Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Heill sé þér félagi Madúró og til hamingju með sigurinn

che7_1245154.jpgAuðvitað sigraði félagi Madúró í forsetakosningunum í Venesúela. Það er eðlilegasti hlutur í heimi. Það er sama hvað hvað helstu kjaftatífur Bandaríkjanna og gömlu nýlenduveldanna í ESB og tíkarsynir þeirra reyna að gera sig ábúðarfulla í hræsninni og þyrla upp miklu ryki og lygum: Félagi Madúró vann kosningarnar með glæsibrag. Sem er vel og sýnir að þrautseigja og ábyrgðarkennd meirihluta venesúelsku þjóðarinnar er til mikillar fyrirmundar og eftirbreytni.

Í dag er vert að muna, að ef engin væri olían í Venesúela væri ekki minnst á þessar kosningar í fréttaveitum vestræna auðvaldsins. Og aldrei minnast valdaklíkur USA, ESB og NATO og þeirra auvirðilegu tíkarsynir einu orði á hvað það er í raun og veru sem meirihluti Venesúelabúa hefur gert á hluta þeirra til að verskulda stöðuga óvild þessara glæpasteggja. Jú, glæpur félaga Madúró, og þar áður félaga Húgó Chavez heitins, í því fólgin að berja á gráðugar klærnar stórfyrirtækjaauðvaldi Bandaríkjanna, sem klófest höfðu olíuauðlindir Venesúela og vísa þeim á brott. Fyrir þessa sjálfsögðu aðgerð hafa Venesúelar mátt þola ruddaleg efnahagsbönn af grófustu sort af hendi yfirgangshunda bandaríska auðvaldsins.

Auðvaldssví 2Og auðvitað taka tíkarsynir USA, ESB og NATO á Íslandi fullan þátt í aðförinni að réttkjörnum stjórnvöldum Venesúela og hafa gert síðan félagi Húgó hóf að frelsa þjóð sína undan yfirgangi auðvaldsins. Sjálfstæðisframsóknarkrataeðlisflokkurinn og fréttaveitur þeirra, Moggi, RÚV, Vísir, Heimildin, eða hvað þessar mannskemmandi lygaforarvilpur heita, taka náttúrlega þátt í eineltinu og liggja á bæn utan við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti með einhverju kaþólsku auðvaldsþýi, sem þykist vera frá Venesúela, og biðja Jésús og föður hans um að auðvaldið, Bandaríkin og gömlu nýlenduræningjarnir nái aftur völdum í Venesúela. En auðvitað hlustar litli sósíalistinn frá Nazaret ekki á slíkar buslubænir og guðlast.



mbl.is Setja spurningamerki við sigur Maduro
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var aldeilis þið kusuð ykkur forseta

ing9Það er naumast að þið kusuð ykkur villidýr fyrir forseta í vor. Verði ykkur barasta að góðu. Þessi settlega hrunskjóða er ekki einusinni komin í embætti þegar spillingin hrynur yfir hana eins og aurskriða og hún þegar farin að leika í auglýsingum og þiggja afslátt frá bílaumboði. Svo ber snillingurinn fyrir sig að hún hafi bara verið að kaupa sér umhverfisvænan bíl. Hahahaha. En hjá henni er þetta Hrun númer tvö.

Sennilega verður konukindin að segja forsetatigninni af sér, því vitaskuld er ekki hægt að búa við forseta sem ekki getur einusinni beðið eftir því að hefja spillingarleikina þar til hún er komin í embætti. Þetta minnir um margt á matreiðslumanninn sem réði sig á síldar- og loðnuskip fyrir margt löngu, en hann var svo spilltur, að hann hófst þegar handa við að panta kost út á bátinn í stórum stíl, þókt hann væri ekki tekinn við störfum. Og það stóð á endum: Þegar dallurinn kom í land þá var hinn nýráðni matreiðslumaður búinn selja allan kostinn sem hann tók á niðursettu verði og reifst svo og skammaðist þegar hann kom um borð yfir því að helvítis kosturinn, sem hann hafði pantað, skilaði sér ekki. Svo var þessi kokkur rekinn án þess að hafa svo mikið sem hellt upp á könnuna fyrir kallana. Í staðinn settist hann að á Hotél Sögu í mánuð og drakk þar og át út ágóðann af kostsölunni.

En svo við víkjum aftur að forsetanum, sem eflaust verður rekinn áður en hann tekur við, þá er viðeigandi að svona villidýr verði bara forseti Brimborgar, bílaumboðs, forsetakarlinn fái það embætti að að þjónusta forstjórann og taka af honum ljósmyndir með sérlegum viðskiptavinum.



mbl.is Forstjórinn á gestalista Höllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér skulum fagna bróður forseta vors og Thorsara

rusl2Vér skulum fagna.

Vér skulum og eigum að fagna því að forseti vor, Gwöðne Th. Jóhannesson hafi eignast bróður. Vér fögnum því einnig af öllu hjarta að Thorsararnir hafi endurheimt týnda soninn, hann situr nú til borðs með Gwöndi Andra Thorssyni og Björgólfi Thór fjármálamann, laxveiðimanni og bankamanni. Hins vegar vísa ég því algerla á bug að Múháméð Thor Jóhannesson sé eitthvað skyldur mér, hvað þá sonur minn; þeir sem ætla sér að hafa slíkt í flimtingum verða umsvifalaust kærðir til vararíkissaksóknara.

Vér skulum biðja: Miskunna þú bróður forseta og Thorsara og megi þeir éta gullalíkálfinn, sem faðir þeirra slagtaði vegna heimkomu hins glataða sonar, af bestu lyst þar til ekki verður tangur né tetur eftir af honum. Vér skulum og fyrirgefa bróður forseta vors og ríkisstjórnar og Thorsara syndir hans og yfirsjónir, ef einhverjar eru, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Þarna er sannarlega vel að orði komist.

Hvað kennitöluflakkara varðar, þá hefir þeim verið fyrirgefið allt í áranna rás. Þeir eru bara eins og hverjir aðrir Björgólfar Thórar og Sigurðar Einarssynir. Það minnsta sem sauðsvartur almúginn, sem og ljósleitari heiðursverur, geta gert er að fyrirgefa athafnmönnum sínum kennitöluflökk og aðrar gripdeildir. Og hver man ekki eftir lögmanninum góða, vini valdsins á Íslandi, honum Róberti heitnum Árna, sem á einni nóttu breyttist í Robert Downey og endurheimti lögmannsréttindi sín. Sá var nú ekki Sýrlendingur eða Palestínumaður, heldur hreinræktaður Íslendingur og aríi. Vér fyrirgáfum honum syndir hans og endurreistum hann til borgaralegar virðingar að hákristilegum sið. Amen.


mbl.is Túlkar að verið sé að gera gys að þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trjárækt Dags og Holu-Hjalls veldur ólgu og usla

x-rvkÞað er alveg djöfullegt að ekkert samtal skuli hafa átt sér stað. Og þó. Hverju hefði það breytt þókt einhverjar vesaldartítur hefðu ropað upp í hvurja aðra og kallað samtal? Náttúrlega aungvu. En trjárækt Dags og Holu-Hjalla verður að linna, svo flugvélarnar geti lent. Eða halda þessi leppalúðar að þeir sé  borgunarmenn fyrir því að flugmaskína með bráðveikan sjúkling innanborðs geti ekki komist til jarðar heilu og höldnu og veiki maðurinn verði úr heimi hallur af því að borgardurgarnir þverskölluðust við að höggva andskotans trjáruslið niður.

Varla eru fyrrnefndir herramenn frekar borgunarmenn fyrir sneisafulla vél með farþega sem mundi fipast útaf trjánum, kastast til jarðar og springa í loft upp? Nei, þeir væru aungvir borgunarmenn fyrir slíku, en það væri þá jafn gott á þá að vera dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir svik og útboruhátt. 

kolb9.jpgEinhvers staðar í Suður Amríku voru einmitt svona labbakútar í borgar- eða bæjarstjórn. Þeir neituðu að fjarlægja trén í kringum flugvöllinn og því fór sem fór. Einn daginn voru nefnilega okkar menn horfnir og sáust ekki heil fjégur ár. Þá birtust þeir allt í einu og vissu ekki einusinni hverjir þeir voru. Eftir því sem þeirra nánust komust næst, höfðu bölvaðir gemsarnir verið seldir í vændishús í Asíu, sem séðir kaupsýslumenn ráku þar, til þjónustu fyrir afbrigðilega karla frá Norðurlöndum. Um svona afgreiðslu þarf ekkert samtal. 


mbl.is „Ekkert samtal sem hefur átt sér stað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hr. Thór Múháméð Kóran lætur ekki við sitja að fá sér nýtt nafn

íhaldsvargurHr. Múháméð Kóran lætur ekki þar við sitja að taka upp hið hundheiðna nafn ,,Thor", heldur er hann ofan á allt annað genginn í Sjálfstæðisflokkinn. Hann var, laust eftir hádegi í dag, vígður inn í Flokkinn við hátíðlega athöfn i Valhöllu, Bjarniben annaðist vígsluna en G.a. Þórðarson og D. Oddsson þjónuðu fyrir altari. Með öðrum orðum: Frá og með deginum í dag er því Thór Múháméð Kórann gildur og fullur limur í Sjálfstæðisflokknum og þess albúinn að takast á höndur alþingisframboð fyrir málstaðinn.

Og nú er skammst stórra högga í millum hjá embættismönnum flokksins, því trúnaðarlæknir Valhallar, Sjálfstæðisflokksins og Varðar skoðaði Thór Múháméð áður en honum var veitt innganga í Flokkinn og skilaði hann niðurstöðu ransóknar sinnar á tilsettum tíma. Þar kemur skýrt fram, að víst sé téður umsækjandi um flokksaðild fullkomlega galinn og siðvilltur, en þó ekki svo að hann geti ekki tekið að sér hvaða starf sem er innan Sjálfstæðisflokksins. Hr. Thor Muháméð Kóran er því sem stendur á hraðferð upp metorðastiga Flokksins.

x-d2En á meðan gullslegnir dýrgripir reka hver af öðrum á fjörur Sjálfstæðisflokksins, allt frá Samherjafirði í norðri til Valhallar í suðri, fjarar hreinlega sífellt undan hinni íslensku sósíalistahreyfingu, en segja má að þar ríki algert örfiri með svo óhrjálegum rekadrumbum og illum dráttum að refar eru fyrir löngu hættir að líta þar við á ferðum sínum eftir einhverju ætilegu. Og þókt nú sé heldur glatt í döprum hjörtum í Valhöllu og nærliggjandi hjáleigum, þá er ekki síðri ofsagleði við völd hjá Thórsurunum, því hvað er einn vænn piltur gangi í Flokkinn hjá því að endurheimta týnda soninn, hann Thór Múháméð? Vér eru öll viss um að sá frændgarður er allur á lofti þessa stundina af gleði, og búið að setja þá frændur, Björgólf Thór og Gwend Andra Thórsson í að slátra alígullkálfinum í fangnaðarskyni vegna heimkomu hins glataða sonar. Og á morgun mun Bjöggi Thór leiða frænda sinn, Múháméð Thór um grænar grundir á Haffjarðarárbökkum.


mbl.is Kourani breytir um nafn og horfir til Bessastaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algerð bylting í menntamálum í sjómáli, þar sem enginn fær að skorast undan skildum sínum

kenn1.jpgNú er einsýnt, að ,,skólastarf" í þeirri mynd sem ráðið hefir ríkjum hér á landi um skeið, muni brátt heyra sögunni til. Í stað fémínískrar uppdráttarsýki og skaðmenntunar í skólum landsins verði tekið upp glænýtt menntakerfi, mun ódýra, skilvirkara og umfram allt árangursríkara en það farlama skrímsli sem núverandi kerfi svo sannarlega er.

Fyrir það fyrsta verður samtökum atvinnurekenda, viðskiptaráði og völdum, vönduðum hagfræðingum falið að framkvæma allt skólahald á Íslandi. Öll skólahús landsins verði seld undir aðra starfsem eða rifin. Í stað grunnskóla verði teknir upp farskólar, þar sem börn á aldrinum tíu til tólf ára fái tvisvar til þrisvar sinnum mánaðar kennslu. Kennurum verði tryggður óskoraður réttur til að halda uppi aga við kennslu og að beita þeim refsingum er þurfa þykir á hverjum tíma. Framhaldsnám standi aðeins útvöldum afburðaunglingum af góðum ættum til boða. Í háskólum verði aðeins stundað nám í hagfræði, viðskiptafæði, guðfræði og lögfræði, auk þess sem Náttúrleysingjahælinu í Hveragerði verði leyft að starfrækja lækningaskóla og útskrifa efnilega nemendur með prófgráðu.

ing20Það sér hver maður að með hinni fyrirhuguðu aðferð í menntamálum þjóðarinnar verður þungu oki létt af ríkissjóði og því góða fólki sem hefir umsjón með honum. Samhliða þessum lífsnauðsynlegu breytingum á skólahaldi og skaðmenntun, muni lögð áhersla á atvinnutækifæri fyrir börn og unglinga, og reglur um þegnskylduvinnu barna í einkafyrirtækjum, samdar af atvinnurekendum, viðskiptaráði og hagfræðingum, leidd í landslög og sett í stjórnarskrá. Auðvitað munu breytingar af þessu tagi leiða tímabundna ógæfu yfir þá sem óhjákvæmilega missa spón úr aski sínum, - en því líði verður auðvitað skipað að leita sér að heiðarlegri vinnu eins og annað fólk. 


mbl.is Einsdæmi að ekki séu samræmd próf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki má gleyma gárungunum

ing22Það var svo sem ekki við öðru að búast en hinn skaðmenntaði og meinti bandiríkjafræðingur, sjálf Silja Bora, væri fyrst á vettvang Mogga gamla í kjölfar brottreksturs Bíden forseta. Kérlíngin er ein af þessum fémínísku nýsosialisku númerum, sem hafa hasað sér völl á síðustu árum. Svo má fjandinn vita hvort Silja Bora veit yfirleitt nokkuð í sinn haus um Bíd, Cáméllu og Trumpið, - en það má einu gilda, það er hvort eð er aðeins vitleysa í boði um það fólk, ef fólk skyldi kalla.

En ekki má gleyma því að gárungarnir hafa Silju Boru í hávegum og hafa í flimtingum sér til skemmtunar að ,,Gilja Bara" hafi sagt hitt eða þetta. Einhverju sinni sagði einn af þessum spéfuglum, að Gilja Bara hefði haft þau orð uppi um einn frambjóðanda, að hann ætti skilið að taka kött nauðugan upp við símastaur. Þessi ummæli þóktu ankannaleg og undir beltisstað og var spéfuglinum refsað fyrir með nokkrum kjaftshöggum áður en hann féll í rot. Þar með hafði réttlætið sigrað.

Nú er það svo, að Silja Bora er grunuð um að halda ekki með Trumpinu í bandarísku realpoletikinni, vera sem maður segir á bandi heimsvaldasinnana í Demókrataflokknum, en sá flokkur vera ígildi róttæks sósíalistaflokks í augum nýsosialista á Íslandi. Á Samstöðinni, sem er í eigu Gunnarssmára er mikið gert með Demókrataflokkinn og legáta hans, og amrískmenntaðir nýsosialistar í sosialflokki sama Gunnarssmára, horfa mjög til hjónana Clítón og Óbáma sem hina sönnu sosialista heimssögunnar, auk Thorwaldar Gylfaþornsonar og elliæra lýðskumarans Berní í Sandinum, sem kvað vera skemmtileg blanda af Vilhjálmi Birgis á Skaganum og frú Sæland. En um allt þetta, en lítið meira, mun ungfrú Silja Bora fræða ykkur, lesendur góðir, og leiða ukkur í allan sannleikann um Bíden og hinn vísindalega krataeðli vesturheimskra heimsvaldasinna.


mbl.is Engar reglur til að takast á við stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja Bídur borinn ofurliði og rekinn frá embætti eins og hauslaus hani

spark2Það fór þá svona hjá karlræflinum honum Bídi. Þeir settu hann af, bölvaðir refirnir, af eintómri vonsku út í heiminn. Eða hvað? Jú, angans gamli maðurinn er víst orðinn ellimóður og ekki nóg með það: hann kvað vera orðinn elliær, ruglaður og ekkert tolli stundinni lengur í hausnum á honum. En nú er úr vöndu að ráða hjá Demókrataflokknum í Bandaríkjunum, sem nýsoialistar á Íslandi halda að sé í það minnsta hálfgildings kommúnistaflokkur, í það minnsta ógurlega róttækur flokkur til vinstri.

Sennilega setja þeir glyðruna Hillarý í framboð í staðinn fyrir Bídinn, hún er sögð ógn friðsamleg, rithöfundur og gríðarlegur sosialist, að mati nýsosialista. Kristrún krataeðlis er sögð skotin í henni og gamlir framsóknarlarfar liggja með nefið í götunni fyrir henni. Meira að segja litlir, digrir íhaldsprumsdrengir kunna að meta Hillarý að verleikum. Hins vegar kemur ekkert í veg fyrir að hinn nýskotni Trumpur verði forseti, það er sem maður segir: Guðs vilji. Ekki einusinni frú Cámílla Harrís, sem er ein  getur haft roð í Trumpinn, seisei nei. Amen.

trumpTil viðbótar er það af þeim elliæra og galna Bídi að segja, að hann ætlar að verja því sem eftir er af forsetferli sínum í að athuga með gleymda vini og kunningja og leika sér að því að geta upp á hvað þeir heita. Kannski villist kallinn til Íslands til að heilsa upp á samherja sína hér á landi? Það væri nú fjarska gaman fyrir Gunnarsmára að fá Bídirinn í þáttinn ,,Rauðaborðið" hjá sér á Samstöðina - þeir gætu sem best farið yfir ógnarlega vinstriróttækni Demókrataflokksins og Smárinn sagt gamla manninum, minnislausum og úti að aka, frá nýsosialiskum áherslum nýsosialista á Íslandi og stórkostlegum áhuga þeirra á bandarískum stjórnmálum, ekki síst á Demókrataflokknum. 


mbl.is Biden dregur framboð sitt til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herra ríkissaksóknari, nú er nóg komið

saksóknNú er nóg komið. Herra vararíkissaksóknarinn hefir nú gjört sig að slíkum últra taðvamba fyrir framan alþjóð að fordæmalaust er. Það verður að taka manninn úr umferð nú þegar áður en hann eyðileggur orðspor landsins um alla framtíð. Það er sem sé mikið í húfi núna.

Það er til dæmis sérlega ámælisvert af vararíkissaksóknara að veitast eins og raun ber vitni að óhörðnuðum unglingi, eins honum syni Swaneesýar, með illmælgi og hrottaskap. Það er sagt að drengurinn hafi farið að gráta undan svarragangi og fólsku vararíkisaksóknara og sé óhuggandi. Þeir segja að hann hafi rassskellt barnið. Auk þess er aðalríkisáttasemjari alveg eyðilagður yfir þessari uppákomu. 

fleng1Á meðan þessu fer fram skrifa allrahanda dólgar og djöflar óhróður um bláfátæka útlendinga í blöðin og kjamsa á meintum glæpum þeirra, nauðgunum, morðum og þjófnuðum, og öðru lúalegu atferli sem ekki einusinni Andskotanum mundi nokkru sinni koma til hugar að taka sér fyrir hendur að fremja. Sumum er jafnvel farið að gruna að þessir náungar gangi ekki heilir til skógar, að þeir séu einhverskonar smá-nasijónalhitlerar, sem finnist nú loks tímabært að skríða út úr rottuholunum sínum og leyfi fólki að dást að gáfum þeirra og andlegu atgervi. En það er eftir sem áður algerlega ófært að láta vararíxsaksóknara valsa um eins og honum hefir þóknast upp á síðkastið.


mbl.is Segja Helga hafa gert sig vanhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bídur, Trumpið og íslenskir nýsosialistar

x biden1Það er heldur lakara, ef rétt reynist, að spilaborg Bídirs bandaríkjaforseta sé að hrynja ofan í hausinn á honum svona rétt fyrir kosningar. Bídur forseti er sem kunnugt kaldur karl, sem hrasar í tíma, en einkum þó ótíma, niður tröppur húsa og landganga flugvéla eins og trúðfífl eða ofurölvi drykkjurútur sem fengið hefir sér of mikið neðan í því. En Bídur á sér, þrátt fyrir allt, sína eindregnu aðdáendur, sem elska hann og dá sem einn dáindisgóðan vinstrimann og sosialist.

Til dæmis eru nýsosialistar á Íslandi ákaflega hrifnir af Bídi, telja hann mankynsfrelsara og Demókrataflokkinn hans aldeilis vel heppnaðan sosialkratískann framsóknarflokk, gott ef ekki kommúnískan. Svona eru nýsosialistar dagsins í dag vel að sér stéttabaráttufræðunum og sosialiskri díalekt. Allir sem einn. En svona okkar á milli sagt, þá hafa fémínístar og útvatnaðir nýsosialistar gengið af sósíalísku hreyfingunni á Íslands dauðri, en það er eitthvað sem Mogga, Sjálfstæðisflokknum og krötum tókst aldrei þrátt fyrir endalausar tilraunir til þess, þökk sé Silju Boru, Höllu Gunnars og Gunnarismára.

asiÁ meðan höfuðhetjan Bídur veltist um tröppur og troðninga og Trumpur andskoti hans liggur skelfingu lostinn og eyrnaskotinn undir rúmi, ráfa aðdáendur þeirra á Íslandi um með spekingssvip á trýnunum og ræða nýjustu vendingar og horfur í bandarísku forsetakosningunum á spámannslegan hátt, eins og þeir séu einhverjir andskotans jesæjar eða habakúkar úr Gamla testamentinu. Sennilega er Bídur forseti á leiðinni í ruslatunnuna, það þarf enga spámannshæfileika til að sjá það og eyrnaskotni sperribelgurinn Trumpur, með þúsund kærur á hælunum, verður aftur forseti Bandaríkjanna. Svo verðum við bara að sjá til hvernig nýsosialistunum á Íslandi gengur að samsama sig Trumpinu, en eflaust mun það ganga eins og í sögu ef ég þekki þá rétt.


mbl.is „Biden á eftir að sjá alla spilaborgina hrynja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband