Leita í fréttum mbl.is

Leiðinlegir menn og atbuðarík guðsþjónusta í gær

séraÆj, ég held það sé sama hvað Bjarni Ben, Mörður og Björn Valur mala og gala um gjaldmiðla, ESB og gengishrum; þeir eru allir sem einn jafn leiðinlegir og erfðasyndin, sem talin er með því al-leiðinlegasta sem fram hefur komið í gjörvallri mannkynssögunni. Best væri fyrir land og þjóð að heyra aldrei á þess menn minnst, sem og þeirra hræðilegu félaga.

Hinsvegar fóru frú Ingveldur og eiginmaður hennar, Kolbeinn Kolbeinsson, til guðsþjónustu í gær og gengu til altaris. En presturinn sem söng messuna hafði vaðið fyrir neðan sig þegar kom að því færa kaleikinn með messuvíninu að vörum þeira hjóna og harðneitaði að veita þeim áfengi á þeirri forsendu að það væri svo stæk brennivínslykt af þeim fyrir, þau hlytu að vera svo blindfull að ekki væri á skömm bætandi. Þá ætlaði Kolbeinn, þar sem hann kraup guðsríkilegur í andlitinu við gráturnar, að hrifsa kaleikinn af klerki. En klerkur varð fyrri til og ýtti við Kolbeini með fætinum svo hann valt afturfyrir sig niður þrepin og staðnæmdist á hvolfi við fæturnar á fólkinu á fremsta bekk. Þá reis frú Ingveldur uppá afturlappirnar og ætlaði að hremma prestinn, en í þeim svifum kom meðhjálparinn, víðfrægt ruddamenni, aftanað frú Ingveldi, greip hana heljartökum og afgreiddi hana útúr kirkjunni með feykiöflugu sparki í afturendann. Að svo búnu veitti hann Kolbeini samskonar meðferð.

Í morgun hringdi Kolbeinn Kolbeinsson í hinn smámunasama prest og gerði honum kunnugt að ef hann bæði þau hjónin ekki fyrirgefningar á opinberum vettvangi fyrir að hafa smánað þau og beitt þau guðlasti, myndi hann, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, gera sér hægt um vik og sprengja musteri sóknarprestsins í loft upp eins og hvern annan fjóshaug. Ennfremur, að það væri ætlan frú Ingveldar, að láta maddömu prestsins falla fyrir vissri freistingu sem bragð væri að ef presturinn léti sér ekki segjast.

Í kvöldfréttum ríkisútvarpsins baðst svo umræddur prestur hin margrómuðu heiðurshjón innilegar fyrirgefningar á framkomu kirkjunnar við þau í messunni í gær. Og er málið þar með úr sögunni og fær guðshúsið þar af leiðandi að standa ósprengt enn um sinn. 


mbl.is Vilja ekki ræða efnahagsvanda evruríkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnisstæðir stekkjastaurar

landroverMörgum er eflaust í fersku minni þegar oddviti sjálfstæðismanna í Árborg gerði sér lítið fyrir hér um árið og keyrði á staur við Sæbrautina í Reykjavík. Og nú keyrði sjálfstæðismaður á staur í Hveragerði um sjöleytið í kvöld. Ekki er mér kunnugt um hvort sá sem óð eins og yxni á staurinn í Hveragerði í kvöld er sá hinn sami sjálfstæðismaður og reyndi ökuleikni sína á staurnum við Sæbrautina, sællar minningar, en þó má ljóst vera að handbragðið er hið sama.

