29.12.2009 | 08:49
Sú gamla mun hætta sem og 3 VG ráðherrar.
Ekki kæmi mér á óvart þó Jóhanna Sigurðardóttir hætti forsætisráðherrastússinu um áramót, enda er hún gömluð orðin og framsóknarmaddömuleg. Sennilega mun enginn taka við af Jóhönnu þar eð Samfylkingin, slíkur ruslahaugur sen hún er, á nákvæmlega engann sem er hæfur til að taka við af þeirri gömlu.
Þá er uppi heilmikill orðrómur þess efnis, að Ögmundur Jónasson komi inn í ríkisstjórnina að nýju. Hugmyndin er sú, að Ögmundur taki við ráðuneytum heilbrigðis, menntamála og umhverfismála, en kvinnurnar Álfheiður, Katrín Jack og Swandees Sendiherrans hverfi á braut. Það er samdóma álit sérfróðra manna, að Ögmundur færi létt með að sinna þessum þremur ráðuneytum að minnsta kosti hundrað sinnum betur en hinar sjálfhverfu flokkselítugálur sem undanfarna mánuði hafa fengið að skreyta sig með ráðherranafnbót þrátt fyrir að þær skorti alla nauðsynlega innistæðu fyrir þessháttar titli.
![]() |
Hrókeringar um áramótin ólíklegar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.12.2009 | 22:07
Sláninn Barrakur ágirntist jakkaföt Þórarins

![]() |
Íslendingar halda jól með Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2009 | 20:58
Hæfileikalausir cocopuffsgeldingar
Í tvennum síðustu alþingiskosningum hefur skolað ótrúlegu magni af cocopuffsgeldingum inn á Alþingi. Góð dæmi um svona cocopuffsskran eru gáfnaljós eins og Árni Páll Árnason, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir og Björgvin G. Sigurðsson, sem öll hafa verið gerð að ráðherrum í ríkisstjórn Íslands, þrátt fyrir að hafa ekki minnsta snefil af hæfileikum til slíkra starfa. Í stjórnarandstöðuflokkunum úir og grúir af samskonar innantómum sykurkúluskriflum, sem soltnar bútíkur myndu m.a.s. fúlsa við ef þau væru látin í matardallinn þeirra.
Mjög illa mannað Alþingi, eins og það er nú situr, segir okkur þá sögu eina, að stjórnmálaflokkarnir eru gjörsamlega óhæf tæki til að skipa nothæft fólk á framboðslista sína.
![]() |
Kostnaður vegna Icesave hærri ef samkomulag verður fellt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.12.2009 | 18:43
Púkastóðið í Heimdalli skrækir uppúr frjálshyggjurústunum
Löngum hafa skrækir púkastóðsins í Heimdalli verið böl á þjóðinni. Þessi óbjörgulegi fénaður hefur virkað á landsmenn ekki ósvipað og lús, kláðamaur eða annar hvimleiður pöddufaraldur. Þó má með sanni segja, að þá kasti tólfunum þegar umrætt púkastóð er farið að senda þingmönnum skræki sína, uppúr frjálshyggjurústunum, á pappír, sem stóðið kallar af alkunnri smekkvísi sinni ,,opið bréf."
En nú hlýtur að vera komið að leiðarlokum hjá ungmennafélagi óréttlætis og græðgishyggju, Heimdalli. Ég ber þá von í brjósti, að sé eitthvert gott efni á úðabrúsum, sem hægt er að sprauta ofaní frjálshyggjuhauginn með sama árangir og þegar lúsin var lögð að velli með aðstoð efnafræðinnar.
![]() |
Vilja kynna málstað Íslands betur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2009 | 16:31
Stórbrotin þingkona
Í aumri fávísi minni lagðist ég svo lágt uppúr hádegi að fara að fylgjast með umræðunni um Icesave í sjónvarpinu. Eftir u.þ.b. hálftíma hlandaulaþrugl framsóknar- og sjálfstæðisbuxna um störf þingsins, af því að þeir nenna ekki að vera í vinnunni í kvöld, að því mér skildist, skreiddist Gangna-Gutti í ræðustól og mærði aðgöngumiða Samylkingarinnar að ESB, Icesave-samninginn þangað til hann var orðinn náhvítur í framan og stóð varla á löppunum, en Þór Saari svaraði að bragði með því að rakka aðgöngumiðann niður. Á eftir ræðum Gangna-Gutta og Saari brustu á ,,andsvör" í ansans hreint órólegum og hávaðasömum stíl. Í þessum svokölluðu ,,andsvörum" bar framsóknar-smádaman Vigdís Hauksdóttir af líkt og gull af eir, ljómaði eins og slípaður demant á óhrjálegum skítahaugi. Þessi errilega smádama, sem á langt í að verða undirframsóknarmaddama, fór hreint og beint á kostum í ,,andsvörunum" og á vissum augnablikum lá við sjálft, að hún mölvaði ræðustól Alþingis í spón með berum hnefunum. Við að sjá þessi ósköp hinnar stórbrotnu þingkonu fór ég ósjálfrátt að biðja Drottinn um að forða fjölskyldu hennar frá því að hún stundaði annan eins svarragang heimafyrir.
En mikið helvíti er nú samt gaman að horfa á þessa blessuðu framsóknar-smádömu í hastarlegum ræðuham, það er algjörlega óborganlegt.
![]() |
Vilja vísa Icesave frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2009 | 12:57
Ranglát fyrningarleið og kynvillan í Fjalla-Fjölni
Nú, þingið verður náttúrulega að koma í veg fyrir að vondir fyrrverandi ráðherrar með ýmiskonar glæpi á samviskunni sleppi ekki við refsingu vegna óréttlátrar fyrningarleiðar. Ef tillaga Alsherjarnefndar verður samþykkt, gæti hugsast að sumir og sumar fari að svitna við tilhugsunina að deila herbergi með drykkfelldum innbrostþjófum og misyndismönnum á Litla-Hrauni.
Annars er svona fyrningarleið á glæpi eiginlega andstyggileg ónáttúra. Í rótarýklúbbnum Fjalla-Fjölni skaut kynvilla sér niður fyrir rúmum áratug með þeim afleiðingum að yfir 80% félaganna veiktust. Þeim er ekki sýktust af sjúkdómnum fannst að vonum íllt í efni og vildu reka pestargemlingana úr Fjalla-Fjölni. En þegar til átti að taka fannst ekki stafkrókur í lögum Fjalla-Fjölnis um hvernig ætti að taka á farsótt eins og kynvillu, auk þess sem brot félagsmanna væru hvort eð er fyrnd. Eftir þessa aumlegu uppákomu varð andrúmsloftið í Fjalla-Fjölni þrungið spennu og starfið gekk bæði rykkjótt og skrykkjótt næstu árin, uns tíminn læknaði öll sárin sem opnuðust þegar kynvillan stakk sér niður í klúbbnum.
![]() |
Fyrningarfrestur þrjú ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.12.2009 | 22:30
Getur verið að landráð séu í spilunum?
Getur það í alvöru hugsast, að svokallaður Icesave-samningur sé fyrst og fremst hugsaður af hálfu Samfylkingarinnar sem aðgöngumiði að ESB, eins og ýmsir hafa haldið fram? Getur verið, að fléttan sé einhvernveginn á þá leið, að fljótlega eftir samþykkt samningsins komi í ljós að við séum engann veginn borgunarmenn fyrir herlegheitunum, þannig að við verðum látin leita á náðir ESB, sem tekur að sér skuldirnar í skiptum fyrir góðan skerf af aflaheimildum? Og í þeirri stöðu verði almenningi í landinu stillt upp við þann vegg, að ganga annaðhvort þegjandi og hljóðalaust í ESB eða liggja bjargarlaus og útskúfuð í svaðinu? Getur verið að æpandi þögn þingliðs Samfylkingarinnar um Icesave stafi af óheilindum þeirra gagnvart þjóð sinni í málinu; ég held ég hafi bara ekki heyrt eitt einasta samfylkingarkvikindi færa nein rök sem heitið geta fyrir afdráttarlausum stuðningi við þennan óhreina gjörning?
Ef þetta er í grófum dráttum fléttan á bak við Icesava-samninginn og ESB-aðild Íslands, eru það frá mínum bæjardyrum séð, hein og klár landráð.
![]() |
Icesave á Alþingi á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.12.2009 | 15:38
Með bók í öðru líffæri en maganum
Ansi hefi ég vondan grun um, að Hugh Grant sé með umrædda bók eftir sjálfann sig í öðru líffæri en maganum. Því miður get ég ekki sagt í hvaða líffæri geymir bók sína, að því að það er svo ljótt og dónalegt. Mér er í fersku minni þegar þessi kynlegi leikari var staðinn að verki með blámannskvendi í kyrrstæðum bíl. Sú iðja sem hann var stunda með blákonunni var víst svo herfilega siðspillt, að enginn hefur enn þorað að nefna hana sínu rétta nafni, og manninum, sem kom að þeim, varð svo mikið um að hann varð geggjaður og hengdi sig á þriðja degi í ólarspotta sem hann hafði fest við kranann á baðherberginu.
En vonandi kemst bókin, sem herra Grant geymir á skuggalegum stað í líkama sínum, aldrei fyrir almenningssjónir því þangað á hún ekkert erindi fremur en önnur ódæðisverk saurlífiskalla.
![]() |
Með bók í maganum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.12.2009 | 13:53
Þjóðverjar vilja Foringja en ekki súrpæklaða Merkelkerlingu
Ekki þykir mér undarlegt, að þjóð sem átt hefur foringja eins og Adólf Hitler, finnist lítið koma til pólitískra hanastélja eins og hinnar súrpækluðu Merkelkerlingar, sem Þjóðverjar neyast til að kalla kanslara þessi misserin. Og ekki voru djöflamergir á borð við Helmútana Kól og Smitt hótinu skárri er sú súrpæklaða.
Ef heldur sem horfir í uppþornuðum foringjamálum Þýðverskra, munu þeir snúa sér að því af alefli, að finna sér Foringja, sem ekki er nein veimiltíta og sérgóð spillingarjurt. Mikill ríkikanslari á Þýskalandi myndi áreiðanlega taka til sinna ráða og blása sönnum hernaðaranda í brjóst landa sinna og leggja síðan gjörvalt Evrópusambandið undir sig með manni og mús.
![]() |
Hafa litla trú á stjórnmálaleiðtogum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2009 | 10:15
Áfengisneysla heimilisdýra er að verða þjóðarböl
Það var ekki seinna vænna fyrir blessað fólkið, að flytja sína innri jólagleði í ölvunarástandi út á götur og torg. Fátt er fegurra í veröldinni en drukkið fólk, einkum léttklæddar konur, á vafri í kuldagarra í svartasta skammdeginu.
Og allstaðar má sjá merki um framfarir. Nú er að verða algengt, að gæludýr, t.d. hundar, taki þátt í drykkjusvalli húsbænda sinna, fái rauðvín að staðaldri með matnum og þessháttar. Reyndar er ástandið orðið slíkt í þessum efnum, að farið er að tala um knýjandi nauðsyn þess, að komið verði á laggirnar afvötnunarstöð fyrir hunda ásamt eftirmeðferð.
Á jóladag frétti ég af labradorhundinum Sámi, sem orðinn er útgangshundur sökum skefjalausrar áfengisneyslu. Þegar aðrir hundar vilja hollan mat eftir nætursvefninn, gerir Sámur allt sem í hans valdi stendur til að þefa uppi afréttara, þannig að ekki er að undra hvernig komið er fyrir honum. Því miður er Sámur ekkert einsdæmi í þessum efnum því drykkjskapur heimilishunda er kominn á það stig að jaðrar við þjóðarböl.
![]() |
Ölvun mikil í miðborginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.4.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 50
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007