19.6.2021 | 23:39
Hin frelsandi frú komst í hann krappann og féll endilöng í flórinn
Gamla frúin, fyrirmynd íslenskra nútímakvenna í atvinnulífinu, en þó aðallega móðurlífinu, ætlaði að endurreisa hið sárt syrgða og steindauða flugfélag WOW með péníngum og fasteignum sem hún átti ekki. Það er nefnilega talið ósköp fínt að gjöra stóra kaupsamninga um hitt og þetta fyrir pénínga sem maður á ekki. En alfínast þykir þó að leggja í innkaup og greiða fyrir fyrir vel útilátnu þýfi. Hvert sem litið er má sjá hvernig þýfið vinnur fyrir góða menn og Reykvíkingar þurfa ekki annað en að horfa út á sundin framan við stóru skuggalegu háhýsin í Skuggahverfinu til að sjá fljótandi rússneski þýfi, annað svart, hitt grátt og gluggalaust.
En gamla frúin Michel Roosvelt Eðvarðs kom sem sé frelsandi til Íslands fyrir ekki svo all löngu síðan til að endurlífga flugfélagið WOW, sem hrokkið hafði upp af í lúkunum á lukkuriddurum Mammóns. Á Íslandi hitti frú M.R. Eðvarðs margt góðra manna, svo sem eins og Bjarnaben, samherja Sjálfstæðisflokksins og síðast en ekki síst gömlu Framsóknarmaddömuna á heimili hennar í Framsóknarfjósinu. Það fór vel á með gömlu konunum og þær drukku saman áquavitae, sem Framsóknarmaddaman hafði geymt millum læra sér og var orðið moðvolgt og smitandi.En því miður þá féll frú M.R. Eðvarðs flöt í fjósflórinn í Framsóknarfjósinu þegar gamla Maddaman var að sýna henni húskarlana og griðkurnar sem starfa hjá henni í Fjósinu. Þetta varð verulega slæmt fall, því helvískur tuddinn, sem stóð í básnum og tuggði hey, hélt að til sín væri leikurinn gjörður, reif sig lausan og hugðist ná fram vilja sínum á hinni gestkomandi heiðursfrú, sem lá endilöng í flórnum með pilsin upp um sig. Þetta er mannýgt yxn, geðvont og kynótt eins og karlmaður og hlýðir engum nema gömlu Framsóknarmaddömunni. Þegar frú M.R Eðvarðs tókst eftir mikla fyrirhöfn að komast á lappir var hún ævareið og heimtaði að yxnið væri tafarlaust leitt út á blóðvöllinn til slátrunar, því kvikindi sem hefi ætlað að nauðga sér við viðsjáverðar aðstæður væri réttdræpt. En gamla Framsóknarmaddaman hlustaði ekki á rausið í vinkonu sinni, datt það ekki í hug, en sendi ráðsmann sinn, hlaunagleiðan og frussandi með frú Eðvarðs á knæpuna við tjarnarendann.
![]() |
Tengd við samsæriskenningar og kosningasvindl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2021 | 22:38
Púpú og Títa litla kjósa tækifærin
Púpú og Títa litla ultu eins og pöddur niður heimreiðina. Framundan var bærinn, kaldur og ljótur. Morauður hundur stóð við útidyrahurðina og mé á hana, þetta var uppáhalds hlandvöllurinn hans og honum stóð á sama þókt ómerkilegar persónur eins og Púpú og Títa litla nálguðust bæinn og ætluðu að gera sig heimakomin, þetta voru hvort sem er boðflennur, fataleppar á innihalds, svona rétt eins og tað án þefs. Eða var það heldur þefur án taðs? Veit ekki hugsaði hundurinn og mé betur á útidyrahurðina.
Hvur leiddi hvurn niður götuslóðann var ekki heldur gott að sjá, en það skipti auðvitað engu, því Púpú og Títa litla höfðu ekki höndur, þau höfðu klær, ránfuglsklær eins og fálkinn sem horaða rjúpu étur. Fyrir neðan bæinn lá bóndinn með atgeirinn í gegnum sig miðjan; hvort hann var dauður eða með lífi var heldur ekki gott að sjá. Hrafnarnir voru sestir á húsþakið og biðu átekta, bak við túngarðinn lá melrakkinn, hann var líka að bíða.
Púpú og Títa litla eru á vegum Ingupu, þrælar hennar og gleðigjafar í þungum raunum hennar. Meðfram allri ströndinni voru leifar af bæjum. Bráðum grær alveg yfir þá og allt verður eins og áður en fyrsti maðurinn kom þar. Yfirgefin þorp, tómar hafnir og í auðum fiskiðjuverunum höfðu minkarnir gjört sér heimili og gotið. Í kirkjugörðunum lágu krossar og legsteinar á hliðinni, þar höfðu melrakkarnir gjört sér greni, og í einni kirkjunni var nú stafrækt ferðamannaparadís með kvennaþjónustu þar sem forstöðufrúin tók við aðgangseyrinum í kirkjudyrunum en pútnahöfðinginn hafði hægt um sig í skrúðhúsinu. Á íþróttavöllunum lágu upplituð rýjateppi sem mávarnir skitu í, annars var allt steindautt. En Púpú og Títa litla ætla sér stóra hluti í eyðimörkinni sem þeirra líkar bjuggu til því Púpú og Títa litla kjósa tækifærin.
![]() |
Þórdís leiðir eftir fyrstu tölur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2021 | 19:51
Þá Djöfullinn birtist fólki í fjármálahofinu
Áður og fyrrum var illþýði, tildæmis galdrakindur, brenndar upp til agna til að koma í veg fyrir að þær héldu áfram skaðlegum tiltektum eftir dauðann. Þórólfur bægifótur, sá félegi Snæfellingur, sem var án vafa forfaðir Bjarnar í Öxl, lét sér ekki segjast fyrr en hans skuggalegi líkam hafði verið færður á bál. Þórólfur þessi hafði ekki verið þægilegur nágrönnum sínum og ættingjum meðan hann lifði, en eftir hann hrökk upp af keyrði um þverbak og gat ekkert breytt þeirri vá annað en eldurinn.
Sagt hefir verið, af til þess bærum og kunnugum mönnum, að við líkbrennslu fari sál hins brennda lóðbeint til Helvítis, enda sé þessi undarlegi háttur á meðferð hinna önduðu runnin beint undan rifjum Djöfulsins, þess hins sama og veitir Helvíti forstöðu, en hann fann einnig upp líkbrennsluofnana og hefir af þeim drjúgar einkaleyfistekjur. Einnig er skylt að taka fram, Erki-Djöfullinn fann líka upp efnið víagra fyrir karlmenn, en einkum þó fyrir vergjarnar kvinnur með frjógvunaræði. Þá skjaldan það fyrir kemur að brennt fólk mætir úr öðrum heimi á miðilsfundi bregst ekki að fundarherbergið verður allt þakið sóti og undirlag af brunaþef, illum. Þessi ósköp hafa gert út af við suma miðla, annaðhvort gjört þá brjálaða elligar gengið að þeim dauðum á staðnum.
Þá skal þess ekki ógetið, að Djöfullinn varð mönnum sýnilegur í fjármálahofi einu í Reykjavík; hann sem sé exítéraðist og veifaði halanum válega og sleikti út um. Enginn viðstaddra hafði séð Sathan áður í eigin persónu og var ekki laust við að hinar veikluðu fjármálasálir trylltust af hræðslu. Ein kérlíngin, fræg af fémínístablaðri og péníngaást, stökk beint úr um gluggann og hefði mátt ætla að þar færi hún sína hinstu för. En því miður var kérlíngagálan stödd á neðstu hæð, ný komin af taðhýsinu, og því varð höggið ekki nema miðlungi hart og slasaðist hún ekki að öðru leyti en hvað hún missti af sér allt nefið út af stóru glerbroti úr rúðunni sem hún rak trýnið í. Á slysavarðstofunni játaði hún, að hafa fengið sér duglega í nös á taðhýsinu, enda gat hún ekki þrætt fyrir það þar eð miklar leifar kókaíns fundust í hennar tapaða nefi, sem lögreglan á staðnum tók í sína vörslu og gjörði upptækt og haldlagði.
![]() |
Nær bálið til sálarinnar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2021 | 16:16
Endasleppt orðuhjakk forseta snobbýlýðsins
Enn á ný vagar forseti efrimillistéttarinnar og yfirstéttarinnar fram á gólfið á Bessastöður og nælir orðu framan á bringuna á nokkrum vindþurrkuðum liðleskjum, sem ekkert hafa gert annað en að stunda sinn þurrpumpuskap. Þetta þykir kjánum auðvaldsþjóðskipulagsins ósköp fínt og er víst ekki laust við að sumt af þessu skraufþurra tepruliði nái að kreista fram nokkra illþefjandi dropa hlands í buxurnar um leið og forsetadindillinn fer um þau höndum.
Í sambandi við þessa orðuíþróttahátíð snobblýðsins, þá erum vér ekki frá því, að skömminni skárra væri forsetinn hengdi krossa á stórmenni á borð við Þorstein Má útgerðarhöld, Ólaf Ólafsson útvegsbónda, Sigurð Hakkara, og Ása Ökumann í stað þess að eyða púðri á háskólaþurrkaðar geldær og holtaþokusauði, sem liggja feitir garði hjá. Eins væri hugulsamt af elítunni að senda forseta sinn með nokkra krossa á bakinu út um víðan völl til að reka niður í jörðina til sæmdar burtsofnuðum löndum vorum.
Vér sjáum fyrir oss hvar forsetinn eigrar út í mýri, með broddborgarastóð og burgeisa álengdar, og heiðra Björn Haraldsson frá Öxl fyrir óeigingjarna frumkvöðlastarfsemi; einnig mundi forsetinn heiðra Gretti, Glám og Þórólf Bægifót fyrir þeirra afrek; og hið efrimillistéttarlega kvenkyn mundi fá sína krossa á Móhúsa-Skottu, Grýlu gömlu og Ráðskonuna á Holtavörðuheiðinni. Með slíkum embættisverkum teljum vér að forsetamyndin aðalsins gerði þá að minnsta kosti eitthvað rétt.
![]() |
14 Íslendingar sæmdir fálkaorðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.6.2021 | 13:28
Dómstóll dregur dár að og svívirðir einn íslenskan útvegsbónda
Þeim munar ekki um, þessum fjöndum hjá Mannréttindadómstólnum, að svívirða okkar besta útvegsbónda og þyrluflugmann. Nei, þá er nú þessum Mannréttindadómstóli nær skapi að taka undir róg og níð götustráka í garð máttarstólpa þjóðfélagsins og reka máttarstólpann af höndum sér með dáraskap og skítafýlu. Það er eins og þessi dómstólaskríll úti í Evrópu kunni sig ekki í umgengni við duglega menn, sem ekki vita aura sinna tal og hafa hlotið upphefð sína undir pilsfaldi gömlu Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu á Íslandi.
Ólafur stórútvegsbóndi Ólafsson að Miðhrauni I. í Miklholtshreppi er sem kunnugt er mikill maður, sem brotlenti þyrlu sinni við erfiðar aðstæður, og slapp þaðan lifandi. Einnig var hann hnepptur í varðhald sökum dugnaðar síns og hafður upp á vatn og brauð í marga mánuði, og slapp þaðan lifandi. Síðan hefir þessi leiksoppur öfundsýki og smásálarháttar illa gerðra Íslendinga mátt stunda búskap sinn landflótta maður frá útlöndum, og farnast undurvel. Vel að mekja: undurvel!
Æra Ólafs bónda er stór og mikil, eins og þrefaldur fjallgarður, en að henni hæðist dómstóll, sem kennir sig við mannréttindi, lætur eins og hún sé léttvæg sem lús. Hin sama gjörir fyrirbrigðið ,,rannsóknarnefnd Alþingis", sem saman stóð af ábyrgðarlausum föntum, sem gjörðu sér lítið fyrir og spyrtu Ólaf bónda að Miðhrauni I. saman við þýðversku þokkapiltana Hauck og Aufhauser, sem upp á íslensku heita Haukur og Afhausarinn. Getur verið, að okkar verst menn og böðlar, á Íslandi sem í Evrópu, hafi sammælst um að draga sem mest dár að Ólafi bónda til landbúnaðar og útvegs og velta honum sem mest upp úr foraði Kaupþings, Búnaðarbankans og Framsóknarfjóssins, illu fólki til aðhláturs og gamanmála?
![]() |
MDE vísar kæru Ólafs Ólafssonar frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2021 | 12:56
Pétur Pálsson framkvæmdastjóri og Katrín Jakobsdóttir
Þegar Pétur Pálsson framkvæmdastjóri var í góðu skapi lýsti hann því gjarnan hátíðlega yfir að hann væri ,,skú fanen gale mæ, ingen íslandsmann." Hið sama á við um Katrínu Jakobsdóttur, forframaða hjá NATÓ, hvar hún hefir fett sig og brett framan í blóðhundana þar á bæ. Í bómullarkassa á háskólalóðinni sleit hún barnsskónum, en hefir þó aldrei komist úr bómullinni eða út fyrir lóðina, ef frá eru taldar gleðiferðir hennar til að funda með blóðhundunum, vinum sínum. Við skulum vona að vinir hennar í hátimbruðum höllum í útlöndum segi okkur ekki alla söguna um hver Katrín Jakobsdóttir Steingrímsson og Álfheiðar er.
Og nýkomin úr salarkynnum heimsvaldasinna NATÓ rigsar svo þessi lítilsigldi forsætisráðherra í krónískri montvímu upp á pall á Austurvelli á sjálfan þjóðhátíðardag Íslands og les upp eitthvert auvirðilegt þvaður sem einhver af undarennuaftaníossum hennar samdi hálffullur á knæpunni. Nær alþýðlegheitunum kemst formaður VG ekki. En Katrín, Stenngrimur og þeirra slekti mun að sjálfsögðu uppskera í samræmi við það sem þau hafa sáð og sú uppskera verður römm í koki og álíka heilnæm fyrir líkama og sál og salmíaksspíritus.Eitt stendur þó upp úr hvað Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og formann ,,Vinstrihreyfingarinnar" ,,græns" framboðs varðar. Hún kann ekki að skammast sín. Henni á að vera fullkunnugt um hverjir það voru sem stóðu að stofnun VG og til hvers sá flokkur var stofnaður, en allt um það traðkar þetta gluggaskraut Stenngrims og Álfheiðar arfleifð liðinnar baráttu og baráttumanna eins og um hvurn annan hundaskít sé að ræða. Það minnsta sem endemin, sem enn nenna að vera í VG, geta gert, er að hætta að kalla sig ,,vinstri" eitthvað, enda er VG ekki annað en borgaralegur klúbbur úrkynjaðra stjórnmála.
![]() |
Hvenær erum við Íslendingar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2021 | 19:03
Poletiskir dagar Haralds eru þegar taldir
Auðvitað tekur Haraldur ekki sæti á listanum ef puntudúkka Bjarnaben fellir hann úr fyrsta sætinu. Á sínum tíma kom Haraldur og bjargaði Sjálfstæðisflokknum þegar flokkurinn hafði aungvann í Norðvesturkjördæmi til að hafa í fyrsta sæti. Kjörnefnd stóð frammi fyrir fyrir að hafa annaðhvort aungvann í fyrsta sætinu elligar þá einhvern skammarlegan blábjána eða lukkuriddara af skítbuxnaættum.
Nú ætlar flokkseigendafélagið, Engeyingar, samherjar og annað illþýði Flokksins að launa Haraldi greiðann með því að setja fótinn all-fast í rassinn á honum og feykja honum eins og dauðum fugli fyrir hin poletisku björg, en þaðan kemur aunginn poletiskt lifandi aftur. Þetta er þó ekki í fyrst skipti sem stórmenni landsins gjöra aðsúg að bóndanum í Rein á Akranesi. Mun lengi í minnum haft þegar djöflar danakonúngs lögðu Jón Hreggviðsson Reinarbónda í járn og hugðust höggva af honum hausinn. En Jón slapp frá íhaldi og auðvaldsbesefum síns tíma af fádæma útsjónarsemi, en Haraldur aumingjanum mun ekki lánast að halda sínu poletiska höfði heldur falla fyrir litlausu gluggaskrauti formanns Flokksins.
Hjá Drotni Alsherjar eru poletiskir dagar flokkshestanna taldir og ekki mun Pokurinn sitja hjá við þá talningu, enda hefir hann verið helstur ráðgjafi svartnættisauðvaldaflokka heimsins. Og Pokurinn hefir þegar vitrast manni einum á Skaganum, forpokuðum íhaldsjálki af verri tegundinni. Er skemmst frá að segja, að Pokurinn tjáði manni þessum, að búið væri að undirrita lokadóminn yfir Haraldi í Rein og telja hans poletisku daga, þeim mun að fullu og öllu um næstu helgi.
![]() |
Haraldur mun ekki þiggja annað sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2021 | 19:24
Veraldaraumingjar
Í mínu ungdæmi var talað um veraldaraumingja þegar átt var við persónu sem farin var í hundana eða hafði aðhafst eitthvað svo hörmulega auvirðilegt að fólk rak í rogastans. Um dýrkun Katrínar Jakobsdóttur af ætt Thoroddsena þarf ekki mörg orð, svo ógeðfellt sem slíkt athæfi er. Að sjá þetta fyrirbrigði, sem komist hefir til æðstu metorða innan flokks sem kennir sig við vinstri og er að sögn afkomandi Kommúnistaflokks Einars og Brynjólfs og Sameiningarflokks alþýðu, reigja sig og beygja fyrir þorpurum NATÓ, og skvetta sér til og frá eins og fífl framan í þá er þess eðlis fáu er til að jafna.
Ég legg til að vinstrimenn á Íslandi taki saman höndum og sparki þessum fáráðlingi af höndum sér. Nú er loddarinn Stengrimur Johoð, aðalforingi VG, að hverfa af Alþingi og mun héðan af eiga lögheimili að Ruslahaugum Sögunnar, aðrir Flokkseigendur eru komnir að fótum fram eða fallnir í valinn, þannig best fer á að asninn fylgi eyrunum og Katrín fái að svífa í boga yfir höf og lönd og hafna í ásamt öðru skrani af hennar tagi á fyrrnefndum Ruslahaugi.
Óþverraleg svik Katrínar og Stenngrims við þann málstað, sem þau lugu sig inn á og fleyttu þeim þangað sem þau hafa komist, eru þess eðlis, að drykkjulæti Miðfótunga að Klaustri eru eins og ljúfur fuglasöngur miðað dólgshátt þessara siðlausu óþokka. Hinsvegar mega veraldaraumingjarnir Stenngrimur og Katrín sleikja sér að vild upp við alla þá samherja og blóðhunda heimsvaldasinna sem þau vilja, en það er nauðsynlegt að þau geri það undir réttum formerkjum. Þess vegna verða vinstrimenn á Íslandi að afgreiða þetta ólánsfólk fyrir sitt leyti af höndum sér í eitt skipti fyrir öll.
![]() |
Katrín segir Biden koma sterkt inn í NATO |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.6.2021 kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gamansamur piltur Gölle, en því miður er gamansemin aldrei viljandi af hans hálfu því piltur er öldungis húmorslaus, þannig að gullkornin sem hrjóta úr hans munni gera það alveg óvart án allra tengsla við hug og hjarta. Nú þykist hann ætla að fara að athuga njósnir, þó svo ekkert bendi til að hann viti hvað njósnir eru. Má vera að Gölle með atkvæði sínu á Alþingi hafi hann komið á laggirnar eftirlitsiðnaði, sem hefir þann tilgang einan að farða og flikka upp á kapítalismann og bófahjörðina sem framkvæmir þann leiða isma. Ófagurt dæmi um þessháttar iðnað er Fiskistofa, gjörsamlega óþörf að öðru leyti en því að friða fólkið í landinu sem búið er að svipt eign sinni, fiskveiðiauðlindinni.
Það verður eflaust fróðlegt að fylgjast með Gölle við athuganir sínar á njósnum þeirra frelsis- og friðelskandi í USA á íslenskum stjórnmálamönnum. Nærtækara væri þó fyrir Gölle að láta sér nægja að fletta upp njósnabókum Sjálfstæðisflokksins um almenning á Íslandi, en þær skræður eru eflaust aðgengilegar stórmennum eins og Gölle a. Þórðarsyni.Óvíst er þó, að í njósnabókum Sjálfstæðisflokksins sé að finna frásögn af hrakförum eins flokksnjósnarans. Sá djöfull hafði gert sér að leik að snuðra um sjómann sem ekki hafði annað á samviskunni en að vera illa við Sjálfstæðisflokkinn. Þegar sjómaðurinn komst á snoðir um njósnirnar og uppgötvaði hver njósnarinn væri, fór hann heim til kauða og bankaði. Frúin kom til dyra og spurði gesturinn eftir manni hennar. Þetta var að morgni dags að vori til og sólin skein í heiði. Nú, njósnarinn kom til dyra á náttsloppnum sínum, en annars gekk hann alltaf í jakkafötum og bar virðulegt ættarnafn. Þegar hann sá hver kominn var ætlaði helvískur að skella hurðum og læsa, en sjóarinn laumaði löngutöng sinni aftan í hálsmálið á garpinum og kippti honum út á stétt áður en honum tókst að fella hurð að stöfum. Úti á lóðinni fletti sjómaðurinn sloppnum upp um njósnarann, sleit nærbuxurnar utan af honum og hýddi hann stórflengingu þar til farið var að blæða úr þjóhnöppum hans og hann farinn að missa saur og þvag. Þá kastaði sjómaðurinn njósnaranum út í blómabeð og bað hann aldrei þrífast, annað eins sóðasvín sem hann væri. Að svo búnu fór sjómaðurinn leiðar sinnar eftir vel heppnuð morgunverk í Vesturbæ Reykjavíkur.
![]() |
Bíður eftir svari frá Dönum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2021 | 11:29
Þegar götustrákar æra óstöðuga til hermdarverka
Þetta gat heldur ekki öðruvísi farið. Þegar óstöðugir eru espaðir upp, til dæmis í hatur á Helga Seljan og Ríkisútvarpið, er fátt líklegra en bönd bresti innra með þeim veiku og þeir fara að ógna og hóta Helga og Ríkisútvarpinu. Sem betur fer er fyrrum lögreglforingi húsvörður, eða eitthvað soleiðis hjá ríkisútvarpinu, og hann brá hart við og snöri hið óða fórnarlamb hatursáróðursins gegn Helga Seljan og Ríkisútvarpsins niður og fól það í höndur Hálfdáns Varðstjóra, en það eru eins og kunnugt er aungvar kvenmannshöndur.
En þetta er allt saman gott og blessað, vandinn leystur - í bili - og hinn bandóði kominn blessunarlega undir mannahöndur. Hætt er samt við að siðvilltir götustrákar haldi áfram að efla áróður, sem hefir að markmiði að trylla veikgéðja og einmanna sálir í þeirri von að þeir ærist um of og grípi til heimskulegra óyndisúrræða. Hver man ekki eftir þegar Kolbeinn og Brynjar Vondalykt lugu því að Indriða Handreði að frændi Kolbeins, Arinbjörn Kolbeinsson, margfrægur aumingi, skelmir og flagari, væri í óðaönn þessa dagana og hafa óleyfileg mök við Máríu Borgargagn, eiginkonu Handreðsins. Indriði Handreður varð aldeilis örvinglaður við að heyra þessa frétt, bilaðist og sá rautt. Hann rauk í hendingskasti þangað sem Arinbjörns var von og þaut yfir hann eins og túrbó beltagrafa. Það segir sig sjálft, að Arinbjörn var lengi að ná sér eftir aðför Handreðsins og þurfti hvað eftir annað að láta veita sér áfallahjálp og hann losnaði ekki endanleg úr gifsinu og sárabindunum fyrr en eftir margra mánaða legu. Arinbjörn var alsaklaus af óleyfilegum mökum við Máríu Borgargagn og var því að sama skapi ósáttari við ofbeldið sem hann varð fyrir.Mest væri þó gaman að vita hvurnig Hálfdán Varðstjóri meðhöndlaði hatursmann Helga og Ríkisútvarpsins. Ef mér skjöplast ekki því meir hefir Hálfdán iðað í skinninu meðan hann var að undirbúa sig fyrir yfirheyrsluna. Og undirbúningur Hálfdáns Varðstjóra fyrir slíkar helgistundir er ekkert til að gjöra grín að. Í þessu tilfelli trúi ég hann hafi drukkið sér eins og rúmlega hálfa flösku af moðvolgu áquavíti í fyrstu lotu og fengið sér fáeinar línur af hvítu dufti sem hann hefir gjört upptækt hjá einhverjum vandræðamanni. Svo. Svo hefir hann, máske á nærhaldinu einu fata, hrundið dyrum fangaklefans sem geymir hinn bersynduga upp á gátt og haft samstundis fumlaus og öflug endaskipti á þrjótnum og látið hann játa á mettíma.
![]() |
Handtekinn eftir að hafa hótað RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 0
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 74
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 65
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007