 Áslaug Arinbjarnardóttir, sem kölluð hefur verið Áslaug hnykkur af vissri ástæðu, ók eitt sinn á staur nokkurn er hélt uppi umferðarskilti. Að vísu var Áslaug nokkuð við skál er atvik þetta átti sér stað, gleraugnalaus og í sæluástandi eftir velheppnaða veislu að heimili sæmdarhjónanna frú Ingveldar og Kolbeinssonar skrifstofustjóra. Þegar Áslaug sté útúr bifreið sinni og gufustrókurinn stóð uppúr vélarrúminu og fuglarnir sem voru vitni að ákeyrslunni þagnaðir rak hún upp skaðræðishlátur þegar hún leit ástand staursins sem lá samanbrotinn og krypplaður í vegarkantinum. Þegar hún hafði lokið hlátrinum sparkaði hún ólundarlega í staurinn og mælti til hans: - Þú ert ekki eins sterkur og beinn og staurinn hans Kolbeins, helvítis druslan þín. Það er sko stekkjastaur sem stendur allt af sér og gerir manni glatt í geði.


mbl.is Ók á staur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið væri nú þægilegra

cry3Ég vorkenni Vilhjálmi Egilssyni óskaplega mikið, enda þarf sterkar taugar til að þola öll þau undur og býsn sem þessi geðugi frjálshyggjustampur getur kjökrað og umlað yfir óréttlæti heimsins í garð vígreifra kapítalista af útgerðar- og verktakastandi. Og alltaf er lausnarorð Vílhjálms og hans manna fólgið í að gráta út peninga úr ríkissjóði; ríkið fái verktökum verkefni, ríkið efli og bæti stöðu kvótakónga; og þannig upp aftur og aftur.

Mikið væri nú þægilegra ef Viljálmur og kompaní hættu að sveima kringum ríkissjóð eins og breima fresskettir, en færu þess í stað að gera eitthvað sjáfir uppá eigin spýtur til að auka þennan hagvöxt sem þeir eru alltaf að mjálma um. Það er nefnilega afar sorglegt að þurfa að sitja uppi með slappa og ráðalausa atvinnurekendur, sem ekki geta lyft svo mikið sem litlafingri nema með aðstoð ríkisins. Eftir söng þeirra að dæma eru afar, afar fá athafnaskáld í hópi atvinnurekenda en þeim mun fleiri athafnaleirskáld sem hafa ekki einusinni döngun í sér til að hífa uppum sig buxurnar en skjögra alla daga um með allt á hælunum og heimta peninga úr ríkissjóði þrátt fyrir að sá merkilegi sjóður sé meir en tómur eftir frjálshyggjuævintýrið mikla.


mbl.is Gegn mögulegum skattahækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlæti femínistanna

popeFemínistinn Stráss Kahn á undir högg að sækja eins og fyrri daginn. Að honum veitast geðvondir kvenvargar úr öllum áttum, saka hann um forkastanlegan djöfulskap og heimta af honum péééníííga!!! Og þó hefur þessi ánnálaði heiðursmaður ekki annað til saka unnið en að vera bæði fémínist og sósíalist að hætti Péturs Þríhross framkæmdastjóra.

Sumir hafa borið það uppá Stráss Kahn að það sé vond lykt af honum, hreinasta eiturstækja, römm og velgjandi. En það er auðvitað bara áróðursníð vondra manna sem eiga í erfiðleikum með æxlunarfæri sín. Stráss Kahn er hreinlátur maður sem aldrei skilur eftir sig óhrein handklæði eða skítuga sokka eins og ljóta þernan hefur borið uppá hann.

Já, aumingja Stráss Kahn, eftirlæti Samfylkingarinnar í Frakklandi og víðar í Evrópu, á sem sé ekki sjö dagana sæla um þessar mundir og enginn veit á þessari stundu hvernig honum mun vegna í baráttu sinni við hina illu anda er að honum sækja.


mbl.is Þernan stefnir Strauss-Kahn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn sem meig á gólfið

Það er heldur gáll á litla húskarlinum Framsóknarmaddömunnar þessa stundina. Nú heimtar hann eins og ekkert sé sjálfsagðara að ríkisstjórnin hækki virðisaukaskattinn á matvæli svo að Framsóknarflokkurinn geti sett lækkun á virðisaukaskatti í næstu kosningastefnuskrá sína. Ja, þeir eru gamansamir sveinstaularnir í Framsóknarfjósinu, og ekki eru griðkurnar þar síðri þegar spaug og glens er annarsvegar.

wc2Þó verð ég að viðurkenna, að framganga litla húskarlsins, Sigmundar Davíðs, í þessu virðisaukavandamáli minnir um margt á mann nokkurn sem láðist að stíga þrjú síðustu skrefin að klósettskálinni áður en pissaði, með þeim hörmulegu afleiðingum að hlandið úr honum fór útum allt gólf, öðru heimilisfólki til mikillar gremju.

En mikið helvíti er nú fjóshaugur gömlu Maddömunnar orðin risastór. Hann er svo stór að sjálft fjósið ásamt með húskörlum og griðkonum sjást ekki lengur fyrir honum. Verst er þó að þeir sem eiga stærstan þátt í að gera fjóshauginn svona gríðarstóran, þau Halldór, Alfreð, Finnur og Valgerður, harðneita að moka úr honum svo að Sigmundur húskarl og Vigdís griðkona fái séð til sólar meðan þau vinna verk sín smá og löðurmannleg.

Gamla griðkan sem dó.

Hún pissaði á vegginn og veggurinn hló.

Gamla griðkan sem dó.


mbl.is Virðisaukaskattshækkun á mat?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andskotans fantar og ófarir Dalvíkinga

drunk1_1048452.jpgEkki spyr ég að þessum andskotans föntum: Þegar þeir eru búnir að éta og drekka Dalvíkinga úrá Guð og gaddinn keyra þeir blindfullir og skellihlægjandi í burtu. Þessir óþokkar eru áreiðanlega, allir sem einn, grjótharðir kjósendur Sjálfstæðisflokksins og láta ekkert tækifæri fara forgörðum í því að ,,bjarga sér," eins og þeir kalla það, á kostnað annarra, alveg eins og á góðæristímanum mikla þegar péééníííngarnir uxu bókstaflega á trjánum eins og laufblöð.

Þessum voðamönnum er algerlega nákvæmlega sama um þótt tiltektir þeirra þýði það að Dalvíkingar sitji eftir með sárt ennið, matarlausir og ósjálfbjarga og hágrátandi. 

Nú veit ég svo sem ekki hvort hinir gráðugu gestir á Fiskideginum mikla hafa lagt sig í líma við að ræna eiginkonum Dalvíkurbænda á brott með sér að afloknu áti og drykkju, en ef ég þekki víkingseðli frekjuvarganna rétt þá hygg ég að talsverð afföll hafi orðið á konueign heimamanna þegar endanlegt uppgjör Fiskidagsins liggur fyrir og öll kurl eru til grafar komin. 


mbl.is Sjö ætluðu að keyra ölvaðir burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsileg dæmi um fólk sem kann að njóta veðurblíðunnar

kol6.jpg

Í svona góðu veðurfari er hreint og beint dásamlegt að ganga örna sinna útí sólbakaðri náttúrunni. Þetta sátu heiðurssambýlingarnir Indriði handriði og Máría borgargagn bæði í einu á hækjum sínum í dag með brækurnar niðrum sig og tengdu sig móður jörð á yndislegan hátt og skeindu sig á eftir með grasvisk, brosandi og sæl, en heimilishundurinn þeirra, Graddi, snuðraði vongóður í kringum þau. Á eftir fengu þau sér kaffi og jórtruðu kex með og nutu lífsins.

Á sama tíma leitaði frú Ingveldur dauðaleit að Kolbeini eiginmanni sínum Kolbeinssyni en hann hafði ekki skilað sér heim eftir gaypridegönguna í gær. Undir kvöld skilaði Kolbeinn sér sem betur fer heim í úthvergum og öfugum nærbuxunum, útúrfullur með tóbaksleifar á vörunum og rífandi kjaft. Hann liggur nú í öngviti í forstofunni heima hjá sér og á erfiðan vinnudag fyrir höndum á morgun.


mbl.is Ísland baðað sól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúra hægribroddana og formannsskipti í Sjálfstæðisflokknum

femma5.jpgHelvíti er hún nú skæsleg, Merkelkerlingin, í græna jakkanum sínum á myndinni atarna sem fylgir fréttinni, og lík henni frú Ingveldi. Og ekki er Sarkósý lakari, heldur í höndina á Merkelkerlingunni og búinn að draga hana að kviðnum á sér; hún er alltaf söm við sig náttúran hjá hægribroddunum í Þýskalandi og Frans.

Nú halda spakir menn að dagurinn á morgun verði kapítalistum frámunalega erfiður með fúlum brjóstsviða og svitaþefjan, jafnvel kölduflogum, - svo hræðilegt er víst útlitið. En þá er bara fyrir þá að fara að dæmi Sarkósý og Merkelkerlingarinnar, sem sé: strjúka kviðinn og gogga í þjóhnappana hver á öðrum meðan allt fer til Andskotans.

En hér uppá Íslandi er frú Ingveldur að kanna ofaní kjölinn hvort hún eigi að láta slag standa og bjóða sig fram gegn Bjarna Benediktssyni á landsfundi Sjálfstæðismanna í haust. Frú Ingveldur á sem kunnugt er afar vel við skap Sjálfstæðismanna þessa stundina, sjálfstæð kona, vel náttúruð til beggja kynja, ofstopafull og drykkfelld. Já, og mikið myndarlegri er hún en þessi Bjarni, sem er ótvíræður kostur í embætti svo göfugs fyrirbæris sem Sjálfstæðisflokkurinn er.

Svo er að sjá hvort morgundagurinn efnir fyrirheit sín um merkjanlega hnignun og hrun hins úrkynjaða kapítalisma.


mbl.is Erfið vika framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félagsheimili Framsóknar í Kópavogi

xv7_1076099.jpgÞað er auðvitað ekki gott ef aðgengi fyrir fatlaða er ekki nægilega gott á hótelinu í Stykkishólmi. Hinsvegar hefðu VG-ingarnir getað haldið þennan flokksráðsfund sinn í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík, en þar er aðgengi fyrir fatlaða mjög gott, auk þess sem Klif er sennilega besta félagsheimili landsins og upplagt fyrir fund eins og þennan.

En annars er viðbára undanrennuunganna hjá VG frekar ótrúverðug, en það helgast af því að það eru nefnilega ekki allir jafnvelkomnir á fundi VG. En þetta fólk ber það hiklaust á borð að ef aðgengi fatlaðra að fundum flokksins er að þeirra mati ekki nógu gott þá sé ekki hægt að halda því fram að allir séu velkomnir í náðarfaðm Steingríms og Álfheiðar.

En að öllu samanlögðu, þá myndi félagsheimili Framsóknarflokksins í Kópavogi henta best fyrir flokksráðsfund VG.

Meðfylgjandi mynd er af framsóknarforingjanum góðkunna í VG og uppáhaldsbúrtíkunum hans.

 


mbl.is Hættu við flokksráðsfund í Stykkishólmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syndir þínar verða þér EKKI fyrirgefnar

fall2.jpgÞá komu þeir með konu nokkra til Jesú, sem þeir kváðu hafa drýgt hór, og spurðu hann hvort þeir ættu gera sér hægt um vik og grýta hana í hel. Meistarinn leit meðaumkvunaraugum á mennina og mælti: - Sá yðar sem sydlaus er kasti fyrsta steininum. Þá beygði ungur maður sig niður og tók hnullung upp af strætinu og fleygði honum í konuna. Þessi ungi maður var flokksbundinn í Sjálfstæðisflokknum. Þá gekk Kristur til mannsins, hastaði á hann og sagði: - Þú ert illgresi í nægtagarði Drottins, syndir þínar verða þér ekki fyrirgefnar. Að svo búnu reisti Meistarinn konuna upp af götunni og kom henni í skjól undan vörgum strætisins.

Já, Einar Kr. Guðfinnson, alþingismaður, það eru sannkölluð alvöru stjórnvöld sem tekst með ábyrgðarleysi og bíræfni að keyra efnahagslíf þjóðar sinnar í þrot með hægri öfgastefnu. Það er mikið álitaefni hvort ein þjóð getur fyrirgefið þessháttar alvöru stjórnvöldum.


mbl.is Verðlækkanir í kjölfar krísu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband