Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Bráðlega segir sá íslenski af sér og leggur á stjórnlausan flótta - sem betur fer

flóttiMikið væri óskandi að forsætisráðherra íslensku ríkisstjórnarinnar færi að dæmi Sjeiks Hasína í Bángladess, þ.e. að segja af sér og leggja á flótta og flýja land. Og það sem meira er: Það mundi enginn lifandi maður á Íslandi sjá eftir forsætisráðherranum, en margir mundu hlæja og gjöra óspart gys að flóttamanninum og óteljandi afglöpum hans. En það er víst orðið tímabært að styggð komi að stjórnmálahjörðinni á Íslandi og hún taki til fótanna.

Vissulega er samt flóttinn hafinn. Katrín lagði á flótta síðast liðinn vetur, flokkurinn sem hún hafði óverðskuldað atvinnu af er að drepast á líknardeildinni og Sjálfstæðismennirnir eru að verða örvita af hræðslu við að þeirra bíði innan skamms sömu örlög og Katrínarflokksins. Og ef til vill er óhjákvæmilegt hjá íslensku flokkaræxnunum að drepast hver af öðrum eins og mýs sem hafa etið yfir sig af rottueitri. Æ, farið hefir fé betra og Fjandinn hirði þá alla.

xbEn svo vikið sé að alvarlegi málum, þá er víst komin upp alvarleg kynvilla í Framsóknarflokknum og það svo að þessi aldraði hlandmerarflokkur er undirlagður af þessum meinlega kvilla. Er skemmst frá að segja, að forusta flokksins, þingflokkur, flokkseigendur og trúnaðarmenn féllu allir sem einn á lyfjaprófi; mannskapurinn reyndist með allt of mikið af öfugum og neikvæðum hormónum í blóðinu, auk ýmiskonar bannaðra efna sem hafa á einhvern hátt komist inn í framsóknarmeralíkamana. Gamla Framsóknarmaddaman er löngu sýkt af öllum þeim óþverra sem í boði hefir verið í einu kapítalísku landi; hún hefir lengi legið í kör, drukkin í eiturlyfjakófi, svo mygluð og úldin að til hörmungar verður að telja. En nú er sem sé svo komið að Framsókn, sem lengi hefir verið opin í báða enda, veit ekki lengur hvers kyns hún er eftir gengdalaust víagraát og eitraðar hormónasprautur. 


mbl.is Mótmælendur fagna afsögn og flótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svar til Indriða á Skjaldfönn varðandi Sósíalistaflokk Íslands og Gunnarsmára

x-sós bleiki1Það má slá því föstu að stjórnarfarið og flokkarnir hafa ekki batnað á síðustu þremur árum.

Varðandi Sósíalistaflokkinn, þá veit ég ekki hvað úr honum verður. Fyrir það fyrsta þarf að ljúka við að stofna þann flokk og skipuleggja á svipaðan hátt og aðra flokka. Það er réttlætanlegt að hefja stofnun flokks með því að skipa framkvæmdastjórn, eins og gert var hjá Sósíalistaflokknum, en þegar flokkurinn hefur ekki komist lengra en að stofna framkvæmdastjórn eftir 6 eða 7 ára starf, þá líst mér ekki á blikuna. Reyndar hefur Gunnarsmári stofnað eitthvað af hliðarfélögum við flokkinn, svo sem eins og þessa ,,Vorstjörnu", sem tekur við ríkispeningum frá Sósíalistaflokknum. Síðan lætur ,,Vorstjarnan" téða aura frá ríkinu renna til annars félags, ,,Alþýðufélagsins", sem Gunnarsmári stofnaði líka og er alls ótengt Sósíalistaflokknum, en það sérkennilega félag á og rekur, að sögn, Samstöðina. 

Ég er á því, að meðan Gunnarsmári fær að valsa þarna innan dyra í hlutverki ,,bleika fílsins", aðallega til að hafa atvinnu af fyrir sjálfan sig, og sérkennilegur hópur af konum, sem eru fyrst og fremst í að praktíséra fémínisma, auk nokkurra búrtíka, sem rjúka upp þegar húsbóndinn sigar þeim, þá geti þessi Sósíalistaflokkur aldrei orðið sósíalistaflokkur, eða annað gagnlegt í þá átt. Að þessu sögðu, þá er eðlilega að álykta sem svo, að ég sé heldur svartsýnn á framtíð íslensku sósíalistahreyfingarinnar. En það má vera að hægt verði að gera eitthvað úr Sósíalistaflokknum að undagenginni hreingerningu þar. En VG, sem átti víst að vera merkisberi sósíalismans á Íslandi, er algjörlega búið að vera og á sér ekki viðreisnar von.


Enginn skerpir á áherslum sem ekki eru til

íþrótt1Hvernig ætli Mumu litli í Brúarlandi ætli að skerpa á áherslum sem ekki eru til? Eða hvaða áherslur heldur drengkjökrið að hið dauðvona VG hafi? Gerir hann sér ekki grein fyrir að leið VG liggur aðeins á líknardeildina og þaðan á sorphauginn? Hvort ætli það verði Stenngrimur eða Álfheiður sem fær að fara með líkræðuna yfir hræinu? Og hverjir fá þann heiður að bera tunnuna með hinum látna í út að haugnum? Ég spái því að Kata, Mumu, Árni Þór og Jólatréð verði tunnuberar. En þetta verður hátíðlega athöfn, á sína vísu. Og hlálega grátbrosleg.

Og Mumu getur sem best sparað sér allar vangaveltur um hvort hann eigi að bjóða sig fram til áframhaldandi formannsetu í haust. Fyrir það fyrsta hefir Flokkseigendafélagið engann áhuga á honum til eins eða annars, og svo hitt, að engin þörf er fyrir formann yfir dauðu óheilindahræi, því þókt svo illa muni vilja til að VG hjari fram á kjördag næstu alþingiskosninga, þá verður það líka langsíðasti dagurinn í lífi þessarar vansköpuðu vanmetaskepnu sem VG varð fljótlega eftir fæðingu þess.

kol3En Mumu, Álfheiður, Jólatréð og Swandeesý geta gert eitt, ásamt með Stenngrimi, en það er að fara á námskeið í að læra að skammast sín. Eftir það geta þau gengið í Hjálpræðisherinn eða Fornbílaklúbbinn. En eitt er víst, að þegar VG er dautt og grafið, þá mun því reynast erfitt að ganga aftur, en að sama skapi mun dýrinu ekki verða erfiður dauðinn þar eð engar líkur eru á að þessi ólánsfénaður hafi átt nokkra huldumey til að svíkja.  


mbl.is Guðmundur Ingi: „Þetta er áhyggjuefni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grínandi flokkseigandi talar í kansellístíl um dauðastríð flokks

xv2.jpgHún er aldeilis gamansamur kvenmaður hún Swandeesý okkar hérna Swavarsdóttir. Hún meira að segja hálf-viðurkennir að VG, sem hún, vel að merkja, stofnaði ekki en hertók engu að síður með vondu fólki, þurfi að ,,hugsa sinn gang". Í stuttu viðtali við málgagn sitt, mbl.is, veður þessi krónprinsessa gamla Flokkseigendafélagsins hvað eftir annað upp með spaug og grín, svo við liggur að lesendur veltist um af hlátri, ekki síst Sjálfstæðismenn og Samherjar.

Til að mynda segi kerla, eins og ekkert sé, að ,,stjórnaflokkur sem er í þessari stöðu (3,5%) þurfi að íhuga erindi sitt og kjarna. Nú er það svo að kjarni VG er ekki til, hann er löngu farinn, og hafi erindi VG raunverulega verið eitthvað í upphafi þá skolaðist það fljótlega í burtu, ja, nema lygilega, öfgafengin ríkisstjórnarsótt hinna ofurborgaralegu flokkeigenda, sem bókstaflega voru farin að grénja af ríkisstjórnarþátttökufrygð um það bil sem árið 2004 rann í garð og hafa verið við það heygarðshornið síðan. Það virðist ekki hvarfla að grínkérlunni Swandeesý að VG leiknum sé lokið og hvorki hún, sem poletikus, né VG eigi sér viðreisnar von, að dæmið sé endanlega búið og hið litla traust sem eftir var sé með öllu upp urið.

xv9Því kemur frasinn um að ,,flokkurinn (ef flokk skyldi kalla) þurfi að skerpa rödd sína". Það má svo sem vel vera að kaldhæðnar persónur freistist til að kalla brostnar dauðahryglur rödd eða raddir. En flestum mun líklega þykja bæði óviðfelldið og óhugnanlegt að þurfa að hlusta á þessháttar óp og öskur. Af þeim sökum væri réttast fyrir Swandeesý og hennar undanrennufénað að láta við svo búið standa og hætta öllu dauðateygjubrölti og leggja VG tafarlaust niður. Það er til dæmis mjög vafasamt að henni og Mumu í Brúarlandi takist að nudda saman fólki á flokksráðsfund í næsta mánuði og á landsfund í október; sannast sagna er mjög óraunhæft að ætla að fleiri sjö til átta manns muni eyða tíma sínum í að mæta á fyrrnefnda fundi. Þegar ýmsir þeirra fáu sem enn eru eftir í VG eru inntir eftir flokknum og forustu hans verður þeim tíðrætt um aumingja og óhræsi, ómerkinga og drullusvað. Já, það er nú það - og það er ekkert grín.   


mbl.is Svandís: VG þarf að hugsa sinn gang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonlaus feigðarför með krataeðlið eitt að vopni

x-krat5Þá er sneypuför Þórðar Snæs á Heimildina lokið með fullkomnum ósigri. Drengurinn klöngraðist í þessa vonlausu feigðarför með krataeðlið eitt að vopni og í háskalegum heimi dugar slíkt drullumak skammt. Á heimildinni hitti hann fyrir öfundsjúka spillingarmeistara af lágstigum borgarastéttarinnar, undirmálsfrethólka, sem ekki verður minnst fyrir eitt eða neitt þegar stundir líða fram. En nú hefir Þórður Snær verið leiddur út.

Af þessum tíðingum má ljóst vera að Heimildin er að liðast í sundur, andlega og líkamlega öreiga, eins og fýluköttur sem sofnar svefninum langa út frá eigin vondulykt. Það verður auðvitað enginn héraðsbrestur þókt enn eitt borgaralega krataeðlis blekkingafyrirtækið hverfi af yfirborði jarðar. Við munum eftir hægrisinnuðum markaðshyggjufyrirbrigðum eins og Alþýðuflokknum, Alþýðublaðinu, Bandalagi jafnaðarmanna, Þjóðvaka, Pressuprumpinu og Helgarpóstinum; allt þetta innantóma dót var byggt á sandi og hlandi krataeðlisins, - og brátt munu Samfylking, VG og Gunnarsmári bætast á þennan ruslahaug tækifærissinnanna og lukkuriddaranna.

Af Þórði Snæ er það að segja, að hann er strax mættur í helgarsamkvæmi sæmdarhjónanna, frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns. Þar mun hann taka þátt í hópefli til styrktar og stuðnings Helga Mánga&Mánga Helga vararíxsaksóknara gegn bölvuðum háyfirríkissaksóknaranum og auðvelda dómsmálaráðherra sigla máli Mánga í farsæla höfn hjá Bjarnaben, Beggó og Siginga. Vér þjóðlegir föðurlandsvinir og Sannir Íslendingar kærum okkur ekkert um útlendingadekur og ragmennsku í að verja okkar bestu menn gegn ofbeldi muslima, jafnvel þókt musliminn heiti Múhámeð Thor Jóhannesson og sé bróðir þeirra allra í senn, Gwöðna Th., Björgólfs Thórs og Gwöndar Andra Thórssonar.  



mbl.is Þórður Snær hættir sem ritstjóri Heimildarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framfaratímar úr leik, samfaratímar teknir við

sparkÁ tímum sem þessum er óviðeigandi, að ekki sé sagt óviðurkvæmilegt, að tala umsögulega framfaratíma, enda eru slíkir tímar ekki á boðstólum að sinni og hafa ekki verið um hríð. Hins vegar fara brátt í hönd sögulegir samfaratímar, og þeir ekki af lakari tegundinni. Því ber að fagna. Um verslunarmannahelgar eru samfarir og samræði mjög í heiðri höfð, og allir sem vettlingi valda og einhverja náttúru eiga aflögu veltast um nærbuxnalausir þessa helgi, alveg frá fimmtudagkveldi og fram yfir hádegi á mánudag.

Í þokkabót hafa nýfrjálshyggjumennirnir, með Eimreiðarhópinn í broddi fylkingar, gefið út að þeir séu fallnir frá pénínga-nýfrjálshyggju en tekið samfaranýfrjálshyggju upp í staðinn. Við þekkjum þessa menn og vitum sem er, að engum er betur treystandi til að einkavæða samfarirnar til stórframfara eru einmitt eimreiðungarnir. Það stendur sem sé til að lengja hið al-buxnalausa verslunarráðs- og manna samfaraástand út þetta ár og fram á næsta vor, hið minnsta. Hvert einhverjir verði þá orðnir dasaðir eins og hundar eftir vel heppnað lóðarí, verður bara að koma í ljós, en þeir sem þola ekki eðlilega þróun og samfarir verða þá bara að hellast úr lestinni og hafna í til þess gerðum mógröfum með sínum líkum.

ing27Og víst er Gwöðne forseti að hrökklast frá Bessastöðum með öngulinn þverhúkkaðan gegnum báðar rassakinnarnar. Fari hann vel, - vér syrgjum það svona rétt mátulega. Í staðinn fáum við orðlagða péníngaskjóðu á afsláttarvolvó frá Brimborgurum til að búverka ekki neitt á Bessastaðapartinum. Skjóðan verður vígð inn á staðinn með þeim þjóðlega ,,jambus", sem hófst með skólapiltum á Bessastöðum fyrir stinnum tvöhundurð árum. Það verður gaman fyrir yfirstéttina, Brimborgara og Engeyinga, að fylgjast með þeirri innsetningu.

Hvað varðar myndina sem fylgir frétt mbl.is af Gwðne á ,,sögulegum framfaratímum" þá tekur nýi ráðherrann sig einstaklega vel út á henni. Og sannast þar enn og aftur hið fornkveðna: 
,,Fálma ég mig inn göngin hér 
og rek mig loks á borðbrúnina;
ég er eins og jólatré,
ég er í ríkisstjórninni".

 


mbl.is Bjarni: Guðni forseti á sögulegum framfaratímum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann Mángi sem mixaði fix og trix

Æ, hann Mángi iðkar ömurðartrix,
sem enginn honum kenndi.
En karlgreyið er bara núll og nix
frá náttúrunnar hendi.

kol33Hvað ætli þurfi til svo að garmurinn sjái að sér? Það er ekki gott a vita. En það verður að koma honum í betrun, það er ljóst. Nú eru Brimarhólmur , Bláturn og Breiðivík illa aflögð og enga hjálp fyrir villuráfandi sauði þar að fá. Í eins tíð voru afvegaleidd stálp send í sveit eða hreinlega til fjalla og komu til baka eins og nýfægðar spesíur úr gulli og silfri. En í dag, þegar hvurt tækniundrið hefir rekið annað og mannúðarfrelsisheimspekin ná sögulegum hæðum, er alls enga hjálp að fá fyrir varamenni sem hrokkið hefir út af sporinu. Eitt sinn var Gottfreð læknir fenginn til að sprauta svona varamennis vara eitthvað með þeim eina árangri að varamaðurinn versnaði um allan helming.

Frú Ingveldur hefir nú boðað vararíxsaksóknara til sín í næsta helgarsamkvæmi, sjálft verslunarmannahelgarsamkvæmið 2024, og mun ætla að freista þess að veita Mánga okkar þann styrk og straum sem hann þarfnast í viðureign sinni við ríkissaksóknarafantinn, nóborders og múslímana. Ekki veitir af. Við það borð munu og sitja Brynjar Vondalykt ráðunautur í vestrænu eðli, Kolbeinn Kolbeinsson framsóknarmaður, Indriði Handreður erindreki Hörmangarafélagsins og síðust en ekki síst Máría Borgargagn sérfræðingur í uppyngingarfræðum og blautlegum kviksögum. Er næsta víst að þetta valinkunna sæmdarfólk á eftir að efla Mánga Helga Helga Mánga vararíxsaksóknara til dáða gegn andskotum þeim er hann á við að stríða. Og sennilega á ríkissaksóknarinn eftir að kynnast því hvar Davíð (það er að segja Sigmundur Davíð en ekki Davíð Oddsson) keypti ölið. 

En eftir situr, því miður:

Að Mángi sem mixaði fix og trix,
og mæddist í lífsins glensi,
hann er víst bara núll og nix 
frá náttúrunnar hendi.


mbl.is Helgi: Áminningin „núll og nix“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir Gamla testamentið um svona athæfi?

prestur12Hvað ætli Gamlatestamentið, bókin sem síónístarnir byggja yfirgang sinn og landrán í Palestínu, segi um það að níu siónístar leggist með einum fanga nauðugum sem kona væri? Ha? Fyrr má nú vera hugsjónaeldurinn og starfsgleðin í þessum síónístum sem bárust illu heilli frá Evrópu og segjast vera gyðingar. Og þeir eru ekkert að hugsa um hvernig karlanganum, fanganum, hefur liðið þegar þeir voru að hafa ofbeldismök við hann og hvernig honum hefir liðið síðan. Svo er útilokað að gagnrýna þessi ofumenni á nokkurn hátt án þess að kallaður ,,gyðingahatari", rétt eins og gagnrýnandinn sé einhver Hitlir, Göobbels og Geöring.

Einhverjar heimildir eru til um að forfeður Íslendinga hafi verið fórnarlömb sem hrakist hafi á haf út undan ofríki blóðgrimmra yfirgagnshunda í Norðvegi og endað hér eftir ólýsanlega hrakninga uppi á Ísandi, þar sem þeir hafa pínst í þúsund ár. Hvernig ætli blessuðum Norsurunum litist á ef Íslendingar birtust allt í einu í einhverju af lífvænlegustu héruðum Norðvegs, settu sig þar niður þegjandi og hljóðalaust og tækju þar land til búskaps og umsvifa til lands og sjávar og nytu fulltingis gömlu nýlenduveldanna og Bandaríkjanna til þess arna? Það mætti ætla að Norðmenn mundu bregðast ókvæða við og freista þess að reka íslandsdólgana af höndum sér. En því miður, þá kæmi til kasta ESB og Kana, og þeir mundu láta Íslendingum á landnámsbyggðum þeirra í Norðvegi kjarnorkusprengju í té auk annarra hroðalegustu vígtóla sem mannsandanum hefir hugkvæmst að framleiða.

hálf8Já, vinir mínir, slæmt er það. Og þegar Norskir karlar og kérlíngar færu að rífa kjaft yfir landráni voru og ójöfnuði, þá mundum vér bara segja þeim að halda kjafti og ennfremur að vér hefðum lesið það í gömlu bókum, að vér ættum lönd og lén í Norðvegi, sem ribbaldar stálu af oss, og nú værum vér aftur komnir til að taka þýfið til baka, og í drotins nafni og allra heilagra ættum vér fullan rétt á því. Það er nú það. En hvor vér mundum, níu saman, taka norskan karlfanga og svala kynferðislegu óeðli voru á honum læt ég liggja milli hluta að spá í.

 


mbl.is Níu hermenn sakaðir um að nauðga palestínskum fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú á Mángi allt sitt undir spilltum dómsmálaráðherra. Þriflegur andskoti það.

fífl2Fyrst karlskepnan hefir ekki bætt ráð sitt ætti öllum að vera ljóst að hann er ekki í húsum hæfur, í það minnsta ekki í húsum ríkissaksóknara þar sem menn verða að vera háttvísir og hlutlausir í orði og verki. Í gamla daga heyrði maður stundum timbraða og illa sofna groddakarla hafa svona orðbragð, eins og ríkissaksóknari er frægur fyrir, um hönd þegar verið var að draga þorskanet í vonskuveðri útí Kolluálskanti. En þegar komið var í land báðu þessir karlar ævinlega forláts á talsmátanum með þeirri skýringu að þeir hefðu verið illa fyrirkallaðir þegar þeir létu orðin falla, og lofuðu bót og betrun.

 En bót og betrun virðist ekki til í sálarhirslum vararíkissaksóknara. Þar örlar ekki á minnstu iðrun, ekki fremur en á Snæfellsnesi í tíð séra Árna prófasts Þórarinssonar. Það getur hver maður séð, að maður sem ekki gætir orða sinna og veður um með hlutdrægan stólpakjaft um vissa menn og viss málefni getur ekki vararíkissaksóknað eitt eða neitt. Því dæmist rétt vera að herra Mángi Helgi, sem undanfarið hefir haft ríkissaksóknun að atvinnu, sé brottrækur gjör úr augsýn yfirríkissaksóknara og helst annarra landsmanna, og hann hafi skammarlegan óbótamunnsöfnuð framvegis einkabrúks inni á salerni heima hjá sér.

fleng2_1048187.jpgÁ þessari stundu ættu allir landsmenn að rifja það upp að vararíkissaksóknari vandaði um við Mánga Helga fyrir tveimur árum og fylgdi þeirri umvöndun úr hlaði með annarrar gráðu rassskellingu, samkvæmt 4. gr. laga, 1. málsgrein, um refsingar brotlegra embættismanna frá 1997. Nú má ljóst vera að Mángi Helgi hefir ekki látið skipast við alvarlegt tiltal og hýðingu og hefir haldi uppi þeim sið að skensa lítilmagna og reita þá til reiði í sinn garð og ennfremur að beita sömu aðferð á hjálparsamtök sem leggja sig fram um að bjarga lítilmögnum frá herfilegum aðstæðum og bráðum bana. En nú hefir sem sé ríkissaksóknari talað og úr þessu getur enginn maður bjargað Mánga Helga úr snörunni nema spilltur dómsmálaráðherra.    


mbl.is Segir Helga Magnús ekki hafa bætt ráð sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sennilega er hann búinn að vera

kol6.jpgJæja, svo þetta endaði þá svona hjá honum, karlanganum. Það er víst ekkert gamanmál að láta grimma kérlíngum notfæra sér yfirburðastöðu sína og kýla sig óviðbúinn undir bringspalirnar. Enda liggur aumingja karlinn núna froðufellandi í hnút á gólfinu. Ja, hvílík bölvuð fólska í einni valdamikilli konu.

Verst er þó að hinn fallni, Magnús Helgi vararíxsaksóknari, hefir legið óbættur síðan voðaverkið var framið á honum; enginn hefir lagt fram hjálparhönd og öllum virðist fjandans sama þókt maðurinn liggi klukkustundum saman í kvalafullu niðurlægingarástandi. Það er í þokkabót haft fyrir satt að samstarfsfólkið hlægi að þessu og klappi ríxsaksóknaranum á báðar axlir fyrir að hafa sýnt vararíxsaksóknara tilræði, sem er líklegt til að ríða frama hans að fullu. Þarna, í þessu tilfelli, sannast hið fornkveðna, að ,,þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst".

Það er víst bara eitt til bjargar í þessu voðalega máli sem Mángi Helgi vararíxsaksóknari hefir ratað í , sem maður segir eins og blindur kettlingur, en það er það, að frú Hafsteinsson Kjöríss ráðherra til dómsmála, taki til sinna ráða og taki í hnakkadrambið á ríxsaksóknaranum og fari með þá vondu konu í sorptunnuna, en í stað hennar veiti frú Kjöríss Magnúsi Helga uppreist ætu og gjöri hann að ríxsaksóknara. Með því væru tvær flugur dauðrotaðar í einu höggi: ríxsaksóknari settur af og vararíxsaksóknari reistur upp. En svo má vera að Mángi sé alveg búinn að vera og hans bíði ekkert í frama nema ræstingar fyrir skúringafirma föður Bjarnaben. 


mbl.is Helgi verði leystur frá störfum tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband