Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir til að fá fram játningu

hálf5Aldrei hefir Hálfdán Varðstjóri hikað við að berja fanga, sem hann hefir handtekið með eigin hendi eða látið handsama fyrir sig, til að fá fram nauðsynlega játningu. Sjálfur hefir Hálfdán sagt í blaðaviðtali, að oftast þurfi ekki nema eitt ákveðið högg til að fá þrjóskan og ósamvinnuþýðan glæpafóla til að játa afbrot sitt. En þeir verst gefi sig reyndar ekki fyrr en þeir hafa misst báðar framtönnurnar, öxlin farin úr lið og nærbuxurnar af viðkomandi komnar upp í túlann á honum.

En kerlingarfjandi úr Laugarásnum var verst. Hún hafði notað tækifærið þegar hún var við sunnudagsmessu að stela silfurbikar úr kirkjunni, hafði sem sé framið kirkjurán og misboðið Guði Almáttugum á herfilegasta hátt. - ,,Helvítis kerlingarboran reif stólpa kjaft þegar ég smeygði handjárunumum á hana, hótaði meðal annars að láta eyða mér", sagði Hálfdán Varðstjóri í téðu viðtali. - ,,En ég fór nú með hana á stöðina og henti henni inn í klefa númer 13. Það var ekki fyrr en ég hafði traðkað á henni og brotið í henni öll rifin sem þessi ótukt fór loks að gefa sig og játaði að lokum ekki aðeins á sig kirkjuránið heldur og að meðhjálparinn hafi verið með henni í ráðum, enda hefði hún þá haldið við þann mann í vel stinn fjégur ár. Á eftir sókti ég meðhjálparann og hann fékk sína verðskuldaða yfirhalningu"

Svo mörg voru þau orð Hálfdáns Varstjóra. En Hálfdán átti líka sínar góðu hliðar. Ein var sú, að honum datt aldrei í hug að hjálpa gamalli konu yfir götu eða aðstoða barn sem hafði misst fullan innkaupapoka af vörum undir afturhjól strætisvagns. Barnið hafði farið út í búð fyrir móður sína með einu peningana sem til voru á heimilinu til að kaupa inn til jólanna. Kakkarassinn stóð þarna grénjandi á gangstéttinni með vörurnar allar í klessu fyrir framan sig á götunni og Hálfdáni Varðstjóra datt ekki annað í hug en að handtaka barnið og stinga því inn í klefa þangað til þriðja í jólum, en þá sleppti hann gríslíngnum út, sneyptum og slöppum. Fyrir þetta þokka embættisverk sitt fékk Hálfdán ríflega launahækkun og Stórriddarakross löggæsluorðunnar, sem einungis ofurlögreglumönnum er veitt af sérstökum ástæðum. 


mbl.is Lögreglumenn grunaðir um að berja fanga til dauða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán

heim2Alltaf þykir mér jafn leiðinlegt, að ég ekki segi sorglegt, þegar góð áform, tilraunir eða viðleitni fullhuga misheppnast, rennur út í sandinn og verður ekki að neinu. Ég veit að mörgum var gráti næst þegar fréttin af illa lukkuðu bankaráni í Hafnarfirði í nótt. Þessar hrakfarir ræningjans leiða hugann að því hvort undirbúningi hafi verið áfátt, ræninginn hafi ekki verið með nægilega kraftmikinn bíl í sinni þjónustu eða dráttarkeðjan hafi ekki verið nógu sterk. Þetta notar Kaninn alltaf akkeriskeðju og öflugt akkeri þegar þeir slíta allskonar strengi, og leiðslur á sjávarbotni í sundur og kenna Rússum um. 

Einu sinni drógu glaðir drengir þunga og langa keðju um miðja nótt yfir þakið á íbúðarhús geðstirðs manns; þeir notuðu hesta til að draga keðjuna. Aðgerðin tókst vel og karlinn sturlaðist og kallaði út sýslumann og lögreglu daginn eftir og krafðist réttarhalda á stundinni yfir glæpamönnunum og þeir yrðu dæmdir í ævilangt fangelsi. Í öðru tilfelli reif skapríkur vörubifreiðarstjóri burt garðhýsi nágranna síns og hitapott með vöruflutningabifreið sinni og sterkum togvír af togara; draslið kastaðist út af lóðinni við átakið og var þegar úr sögunni.

En sennilega er Hafnfirðingum flest betur gefið en að fremja viðunandi bankarán. Okkar mestu bankaræningjar rændu sína banka með því að eignast þá fyrst að nafninu til. Í Kópavogi rændu menn spilakassapéníngum á svo fagmannlegan hátt að það mun aldrei sjást einn einasti eyrir af þeim auðæfum. Og í Garðabæ kunna menn ýmislegt fyrir sér í ránsskap sem kunnugt er. En Hafnfirðingar eru svo heillum horfnir að þeir geta ekki framið glæp, bankarán eða morð, öðruvísi en að upp um þá komist og þeir fari í steininn, og þó held ég Hafnfirðingar hafi fullan hug á að fremja fullkomin glæpaverk til jafns við aðra og komast upp með það.


mbl.is Ók í gegnum rúðu og reyndi að nema banka á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín

xd2Það liggur ljóst fyrir að Bjarniben mun á nýju ári hefjast handa við að greiða af fremsta megni upp öll gjaldþrotin sem hann hefir átt hlut að. Þetta er mjög virðingarvert af hálfu Bjarna, sem á mörg meistaragjaldþrot að baki og það er vissulega handleggur fyrir hann að greiða allan óskundann upp sisona.

Ekki hefir heldur legið í láginna að Sjálfstæðisflokksmönnum þykir orðið tímabært svipta Bjarnaben formennskutigninni yfir Sjálfstæðisflokknum, setja hann af og gera út af við poletiskan feril hans, mannsins sem hefir árum saman látið öllum illum látum í formennisstólnum í Valhöllu og kanterað Sjálfstæðisflokknum sem maður segir fyrir björg. Nú síðast er Bjarniben búinn að tapa svo miklu af fylgi Flokksins, að virtir menn sjá sem er, að ekki má við svo búið standa hótinu lengur, því Flokkurinn er bókstaflega að verða jafn andskoti gjaldþrota og fyrirtækin hans Bjarnaben.

Hins vegar hræðast vitrir menn og góðgjarnir í forustu Sjálfstæðisflokksins að enginn maður á byggðu bóli, og því síður kona, sé þess umkominn að gegna formennsku í jafn áríðandi flokki og þeim finnst Sjálfstæðisflokkurinn vera. Og formannslaus Sjálfstæðisflokkur er eins og júgurlaus mjólkurkú; en slíkt kvikindi er ekki líklegt til að skila eigendum sínum arði. En því miður er aunginn hæfur til að gegna embættinu. ,,Allt er þetta ónothæft rusl og drasl sem eftir er og Flokkurinn orðinn eins og fáránleg svínastía eftir þessa kroppinbaka sem þara hafa búverkað hin síðari ár" sagði mesti mógúll Sjálfstæðisflokksins við nánustu vini sína um daginn Og þetta þókti vinum mógúlsins spaklega mælt og orð að sönnu. Samkvæmt öllum teiknum sem nú sjást á lofti, þá á það óhjákvæmilega fyrir hinum fræga Flokki að liggja að veslast nú upp og drepast eins og fársjúkur, soltinn og aldraður útigangsmaður í hrútakofa utan alfaraleiðar, formannslaus, duglaus og geggjaður.


mbl.is #57. - Hvað gerir Bjarni Benediktsson á nýju ári?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Sigurðsson soldáti við íslenska herinn

sprengja4Nema hvað, esssska? Auðvitað trúir lýðurinn viðstöðulaust þegar við segjum að Rússinn hafi eyðilagt þetta og eyðilagt hitt, skotið niður þessa flugvél, byrlað þessum náunga eitur og ekki viljað fyrir nokkurn mun kjósa Navalný heitinn. Svo kemur gamli góði NATO og hjálpar aumingja Finnum og Eistum slitna strengi í sjónum, sem Rússar hafa hugsanlega slitið í sundur í hryðjuverkaskyni. Betri getur tíðin ekki orðið.

Og nú er búið að senda Brynjar okkar Vondulykt til útlanda til að læra herforingjafræði, því hann á taka við íslenska hernum þegar Thorgerdur Katrín, Bjarniben, Kvikan og Sælandið hafa sett á lög um íslenskan her og leggja til eitthvað af haglabyssum, handsprengjum og flugvélum sem hægt væri að nota til árása í varnarstríði gegn Færeyingum. Brynjar Vondalykt verður nefnilega general yfir herforingjamarskálkur íslensku herdeildanna með aðsetur í bilskúrnum hjá frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni.

stríðÞað er líka búið að leggja á ráðin með hvernig hermaðurinn sem fellir fyrsta andstæðinginn verður verðlaunaður. Segjum sem svo að að Jón Sigurðsson soldáti við íslenska herinn verður fyrstur til að skjóta niður óvin, þá verður hann verðlaunaður með því að fá að taka í höndina á Birnibjarnasyni generalroyalrofursta á eftirlaunum. En ekkja fyrsta íslenska dátans sem fær kúlu í höfuðið á vígvellinum, fær að launum eina þriggjapela flösku af Baccardý rommi og eitt kíló af eggjum. Og vei þeim þorpara sem gerist sekur um liðhlaup eða landráðatal um uppreisn innan íslenska hersins; sá dólgur verður umsvifalaust leiddur að næsta vegg og honum stillt þar teinréttum upp fyrir framan aftökusveitina. 


mbl.is NATO tilbúið að aðstoða Finnland og Eistland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn

prestur10Þá var það nú öðruvísi í jólaávarpinu hjá séra Atgeiri p. Fjallabakssen þegar hann reyndi að syngja hátíðarmessu í Framgerðarkirkju í Botni í dag. Karlanginn var miður sín, enda værðarklerkur af bestu gerð og vita gagnslaus, og allt fór hjá honum eins og fyrirhafnarlaust og án áreynslu í handaskolum. Hann virtist hafa ætlað að fara fram á frið við sjálfan Guð og hvetja stríðandi ráðamenn til friðar, en í stað friðar talaði hann eingöngu um frygð og krafist þess að Guði og mönnum að þeir sýndu nú einusinni alminnilega frygð í verki með þeim tólum sem ætluð væru til brúks í þeim efnum.

Reyndar kallaði séra Atgeir p. friðinn ekki aðeins frygð heldur fryggð, því hann vildi leggja góða áherslu á kenninguna svo áheyrendur skildu. En þegar messugestir fóru að hlæja að fryggðinn var séra Atgeir vandræðalegur á svipinn og órólegur og brá sér í snarhasti fram í skrúðhús og bætti svo hressilega á sig úr messuvínsflöskunni, að meðhjálparakvikindinu, sem stóð álengdar og horfði á, blöskraði. Þegar prestur liðaðist aftur fram á sviðið var hann fyrst í stað ögn hressari en áður og trúði söfnuðinum fyrir því að þegar öllu væri á botninn hvolft væri fryggðin besti vinur mannsins og án verklegrar fryggðar væri úti um allt.

medium_korEn svo fór messuvínið að segja æ betur til sín, það sveif á hinn þjónandi værðarklerk og bar hann langleiðina inn í annan og heilagri heim en áður hafði sést í Framgerðarkirkju í Botni. Því nú bætti Atgeir p. Fjallabakssen um betur og fór að leggja út af þeirri hinni innri fryggð, sem væri svo eftirsóknarverð að vel mætti gefa fyrir hana bæði hund sinn og hest, heimili, konu og hús; ,,því hvað er" stundi hann upp fyrir altarinu með fölskvalausum kjökurhreim í röddinni, ,,fengið með hesti og húsi, eða hvaða nautn má hafa af hundi eða konu, ef fryggðina og kærleikann vantar." Þegar þarna var komið sögu sá organistinn að nú var nóg komið af hálfu séra Atgeirs, svo hann sté orgelskrjóðinn gjörsamlega í botn og kórinn tók undir með því að öskra eins og hann gat sálminn sem sökkti bátnum á Genesaretvatninu. En séra Atgeir p. Fjallabakssen skjögraði eins og í öðrum heimi aftur fram í skrúðhúsið og fékk sér þar sæti og var þegar í stað sofnaður svefni hinna réttlátu fryggðarklerka. 


mbl.is Hvatti til friðar í ávarpi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hverja hámessuna á fætur annarri

prestur15Frá klukkan sex í gærkveldi hefir síra Baldvin sungið fjórar stórar hátíðarmessur í höfuðmusteri sínu og tvær í annexíunum, þrátt fyrir að úti hafi geisað samfellt fárviðri með enn gríðarlegri hryðjum inn á milli. Mikið fjölmenni hefir verið í öllum þessum messum og sóknarpresturinn, síra Baldvin, farið á kostum í skörunglegum ræðubrögðum og allri messugjörð. Á meðan á athöfn stóð í annarri annexíunni fauk þakið af fjárhúsunum í Bæli og stóðu ærnar, sem og hrútarnir, eftir berrössuð, ef svo má segja, í þessum voðalega veðurham. Að guðsþjónustu lokinni vóð síra Baldvin sjálfur í að bjarga sauðfénu með því að reka það allt inn í fjós á Stórumelum, kúnum þar til stórkostlegrar skelfingar.

Í morgun notaði svo síra Baldvin tækifærið er hann flutti sóknarbörnum sínum hátíðarmessu og veittist að þjóðkirkjunni, prestlingum hennar og bysskubbsnefnu, sem hann kallar svo. Sagði hann þjóðkirkjuna vera orðna hundheiðna fémínístastofnun handa fábjánum, prestana villuráfandi sauðskepnur og bysskubbinn gjörsamlega trúlausa vofu í bysskubbskufli. Við þessi snöfurmannlegu ummæli síra Baldvins stóðu sóknarbörn hans upp og klöppuðu ákaflega fyrir mælskulist hans og trúarhita, en klerkur svaraði fyrir sig með því að hefja upp raust sína og syngja söfnuðinum pater noster á latínu með nýju lagi sem hann samdi um leið á þessari helgu stund.

Á meðan messugjörð síra Baldvins stóð klöngraðist bysskubbinn yfir Íslandi upp í stólinn í Dómkirkjunni og japlaði á hinu fémíníska kapítalistaguðspjalli milli þess að svelgjast á og súpa hveljur af messuvíninu, sem var óvenju sterkt og bragðvont í dag. Að öðru leyti var hátíðarprédíkun bysskubbs bragðlaus, tíðindalaus, kraftlaus og allslaus meðan prédíkun síra Baldvins ljómaði af andagift og sannri guðstrú og færði bjarta gleði í döpur hjörtu. Sitthvað hafast klerkar og bysskubbar að. 


mbl.is Biskup: Guðleysi er ekki hlutleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands

kol6Hverskonar nafn er þetta Grjótarfjall og hvar skyldi það vera? Og hvaðan er þetta Grjótar ættað í íslensku. Allt er þetta eitthvað hálf kúnstugt og óskiljanlegt. Og ofan á annað bætast svo við jarðskjálftar á þessu Grjótari, hvað sem það nú er. Það er alveg svakalegt að lenda í lesmáli af þessu tagi og tekur á taugar og sálarkrafta og eyðir dýrmætum tíma í fáránlegar vangaveltur um örnefni sem ekki er til.

Ég man svo lengi sem land byggist, þegar frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, fréttu af frábærri gönguleið á hálendinu sem héti ,,Jakobsvegurinn" og væri milli Seylingsstaðarhnjúks og Garðavatns, en náttúrfegurð var sögð fram úr hófi mikil á þessu svæði. Þau fengu með sér nokkra valinkunna fjallagarpa, svo sem hjónin Indriða Handreð og Máríu Borgargagn, Brynjar Vondulykt, og Sigurveigu nokkra , sem þá var í aðra röndina heitkona Brynjars, en að öðru leyti kennd við Dræsustaði og þókti vanmetapéníngur. Sigurveig er dauð núna og varð fáum harmdauði.

En þegar til kom fundu þau frú Ingveldur og Kolbeinn hvergi þann stað á hálendinu sem meint Jakobsleið átti að vera; þar var enginn Seylingsstaðahnjúkur og ekkert Garðavatn og náttúrfegurðin mjög í slöku meðallagi, fyrir utan þokusudda og kulda. Út af þessu reiddist meðreiðarfólk þeirra hjóna og sló í harða brýnu þar sem Kolbeinn fór helst hallloka og lá í öngviti meðan eiginkona hans barist eins og ljón við hitt fólkið og hafði sigur um síðir. Seinna kom upp úr kafinu að tildrög þessarar fjallaferðar var óljós draumur sem Kolbeini hafði dreymt eftir nokkuð harðskeytt kenndirí, en sá draumur virtist byggður á einhverjum sjónvarpsþætti þar sem Jakobsvegurinn á Spáni og Gardavatn í Sviss komu eitthvað við sögu, auk kvensniptar, Seyling að nafni, líklega ættaðri frá Ítalíu. Þessi undarlegi draumur hafði líkamnast, ef svo mætti segja, í huga Kolbeins þar til að hann varð glæsilegri gönguleið á hálendi Íslands millum Seylingsstaðarhnjúks og Garðavatns. Ætli geti ekki verið að tilurð þessa Grjótarvatns hafi orðið til með eitthvað svipuðum hætti og Jakobsleiðin Kolbeins?


mbl.is Ellefu skjálftar síðasta sólarhringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið

kol18Varla má minna vera af hálfu hægrisinnaða lýðskrumarans, frú Sælands, en að faðma, knúsa og kyssa Bjarnaben undir drep fyrir að hafa leitt hinn skipulagða pólitíska og margskipta arm hægrisins um árabil með firna góðum árangri fyrir últrahægrisjúka söfnuðinn á Íslandi. Sjálf tilheyrir frú Sæland últrahægrisjúka söfnuðinum, en innan hans hefir hún lagt sértaka áherslu á lýðskrum og þykjast bera ógurlega umhyggju fyrir fátæklingum allra handa. Þetta er þekkt aðferð hjá poppúlískum extralýðskrumurum til að kjafta sig inn á kjósendur með hægrihræsni og sneisafullan bakpoka af útlendingaandúð undir pilsunum. 

Og varla þarf að tvítóla um það, að Bjarniben, sá örlagasjarmur sem hann er, hefir fengið fullkomlega í hnén við núning og ástaratlot frú Sæland með tilheyrandi úrlausn helgustu hvata mannskepnunnar. Og algjörlega steinblind á eigin stöðu og flokks síns og sturluð af hégóma og snobbi tók frú Sæland svo við lyklunum úr klónum á Bjarnaben, án allra grunsemda um að hún hafi verið hlunnfarin og gerð hlægileg við ríkisstjórnarkaupmálann af Thorgerði Katrínu og hennar braskaragengi, sem allt tilheyrir últrahægrisjúka söfnuðinum. Það var vægast sagt átakanlegt að berja augum blaðaljósmyndina hvar frú Sæland stóð hin gleiðasta, skælbrosandi út að eyrum, en á hvor hönd hennar stóðu Kristrún og Torgerður á horfðu á hana með óduldu hæðnisbrosi.

En innilegum fundi Bjarnaben og frú Sæland (sumir segja fullinnilegum) lauk svo með lyklaafhendingu og djúpstæðum og sæluríkum ástarkossi sem stóð yfir í fullar fimm mínútur, með viðeigandi andköfum og smjatti. Og loks þegar Bjarniben var horfinn af vettvangi hóf frú Sæland upp raust sína og sögn eftirfarandi númer í skærri falsettu, sem Gibbagibb-bræður hefðu verið fullsæmdir af:

I love you
and you love me,
and we sing together hopp og hí.
So when I again, ég aftur að þér ég sný,
there will be jumping and fyllerí. 


mbl.is „Hjartans þakkir aftur Bjarni, ég vil fá knús“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og illþýði allskonar á flökti um mannheima

jólaköttur1Nú er sá árstími þegar illþýði allskonar er á flökti um mannheima, forynjur, ólifnaðarmenn af fjöllum,og hroðalegar óvættir sem engu eira sem þær komast í tæri við. Í fyrri viku varð vart við skepnuna jólaköttinn á Breiðdalnum fyrir austan og daginn eftir fréttist af því að hann hefði jagað hálfstálpað barn á Héraði og étið það upp til agna þannig ekkert var eftir á vettvangi nema annað gúmmístígvéli krakkans, en hitt stígvélið át kötturinn af bestu lyst.

Þá hafa alræmdir djöflar af háfjöllum leitað til byggða og gjört sér dælt við heimafólk með skelfilegum afleiðingum. Einkum hefir borið á ferðum þorparanna Giljagaurs, Stekkjastaurs, Stúfs og Gluggagægis. Gluggagægir, sem er frægur fyrir að skyggnast inn um glugga á hjónaherbergjum um það bil sem fólk tekur á náðir. Hann er talinn hættulega brenglaður og óeðlið inngróið í hold hans undir samfestingnum. Giljagaur er náttúrlega mesti hjónadjöfull sem uppi hefir verið á Ísland frá því er land byggðist; það er ótrúlegt hvernig honum hefir tekist að fífla konur, jafnvel heiðvirðar konur sem orðlagðar eru fyrir tryggð við eignmenn sína og heimili. Stekkjastaur er vægast sagt varhugaverður, einkum í sveitum þar sem bændur stunda fjárbúskap, því Stekkjastaur er anímalisti og óþrifnaðardrulla á almanna mælikvarða. Stúfur er kynhverfur mann og þekktur fyrir óhreinar og fyrirlitlegar hugsanir og tiltekjur.

ing5Og nú er komin upp ríkisstjórn í Reykjavík, sem margir hræðast að verði jafn skæð börnum og gamalmennum og forynjan Grýla. Víst er um það, að kvensviftirnar sem fara fyrir umræddri ríkisstjórn eiga mjök ættir að rekja til Grýlu og þá ekki síður til óvættarinnar Leppalúða. Til sannindamerkis um að þær ættfærslur eigi við sterk rök að styðjast, er sú stálgrimma staðreynd að bæði Grýla og Leppalúði voru skráðir stjórnarmenn í því fræga fyrirtæki 7Hægri ehf. sem skilaði meiriháttar hagnaði árin fyrir Hrun og ekki síður eftir Hrun. Í fyrrakveld máttu sorgbitin börn með áfallaáráttuvanda hlusta á Grýlu og Leppalúða syngja eftirfarandi trúarlega barnagælu frá Súez:

Hönum Jésú þókti gamanið grátt, -gamanið grátt.
En gólar nú á Hymmnum hátt, Hallilúsía, Hallilúsía.
Og ríkisstjórn með raskatið blátt, raskatið blátt,
hún rænir oss um miðja nátt, Hægrirúsía, Hææægri-músía.
 


mbl.is Ágreiningur um „tekjuöflun ríkissjóðs“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til heiðurs nýrri ríkisstjórn

Learning is a game,
a game that is dear to me;
to learn about lust and greed,
then lie like a madman.
The bell rings, we head
home from school full,
stirred by sexual passion,
now all in a row!

Olafur, Olafur, Olafur Sckanz!
The most ruthless wild animal is
Vala his wife.
You are bulls! You are bulls!
Thus she began her speech.
Olafur shot, Olafur shot, Vala's vagina (to shreds).
Olafur, Olafur Olafur Sckanz!
Look how messy you are, says his Vala.


Right seven! Right seven!
She jumps with glee.
At two o'clock, at two o'clock,
she threw herself from her seat.
Bullet, bullet, bullet loan!
Gleeful are the old women
who get away with robbery.

ing3


mbl.is „Þetta er ríkisstjórn almannahagsmuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband