Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu

ingSíðan Bjarniben lagði á flótta bæði úr stjórnarráðinu og Valhöllu og yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn í fússi hefir frú Ingveldur verið afar hugsi og látið lítið fyrir sér fara. Og nú eru að koma á daginn allar hennar svörtustu spár. Hún reyndi að koma í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fremdi ekki það axarskaft að gjöra Guðrúnu Hafsteinsdóttur Kjöríss að formanni Flokksins, en hafði ekki erindi sem erfiði.

Þegar svo illa var komið að frú G.H. Kjöríss var orðin formenni, þá spáði frú Ingveldur því umsvifalaust, að þetta makalausa kjör væri upphafið að endinum. En nú hefir heldur betur komið í ljós að að nýi formaðurinn er vægast sagt litlaus pólitíkus (ef pólitíkus skyldi kalla), áhugalaus um þjóðmálin og rúin öllu sem hægt er að kalla kjörþokka. Við þetta bætist að þingflokkurinn saman stendur af fjaðralausum undirmálsdvergum, þar sem enginn nær kjörþyngd eða reiðir vitið í þverpokum. ,,Þetta er búið", tilkynnti frú Ingveldur öldungum flokksins á dögunum með þeirri athugasemd, að nú væri ráð að selja bæði Valhöllu og Moggahöllina í Móunum áður en gjaldþrot og hrun gerðu þessar glæstu eignir að engu. 

Ennfremur hefir frú Ingveldur sagt kunningjum sínum, að mikið megi vera ef Flokkurinn verði ekki seldur á uppboði eins og hvert annað úttaugað gamalhross eða gjörónýtt skipsflak á strandstað. Meira að segja Brynjar Vondalykt hefir lagt niður öll vopn og útvegað sér vottorð upp á að hann sé geldur orðinn og úr honum allur sá vindur sem gjörði hann að manni með mönnum. Þá er Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, ásamt því að vera eiginmaður frú Ingvelda,r kominn á vergang; hún rak hann burt af heimilinu þegar hann gerði sér lítið fyrir og kom tvívegis buxnalaus heim á sama sólarhringnum, og bar með sér menjar um syndsamlegt líferni á líkama sínum. Það var daginn eftir síðustu kosningar í kjölfar þess að búið var að leggja gömlu geggjuðu Framsóknarmaddömuna inn á líknardeildina. En daginn eftir að gamla Maddaman hafði verið lögð til í bæli á líknardeildinni, gjörðust þau stórmæli á deildinni að þar geispuðu allir sjúklingarnir golunni milli klukkan ellefu og tólf árdegis, nema Framsóknarmaddaman, hún lifði. En en kokkurinn sat uppi með allan hádegismatinn ósnertan þar eð þeir sem höfðu átt að neyta hans voru horfnir á vit feðra sinna. 



mbl.is Svefnlausu næturnar voru allar þess virði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa og mela

samÓsköp sem það er líkt Samfylkingarauðvaldinu að senda frægar afturgöngur sínar, þau Össur og hana Katrínu Júlíusdóttur, sem bæði eru Hrunistar, í sextugsafmæli nýfrjálshyggjukarlsins Andrésar Magnússonar, sem gjör hefir garðinn frægan í Hádegismóum upp á síðkastið með Stefáni hérna Einari, sem getið hefir sér gott orð fyrir ósvífni og hortugheit á Mogganum. Össur er hins vegar einn af þessum ólánsdrengjum, sem kaus að sóa lífi sínu í að fara huldu höfði í poletikinni; hann hófst upp úr unglingamótþróa á íhaldsheimili til að leika á gamla alþýðubandalagsmenn sem gerðu hann að ritstjóra Þjóðviljans! Já þeir voru litlir mannþekkjarar sumir flokkeigendurnir í alþýðubandalaginu. Síðar skreið Össur í vist hjá krataeðlispáfanum Jóni Baldvini og með honum startaði hann nýfrjálshyggjunni á Íslandi svo um munaði með Eimreiðarstrákunum; því skemmdarverki lauk sem kunnugt er með Hruni. Loks var Össur kosinn út af þingi með glæsibrag og lagðist í brask eftir það eins og góðum auðvaldsdreng sæmir. 

Annars hefir afmælið hans Drésa verið huggulegasta samkoma og má vel kenna afmælisbarnið á því fólki sem heiðraði hann sextugan. Verst er, að nú geta nýfrjálshyggjudraugarnir ekki falið lengur hve slitnir þeir eru orðnir og komnir langt fram yfir síðasta söludag. Ef þessar eftirstöðvar af nýfrjálshyggjumorinu væri matvara í verslun, er viðbúið að heilbrigðiseftirlitið væri kallað á vettvang til að fjarlægja óþrifin og kæra kaupmanninn fyrir að bjóða heilsuspillandi vöru til sölu.

En þó nýfrjálshyggjan í Sjálfstæðisflokknum sé blessunarlega komin að fótum fram; og eimreiðargalsinn í Valhöllu að mestu hljóðnaður; og raddirnar í þeim orðnar draugslega rámar. Þá heldur hliðarsjálf Sjálfstæðisflokksins uppi nýfrjálshyggjumerkinu fyrir auðvöldin og arðræningjanna. Hið glæsilega sett ESB auðvaldsins, þær Kristrún í Kviku, Thorgerður Katrín, sem er fyrrum góðhrunari, og maddama Sæland, hafa fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, með tilheyrandi krataeðli og lýðskrumi, tekið við nýfrjálshyggjukeflinu og eru ekki bara farnar í stríð við Rússa og kvótaeigendur, heldur eru þær í óðaönn að undirbúa stríð við íslensku þjóðina út af ESB innlimuninni. Íllt er þetta allt og bölvað og megi Guð gefa oss byltingu frá öllu þessu herfilega krataeðlisauðvaldsstússi. 



mbl.is 60 ára afmæli Andrésar Magnússonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa

mafia1_892301.jpgJú, þeir ku vera til sem eru orðnir eitthvað leiðir á þjófagengjum og á að láta ræningja stela af sér baki brotnu og skipulega. En þegar einhver verður svo seinheppinn að bera sig upp undan ránskap höfðingjanna í gengjunum stendur ekki á viðbrögðum lýðsins, sem samstundis gengur í lið með ræningjunum af stakri kurteisi; þið munið eftir Jóni sem kvartaði undan því að skóhlífunum hans hefði verið stolið og var upp frá því alltaf kallaður Jón þjófur í háðungarskyni fyrir að væla undan því að vera rændur.

Svo er það hin heimspekilega spurning, sem akademíur heimsins hafa leitt hjá sér að svara. En það er hvor sé meiri glæpamaður og illgresi samfélagsins vasaþjófurinn eða auðlindaræninginn. Svar við þessari spurningu er auðvitað afar vandasamt og getur brugðið til beggja vona eftir því hver svarar. Yfir- og efrimillistéttin hatast mjög við vasaþjófa og vill láta hengja þá í hæsta gálga um leið og þari eru staðnir að verki, en hins vegar láta þessar tvær áminnstar höfuðstéttir athafnir auðlindaþjófa sér í léttu rúmi liggja, enda heyra slíkir öndvegishegrar  undantekningarlaust yfir- og efrimillistéttinni til. Það eru aðeins slordónar og skítmenni sem líta vasaþjófa mildari augum en þá sem stolið hafa sameiginlegum auðlindum landsmanna til eigin þénustu; slíka óþokka, þ.e. slordónana og skítmennin, á sannarlega að hengja í hæsta gálga að viðstöddum forseta, ríkisstjórn, alþingismönnum, embættismönnum og öllu betra fólki, á góðum stað, svo sem á Þingvöllum eða á Laugardalsvellinum.

Svo er það óhæfumannategundin sem einkum er tengd við landsölu og landráð, en það eru náttúrulega varla menn. Sú hroðalega tegund er í aðra röndina mjög í ætt við melrakka og minka en í hina er hún af kyni tilbera og snakka. Nú er þessi hættulega hjörð í dauðafæri við að selja landið, Ísland, í höndur hins undirförula auðvalds í ESB og gera oss á nýjan leik að nýlenduþrælum, rétt eins og vér máttum þola að vera á öldum áður. Því gæti fylgt ekki minni upphefð en að ungir menn verði sendir af evrópuauðvaldinu beint á vígvöllinn í Úkraínu til að berjast við rassagrýlukarlana, gulu hættuna og bölvaða gyðingahatarana í Palestínu. Já, elsku vinir og vandamenn, einnig trúgjarnir einfeldningar að aðrir góðir drengir, það er úr vöndu að ráða hverjir eru, þegar öllu er á botninn hvolft, versta tegundin af glæpamönnum.   


mbl.is Rændur af þjófagengi: „Orðinn svo þreyttur á þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Karlskömmin þessi Brynki"

séra árni,,Nú var farið að spjalla á bæjunum um samtalið yfir skírnakaffinu. Auðvitað voru allir á móti prestinum. Allir lágu honum á hálsi fyrir að vera að skipta sér nokkuð af þessu. ,,Hann var þá á móti hreppsnefndinni eins og vant er, presturinn, þegar talað var um Þúfumálið. Og þessi karlskömm, þessi Brynki, sem með honum var, hann gat ekki þagað og fylgdi prestinum á móti hreppsnefndinni".
-----
ég sagði sóknarbörnum mínum síðar, að titillinn, er þessari ,,karlskömm", þessum ,,Brynka", var valinn hér í byggðarlaginu, myndi vera honum nýr og óvæntur heiður. Slík vegtylla hefði honum aldrei hlotnast áður og myndi tæplega veitast framar. Hann hefði þurft að leggja land undir fót alla leið vestur í Miklholtsprestakall til þess að verða þvílíkrar upphefðar aðnjótandi. En ,,karlskömmin", ,,þessi Brynki", var sjálfur Brynjólfur frá Minnanúpi, mikill vinur minn".

(Úr Ævisögu séra Árna prófasts Þórarinssonar, annað bindi bls. 31., þriðja útgáfa, þriðja prentun 1977. Þórbergur Þórðarson skráði.)


Til umhugsunar 1. janúar 2025

Þórbergur_Þórðarson (1),,Þessa yndislegu ágústnótt uppmálaði ég fyrir vini mínum gervalla heimsins pólitík, alla leið frá samkeppni Satans og Drottins allsherjar í aldingarðinum forðum til samvinnuhugsjóna Jóns skepnunnar Magnússonar. Ég sýndi honum heimsku, rangsleitni, skipulagsleysi og siðspillingu hinnar frjálsu samkeppni. En hjarta vinar míns var hortugt og hart eins og brenndur leir. ,,Ég hata þetta. Ég fyrirlít þessa svívirðilegu öreigastefnu," æpti hann með skilningsleysi idíótsins. Þá lét ég undan síga, því nú fann ég greinilega, að heilagur andi var að byrja að koma yfir vin minn. Hann heldur innreið sína í mannshjartað með geðofsa og skilningsskorti. Þegar menn standa augliti til auglitis frammi fyrir einhverju stórfenglegu, verða þeir að fíflum."
-----
,, Þá var sem allan mátt drægi úr vini mínum, hann féll í djúpan dvala. Klukkan sló þrjú. Skilningsleysi holdsins missti vald á sálinni. Á þessari sömu nótt endurfæddist hann til nýs lífs í guði. Um morguninn var hann orðinn gáfaður jafnaðarmaður, og ásýnd hans ljómaði eins og sól. Augun sem áður voru sljó og dapurleg, sindruðu af eldmóði og framfarahug."
-----
,,Eftir nokkra daga reið hann út um nálægar sveitir og boðaði ríki réttlætisins. Og fólk þyrptist að honum, því að hanna talaði eins og sá, sem vald hafði, en ekki eins og hinir Morgunblaðs-lærðu. Og fregnin um frelsun vinar mínar míns flaug út um öll héruð í þeim landsfjórungi. Og nokkrir réttlátir undruðust þessi stórmerki og sögðu: ,,Hann er einn af spámönnunum." En margir urðu hræddir um eignarréttinn og þeir sögðu sín á milli: ,,Hann er haldinn af djöflinum." Því að á þessum slóðum voru margir Morgunblaðs-lærðir og óvanir að sjá heilagan anda."

(Úr Bréfi til Láru eftir Þórberg Þórðarson, bls. 15-16, útgáfu Máls og menningar frá 1974.)


Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar

piss2Sko stelpuskömmina. Ætlar sér ekki að hugsa um hvað öðrum finnst um hana; og með rósabeð á rassinum. Ekki versnar það og getur það þó ekki verið betra. Hmm ... ætli hún sé enn á gelgjunni, eða bara á felgunni af sjálfshrokadrukk? Það væri fróðlegt að vita. 

Nú, þá er það þessi Marta Smarta undur kvart, eða hvað þeir nú kalla hana. Hún er einlægt með klóna á púlsinum og veit manna best hvað fellur best að viðhaldi þjóðskipulagsins hjá okkur. Skrum, flottræfilsháttur og sjálfsupphafningarrembingur er snar þáttur í uppeldi ungu kynslóðarinnar, sem lærir að áfram, áfram ekkert stopp, í neyslu og gjálífi er það sem gildir ef komast á af. En Helvíti er hinu megin, hræðilegra en nokkur veit.

Já, með rósabeð á rassinum og reykjarstybbu í brosinu. En heimsumból í hælunum og harmagrút í stælunum. Svo kvað sálmaskáldið Bubur Marteinsson á þar síðustu öld. Þetta varð þá þegar vinsæll sálmur og mikið sunginn við útfarir og meiriháttar hátíðir. Það er sem ég sjái Smörtu, snúa sér ólm á hégómsvörtu. Hún er alltaf í svörtu og svörtu og sígur meir og meir. Dofna og deyja út ljósin björtu, djöflast hratt í brjóstum svikin hjörtu, stíga dans við steingelda halakörtu, Gunnar og Geir. Ekki meir - ekki meir.


mbl.is „Ég hugsa ekki um hvað öðrum finnst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar

Og börnin í bekkun voru látin syngja upp á ensku, af því kennslukonan var mennta- og menningarsinnuð og með viðeigandi prófgráður á ferilskránni. Hún samdi sjálf ljóðin sem börnin fengu að syngja og þau hófu upp raust sína og frömdu þann söng sem einn stendur uppi eftir að allt annað er hrunið:

School is fun,
everyone fights,
both inside and outside,
and no one feels good.
You should just know,
what this little shit,
is terribly unpopular in our school here.

The children sing hop and hee,
then cheer straight to the top of their lungs.
At school lives a dirty girl,
with crusty lips and fungus toes.

Og að lokum söng bekkurinn sönginn góða, sem allar kennslukonur kunna og unna og kenna nemendum sínum. Þegar kom að þriðju línunni í laginu sveifluðu stúlkurnar pilsunum upp fyrir höfuð þannig að mæður og feður sem viðstödd vóru fóru hjá sér og hugsuðu kennslukonunni þegjandi þörfina, öll nema Kolbeinn Kolbeinsson sem hugsaði eitthvað allt annað og ljótara:

The girls love their dinga, linga, ling,
dinga, linga, ling. Dinga, linga, ling.
Then they roll around madly, circle after circle,
the day before New Years Eve.

dans3


mbl.is Fór 300 ferðir upp Esjuna á árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyrir þjóðarbúið, Stjána og Villa

hvalur2Þá er hvalvertíðin hafin hjá Stjána í Hvalnum og það strax milli jóla og nýárs, sem sýnir að það er ofurkraftur í karli. Og nú mega hvalastofnarnir sko aldeilis vara sig. Ekki er nóg með að Stjáni hafi jagað þetta indælis búrhveli á hafi úti, heldur lét hann snara dýrinu með valdi upp í fjöru austan við Vík í Mýrdal þar sem ráðið var niðurlögum þess, en þetta kvikindi var lítt fúst til samstarf við vinnumenn Stjána. Það var ekki fyrr en einn þeirra kom höggi með sleggju á hausinn á hvalsa að hann róaðist og yfrirslagtarinn gat lagt skutlinum í gegnum hann; hlaut hvalurinn bana af því lagi.

Eins og vel sést á myndinni með fréttinni af hvalsvíginu þá var skepnan feit og sælleg, bókstaflega réri í spikinu og telur Stjáni að lýsið af henni vegi að minnsta kosti 12 tonn, spikið 15 tonn og ketið 20 tonn. Af þessum tölum má sjá hver búhnykkur þetta er fyrir ríkissjóð og hvílíkri óhemju nýhafin hvalvertíð mun skila þjóðarbúinu. Og af því hversu vel tókst til í þetta sinn verður súrhveli svo sannarlega í trogum veislugesta á þorrablótunum verða í næsta mánuði. 

hvala5Síðar í dag sást til manna Stjána í Hvalnum hvar þeir voru í óðaönn að elta hnísur út af Vatnsleysuströndinni og höfðu þeir fellt vel á þriðja tug dýra síðast þegar fréttist. Eftir myrkur heyrðust háværir skothvellir út við Garðskaga og má ætla að menn sigli hlöðnu hvalskipi til hafnar í fyrramálið. Þá mega nú bölvaðir háhyrningarnir og hrúfublakarnir aldeilis vara sig á næstunni, en til þeirra verður leikurinn gerður strax í fyrramálið, árla mjög. Nú skulið þér fá að sjá sjá veisluna sem yður er gjörr með leyfi Nonnýboy og Bjarnaben til Stjána í Hvalnum og þau gífurlegu og gríðarlegu þjóðhagslegu áhrif sem það mun hafa í för með sér fyrir ríkissjóð og Stóriðju-Villa á Skaganum á næstu mánuðum og misserum.


mbl.is Stærðarinnar hval rak á land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipti á Sjálfstæðisflokknum

sjóorustaJú, líklega mun svikasull krataeðlisins og braskaraauðvaldsins í Viðreisn hafa það eitt í för með sér að Sjálfstæðisflokkurinn gangi í endurnýjun lífdaga og rísi upp stærri og sterkari sem aldregi fyrr, þrátt fyrir hörmulegt, og raunar óviðunandi lélegt, mannval á öllum helstu póstum Flokksins. Það er nefnilega heldur líklegt til vinsælda að heyja harða sjálfstæðisbaráttu lítillar þjóðar langt norður í höfum gegn ásælni erlends auðvalds og leppa þess í líki svikulla landráðaseppa með krataeðlið, brasknáttúruna og undirlægjuhátt ein að leiðarljósi.

Sennilegt má telja að Framsókn og skituflokkur Sigmundar Davíðs leggist eitthvað á árarnar með sjálfstæðinu, en á slíkt er þó óvarlegt að treysta, því þeir delerantar eru þekktastir af því að segja fyrst ,,nei" við landráðaórum og föðurlandssvikum, en fara síðan að sitja hjá við meðferð glæpsins, og loks að samþykkja glæpinn samhljóða. Þannig hefir saga gömlu Framsóknarmaddömunnar ætíð verið; hún er það sem maður kallar ófróm persóna og lúmsk.Jájá.

Ugglaust væri þó best að hafa endaskiptu á Sjálfstæðisflokknum og gera hann að alþýðuvaldi, harðsósíalískum flokki í anda Einars, Brynjólfs, Sigfúsar, Héðins og Eðvarðs. Flokkurinn gæti fengið nafnið Sjálfstæðisflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn, og hann mundi raka til sín atkvæðum, - ekki kannski í milljonavís en þó svo mörgum að hann fengi afar myndarlega meirihluta þingmanna á Alþingi. Nýfrjálshyggjunni, auðvaldsdekrinu og vesturlanda hernaðarofstækinu verður að sjálfsögðu útvistað til þeirra aumingja sem það vilja hafa á sínum snærum, en í því sambandi dettur oss auðvitað fyrst í hug krataeðlisflokkurinn Samfylking, Viðreisnarvibbinn, Framsókn og Lýðskrumsflokkar frú Sæland og herra Sigmundar Davíðs, sem bráðlega munu renna saman í eina forynju. 


mbl.is „Þetta mun allt enda með ósköpum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu besta heims allra heima

perr2.jpgÞað er ekki á þetta helvítis karlkyn logið; alls staðar er það til óþrifnaðar og óþurftar. Nú er sannað að sjúkdómar og heilsufrávik, líkamleg og andleg, heilkenni og geggjun og vitskerðingar eru öll frá karlinum komin og undan hrjálegum rifjum hans runnin. Þetta getur ekki gengið svona lengur. Það er til dæmis borðliggjandi að karlmenn verða skyldaðir til að gangast undir geldingu við tuttugu og fimm ára aldur, því sannað er að gömul graðneyti úr karlstétt eru mjög hættuleg mannkyninu. Vér þekkjum öll sögur að afgömlum sóðakörlum sem ásælst hafa ungmeyjar og barnað þær með hörmulegum afleiðingum.

Hafi háskólagengnir efrimillistéttarfémínístar fengið gott vopn upp í höndurnar gegn karlpéníngnum eru það hinar miklu tímamótauppgötvanir Kára í Erfðunum. Áttræður karlgraddi sem gerir tvítugri stúlku barn er manna líklegastur til að framleiða einstakling sem næstum öruggt er að verði glæpamaður, vitfirringur eða djöfull. En seytján ára piltur sem eignast afkvæmi við áttræðri kerlingu, segjum ekkju, fremur mannkyninu góðverk með því að geta af sér vísindamann, hátignaðan aðalsmann eða mannkynsfrelsara. Þannig er það nú bara.

Vér höfum lengi velt fyrir oss hvernig í ósköpunum stendur á öllum þessum ófullkomleika mannskepnunnar, stjórnleysi hennar, blóðþorsta og brjálæði. Það er búið að snúa við milljónum steina í von um að finna svarið, en án árangurs. Þar til núna, að það kemur á daginn að allt er þetta helvítis karlkyninu að kenna. Já, oft er leitað langt yfir skammt, og svarið við flóknustu leyndardómum veraldarinnar liggur einlægt skammt undan þegar það finnst. Í ljósi hinnar dýrmætu upplýsingar sem Kári í Erfðum hefir nú fært oss, er ekki eftir neinu að bíða með að útrýma bölvaðri karlplágunni, uppræta hana undir eins og það í eitt skipti fyrir öll, svo hægt sé að hefjast handa við að skapa besta og fullkomnasta heim allra heima.


mbl.is Hætta stafar af eldri feðrum, ekki mæðrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband