Leita í fréttum mbl.is

Þá frýs loks í Helvíti

pol1Það á ekki af Suðurnesjamönnum að ganga. Helvítis ríkisstjórnarómyndin virðist gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir alla atvinnuuppbyggingu og fagurt mannlíf þarna suðurfrá. Nú síðast sigaði ríkikisstjórnin lögreglusveit sinni á gróðurhús í örum uppvexti á Suðurnesjum, sem sérhæft hefur sig í lífrænni ræktun á heilsujurtum. Ekki var að sökum að spyrja: Lögreglusveitin, í umboði ríkisstjórnarinn, lagði á augabragði þetta lífvænlega fyrirtæki í rúst og rak rekstraraðilana og annað starfsfólk beint út á Guð og gaddinn á Reykjanesi.

Annars er máltækið að senda fólk út á ,,Guð og gaddinn" ekki nema að hálfu leyti nothæft þegar Suðurnesjamenn eiga í hlut, því Guð hefur fyrir löngu yfirgefið þetta sárþjáða fólk. En ,,gaddurinn" er vissulega til staðar í þessum óhamingjusama landsfjórðungi, svo hroðalega jökulkaldur að þá myndi loks frjósa í Helvíti ef honum tækist smjúga þangað inn.

Helvítis ríkisstjónin, - hið illa er allt henni að kenna.


mbl.is Umfangsmikil kannabisræktun á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við ekki að afnema svona hugsunarhátt?

hitlerbush3Þessi Siv Jensen, formaður norska Framfaraflokksins, er greinilega mjög heimsk manneskja eftir ógeðfeldum kjaftavaðli hennar að dæma í meðfylgjandi frétt. Munnsöfnuður hennar um islam og islamista minnir enda mjög á málflutning Hitlers og hans kompána um Gyðinga í Þýskalandi á sínum tíma og skilar nákvæmlega engu öðru en auknu hatri og mannvonsku, en allir með bein í nefinu og vott af skynsemi vita fullvel hver uppskeran af hatri og mannvonsku er. Ennfremur að kúgun og misrétti í krafti auðs og herafla og valda er rótin að styrjöldum og ýmsum voðaverkum.

Væri ekki alveg ágætt að fólk færi að venja sig á að hugsa dvalarstað okkar, jörðina, án landamæra, án trúarbragða, án herja, án hernaðar og styrjalda, án séreigarréttar, án kapítalisma, án græðgi, án hungurs og án manngerðra hamfara? Ef við gjörbreytum ekki hugsunarhætti okkar og breytni í þá átt sem stungið er uppá í setningunni hér á undan verður nákvæmlega engin framþróun, sem vert er að kalla því nafni, í mannheimum.

 


mbl.is Múslimar ógna enn Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskupstungnavalkyrjur leika sér að eldinum.

drunk2_1048176.jpgÞað er aldeilis huggulegt framtak sem kjarnakonur og valkyrjur í Biskupstungum hafa á prjónum sínum þessa dagana. Auðvitað er ekki hægt annað en að flokka nýútkomið berrassínudagatal þessara heiðurskvenna undir annað er glæsilegt dæmi um þjóðþrifamál sem konur annarra landsfjórðunga ættu að taka sér til fyrirmyndar.

Þó fylgir þá böggull skammrifi Biskupstungnakvenna, að nú mega þær eiga von á að búralegir karlar, með höfuðin full af óhrjálegum saurlífisórum og væmnisfull glott á smettunum, fari að sjást á sveimi þar í Tungunum í tíma og ótíma, aðallega þó í ótíma, þess albúnir að fífla þær og fleka með viðbjóðslegum tilfæringum.

Það er því full ástæða fyrir strípihneigðar gyðjur Biskupstungna að vera sérlega vel á verði næstu vikurnar og vísa ókunnug köllum í verri staðinn þegar þeir nálgast þær. Þá er ekki síður nauðsynlegt fyrir stjörnusýslumanninn á Selfossi, yfirvald Árnesinga, að hafa augun hjá sér í uppsveitum umdæmis síns og vera fljótur til að bjóða út varðsveit sinni ef grunsamlegir karlar sjást þar óforvandis á vakki.


mbl.is Koma naktar fram á dagatali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smjörgreiddar unglingsskjátur, hörundssárar og uppstökkar, eru sannarlega varasamar

fool2.jpgTja, það er eins gott fyrir fólk að haga sér settlega á feisbúkksíðum og bloggum ef það vill ekki hafa verra af. Einkum er nauðsynlegt vanda alla orðræðu sína þegar í hlut eiga smjörgreiddar unglingsskjátur af óaðfinnalegur borgarastandi því slíkar unglingsskjátur eiga vanda til að vera hörundssárar og uppstökkar og vísar til að grípa til hefndaraðgerða finnist þeim á sig hallað, einkum ef þær eiga góða að í dómsölum og öðrum háæruverðugum stöðum.

Hinsvegar gengu bræðurnir þarna í Malasíu óumdeilanlega allt of langt þegar þeir börðu netóvin systur þeirra til ólífis með mótorhjólahjálmum til að fullnægja réttlætinu; þeir og systirin hefðu átt að láta sér nægja að hóta að stefna manninum og krefja hann skaðabóta fyrir fúllyndið í garð systurinnar.

Þess má og geta, að frú Ingveldur hefur nú höfðað mál á hendur nágrannakonu sinni fyrir að hafa pissað af yfirlögðu ráði inni á lóð frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og bætt síðan gráu afan á svart með því að hæla sér af verknaðinum á feisbúkksíðu sinni með orðbragði sem frú Ingveldur sættir sig engann veginn við.


mbl.is Myrtur vegna Facebook skrifa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plástur á ofalið svín

svin1.jpgÞað er fyrir mestu að Nordælan skuli vera svona yfir sig ánæggð með það sem hún og hennar líkar kalla í lágkúrukenndri fávísi sinni ,,frumvarp að stjórnarskrá" þrátt fyrir að hitt sé mála sannast að þetta óhrjálega plagg er ekki einusinni brúklegt í skeini, einkum sökum tilgerðarinnar og slepjuskaparins sem prýða síður þess.

Um væntanlegar umræður í þjóðfélaginu um stjórnlagapappír frú Nordal, og væntingar hennar í þá veru, er víst best að hafa sem fæst orð. En ljóst er að sú umræða mun að öllu leyti verða borin uppi af skaðmenntuðum uppskafningum, sem aldrei hafa dýft hendi í kalt vatn, hvað þá mígið í saltan sjó, og inntak hennar eftir því.

Hrossalækningar efri-millistéttaraðalsins á hinu þrautpínda kapítalíska óeðli á Íslandi með einhverju stjórnarskrárföndri mun að sjálfsögðu ekki skila neinu, nema ef til vill dálitlu af ryki í augu almennings. Plástur á ofalið svín með kransæðastíflu mun ekki forða því frá hjartaáfalli með tilheyrandi heiladauða.


mbl.is Ánægð með samhljóm í ráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píkupopp

lykt.jpgAlmenn ánægja ríkir meðal landsmanna með að  losna loksins við hið svokallaða ,,stjórnlagaráð" af fórðum ríkissjóðs, enda ótækt að láta 25 manna hóp öfgafullra kverúlanta stunda sumarlangt föndur fyrir blábjána á fullu kaupi.

Afrakstur stjórnlagaþingsins er svo eins og við mátti búast: Þurrkuntulegt ölæðisþrugl í píkupoppsstíl, sem ekki er einusinni hægt að hlægja að, hvað þá meir. 

Þar með er ljóst að stjórnlagaráðsgönuhlaup ríkisstjórnarinnar er álíka rýrt og útgangsköttur sem drepist hefur úr ófeiti.

Hinsvegar skil ég ekki í ríkisstjórninni, sem skipuð er flokkum sem eiga það sameiginlegt að vera sósíalískir að langfeðgatali, að hafa ekki fremur skipað sósíalískt byltingarráð fremur en þetta lapþunna, hlandþefjandi stjórnlagaþing efri-millistéttarelítunnar.  


mbl.is Stjórnarskrárfrumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfileg þróun

megrunEftir að hafa grandskoðað ,,fyrir og eftir" myndirnar af henni Ágústu Ósk, aumingjanum svorna, hefi ég komist að þeirri niðurstöðu, að með áframhaldandi þróun í þá átt, sem hún hefur stefnt undanfarnar vikur, sé helst til góðum bita í hundskjaft kastað.

Miðað við ,,fyrir" myndirnar af henni, er ekki annað að sjá en hún hafi verið á góðri leið með að komast í það ástand sem vel hæfir þriflegri prestmaddömu eða myndarlegri banka- eða leikskólastýru.

En því miður hefur Ágústu Ósk þrotið örendið í þeirri viðleitni sinni að verða að holdarfari boðleg prestsfrú eða bankastýra og tekið þess í stað stefnuna á líkjast fremur fullstaðinni skreið hvað útlit og áferð varðar. Þetta er að sönnu skelfileg þróun og alls ekki til nokkurrar eftirbreytni fyrir kynsystur hennar á öllum aldri.

Þess ber þó að geta í þessu sambandi, að viðleitni karlmanna og kvenmanna í þá átt að fara í hundana er býsna fjölbreytileg og að sama skapi öfugsnúin: Á meðan sumum þykir hag sínum best borgið með því að innbyrða sem mest af alkóhóli og öðrum efnum í þeim dúr, taka aðrir þann pól í hæðina stunda vofeiflegan meinlætalifnað, byggðan á sulti og fjörefnaskoti, til að verða það sem nútíminn kallar ,,fit" og er að sögn afar eftirsóknarvert ástand, þrátt fyrir því ástandi fylgi oftar en ekki útlit sem minnir á vindþurkaðan þorsk eða trénaðan njóla í nóvembermánuði.    

 


mbl.is Fyrir og eftir myndir af Ágústu Ósk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leynigestur og leynivopn Bjarkar í Hörpunni mun slá í gegn

bjo_1076652.jpgFjarska er nú dægilegt að Íslendingar ætli að fjölmenna á tómleika Bjarkar í Hörpunni í október og nóvember. Mest er þó varið í að sjálfur guðfaðir Hörpunnar, sjálfur Björgólfur Guðmundsson kaupsýslumaður, mun koma fram með Björk á öllum tómleikunum og syngja með henni kunna standarda eins og Austan kaldinn á oss blés, Kindur jarma í kofunum, Gleðibankann og Áfram kristsmenn krossmenn. Það er því eftir miklu að slægjast fyrir þá sem voru svo heppnir að næla sér í miða á tómleikana.

Við upphaf hverra tómleika mun áðurnefndur Björgólfur lesa uppúr bókinni Glæpur og Refsing eftir Fjodor Dostojevski, en sögusvið þeirrar ágætu bókar er sem kunnugt Pétursborg í Rússíá, hvar sumir bestu synir íslenku þjóðarinnar brugguðu bjór forðum daga.


mbl.is Uppselt á Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nauðsynlegt að Ísland nýti sér aðstoð Europol

auð4Sjáum nú til: "Europol hefur boðið Norðurlöndunum aðstoð við að kortleggja (og væntanlega haldleggja) öfgahópa í löndunum."

Þetta er sannarlega afar freistandi tilboð fyrir Norðurlöndin, ekki síst Ísland. Einboðið er að íslenska ríkisstjórnin nýti sér fagnandi þessa aðstoð og láti þar með loks til skarar skríða gegn þessum eina öfga-hægriflokki, sem hér starfar, og undirdeildum hans.

Það er ekki amalegt, að mega búast við því á næstu dögum, að þrautþjálfuð sérsveit Europol geri eldsnögga innrás í alla bækistöðvar íslenska öfga-hægriflokksins samtímis og hreinsi þar allt útúr dyrum.

Mest verður þó gaman þegar europólarnir taka til við að aflúsa helstu öfgapersónur öfga-hægriflokksins, því þær skepnur eru útvaðandi í alskonar auðvalds- og frjáshyggjupöddum, bæði innvortis og útvortis. 


mbl.is Vill skoða norræna öfgahópa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frygðarhlaup uppí Öskjuhlíð

hlaupaSko minn kall, að láta á reyna hvort hann sé kvensterkur í friðarhlaupi. Honum er sannarlega ekki fisjað saman. Þó held ég að útilokað sé, að blessaður fjármálaráðherrann komist klakklaust frá Valsvellinum að Ráðhúsinu. Það er nefnilega svo, að Steingrímur karl leitar ójálfrátt til hægri í gönuhlaupum sínum og því mun sennilegra að hann ljúki friðarhlaupi sínu inní Karfavogi en niður við Ráðhús.

Þó gæti ef til vill slysast svo til, að Steingrímur okkar fái augastað á hlaupadrottningunni Teglu og tækist að elta hana niðrí bæ og þaðan uppí Öskjuhlíð, ef því væri að skipta, en þá væri hlaupið góða líka orðið að frygðarhlaupi í stað friðarhlaups. 


mbl.is Fjármálaráðherra hleypur í þágu friðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband