19.3.2022 | 15:06
Frægur fyrirlestur um meydóm og meydómsrof rifjaður upp
Það þókti á sínum tíma afar djörf ákvörðun af hálfu frú Ingveldar að ríða á vaðið og flytja fyrirlestur sinn ,,Hvers virði er meydómurinn" á aðalfundi félags Sjálfstæðisflokksmanna í Garðabæ. Á meðan frú Ingveldur fræddi fullt hús Sjálfstæðismanna um um meydóm og meydómsrof fyrr og nú steinþögðu fundargestir, utan hvað einstöku þungar stunur gusu við og við upp úr einum og einum búk, þær báru allar keim af frygðarstunum, auk þess nokkur langdregin og blautleg prump, sem voru eigendum þeirra til lítils sóma.
Í fyrirlestri sínum drap frú Ingveldur ótímabæra kynvillu, sem virkaði á fólk eins og það hefði gleypt steinsteypta gangstéttarhellu; einnig rakti hún hlægilegan meydómsmisst Máríu Borgargagns, sem varð þess valdandi að Máría varð hreinlega hórnum að bráð og hlaut þau örlög að verða brókarsóttargimbur, kjaftatífa og trunta. Þess ber að geta, að frú Ingveldur hafði staðið Kolbein eiginmann sinn að verki, kveldið fyrir fyrirlesturinn, í óleyfilegum ástarlífsmökum með Borgargagninu undi borði úti í bílskúr. Það kveld sló frú Ingveldur bæði eiginmann sinn og Borgargagnið í rot.
Hinsvegar var það niðurstaða fyrirlestrar frú Ingveldar, að í nútíma- frjálsu lýðræðissamfélagi væri meydómurinn einskis virði og aðeins til trafala. Karlmönnum bæri þó skylda til að sniðganga hórinn eins og drepsóttarplágu og halda árunni hreinni og leggja sig fram um að halda krumlum sínum og öllum útlimum frá kvennærbuxum og því sem innan við slíka flík kann að leynast. Ef þeir gerðu það ekki væri hætt við að þeir fengju óorðið ,,nærbuxnafémínísti" á sig og þeim óþrifnaði væri þeim um megn að þrífa af sér. Það væri því mikið í húfi fyrir karlmenn í Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ.
![]() |
Að missa meydóminn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2022 | 22:28
Í haust verður henni og Höllu Títu varpað á dyr
Það væri rétt af þessari boðflennu á heimili alþýðunnar að hafa hægt um sig og steinþegja. Henni verður nefnilega varpað orðalaust á dyr í haust. Ýmsir góðir menn og konur innan verkalýðshreyfingarinnar komu nefnilega fljótlega auga á þessi kynlega boðflenna var nefnilega nokkurskonar Trójuhestur, sem innihélt ekki aðeins fémíníska kerfiskallinn jómfrú Snædal, heldur leyndust og í belgnum á henni Katrín Jakobs og ríkisstjórn hennar með Bjarnaben og Höllu Títu Gunnarsdóttur og sæg af krataeðlissjúklingum. Þessi þrifafénaður gjörði sig auðvitað heimakominn um leið Trójuhrossið Snædal hafði truntast inn á kontór alþýðunnar og tók strax til óspilltra málanna að leggja grjót og skít í götu baráttusinnaðra verkalýðsforingja með undirróðri og öðrum viðlíka andlegum sóðaskap.
Enda hafa raunverulegir verkalýðssinnar á borð við Sólveigu Önnu, Ragnar í VR, Aðalstein á Húsavík og Villa á Skaganum mátt hafa sig alla við að halda sjó gagnvart gjörningahríð innvolsins úr Trójumerinni, sem hafa leikið listir sínar af áður óþekktum skepnuskap og slóttugheitum. Nú kemur jómfrú Snædal jarmandi um að tóna einhvern andskotann niður þegar hún og Halla títa vinkona hennar sjá fram á að leiknum muni ljúka í haust og þær muni þurfa að lurðast aftur niður í Stjórnarráð eins og veðurbarðar vofur og skríða undir fjaðralausn vænginn á hugsjóna- og skoðanaleysingjanum Katrínu Djakkó og hennar hyski í Hreyfingu Framboði. un baráttuglatt verkafólkReyndar hafa tveir ágætir verkalýðsforingjar tekið jómfrú Snædal á kné sér í vikunni og rassskellt hana vel og vandlega og Sólveig Anna á eflaust eftir að láta jómfrúna hljóða og emja eins og naut áður en yfir lýkur. Fari allt eftir áætlun tekur Skaga-Villi við Starfsgreinasambandinu eftir fáeina daga og á Alþýðusambandsþingi í haust verða skuggarnir særðir og svældir út eins og melrakkar úr greni. Að vísu hefur kerfiskrataliðið í Starfgreinasambandinu komið sér saman um að bjóða fram til formanns gjörsamlega litlausan og rassbláan krataling beint úr framsóknarstíunni hjá gifturíka kaupfélagsstjóranum á Sauðárkróki. Ef sá náungi verður fyrir slysni kosinn formaður Starfsgreinasambandsins mun það hafa svipaða þýðingu og hjá þeim skipstjóra sem léti bera steindauðan mann út á dekk til vinnu á hávertíðinni.Fari svo illa að kratelsið úr Framsóknarfjóshaugnum fái kosningu á Starfsgreinaþinginu, þá verður það aðeins skammgóður vermir; jómfrú Snædal og Halla Títa fjúka loftköstum út í haust og skömmu síðar mun baráttuglatt verkafólk taka Starfgreinasambandið af krataeðlisvesalingunum, en róttækt verkafólk hefir yfirleitt fjaraska litla meðaumkun með möppudýrum krataeðlisins, sem hafa fénýtt félagsgjöld láglaunafólks aðeins of lengi og ekki til neins annars en að þjónusta auðvaldið.
![]() |
Ég ætla mér ekki að dýpka þessar deilur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.3.2022 kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2022 | 20:42
Svo rétti hann jómfrúnni svona assgoti snyrtilega á ranann
Það var viðbúið að það væri eins og að kaupa köttinn í sekknum að hafa góðar væntingar til jómfrú Drífu Snædal sem forseta Alþýðusambands Íslands. Enda gjörðist jómfrú Snædal fljótlega helsta vandamál sambandsins og nú mun hún komin út í skurð og aunginn í sjónmáli sem hefir lyst á að draga hana upp. Hún er með öðrum orðum, búin að vera. Það var ekki nema rétt af Ragnari að rétta jómfrúnni svona snyrtilega á ranann að hún hrataði út í skurðinn atarna, sem hún á ekki afturkvæmt upp úr.
Nú, ekki er það nema í meðallagi géðugt fyrir jómfrú Snædal að vera auglýst óheiðarleg á opinberum vettvangi verkalýðshreyfingarinnar, en það er auðvitað hennar að sanna, svo ekki verði um villt, að hún sé ekki óheiðarleg, en það kann að reynast erfitt fyrir eina jómfrú sem hefir verið innvinkluð í VG og er vinkona Katrínar Djakkó og Höllu Gunnars að bera af sér óheilindi og skítmennsku, eða öllu heldur skítkvennsku. Jómfrú Drífu Snædal eru allar bjargir bannaðar, það sér hver maður sem hefir sjón, og hennar bíða hér eftir aðeins þau störf sem henni hafa alla tíð þókt sér ósamboðin. Sjáið þið þær fyrir ukkur, Snædal, Katrínu og Höllu hræra í grautarpotti á leikskóla eða rembast við að snyrta þorskflök hjá samherjunum í himnaríki kvótans?Svo þar líka endilega að rétta djöfuls krataeðlinu rækilega á andskotans auðvaldssvika-ranann þannig að það verði úr sögunni um aldur og ævi. Það væri mikið góðverk og sá er greiddi krataeðlisrassgatinu höggið sem gerði út af við það væri upp frá því kallaður velgjörðarmaður mannkyns.
![]() |
Segir Drífu ósanngjarna og óheiðarlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2022 | 20:06
Einkennilegt framlag tveggja umboðslausra kvenna til stéttabaráttu verkafólks á Íslandi
Stórmerkileg endemi þessar Agníeska og Ólöf Helga, sem þessa dagana halda verkalýðsfélaginu Eflingu í gíslingu af einhverjum sérkennilega annarlegum hvötum, sem venjulegt fólk fær engan veginn skilið. Hingað til hef ég talið að bráðabirgðastjórnir, sem sitja frá því ný stjórn er kjörin þar til hún tekur formlega við, eins og þessi sem nú situr í verkalýðsfélaginu Eflingu, hafi harðla lítið umboð, allrasíst siðferðislegt, til að efna til skuldbindinga, hvort heldur fjárhagslegrar eða stefnumótandi, eins og að ráða lögmenn til að leita uppi höggstað á fyrrum formanni Eflingar, sem einnig er nýkjörinn formaður félagsins, og fyrrverandi framkvæmdastjóra þess. Bráðabirgðastjórnir, á borð við þá sem nú situr á Eflingarskrifstofunni, eiga aðeins að afgreiða hefðbundin verkefni frá degi til dags, en ekki að stunda fáránlegar hefndaraðgerðir gegn nýkjörnum formanni.
Annars er það sérstakt rannsóknarefni að koma að því hvað rekur Agníesku og Ólöfu Helgu til hinna fáránlegu eineltistilburða, heimskupara og fólskuverka gegn Sólveigu Önnu, Viðari Þorsteinssyni. Þetta einkennilega framlag þeirra til verkalýðsbaráttu verkafólks á Íslandi er þess eðlis að ekki er einleikið; þessum vesalings konum er greinilega ekki sjálfrátt. Það væri fróðlegt að vita, ekki síst fyrir verkafólkið í Eflingu, að komast að því hvaða öfl það eru sem standa að baki Agníesku og Ólafar Helgu og hvetja þær til að haga sér eins og fífl þessa síðustu daga þeirra hjá verkalýðsfélaginu. Og þar er Agníeska samþykkti sjálf í stjórn Eflingar að fela Viðari að sjá um að setja upp nýja heimasíðu Eflingar eru þessar athafnir hennar vægast sagt kostulegar, ef ekki hreint og beint hlægilegar. Í verkalýðshreyfingunni er ný dagsbrún í nánd, sem SALEK-hjörð hins kerfislæga auðvalds getur ekki með nokkru móti spornað gegn, jafnvel þókt hún etji einfeldningum á foraðið og láti þá kaupa lögmenn út á reikning verkafólks til leita uppi syndir á Sólveigu Önnu og Viðar Þorsteinsson. En dagar ,,valda" í hlýjum skrifstofuherbergjum verkalýðshreyfingarinnar eru að kveldi komnir hjá fleirum en ógæfukonunum Agníesku og Ólöfu Helgu. Mjög ku og sígin til við að sól Drífu Snædal og og aðstoðarjúnku hennar, Höllu Gunnarsdóttur; þeim verður skilað til Katrínar Jakobsdóttur strax eftir næsta þing ASÍ. Þá er víst allt komið í skrúfuna hjá kérlíngunni Halldóru Sakleksdóttur á Selfossi og kerfisliði Starfsgreinasambandsins, því það samband er við að falla í hendur verkalýðs- og baráttusinnaðs fólks, sem mun ekki víla fyrir sér að sópa flugumönnum uppskafninganna í Samfylkingunni og öðru slíku óþarfadóti beint í ruslatunna eða hreinlega rakleitt í eldsofninn þar sem það mun fuðra upp ásamt öðrum óréttlátum illræðismönnum og loddurum.
![]() |
Fær lögfræðing til að skoða viðskipti Viðars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2022 | 22:41
Heilagur Birgir og náðarverk hans
Mikið þó djöfull er hann góður hann Birgir okkar hérna klausturmunkur, sem sveik sinn herra, Sigmund erkiábóta af Klaustri, og gekk Engeyingum og auðvaldsfólum á vald. Samt er Birgir helgur maður, og svo mikill dýrlingur að skyggnir menn, sem sjá árur og soleiðis, fullyrða að yfir hausamótunum á Birgi tróni þrefaldur geislabaugur.
Það var víst fremur óhrjálega sorgleg sjón að sjá Birgi helga hlakka illan örn yfir höfuðsvörðum merarinnar Miðjungaflokksins. En nú er hinn helgi fyrrum merardrengur Miðfótunga að Klaustri austur í Úkraínu að fremja góðverk. Og samkvæmt orðum frelsarans, þá ber Birgir sér á brjóst fyrir að vera ekki eins og aðrir menn, þjófur, hórkarl eða illvirki, og auglýsir góðverk sín hástöfum með myndbirtingum og frásögnum af góðmennsku sinni alkunnri. Eða hvernig varð það nú aftur? - hélt frelsarinn ef til vill einhverju allt öðru fram í guðspjöllunum um meðferð góðverka?
Svo er það annað: Man einhver eftir því að Birgir helgi, fyrrum klausturmeramunkur og núverandi kirkjuhaldari og Mammons sonur, hafi stundað náðarverk sín meðal stríðshrjáðra á Sýrlandi, eða meðal Íraka, eða Kúrda, eða Líbýumanna? Eru ekki til myndir af þeim helga manni við kraftaverka- og líknarstörf í Jemen og í Palestínu? Eða er honum, þegar öllu er á botninn hvolft, geðþekkara að blessa NATO vopn í Úkraínu en að fordæma glæpaverk NATO-USA samsuðunnar vítt og breitt um heiminn? Er máske dýrð, helgi og geislabaugastand karlsins eingöngu skinhelgi, fals, lýgi?
![]() |
Birgir aðstoðar fólk í neyð í Úkraínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2022 | 13:18
Þeir hafa nagað og nagað og nú er komið haust
Jæja, þá er ráðsmaður gömlu géðveiku Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu kominn með óþolandi njálg í óæðri endann á sér. Þetta ku vera ofurnjálgar á stærð við ánumaðka og fjörugir í samræmi við það. Svo er að sjá að ráðsmaðurinn fóðri njálgana sína á ófullnægðri virkjunaráráttu, sem vekur honum ómtímabæran losta, auk venjubundinna framsóknaróheilinda, sem ætíð hafa virkað vel á ókindur og sníkjudýr í framsóknarrössum.
Nú gjörir ráðmaðurinn sig í framan, eins og hann sé einhver strangheiðarlegur dánumaður, sem hann er auðvitað ekki, og þykist vera ræða einhverja andskotans hluti eins og þeir eru. Gömlu Framsónarmaddömunni líkar vel við svona óráðshjal af vörum ráðsmanns síns og klípur hann gjarnan í rassakinnina í viðurkenningarskyni fyrir froðusnakkið. Rétt að taka frama ð ráðsmaðurinn er með aðeins eina rassakinna, kálfarnir í Fjósinu bitu hinn þjóhnappinn af karli svo að Maddaman varð að kaupa á hann gervirassakinn, henni þókti sinn maður óþarflega ánalegur á velli þegar hann var orðinn einrassa.En nú hafa hinir gerðarlegu njálgar talað til ráðsmannsins á framsóknarheimilinu og boðið honum að tala tungum um virkjanir, stóriðju, gróða og brýna nauðsyn eins og tunglsjúkur rakki uppi á hól. Og ráðmaðurinn bíður ekki boðanna, svo innilega nýfrelsaður til augnanna, hefur upp raust sína og boðar fagnaðarerindi njálganna í sínum eigin rassi, og dýrin í VG ropa af velþóknun svo að ráðsmaðurinn gefur þeim aftur í glasið, og græðgisstóðið, hrunþjófarnir og panamaprinsarnir og prinsessurnar kumra af ánægju. Gamla geðóða Framsóknarmaddaman í flatsænginni í Framsóknarhlöðunni fær sér hins vegar moðvolgan gúlsop áquevítis til að fagna frelsunarboðskap ráðmannsins og raular sálminn góða fyrir munn ráðsmannsins: ,,Eitt er eg alveg viss um, sem aunginn maður sér, að það eru njálgar að naga neðri endann á mér. Og þeir hafa nagað og nagað og nú er komið haust, en eg hefi klórað og klórað, en kannski einum of laust".
![]() |
Segir umræður um virkjanir vera tabú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2022 | 18:38
Brígslyrði, fjandskapur og stórlygar urðu þeim að falli
Þá er tímabært að Agníeska, Ólöf Helga og Halldóra á Selfossi pakki saman og pilli sig úr húsum verkalýðshreyfingarinnar - já, og jómfrú Snædal og frú Halla í ASÍ líka. Þessar dömur eru ekki húsum hæfar, allrasíst í húsum siðaðra manna. Þegar virt endurskoðunarfyrirtæki hefir gefið út heilbrigðisvottorð á gjörðir og umsvif Vidda og Andrasig á Eflingarkontórnum er ekki seinna vænna en að halda aðalfund Eflingar, kjósa á þing Starfsgreinasambandsins, taka það yfir og ASÍ í kjölfarið. Sólveig Anna, Ragnar í VR, Skaga-Villi og Aðalsteinn á Húsavík er komin með tögl og hagldir verklýðshreyfingarinnar í sínar höndur og ekki eftir neinu að bíða.
Hvað um Agníeski, LöfuFelgu og Halldóru verður má Sathan sjálfur vita. Það má búast við að þær verði dæmdar til þyngstu refsingar fyrir brigslyrði, fjandskap og stórlygar í garð Vidda, Sollu og Andrasig, sem sumir kalla The Blokkerboy. Já, það fjölgar innan tíðar á Hólmsheiðinni og Hrauninu, því Halldóra fer auðsjáanlega á Hraunið því það er í hennar heimasveit. Þetta eru bévaðar óvættir þessar kérlíngar.
Ef áður talinn fénaður verður ekki á brott af kontórum verkalýðshreyfingarinnar strax í fyrramálai, er ekki um annað að ræða hjá Sólveigu Önnu og hennar fólk en að draga Agníesku, jómfrú Snædal og allt það kvenfólk út af skrifstofunum, því kontórar verkalýðsins eru ekki greni fyrir slóttugar tófur og tófuyrðlinga. Nei, aldeilis ekki. Og ekki vill betur til, þá dregur Sólveig Anna mannorðsmorðingjana og brígslarana út á hárinu; annað eins hefir nú gerst í sveitinni þegar kýrnar eru dregnar á vorin út af básunum á halanum og þeim hleypt út í buskann. Sjáið þér ekki Sólveigu Eflingarformann þeysa með vandamálið jómfrú Snædal á halanum út úr Verkalýðshöllinni og skilja hana eftir í hnipri, hágrénjandi, í holu í malbikinu við Gwörúnargötu? Þá verður mikið um dýrðir, skal eg segja yður.
![]() |
Segir dylgjur Agnieszku tilhæfulausar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2022 | 13:36
Tvær æstar kérlíngar í hár saman fyrir augliti þjóðarinnar
Merkilegt hver fjölmiðlar eru gjarnir á að flytja fréttir af því þegar fólk gjörir sér til mikillar minnkunar. Sumir þeirra virðast sérhæfa sig í að draga dár að heimskum þingmönnum undir rós og leitast við að gjöra hlut þeirra sem hlálegastan í augum þjóðarinnar. Í morgun virðast þær nöfnur, Thorgerdur Katrín og Katrín Djakkó, heldur en ekki opinberað fátæklegt gáfnafar sitt með því að fara í hár saman út af stríðsæsingum og hernaðaraðdáun afdankaðra Vesturlandaskúnka. Önnur Katrínin vildi ,,uppfæra" stríðsfélagið" NATÓ, eins og um tölvuleik væri að ræða, en hin Katrínan svaraði úr og í eins og hennar er vandi, enda er hún svo hugsjónalaus og skoðanadauf að leitun er á öðru eins. Þegar þær höfðu öskrað hvor á aðru úr ræðustóli Alþingis um stund, skjögruðu þær eins og vindblásin hænsn, hvor á sína skrifstofuna, og fengu sér reyk meðan þær uppfærðu og störtuðu næsta tölvuleik í embættistölvum sínum.
Hvað það er sem kemur fólki til að haga sér svona eins og hver önnur fífl er ekki gott að ráða í. Sumir eru að vísu svo lausir við vit, að þeim stendur á sama þókt þjóðin öll stari á þá fyrirlitningaraugum. En þegar þjóðkjörið fólk, í þessu tilfelli tvær vafasamar kvensniptir, taka til við að efna til stríðsæsinga hjá vopnlausri þjóð þykir oss sem skörin sé heldur um of farin að færast upp í bekkinn. Þær eru sem sé sammála um, að besta leiðin til að tryggja heimsfriðinn sé að senda stríðshaukunum í Kænugarði vopn til að stríða á móti Rússum. Þetta hljómar álíka vitrænt og ætla sér að láta renna af drykkjurúti með því að færa honum meira brennivín.Meira gaman hefði verið að ef þær nöfnur hefðu látið höndur skipta fyrir framan ræðustól þingsins og slegist eins og hamslausir villukettir. Þá hefði Thorgerðdur Katthrin getað beitt hinu fræga hægrisjö glímubragði á Kattarhrinu Djakkó og slengt henni utan í ofninn út við vegg í þingsalnum. Það hefir oft gefist vel í hörðum leik að dengja keppinauti sínum utan í ofn; það gjörði Pétur Hoffmann Salómonsson við fjögurra snúru foringja úr breska sjóhernum eftir að hafa rifið og tætt utan af honum einkennisbúninginn. Svo var foringi þessi borinn blóðugur og í öngviti úr húsum Péturs og út í bifreið frá herliðinu. Læðist nú að mér sá grunur, að lítt hefði Hoffmann, sveitungi og fermingarbróðir afa míns, runnið fyrir tveimur æstum kérlíngum, hefðu þær sökum skorts á vitsmunum ætlað sér til við hann í miður góðu.
![]() |
Deilt um hvort uppfæra þurfi varnarsamninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2022 | 12:05
Hin endanlega lausn á vandamálum útgerðar og landsbyggðar
Auðvitað væri tilhlýðilegast að leggja þess ,,Fiskistofu" niður með manni og mús, enda er hún ekki til neins annars en að kreista pénínga undan nöglum skattgreiðenda. Að vísu hefir ,,fiskistofa" þessi verið notuð af auðvaldinu til að hvítþvo og farða kvótakerfi sægreifanna, svo að enginn haldið því fram að ekkert eftirlit væri með veiðum, brottkasti, kvótasvindli og kvótaþjófnaði. En það eftirlit er nú allt í skötulíki og skrökvi líkast. En þetta finnst burgeisastéttinni gott fyrirkomulag, ef ekki frábært, og skála oft fyrir því þegar menn á burgeisabæjum gjöra sér glaðan dag.
Hvernig afladagbókafarganið verður kokkað framvegis, er ekki einusinni aukaatriði í leikritinu, því það er alls ekkert atriði og kemur málinu ekki við. Já, skattþegar þessa lands geta sparað sér heilmiklar upphæðir á hvurju ári með því að leggja Fiskistofu niður; þeim péníngum væri vel varið í rekstur Landspítalans eða til að bæta kjör öryrkja og aldraðra. Og fyrst vér erum farin að tala um tímabæra niðurlagningu þessarar ,,Fiskistofu", sem framsóknartarfurinn vitiborni færði með valdi til Akureyrar, svo að segja niður á miðjar höfuðstöðvar Samherja, sem allir samherjar samherjanna elska, dá og bukta sig fyrir og beygja, þá er ekki nema við hæfi að drepa á fleiri atriði sem vel mættu hverfa af sjónarsviðinu, en kosta fátæka skattþega stórfé.Þegar ,,Fiskistofan" atarna verður horfin af yfirborði jarðar og út í kosmosið, þá er forgangsatrið að leggja ráðherra furðufyrirbærisins ,,matvælaráðuneytis" niður og senda hann, eða öllu heldur hana, beint til Úkraínu. Svo strokum vér matarvælisráðuneytið út, samherjarnir geta vel haft þann fjanda hjá sér og rekið ef þeir nenna. Þar á eftir skal selja Hafródraslið úr landi; hugsanlega kaupendur af því er trúlega að finna í Namibíu. Að lokum verði allir samherjar gjörðir friðhelgir að lögum og bannað verði með ákvæðum í stjórnarskrá að nokkur geti tekið gjöld af sægreifum og umsvifum þeirra, og einnig að fiskveiðiauðlindin verði þinglýst eign sömu greifa og samherja, endurgjaldslaust. Þar með væru vandamál útgerðarinnar endanlega úr sögunni, sem og landsbyggðarinnar. Svo einfalt er það nú.
![]() |
Fiskistofa segir útgerðum að sigla eigin sjó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óskaplegum vonbrigðum mundi það valda ef borgarstjórnin í Reykjavík lætur undir höfuð leggjast að skipa rannsóknarnefnd til að kanna ofan í kjölinn hönnun og uppbyggingu á öllum þeim holum sem nú prýða götur höfuðborgarinnar. Það hefir vakið undrun og aðdáun allra, sem skoðað hafa holurnar, hverskonar völundarsmíð þær eru og stórkostlegt verkfræðileg afrek. Á bak við þetta kraftaverk, því holurnar á götum Reykjavíkur eru kraftaverk, eru hinir óumræðilegu hugsuðir Dagur Bé og Holu-Hjalli sjálfur; þeir munu Nóbélsverðlaunin hreppa við næstu úthlutun þeirra.
Það er haft til marks um ævintýralega hönnunarsnilld í holugérð þeir kumpána, að á hálftíma sprungu sautján hjólbarðar bifreiða sem óku allar yfir einu og sömu holuna. Þvílík hola hlýtur að vera algert meistarastykki og guðdómlegt listaverk. Svo kom ein kérlíngarönd á þeysispretti á Rangaróvernum sínum, illileg á svipinn, beint ofan í stórgóða holu á Rauðarárstígnum með þeim afleiðingum að annað framhjólið ásamt búnaði var eftir í holunni, en Rangaróverinn tók stökk og hafnaði á hliðinni í skuggalegum snjóruðningi. Kérlíngarhróið kom skríðandi að bragði út úr bifreiðinni, allsendis óslösuð, sem verður líka að teljast kraftaverk, en að öðru leyti sturluð af geðshræringu og heift. Síðar kom í ljós að konan hafði veikst á geði við höggið sem varð af akstrinum yfir holuna.Nú ætla holumennin Dagur Bé og Holu-Hjalli að fara í kosningar í vor eins og ekkert hafi í skorist. Þeir telja að þeir hafi pálmann í höndunum, ekki síst eftir að út spurðist að Vigdís Hauks væri búin áðí, sprungin á limminu, öldungis affelguð og vindlaus eftir þá. Þó hafði Vigdís gjört sitt besta í grýta öllum fjandanum sem hönd á festi í þessa þokkapilta og reka þá á flótta úr einum stað í annan. En svo bregðast klausturtré sem aðrir raftar og Vigdís pissaði úr og liggur nú í einni reykjavíkurkolunni eins og sprungin hlandblaðra. Það er nú það, þér að segja.
![]() |
Tillaga um rannsóknarnefnd tekin fyrir á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 14
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 225
- Frá upphafi: 1553882
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 199
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007