sem er að sjálfsögðu alls ekki sami hluturinn og ,,rassismus". Þessu til sönnunar eru ýmiskonar gífuryrði allra helstu foringja Flokksins í garð öreiga á flótta frá ættjörð sinni, því svo illa er að þeim búið á heimaslóðum, að líf þeira, heilsa og velferð er í stórfelldri hættu. Nú er svo komið, að foringjahersing hinna voldugu samtaka, Sjálfstæðisflokksins, telur sálarheillum sínum og fjárhirslum best borgið með því að æða öskrandi á harðastökki út úr rasískápnum, sem hún hefur lengi mátt hírast í, þvert á vilja sinn. En nú skal taumurinn gefinn laus, rógsvélar gangsettar og skrímsladeildir ræstar út.

Fyrst verk höfðingjanna virðist eiga að vera brýn nauðsyn þeirra á að snúa gægsin í VG úr hálsliðnum eins og veiklaða hænuunga og kasta þeim í safnþrónna eða eldsofninn eftir ástæðum. Framsókn má vera áfram, ef hún sýnir lit gegn útlendingum, og litið er með velþóknun til frú Sæland og Sigmundar Davíðs um þessa mundir. Svo skal keyrt af alefli á öldutoppum útlendingaandúðar í grénjandi kosningameðbyr. ,,Flokkurinn þarf meira lífsrými, skohh", segja hinir kræfu foringjar og blása háværa stríðsmarsa á herlúðra sína. Svo verður kosið.

rasi2,,Rannsóknir hafa sýnt, rannsóknir hafa sýnt", segja fræðimenn Flokksins, að pöpullinn sé búinn að fá nóg af hælisleitendadekri og yfirgangi útlendinga á ættjörð Flokksins. Því sé nú runnið upp kjörið tækifæri til að láta hart mæta hörðu, stétt með stétt, og skera upp langþráða herör gegn óráðsíu vinstrimanna og öfugugga. Nú séu kjósendur loksins byrjaðir að sjá ljósið; og eftir tilheyrandi ríkisstjórnarslit og uppbyggilega kosningabaráttu á anti-hælisleitendanótunum, verði tiltölulega auðvelt fyrir Flokkinn að öðlast meirihluta þingheims í hálýðræðislegum alþingiskosningum. Nú, ef svo slysalega tiltekst að hreinn meirihluti næst ekki, þá eru gamla Framsóknarmaddaman, Flokkur Sælandsfólksins og Miðflokksdrjólarnir boðnir og búnir að leggja til það sem vantar upp á meirihlutann. Það er sem sé afar athyglisvert ástand framundan á Íslandi.      


mbl.is Erfitt fyrir VG að vera í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar upplýsingar sem gjörbreyta upphafi Íslandsbyggðar

ingólfurMáske er nú loks að koma upp úr dúrnum, að okkar ástkæri kaupmaður, Íngólfur Arnarsson, hafi reist bústað sinn í Árbæ en ekki í Kvosinni eins og lengi hefir verið haldið. Íngólfur þessi var annars kynjagripur og það svo, að sumir uppástanda að hann hafi aldrei verið til. Með öðrum orðum: Fyrsti landnámsmaður Íslands hafi frá öndverðu verið tómur hugarburður og uppspuni.Hins vegar, og það á eftir sanna endanlega með erfðavísindarannsókn. Hyggja greindir menn og athugulir, að þetta með þennan Íngólf sé tómur misskilningur og rugl í þeim sem fyrstur skráði heimildir um þennan dularfulla mann; rithöfundurinn atarna hafi ugglaust bæði verið drukkinn og geðveikur þegar hann hripaði Íngólf niður, því einséð þyki að í stað Íngólfs hafi átt að standa Ingveldur.

Ekki kemur oss mjög á óvart, þókt landnámsmaður Íslands hafi heitið Ingveldur - og enn minna mundum vér undrandi á því að frú Ingveldur væri komin í beinan kvenlegg frá Ingveldi landnámsmanni. Eða hvað segir ekki höfundur Hávamála í kveri sínu ,,Háfað í bátana"? Jú, hann segir einmitt ,,eirr Gandur við Ingvaldars falda" og á þar við að kvennaflagarinn Gandur hafi reynt að komast undir kjólfald Ingveldar landnámsmanns að Árbæ í Reykjarvík.

artÍ ljósi þessara upplýsinga er einboðið að Íngólfur sá er stendur steyptur í eir uppi á Arnarhváli verði sem skjótast niður brotinn og hann fluttur úr landi, en í stað þessa ómögulega falsspámanns verði reist veglegt líkneski af Ingveldi landnámsmanni, og verði frægasti og besti núlifandi afkomandi hennar, frú Ingveldur, höfð til hliðsjónar við líkneskisgerðina. Í framhaldi af þessum farsælu endalyktum um fyrsta landnámsmann Íslands verði sögunni af ,,Hjörleifi" fóstbróður Ingólfs kastað á haf út, því nú má ljóst telja að Hjörleifur sá er írskir þrælar slógu af austur við Hjörleifshöfða var bara Hjörleifur Guttormsson, síðar þingmaður Austfirðinga. 


mbl.is Sjá merki um mannvistir frá landnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt kýs þetta fólk svo burgeisaflokkinn, nema Kolbeinn

hálf10Það er bæði heimskulegt og óuppbyggilegt að eltast við fjasið í toppfígúrum burgeisaflokksins um útlendinga, því sá munnsöfnuður er fjarska ógeðugur og stundum illa hatursþrunginn og í ætt við óráðshjal vitgrannra óreglumanna. Vér skulum heldur ræða lauslega um síðustu stórafrek Hálfdáns Varðstjóra, en þau eru sum þeirrar gerðar að við liggur að vart sé hægt að leggja trúnað á annað eins. Til dæmis herma traustar fregnir, að Hálfdáni Varðstjóra hafi verið sigað á hóp dökkra útlendinga, sem höfðu að sjálfsögðu ekki roð við Hálfdáni og lágu allir valnum á svipstundu. Á eftir fékk Hálfdán að taka einstakling, að eigin vali, fastann og hafa hann á brott með sér í lögreglustöðina og loka hann þar inni yfir nóttþjón og láta þorparann sæta verðugri yfirheyrslu.

En ekki eru allar ferðir til fjár og það mátt Hálfdán Varðstjóri reyna á eigin skinni í vor. Hann fór í útkall að kveldi til og hafði með sér unglögregluþjón. Þegar komið var á áfangastað tók frú Ingveldur þar á móti Hálfdáni og sló hann þegar í stað niður og unglögregluþjóninn líka, og þar með fram hefndum, en Hálfdán hafði leikið Kolbein eiginmann hennar grátt í vikunni þar á undan, meðal annars kastað honum berum og með blóðnasir út af lögreglustöðinni og látið hann ganga þannig heim í útsynningshraglanda. Einnig lenti Varðsjórinn í óhugnanlegu kynferðisáreiti af hálfu náunga frá embætti Ríxlögreglustjóra. Sem betur fer er umræddur náungi nú þegar kominn undir græna torfu og sóleyjar og fíflar farin vaxa á leiði hans.

En hví greiddi frú Ingveldur Hálfdáni Varðstjóra þetta roknahögg á ranann? Jú, honum hafði orðið á þarna á vettvangi að segja við frú Ingveldi að það væri ,,djöfuls súrheysgryfjulykt" af henni. Þvíumlíkt klám lætur frú Ingveldur einfaldlega ekki bjóða sér, enda las hún strax hugrenningar Varðstjórans og þær voru miður fagrar og því reiddi hún til höggs. Reyndar fór unglögregluþjónninn mun verr út úr þessari orrustu en Varðstjórinn, en svo hamslaus var frú Ingveldur af reiði þetta augnablik að hún reif næstum því eyrun af þessum lánlausa unglingi. Margt gerist í hita leiksins og Kolbeinn Kolbeinsson, eiginmaður frú Ingveldar, náði taki á fótlegg hins einkennisklædda ungmennis og tókst að draga það með sér bak við hús, án þess að nokkur tæki eftir. En takið eftir því, strákar mínir, að allt kýs þetta fólk burgeisaflokkinn, nema Kolbeinn, hann kýs Framsókn.

 

 



mbl.is Leggur fram lögregluframvarp á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síra Baldvin tekst á við vélabrögð Djöfulsins

prestur13Æjá, allt er þetta skítt og bölvað og aunginn maður með mönnum nema mannleysa sé. Hitt er aftur annað mál, að upp á síðkastið hefir ármaður guðdómsins hérlendis, síra Baldvin, prestur og prófastur til Staðarþinga mátt standa í ströngu við að verjast vélabrögum Djöfulsins hér á jörð. Fyrr á þessu ári uppáféll honum sú sorg að leggja leið sína kveldmessu í næsta prestakalli, því lengi hefir síra Baldvin haft efasemdir um kristnihald í þeirri sókn. Hann mætti til leiks þegar um það bil tíu mínútur voru liðnar af guðþjónustunni og smokraði sér niður á aftasta bekk svo lítið bar á. Og þar gaf aldeilis sjón að sjá. Fyrir altari tifuðu þrjár hempuklæddar verur og sungu eitthvað, sem átti að heita sálmur fyrir kór og messu gesti.

Síra Baldvin sá strax hempuveran í miðið var sóknarpresturinn, en sér til beggja handa hafði hann tvo stutta presta, sem sé kvenpresta. Öll þrjú voru gríðarlega sperrt og gat síra Baldvin ekki betur greint en sálmurinn sem þau kyrjuðu væri frámunalega léleg og smekklaus þýðing á enn lélegra amrísku dægurlagi. Þegar söng var lokið fór önnur kvensan að hvía upp yfir sig, en strax þar á eftir klifarði hinn kvenmaðurinn upp í prédíkunarstólinn og fór að tala um Guð, sem hún kallaði reyndar Gwöð, og það heyrði síra Baldvin strax að þar var á ferðinni annar Guð en sá sem hann þekkir.

,,Hún Guð", kvakaði hempukérlíngin og varð einkar gírug í framan og lyngdi augunum, ,,er so so góð og hevur gert so mikið fyrir mig. Hún hevur géfið mér matinn minn og starfið mitt og manninn minn og börnin mín, húsið mitt, garðinn minn og bílinn minn, - og hún hevur líka géfið mér lánstraust í bankananum og sex vikna ferð með fjölskyldunni til Tenerife. Þegar þar var komið sögu sá síra Baldvin sér ekki annað fært en að standa upp og skerast í leikinn í krafti síns prófastslega embættis, því guðlast vill hann ekki hafa sér nær. Hann vóð stórum skrefum og ákveðnum upp að prétíkunarstólnum, seildist í hálsmálið á kvenprestinum og dró hana eins og blautan heypoka uppúr stólum, gekk með kérlu fram að dyrum og kastaði henni út. Síðan fór hann eins að og Frelsarinn þegar hann rak prangaraskrílinn út úr helgidóminum. Þegar allir voru komnir undir bert loft, slökkti síra Baldvin ljósin í musterinu, læsti kirkjudurunum og innsiglaði þær og skipaði sóknarprestinum í rúmið og kvaðst koma aftur í fyrramálið tala við hann. En því því viðtali mun sóknarpresturinn aldrei gleyma.    


mbl.is „Þetta getur skipt tugum króna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnakrossferð léttadrengs gömlu Maddömunnar

fleng1Öðlingurinn Einar Þorsteinsson, alinn upp meðal Valhallarbarna í spillingunni miðri, vakti fyrst athygli þegar hann opnaði sig fyrir ekki all lögngu síðan og sagði frá því að hann væri orðinn verulega forlyftur í jómfrúrdómi sjálfrar Framsóknarmaddömunnar. Að launum fékk hann embætti slúðurpjakks í Framsóknarfjósinu. Auðvitað getur drengurinn ekkert í borgarpólitík, en það var fyrirsjáanlegt og ekkert meira um það að segja.

Þó má segja Einari það til hróss, að hann smellpassar í duglausan meirihluta með landeyðunum úr Samfylkingunni og Viðreisn; Pírata tel ég ekki með því tilheyra öðru tilverustigi en mannfélaginu. Nú er þessum vonarpéníngi gömlu Framsóknarmaddömunnar att á foraðið á nærbuxunum einum klæða til að berja móti börnunum í Reykjavík. Já, sökum sjóðþurrðar er ekki hægt að borg börnunum hærri laun í bæjarvinnunni og því skulu þau arðrænd af kappi með þau standa á löppunum. Einsi Darlíng ætlar eiga eitthvað upp í snjómoksturinn næsta vetur, og þá fær hann að launum heitar strokur um viðkvæma staði frá gömlu Maddömunni, sem hann segist elska.

Svo vita Framsóknarmenn og Samfyllkingar, að á misjöfnu þrífast börnin best og að þeirra uppbygging til æðra lífs í fólgin í vendinum. Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn, sagði vitur maður eitt sinn og bætti því við, að þeim er hann refsar, refsar hann af sannri elskusemi og væntumþykju. Það þykja því góð tíðindi að Einar borgarfulltrúi gömlu Framsóknarmaddömunnar ætli ekki að láta börnin standa uppi í hárinu á sér og hafi nú þegar skrúfað niður í jarmi þeirra og heimtufrekju, því í raun og veru ættu þessar dólgatítur ekki að fá einn einast eyri í laun.


mbl.is Ekki fjárhagslegt svigrúm til að hækka laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voðaverk framið í Valhöllu í dag og fórnarlömbunum sparkað út á götu án áfallahjálpar

spark2Mikill harmur er kveðinn að húsi og kynþætti Jóns Gunnarssonar og hreysi hans orðið að táknmynd fyrir hryllilega uppgjöf og niðurlægingu. Og svo mikill var harmagrúturinn, Nonnyboy var leiddur, umflotinn tárum, á brott frá Valhöllu ásamt með húskarli sínum Brynjari. Á þessari stundu er enn ekki vitað hvort þessum vænu mönnum var veitt áfallahjálp eftir hið voveiflega illræðisverki, sem á þeim var framið í dag, eða hvort þeir fái nokkra áfallahjálp yfir höfuð. Sjónarvottar sögðu ennfremur að þorparinn Bjarniben hefði hjálpað bæði Nonnyboy og Brynjari út um aðaldyr Valhallar með fólskulegu fótsparki og þeir hrokkið undan því út á miðja götu, en vér seljum það ekki dýrara en við keyptum.

Vegna þessa atburðar ríkir nú upplausn á heimili frú Ingveldar og Kolbeins, en þau hafa síðustu vikur beitt sér gegn því að framið væri það skelfilega níðingsverk sem hefir nú komið á daginn. Þeim frú Ingveldi og Kolbeini er lítt um Kjörísdrottninguna gefið, en hún kvað vera orsökin fyrir endalokum Nonnyboy og Brynka, sem bæði eru snautleg og yfrið hlægileg. Frú Ingveldur var fyrir löngu búin að banna Bjarnaben að vinna Nonnyboy mein, en Bjarniben virti meira að segja það bann að vettugi og sat á svæsnum launráðum við sínum bestmanni og hratt honum loks fyrir hinn alræmda pólitíska ætternisstapa í dag. Fyrr mátti víst gagn gefa og Drotinn gaf og Drotin tók.

En nú mun fara að kortast lífið ríkisstjórnarinnar, sem betur fer mundi margur segja. Þegar fregnir bárust út af voðaverki Bjarnaben hringdi frú Ingveldur umsvifalaust í vinkvendi sitt, Máríu Borgargagn og tilkynnti henni höstugum rómi að hún væri bölvuð, andskotans graðpeysa og hlandsóttargemlingur; ennfremur að Indriði Handreður, eiginmaður Borgargagnsins, væri gagnslaus liðleskja og ónothæfur aumingi til allra verka. Máría Borgargagn svaraði að bragði, að það væri ekki þeim hjónum að kenna, að Bjarniben væri það svínabest sem hann greinilega væri og hefði nú berað með fordæmalausri og fordómalausri árás úr launsátri að fórnarlömbunum Nonnyboy og Brynjari. Loks sammæltust um, að nú væri þegar upp runninn lokakafli ríkisstjórnarinnar og muni þær hér eftir einhenda sér í að grafa undan henni og slá hana af með haustinu eins og kviðslitinn riðuveikhrút.   


mbl.is Svona er pólitíkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýlenduböðlar, stórauðvald og íslenskir vesalingar semja tjónaskrá

au_vald_1061447.jpgSérlega er þetta allt hjartnæmt hjá biluðustu stríðshaukum Evrópu, enda eru þeir innblásnir af villtustu stríðsherrunum í Hvíta húsinu og Pentagon. Og skemmtilegt að Katrín okkar Jakkó sér orðin yfirbókhaldari með tjónum af völdum Rússa; að hugsa sér hvað hún er orðin mikil hugsjónakona. Þetta getur ekki endað með öðru en að það verði reist af henni merkileg stytta, líkneski, við hliðina á Ólafi Thors fyrir framan Ráðherrabústaðinn, einmitt á þeim stað þar sem hann Björn heitinn í Brekkukoti bjó. 

En fyrst Katrín, frú Reykfjörð Gylfadóttir og hinir stríðsáhugamennirnir utan úr Evrópu ætla að setja upp kladda þar sem færð verða til bókar þau tjón sem fanturinn Pútín hefur framið á Úkraínskum englabörnum, þá skyldi maður ætla að til séu skrár um tjón af innrásum Bandaríkjamanna og NATÓ þjóða, til dæmis í Víetnam, Kóreu, Afganistan, Júgóslavíu, Líbýu, Írak, Íran, Sýrlandi, að maður tali nú ekki um glæpa þessara óbótahunda frá nýlendutímanum, þegar þeir óðu um Afríku og smöluðu innfæddum saman eins og rollum og fluttu þá út og austur, en aðallega þó í vestur, og héldu þá sem þræla, eða öllu heldur skepnur. Það væri áreiðanlega til bóta að taka þetta smáræði saman og senda svo viðkomandi yfirgangsþjóðum reikninga fyrir eyðileggingunni og illvirkjunum sem þeir hafa framið.

xvg5En mikið andskoti held ég að kerfisdýr NATÓ og ESB hlægi sig máttlaus að hinum leiðtömu íslensku spjátrungsgreyjum, einkum að Katrínu og frú Reykfjörð, þegar þau verða komin heim til sín. Enda ekki á hverjum degi sem slík endemis roðhænsn reka á fjörur evrópskra ráðamanna. Það er full ástæða í dag til að óska Stenngrimi Johoð, Álfheiði Inga, Swadeesý til hamingju með VG, Katrínu Jakkó og Bjarna Jónsson.    


mbl.is Tjónaskráin undirrituð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirbúningur stórmennafundar

verko4Það segir sig sjálft, að mjög annasamt hefir verið hjá frú Ingveldi og manni hennar, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra hjá hinum opinbera og framsóknarmanni. Nú, frú Ingveldur hefir skiljanlega verið í innsta hring þeirra sem lagt hafa á ráðin varðandi undirbúning fundar gömlu nýlenduveldanna í Evrópu og undirgefnum fylgihnöttum þeirra. Um síðustu helgi var mannmargt á heimili þeirra hjóna og haft í staupinu. Ýmislegt var til skemmtunar, svo sem eins og samsöngur Indriða Handreðs og Brynjars Vondulyktar, sem fluttu fáein valin lög eftir Kaldalóns og Geirmund Valtýsson, Kristrún Samfylkingar flautaði Kvikuvalsinn af vörum fram og Hálfdán Varðstjóri sagði áhrifamiklar reynslusögur út ábyrgðarmiklu starfi sínu.

Aðfaranótt laugardagsins kom í ljós að einhver gestanna hafði haft hægðir bak við eldhúshurðina og líklega hefir sá hinn sami skeint á sér endann í stofugardínuna. Frú Ingveldur tók þennan sóðaskap óstinnt upp og barði Kolbein eiginmann sinn dálítið, öðrum til varnaðar. Þarna var og ákveðið hvaða handapöt og fettubrettur Katrín forsætisráðherra ætti að nota við hin virðulegu stertimenni utan úr Evrópu á fundinum í Hörpu. Þegar þar var komið sögu blöktu ekki augun í forsætisráðherra og hún skreið upp á arininn þegar hún ætlaði að laumast inn á gestaklósettið.

hálf2Á laugardagkveldið lenti Kolbeini og Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra illileg saman, sem lauk með því að Kolbeinn húsbóndi lá í öngviti á stofugólfinu. Sama kveld varð uppþot í húsinu við hliðina á frú Ingveldi og Kolbeini. Þegar að var gáð kom í ljós að Máría Borgargagn hafði smogið eins og læða inn til fólksins í húsinu og fór þegar í stað að reyna að fífla heimilisföðurinn með það fyrir augum að lokka hann til samræðis við sig. En konan á bænum var geðstirð um þessar mundir og vildi sporna við fjölskylduharmleik með því að hárreyta Borgargagnið og skyrpa á hana. En Máría Borgargagn lét hrossabresti kérlíngar sér einu varða og hélt áfram að spenna karlinn upp. Svo fór allt í géníralslagsmál svo að kalla varð Hálfdán Varðstjóra til, en hann greip húsmóðurina og hafði hana á brott með sér á lögreglustöðina, þar sem hún fékk að finna til tevatnsins og hvað það kann að kosta að lenda í klónum á Hálfdáni Varðstjóra þegar hann hefir eins og hálfflösku fyrir bringspölunum.


mbl.is Brýnt að fundurinn skili einhverju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hópur stíðsóðra og hræsnisfullra smámenna á sviðið í dag

war1.jpgÞað er hreint yndislegt til þess að hugsa hve innilega Ísland tekur þátt í stríðsæsingum og stríðshvatningu þessa dagana. Það er engu líkara en fjölmenn sveit íslenskra smáhitlera hafi riðið fram á vígvöllinn með ryðbrunnin sverð og brotnar axir úr Íslendingasögunum og Sturlungu og heimti tafarlaust stríð gegn rússneskum og kínverskum hálfmennum og þrælaskríl. Og eiginlega er það enn yndislegra að sjá og heyra hve vel hefir tekist að breyta friðsömum flokki Vinstri grænna í stríðs- og hernaðaróðan hóp hræsnisfullra smámenna og skítmenna. 

Gamla íhaldið og framsóknarkratarnir eru náttúrlega samir við sig og styðja umhugsunarlaust blóðsúthellingar NATÓ, USA og ESB. Innrásir þeirra sem standa að baki fyrrgreindra skammstafana í önnur lönd í fjarlægum heimálfum eru góðar, nauðsynlegar og guði þóknanlegar. En þegar útþenslustefnu heimvaldasinna hins vestræna auðvalds er svarað, þá eru það verk myrkrahöfðingjans Sathans, að mati íhalds-, framsóknar og krataelítunnar. Enda draga hin íslensku poletisku skítseiði hvergi af sér við að taka þátt í að ögra Rússum með öllum tiltækum ráðum. Það er engu líkara en þessir vesalingar þrái af einhverri furðulegri og óskiljanlegri ástæðu heimstyrjöld með hundruð milljona mannfalli.

war2_1241493.jpgÞað er ekki samstaða með Úkraínu sem hinar stríðsóðu sálir sækjast eftir. Ónei, aldeilis ekki. Samstaða hinna lítilsigldu íslensku stjórnmálakjána er aðeins með gráðugum blóðhundum USA, ESB og NATO. Með því hyski hafa þeir ávallt verið reiðubúnir að ráðast inn Kóreu, Víetnam, Írak, Sýrland, Líbýu, Júgóslavíu, Afganistan og myrða þar milljonir með sprengjuregni, napalmi og öðru fíneríi úr verksmiðjum vopnaframleiðenda. Á síðustu öld hrintu þeir af stað tveimur heimstyrjöldum og nú þykir þeim mál til komið að hleypa þeirri þriðju af stað. Samhliða þessum skemmtilegheitum, þylur stríðshyskið möntruna um að Stalín haf drepið hundrað milljonir landa sinna, tvöhundruð milljonir, þrjúhundruð milljonir. Og að Maó hafi kálað öðru eins af Kínverjum.   


mbl.is Skilaboðin skýr: Samstaða með Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband