Leita í fréttum mbl.is

Hvenær verður gerð húsleit í Valhöll?

valholl3.jpgFyrst sérstakur saksóknari er kominn í óstöðvandi húsleitarham, og er auk þess í sérstöku fantaformi, er varla langt að bíða að hann fari með her manns til leitar í Valhöllu, félgasmiðstöðvargreni ræningjaflokksins sem kennir sig við ,,sjálfstæði." Það er hverjum manni auðsjánlegt, að það verður að rannsaka tengsl hinn harðsvíruðu auðvaldssamtaka, sem í daglegu tali ganga undir nafninu Sjálfstæðisflokkur, við sína menn í atvinnulífi og viðskiptum, brennuvargana miklu sem skildu allt eftir í kaldakoli en eru samt óþreytandi við að lýsa yfir sakleysi sínu uppí opið geðið á illa sviknum landsins lýð.
mbl.is Umsvif aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útför Lappa heitins

dog6Vel man ég þegar Lappi heitinn hans Jóns á Hóli var jarðsunginn. Um þær mundir var þokkaleg tíð, a.m.k. rigndi ekki meðan athöfnin fór fram. Ekki var þetta útför að hætti Votta Jehóva því að það var séra Atgeir p. Fjallabakssen sem jarðsöng og hann var, ekki svo ég man, neinn helvískur Jehóvi. Í minningarorðum sínum yfir hinum látna lagði séra Atgeir p. útaf boðorði Drottins: Þú skalt ekki morð fremja. Mæltist honum á þá leið að Lappa heitnum hefði verið nær að bíta ekki höfuðið af kjölturakka nágranna síns því að þá hefði eigandi kjölturakkans ekki skotið hann með riffli af 150 metra færi.

Að útför lokinni var ekið með kistu Lappa að íþróttahúsinu við Sóltungu þar sem konur, börn og gamalmenni gátu vottað hinum látna virðingu sína. Lappi var síðan grafinn utangarðs sunnan við kirkjugarðinn á staðnum þar eð ekki þótti viðeigandi að láta morðingja hvíla í vígðri mold.


mbl.is Útför Jackson hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlar þolendur ofbeldis af hálfu maka sinna

kona2_875429.jpgÞegar ég las fréttina um að tæplega fjórðungur íslenskra kvenna, sem annað hvort eru giftar eða í sambúð, hafi orðið fyrir kynferðislegu, andlegu eða líkamlegu ofbeldi af hálfu maka síns, fékk ég á tilfinninguna að hér væri aðeins hálf sagan sögð. Það vantar semsé ítarlega rannsókn á hve hátt hlutfall karla, sem annað hvort eru kvæntir eða í sambúð, hafa orðið fyrir samskonar ofbeldistraktéringum af hálfu maka síns og sambýliskonurnar af sínum mökum.

Svo ömurlega vill til að ég þekki eiginkonu nokkra sem kjaftshöggar eiginmann sinn iðulega svo verklega að hann liggur í öngviti heilu og hálfu næturnar. Auk þess á áðurnefnd eiginkona tvær systur sem þekkar eru fyrir að terroríséra sambýlismenn sína af geysilegum ofsa og áfergju. Þessar dægilegu systur hafa fært mér heim sanninn um nauðsyn þess að fram fari vísindaleg könnum á kynferðislegu, andlegu og líkamlegu ofbeldi sem karlar verða fyrir af hálfu maka sinna.


mbl.is Fjórðungur orðið fyrir ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólíkt hafast þeir að Sverrir og Davíð

davi_4_875231.jpgÞað er vel við hæfi að gamli kappinn, Sverrir Hermannsson, rói sér til fiskjar á gömlum báti. Hinsvegar held ég að fyrrum flokksbræður Sverris af kvótasjúklingastandi í Sjálfstæðisflokknum sjái ofsjónum yfir því himinhrópandi óréttlæti að karlinn geti fiskað sér í soðið án þess að þurfa að leigja sér kvóta af þeim.

En skemmtilega ólíkt hafast þeir að þessa dagana Sverrir Hermannson fyrrum bankastjóri og Davíð Oddsson fyrrum seðlabankastjóri. Á meðan Sverrir stundar holla útiveru á hafi úti með færeyska rúllu á borðstokknum fyrir framan sig, liggur Davíð í illþefjadi ólund í einhverju skúmaskoti og dælir uppúr sér hatursþrungu óráðsbulli í viðurvist Agnesar Bragadóttur um þá sem eru að berjast við að hreinsa frjálshyggjuhroðann upp eftir hann. 


mbl.is Siglir um á 81 árs gömlum bát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á að setja lög um starfsemi Sjálfstæðisflokksins

mafia1.jpgÉg var að vona, að eftir efnahagshrunið síðast liðið haust, færi fólk að átta sig á að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki stjórnmálaflokkur í þeim skilningi sem almennt er lagt í orðið stjórnmálaflokkur heldur glæpasamtök sem hafa það fyrst og síðast að markmiði að einoka auðlindir, efnahag og menningu þjóðarinnar undir verðuga reglubræður samtakanna. Ýmislegt í framgöngu Sjálfstæðisflokksins minnir enda á mafíustarfsemi þar sem tilgangurinn helgar meðalið. 

 Að sjálfsögðu á ekki að taka óþrifasamtök eins og Sjálfstæðisflokkinn neinum vettlingatökum. Í fullri alvöru er löngu ljóst að það er mikið nauðsynjaverk að setja lög á þessi glæpasamtök, banna þau með lögum. Það á engum ,,stjórnmálaflokki" að líðast að keyra þjóð sína í þrot eins og ekkert sé sjálfsagðara.


mbl.is Ósvífin og ódýr afgreiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og lautinant Valgerður vitnar (ásamt fleirum) um veginn að Drottins náð

finnur2.jpgFyrst að Mogganum hefur tekist að grafa Davíð Oddsson og herra Haaardý uppúr rústum Hrunadansins þá er varla langt í að Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson og jafnvel Valgerður frá Lómatjörn verði líka dregin uppúr sorphaugnum til að vitna á síðum Morgunblaðsins um sakleysi Frjálshyggjuframsóknaríhaldsins í Iceseivinu sem og efnahagshrunadansinum öllum.

En ósköp er það alltaf hressandi þegar villuráfandi draugamor, syndugra en Syndin sjálf, kemur rorrandi uppúr ruslakistum stjórnmálanna og fer í allra augsýn að rembast við að snúa Faðirvorinu uppá húsbóndann í Helvíti. Það er eitthvað svo undur hrífandi að fá að vera vitni að þegar afslegnir lúserar rjúka í æðiskasti útá mitt strætið til þess eins að halda opinbera sýningu á sínu innri manni. Því þegar öllu er á botninn hvolft þá er einlægt mest áríðandi í þessu lífi, sem og öðrum lífum, að vera alltaf, ,,fremstur í fláttskap og vélum" eins og skáldið segir í ljóðinu um nauðsyn þess að fá heiminn til að brosa framan í gráðuga einstaklinga.  


mbl.is Geir Haarde: Hann tók því illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moggamenn vekja upp draug

gaman.jpgEnn á ný sannast sannast orð þjóðskáldsins: ,,Á Mogganum er mikið puð / menn þar trúa ekki á Guð." Árum saman hefur það verið keppikefli Moggans að reyna að særa fram sem mestan púkafans til þess eins að hræða landsmenn til hlýðni og viðunandi undirgefni við heilagan Mammon og siðleysi hans. Flestir sem komnir eru til vits og ára muna eftir vofunni Rússagrýlu, sem reið röftum um þvert og endilangt Morgunblaðið áratugum saman, svo við lá að Morgunblaðshöllin sykki ásamt allri áhöfn í jörðu niður eins og kirkjan í Hruna forðum daga.

Og enn eru Moggamenn ekki dauðir úr öllum æðum þegar kemur að uppvakningafræðum. Í sunnudagsmogga þessarar helgar er svo að sjá að nú hafi vikapiltum heimskapítalismans á Hádegismóum tekist magna fram úr skúmaskoti hinna pólitísku eterheima draug sem um munar og er, ef að líkum lætur, enginn eftirbátur hins skapvonda Þorgeirsbola, sem hljóp milli héraða með húðina flegna af sér til hálfs í eftirdragi, landsins börnum til ama og skelfingar. Það verður þó að segjast eins og er, að það var vel viðeigandi af Galdra-Loftum Moggans og þann smekk sem þeim er áskapaður að vekja Davíð Oddsson, hrunadansmeistara, upp til pólitísks draugalífernis, einmitt þegar dagurinn er lengstur á Íslandi. Því verður heldur ekki á móti mælt að uppvakningurinn Davíð blæs hressilega úr nösum fram, ekki síður en Þorgeirsboli. Eftir að hafa legið í sinni pólitísku gröf um hríð að kórbaki kirkjunnar í Hruna, stekkur hinn fallni hershöfðingi frjáshyggjunnar fram í dagsljósið, bölvandi og ragnandi öllu og öllum í sand og ösku. Meðal annars heldur þessi Þórólfur bægifótur nútíma draugagangs því fram að ráðamenn Íslands síðustu níu mánaða hafi ásamt embættismannahyski sínu sammælst um að láta þjóð sína borga Icesave-reikninginn hvað sem tautar og raular og hafi í því sambandi falið öll gögn sem sanna að Íslendingar eigi ekki að greiða umræddan reikning Björgólfsfeðga. Ég geri ráð fyrir, að landsmenn allir, að undanskyldum fyrrnefndum ráðamönnum og þeirra hyski, óski þess heitt og innilega að orð draugsins séu þeirrar guðlegu náttúru að vera hverjum degi sannari og nú sé ekki um annað að ræða en að leita uppi hin földu gögn sem að ein duga til að reka Breta, Hollendinga og annan óþjóðalýð af höndum vorum í eitt skipti fyrir öll.  


mbl.is Ekki setja þjóðina á hausinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgðarlausa braskara ber að leysa frá störfum

fingur.jpgNú, fyrst að kvótagróssérarnir ætla að taka stöðu á móti þjóð sinni með því að koma ekki með peningana heim er vel athugandi að þjóðin taki framleiðslutækin og kvótann af þessum guðsgeldingum. Það er ljóst að þetta lið er gjörsamlega ábyrgðarlaust og virðir af vettugi skyldur sínar við land og þjóð. Því ber að leysa þetta fólk frá störfum svo fljótt sem auðið er. Eins og stendur höfum við ekkert með kvóta- og gjaldeyrisbraskara að gera - og höfum reyndar aldrei haft.
mbl.is Tekur ekki áhættu á að krónan falli í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig ætlaði Ónordal að greiða 6,7 prósentin?

thorr.jpgMér skilst að frú Ólöf Nordal (sk.st. Ónordal) og hennar kammeratar í Sjálfstæðisflokknum hafi verið svo gott sem búin að semja um Icesave-hroðann síðastliðinn nóvember með 6,7% vöxtum og greiðslur á höfuðstól áttu að hefjast strax. Með það í huga ætti frú Ónordal ekki að þurfa að leggja á sig ferð uppí ræðupúlt Alþingis til að spyrja hvernig skuldirnar verði borgaðar, það hlýtur að hafa legið fyrir þegar Haaardý og Ónordal vildu óð og uppvæg láta landsmenn borga 6,7% vextina.

Því er aldeilis ekki fisjað saman pappakassaliðinu og lúserunum í Sjálfstæðisflokknum þegar hræsni, lygar og óheiðarleiki eru annars vegar.

Að lokum legg ég til að Sjálfstæðisflokkurinn verði lagður niður og starfsemi hans bönnuð með lögum.


mbl.is Getum ekki prentað gjaldeyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolbrún tekur við af Friðriki þann 1. jan. n.k.

untitledÞað er hverju heilbrigðu mannsbarni mikið fagnaðarefni, að frjálshyggjufólið Friðrik Sophusson sé á förum frá Landsvirkjun. Þó ber þann ljóta skugga á þann fögnuð, að karlskepnan verður á fóðrum hjá skattgreiðendum eins og hver annar ómagi og niðursetningur svo lengi sem hann hjarir. Satt að segja er það hin mesta ósvinna að greiða ríkisreknum frjáshyggjudólgum eftirlaun og annað þvíumlíkt úr ríkiskassanum, sem þessir sömu frjálshyggjudólgar hafa tæmt vel og vandlega og rúmlega það.

En fyrst við erum að losna við Frikka Sóf úr Landsvirkjun, er einboðið að Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, verði eftirmaður (eða kona) frjálshyggju-Frikka og gerist forstýra Landsvirkjunnar. Kolbrún hefur allt til brunns að bera, ekki síður en Frikki, í rafmagnsmálum; hvorugt kann að skipta um ljósaperu og hvorugt þekkir rafmagnsstaur frá jólatré. 


mbl.is Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband