Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Laust fyrir hádegi í dag hurfu hjónin úr strangri einangrunarssóttkví og er þeirra nú leitað

ing2Það var svo sem auðvitað að lýðurinn færi á stjá um leið og sást til sólar, sóttvarnarséffinn lofaði rénun á drepsóttinni og páskaskröllin guðsblessunarlega í nánd. Einnig smó Máría Borgargagn ásamt Indriða Handreði út um herbergisglugga á heimili frú Ingveldar og Kolbeins, þar sem þau voru í strangri einangrun og sóttkví, enda verri pestargemlingar en þau ekki fundnir nokkurs staðar á byggðu bóli hérlendis. Nú, þetta ólánsfólk stakk sem sé af úr einangrununni og hvarf á braut.

Svo sást til þeirra í áfengisútsölunni í Borgarnesi, nú laust eftir hádegi, og þaðan drógu þau, að sögn trúverðugra manna, heldur en ekki björg í bú. Þrjá kassa að Stalínískum volka settu þau í farangursrými bifreiðar sinnar, sem og ókjör af hvítvíni með humrinum, rauðvíni, púrtara og bjórglundri. Það er því auðsætt í hvaða standi þetta djöfuls pakk verður á krossfestingardag Frelsarans og upprisu hans á páskadagsmorgun. Nú leitar lögreglan þeirra hjóna, því þau hafa brotið sóttvarnarlög á óskammfeilin hátt og Hálfdán Varðstjóri bíður með óþreyju að fá þau í sínar höndur.

Á þessari stundu veit aunginn hvar Borgargagnið og Handreðurinn halda sig, en líklegt má telja að bækistöð þeirra sé ekki allfjarri áfengisútsölunni í Borgarnesi. En þar eð Handreðurinn hefir verið mjög sjúkur að kóvídi nítján undanfarna daga, leikur grunur á að Máría Borgargagn hafi blásið miklu magni amfetamíns upp í nasaborur Handreðsins, svo miklu að venjuleg stóðhross, tíu til tuttugu talsins, mundu öll hafa steindrepist á stundinni við að fá sama magn amfetamíns í nefið. Nú stendur frú Ingveldur með hlaðna haglabyssu yfir hinum þrjótunum á heimili hennar og varnar þeim að komast úr í athafnafrelsið. 


mbl.is Umferð að aukast um Borgarnes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðursetningi fengið nýtt, en þó gamalt, heimili

x26Jæja, það er gott að góðir menn hafi fundið aumingjanum litla annað heimili; hann var alltaf eitthvað svo utangátta sem niðursetningur á Alþingi. Sumir hafa verið hneykslaðir á að hafa þennan volaða dreng á framfæri ríkisins, en þar kemur á móti að honum auðnaðist ekki að gera neitt afgerandi mikið af sér þann tíma er hann var niðursetningur á þingi. 

En ósköp er nafnið á bænum, sem hann fer á núna, eitthvað ljótt og illhryssingslegt. Hornsteinn minnir mann á horngrýti, illa innrættar hornkerlingar og jafnvel einhvern óttalegan kima í heimkynnum hins vona í neðra. Já, kæru vinir og velunnarar poletiskra niðursetninga, Hornsteinn er vondur bær og þangað fer aunginn nema í refsingarskyni. 

En hvað hét nú aftur félagið góða sem forkvendi Viðreisnar átti snjalla aðild að? Getur ekki verið að það hafi verið kallað 7 hægri, ha? Sjö hægri, það er nú dularfullur söfnuður sem aðhyllist það merka félag og fáir sem fá þar aðgang. So segja kaldlyndir gárungar, að nú sé svo komið að ekkert sé eftir af 7 hægri annað en sköllóttur pungurinn og eyrun, skjátan sé uppurin, en eftir lifir minningin um farsælt félag, sem hafði undur göfugan tilgang og þjónað og þénaði félagsmönnum sínum framúrskarandi vel. En Sementsverksmiðjan á Skaga dó og strompur hennar sprengdur í loft upp eins og skotmark í heimstyrjöld.  


mbl.is Þorsteinn tekur við Hornsteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það getur ekki verið að þeir hafi hlaupið úr miðstjórn ASÍ vegna lífeyisframlaga

drauÞað bara getur ekki verið að Skaga-Villi og VR-Ragnar hafi stokkið úr miðstjórn ASÍ fyrir það eitt að hafa lent í minnihluta varðandi hugmyndir þeirra um tímabundna lækkun framlags atvinnurekenda til lífeyrissjóða starfsmanna. Þeir hafa ekki sagt félagsmönnum ASÍ alla söguna og enn síður hefur Drífa, sem vill endilega láta kalla sig jómfrú Snædal, komið hreint fram. Þeir félagar Villi og Ragnar hafa verið svo þungorðir í garð Drífu, að þar býr meira að baki en hugmynd um tímabundna lækkun lífeyrissjóðsgreiðslna. Það læðist að manni illur grunur um að þarna sé verið að tefla einhverja skítapoletik, sem Drífa eigi jafnvel mun meiri þátt í en þeir karlagarmarnir.

Hvernig var það annars, var Drífa ekki framkvæmdastjóri VG, sem sé á spena ríkisstyrkja til stjórnmálaflokka? Og fór þaðan inn á skrifstofu Starfsgreinasambandsins og gerðist skrifstofusjakali þar og sjálfskipaður talsamur verkafólks á Íslandi? Þaðan flaut hún svo á sínu geðslega efmillistéttarfémínístaróli upp í stól forseta ASÍ án þess að hafa unnið verkamannavinnu svo vitað sé. Og laun forseta ASÍ eru sko aungin verkamannalúsarhörmung. Ónei, laun forseta ASÍ eru þau sömu og ráðherrar hafa. Það vakti athygli þegar jómfrú Snædal þóktist hafa sag sig úr samherjaflokknum VG þegar VG fór í ríkisstjórn með tveimur helstu auðvaldsflokkum landsins og setti fyrir sig að hún vildi ekki eta skít í heilt kjörtímabil. Hinsvegar lagði Katrín litla forsætisráðherra Höllu nokkra Gunnarsdóttur á ríkisspenann í ráðuneyti sínu, sem ráðgjafa í kynjamálum, eða kynferðismálum, en laun Höllu þessarar, sem er hagvön ráðuneytisspenum frá fyrri VG tíð, eru auðvitað trúnaðarmál sem aungum varðar neitt um.

Fyrir mjög skömmu síðan bregður svo kynlega við, að jómfrú Snædal, sem gortar af því að vera í afar góðu og miklu talsambandi við ríkisstjórn Íslands, ræður Höllu kynjaráðgjafa Katrínar í framkvæmdastjórastöðu á skrifstofu ASÍ, væntanlega upp á örlítið hærri laun en verkamannataxtar segja til um. Nú er spurningin: Er Halla búin að fá nóg af skítáti hjá VG í forsætisráðuneytinu, eða var frú Snædal sjálf aldrei jafn fráhverf skítskapnum hjá Stenngrími Johoð og efrimillistéttarfémínístunum og hún vildi vera láta? Og muna menn ekki andartakið sæla þegar Solveig Anna Eflingarforstjóri og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra féllust í faðma eins og elskendur, sem ekki hafa sést í heilt ár eða meir, í húsakynnum Ríkissáttasemjara rétt eftir að Solveig hafði samþykkt kjarasamninga fyrir verkafólk á almennum markaði, sem hún þóttist líka vera á móti? Það vantar meira en lítið upp á, að þetta endemis efrimillistéttafémínístajukk sé sjálfu sér samkvæmt og orð og athafnir þeirra fari fari saman. Hvurn fjárann vill þetta efrimillstérfémínistaslekti með að riðlast eins og draugamor á verklýðnum og verkalýðshreyfingunni? Er ekki nóg fyrir það að pönkast eins og andskotinn í VG með Stenngrimmi Johoð, Álfheiði Ingadóttur og Swabbó Sendiherrafjölskyldunni? En hvort sem þið heitið jómfrú Snædal, Villi á Akranesi eða Ragnar í VR, þá eigið þið að gjöra svo vel að segja almenningi satt um gjörðir ykkar innan verkalýðshreyfingarinnar. Ef þið getið ekki gert það er best fyrir ykkur að segja af ykkur trúnaðarstöðum innan hreyfingarinnar og hafa með ykkur á brott þessa hálaunuðu klíkuframkvæmdastjóra, sem inngróin spillingarárátta og einkavinavæðingarást bauð ykkur að setja á há laun hjá fátæku fólki.  


mbl.is Ekki tilefni til að grípa til heildstæðra aðgerða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefir ævilega haft íllt í för með sér að hóta heilögum persónum

kol33Það er þokkalegur andskoti ef rétt er eftir haft, að einhver dusilmenni séu að hóta heilögu fólki. Þótt Íslendingar séu ekki kattólikkar nema að ósköp litlu leyti, þá er talið næsta víst að hið þríheilaga þríeyki verði formlega tekið í heilagramanna tölu, áður en árið er á enda runnið, og þau dýrlingar kallaðir bæði af hinni pápísku kirkju sem og Þjóðkirkjunni á Íslandi, sem er bara kirkja og hvorki evanígélisk lúhersk eða kattólsk. Aftur á móti veit aunginn hvaða afsöðu Babtistakirkjan hefir til Víðis, Þórólfs og frú Möller, enda hefir aunginn hérlendur maður áhuga á að vita nokkuð um þessháttar vitleysu.

Að hafa í hótunum er út af fyrir sig stóralvarlegt mál. Að vísu ku hótunarmenning vera nokkuð vinsæl meðal stjórnmálamanna og samherja þeirra, stórgrósséranna. Hitt er næst óþekkt fyrirbrigði á Íslandi að hóta þríheilögu fólki, sem bíður þess eins að fá dýrlingsvígslu hjá þar til bæru embætti, dauða, djöfli, barsmíð og öðrum þeim ófögnuði sem geggjuðu fólki kann að detta í hug. Í Brennu-Njáls sögu segir frá því þegar þorparinn Víga-Hrappur tók sig til og vóð inn í goðahús sæmdarmanna í Noregi og rúði þar þrjú goð öllum gersemum, dró þau berrössuð út og brenndi að því búnu goðahúsið til ösku. Síðar, þegar leikurinn hafði borist til Íslands, hjó Helgi Njálsson af Víga-Hrappi aðra höndina, en Grímur Njálsson fullkomnaði verkið og rak spjót gegnum belginn Hrappi, sem laut þegar dauður í gras. Þessi litla saga segir oss, að það að hafa hótanir eða svívirðu í frammi við goð eða sannkristna dýrlinga dregur gjarnan dilk á eftir sér fyrir ódæðismanninn, sem fær þá að launum rauðan belg fyrir gráan.

Það verður að teljast til happs fyrir þann eða þá sem haft hafa í hótunum við hin þríheilögu, að langt er síðan þeir Njálssynir vóru inni brenndir að Berþórshváli, þannig að þeir eru ekki líklegir til að valda hóturunum svöðusárum, hvað þá leggja til þeirra spjóti eða jafnvel atgeiri. Hitt er eins víst, að þessum körlum mun hefnast fyrir hótanir sínar og djöfulsskap; þar verður hið sjálfvirka réttlætislögmál náttúrunnar að verki. Að lokum skulum vér lúta höfði í þökk fyrir þann farsæla kennimann, séra Atgeir p. Fjallabakssen, sem tekið hefir að sér að leggja ólán svart á hótunardólgana.


mbl.is Hafa lítið velt sér upp úr hótun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föðurhús hennar eru tvíein og skófirnar eru úr soðpotti Pokursins

ing27Hvað ætli þetta geti kynnt ,,aðgerðir" eftir páska? Fnuhh piff sveiattan. Nei, þetta getur hvorki kynnt aðgerðir fyrir eða eftir páska, hvað þá á páskunum sjálfum. Sona fret eins og í sokölluðum forsætisráðherra dæma sig sjálf og er hér með vísað til föðurhúsanna. En þau föðurhús eru bæði heim hjá honum Stenngrimmi og í Valhöllu Bjarnaben. Sjálf er Katrín sú, sem opinberlega er sagt að sé forsætisráðherra, efrimillistéttarfémínísti hægra megin á hinu poletiska litrófi, eins og allir hinir fémínístarnir. Fyrir skömmu fann eitthvert gáfnaljósið upp sosialfémínísm, sem enginn hefir hingað til útskýrt. Efrimillistéttafémínístunum finnst þetta með sosialfémísmann sniðugt, en alþýðan grettir sig, eins og verulega viðbjóðslega lykt hafi slegið fyrir vitin, í hvurt sinn sem hún heyrir sosialfémínísmið nefnt.

Þó svo forsætisráðherrann okkar sé núll og nix frá náttúrunnar hendi þá eru fyrrnefndir föðurhúsaforingjar hennar það ekki. Nei ó nei. Þeir eru Samherjar og þeir kunna vel að sigla undir fölskum flöggum. Frú Ingveldur hefir mikið dálæti á þeim drengjum og þeir kyssa hana ævinlega sonarlega á kinnina í hvurt skipti sem þeir mæta henni. Já, þar ríkir fjölskyldueindrægnin ofar öðrum dyggðum.

Nú um hríð hefir frú Ingveldur, eiginmaður hennar og helstu vinir verið í sóttkví, einangrun. Ofan á það ólán, sem í sjálfu sér er ærið, bætist hinn þungi kross að hafa Indriða Handreð nærri dauðan úr kóvídi nítján í nær hálfan mánuð, liggjandi inni í miðstöðvarkompunni. Mitt í miðjum ófarnaðinum fer efrimillistéttarfémínístinn í forsætisráðuneytinu svo að gaspra um sótsvartar aðgerðir eftir páska! Nei, vinir mínir, henni er ekki sjálfrátt, kérlíngarborunni, enda fordjörfuð af efrimillistéttarfémínísm, sem sagt er að séu skófirnar úr soðpotti Andskotans í Helvíti.


mbl.is Kynna frekari aðgerðir eftir páska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skæsleg og errileg kerling hún Þórhildur Sunna

drunk1Helvíti er hún nú skæsleg og errileg kerling hún Þórhildur Sunna. Í dag lætur hún að því liggja að hún vorkenni kjúkrunarfræðingum heil ósköp og slær um sig með digurmælgi um kynjuð fjárlög. Það mætti halda að hún væri að bera Bjarnaben á brýn að haf borið fram kynvillt fjárlög. Hvenær hafa fjárlög haft kyn, fyrir utan þetta hvorugkyn í málfræðilegum skilningi. En samt verðum við að segja, að Þórhildur Sunna er misheppnaður skemmtikraftur, munurinn á henni og virkilegum skemmtikrafti er ámóta og munurinn á tréspíritusi og spíritusi.

Svo rjúka Klausturkarlarnir fram á gólf og þykjast bera hag kjúkrunnarfræðinga fyrir brjósti. Ja, allur andskotinn er nú til. Þeir voru ekki svo þriflegir í garð nafngreindra kvenna og kvenna yfirleitt í upptökunum af þeim að Klaustri hér um árið. Í stað þess að flýja land í ofboði og aldrei láta sjá sig meir á Íslandi eftir málþing þeirra að Klaustri breiddu endemin bara meira úr sér og viðbúið er að þeir fari að játa frú Sæland, ungfrú Albertínu og jómfrú Alfredós opinberlega ást sína, bæði andlega og holdlega. Þeim er ekki fisjað saman ólánsmönnunum.

Eftir tímamótafundinn á Klaustri boðaði frú Ingveldur Sigmund Davíð á sin fund og rassskellti hann á nauðaberan ósómann að viðstöddu fjölmenni. Sigmundur Davíð svaraði með því að grenja hástöfum og tauta um misskilning upp úr ekkasogunum, en frú Ingveldur svaraði á móti að ef hann hætti ekki þessum öskrum mundi hún afhenda hann Brynjar Vondulykt til meðhöndlunar. Það er auðséð að rassskelling frú Ingveldar á ólánsgemlingnum hefir ekki virkað sem skyldi, því húsmaurarnir í Miðflokksklaustri hafa ekki betrast við að foringi þeirra væri flengdur, heldur sperra þeir sig og segjast elska kvennastéttina kjúkrunarfræðinga. Það er margt kyndugt í rassinum á Pokurnum, sagði hann Ólafur heitinn bóndi stundum áður enn smalahundurinn Snati hratt honum fyrir björg.


mbl.is Gagnrýndi Bjarna og vísaði til kökuskreytinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri mannsbragur að afstöðu Sólveigar Önnu en giljagauranna sem hlupu fyrir borð

Árni ÞórÞað er meiri mannsbragur að afstöðu Solveigar Önnu til gildandi kjarasamninga á vinnumarkaði en þeirra er hlupu fyrir borð hjá ASÍ í gær. Þess utan eiga giljagaurarnir brotthlaupnu ekkert með að rýra gerða kjarasamninga einhliða; því er nefnilega þannig varið að það eru verkalýðsfélögin, það er að segja fólkið í félögunum, sem samþykkir gerða kjarasamninga og á þar með síðasta orðið, þrátt fyrir rembing og stórkallalæti einstakra formanna félagsmanna í aðdraganda samninga. Ef Skaga-Villi og Ragnar í VG vilja færa atvinnurekendum og auðvaldinu gjafir, þá skulu þeirra gefa af sínum persónulegu eigum en ekki láta sér detta í hug að gefa þeim af réttindum annars fólks að því forspurðu.

Það verður því að gefa gefa þeim sem stóðu í lappirnar í stjórn ASÍ heilmikið hrós fyrir að hafa ekki látið ótínda giljagaura á óljósri vegferð afvegaleiða sig með hótunum og hurðaskellum. Og auðvitað eiga giljagaurarnir ekki að láta við sitja að segja sig úr stjórn Alþýðusambandsins, heldur ættu þeir að hafa vit á að segja sig frá öllum trúnaðarstörfum innan verkalýðshreyfingarinnar, því svona fólk er ekki traustsins vert.

Það er ljóst að gaspurbylgjunni og tilrauninni með ,,nýju verkalýðsforustuna" er lokið. Þeir sem eftir sitja ættu af því tilefni að setjast niður litla stund og endurskoða stöðuna og eitt og annað í framgangsmáta forustunnar. Það er hægt að ná fram kjarabótum hjá verkalýðnum án þess að formennirnir séu með sífellt gaspur og ruglandi, sitjandi á herðum hins almenna verkamanns. Skaga-Villi og formenni Verslunarmannafélags Reykjavíkur hafa sett sjálf sig í sóttkví frá verkalýðshreyfingunni og vandséð að þau eigi þaðan afturkvæmt öðruvísi en segir í kvæðinu, sem sé ,,með klofinn hjálm og rifinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld". 


mbl.is Gefi ekki afslátt af kjörum félagsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegra mál er að ókunnug kona veittist að Máríu Borgargagni inni í búð

hálf2Jájá, okkur er nokk sama hvað Swandeesy Fjoola og Laufey Roon voru að aðhafast; það kemur okkur andskotann ekki neitt við. Alvarlegra mál er að ókunnug kona brá Máríu Borgargagni um losta þegar þær voru staddar í verslun á jólaföstunni síðustu. Vissulega hrökk Máría við er hún heyrði hina ribbaldalegu aðdróttun ókunnugu konunnar og vék að henni dálitlu höggi með krepptum hnefa hægri handar. Ekki var að sökum að spurja: dónalega kvendið slengdist utan í vöruhillu, sem fór á hliðina, en konan missti meðvitund við höggið og leið líka út af eins og skotin.

Fáum mínútum síðar voru útsendarar Hálfdáns Varðstjóra mættir í búðina, en þá var Máría Borgargagn öll á bak og burt, svo lögregluprjónarnir létu sér nægja að hafa ókunnugu konuna með sér og færðu hana Hálfdáni Varðstjóra, sem fór þegar í stað með kerlu inn í fangaklefa og píndi hana þar um stund með harðri hendi svo skelfingarhryglurnar í frúnni heyrðust greinilega út á götu. Sjálfur fnæsti Hálfdán og kumraði af sérkennilegri ánægju um leið og hann handfjatlaði fangann. Svo kom Hálfdán fram en lokaði konuna inni í klefanum og snöri sér að því að finna út hvaða kona þetta væri og hvað hún hafði gert af sér, því réttvísin og lagagreinarnar verða að hafa sinn gang.

Þegar Hálfdán Varðstjóri hafði verið leiddur í sannleikann hver konan væri og hvaða glæp hún hafði framið ærðist hann og sló saman hnefunum svo undirsátar hans urðu dauðskelfdir og ekki var örgrannt um að einn þeirra eða tveir hefðu gert í buxurnar af ótta. Og Hálfdán Varðstjóri vóð eins og mannýgt naut inn í klefann til hins glæpsamlega kvendis og orgaði ókvæðisorðum framan í hana og fýlan út úr honum, blanda af ýldu og áfengi, hafði næstum riðið konunni að fullu því hún missti jafnvægið og valt útaf í gólfið. Svo reif Hálfdán pilsið og aðra garma utan af hinni óhamingjusömu frú og ýtti henni hálfnaktri á undan sér niður stigana á lögreglustöðinni og vísaði henni að svo búnu út á strætið þar sem strákar komu auga á hana og sproksettu hana með undarlega fjálglegu klámi og öðru ósiðlegu orðbragði. En Hálfdán rauk aftur upp á varðstofu sína, kallaði undirsátana fyrir sig og húðskammaði þá fyrir að draga aðra eins kéllíngardræsu inn á stöðina.


mbl.is Svandís ein á Preikestolen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér segir af ástandinu á ASÍ-skútunni, Miðflokknum og af heimili frú Ingveldar og Kolbeins

fleng0.jpgÞessi gerðarlegi rafmagnspiltur þarf ekki að hafa fyrir að vera undrandi þótt þrír taðhvalir hafi bylt sér fyrir borð á ASÍ-skútunni; ég held hann megi vera feginn. Fyrir skömmu síðan var fjölmennt og góðmennt við stjórnarborðið en nú er þar fámennt og illmennt. Hnútukast gengur langs og þvers við það borð og æ fleirum stendur til boða að verða fleygt útbyrðis. Brátt verður forsetan ein eftir, ásamt famkvæmdastjóru sinni, við stjórnarboð Alþýðusambandsins, en þá verður mannvalið líka orðið einstaklega fámennt og illmennt og andskotann ekkert skárra en í því greni sem þau skoffín og skuggabaldur búa ein við eilíft urg, arg og íllsku.

Af Skaga-Villa og Ragnari í VR,og varamenni hans, er nýjast, að þau eru öll á barmi þess að ganga í Miðflokkinn og taka klausturvígslu, en það jafngildir útskúfun úr mannlegu samfélagi. Miðflokkurinn er að vísu trúflokkur og trúarstofnun með klausturhaldi og messuvíni, en því miður þykir helgihaldið þar á bæ ekki siðuðum mönnum bjóðandi. Og nú hefir yfirklausturhaldarinn, Sigmundur Davíð, sem bæði er Frelsarinn endurborinn og Framsóknarmaddaman í öðru veldi, bætt ,,frá Hriflu" við nafnið sitt og heitir því héðan í frá Sigmundur Davíð frá Hriflu, einnig kallaður heilagur Sigmundur Davíð frá Hriflu, eða St. Sygemound David from Hrifla.

Að heimili sæmdarhjónanna, frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar, hefir vistin verið ærið dauf upp á síðkastið. Á sunnudagkveldið síðasta var kókónukóvídveiran nærri búin að deyða Indriða Handreð, sem ásamt fleirum dvelst í einangrunarsóttkví að heimili sæmdarhjónanna. Karlanginn komst þá upp í fjörutíu og tveggja gráðu hita á Celsíus og búist var við að hann skildi við þá og þegar. Þegar hitinn var kominn upp í fjörutíu og þrjár gráður hringdi frú Ingveldur í Gottfreð lækni og bað hann koma í vitjun og hafa dánarvottorðseyðublað með sér. En um það bil sem frú Ingveldur og Máría Borgargagn ætluðu að veita Handreði nábjargirnar þá fór karl að hressast, eftir að hafa drukkið handþvottaspritt. Um morguninn var Indriði Handreður úr allri lífshættu og söng hástöfum ,,Hífopp æpti karlinn, inn með trollið inn" og ,,Víst ertu Jésús kóngur klár, og líkamshitinn kominn niður í þrjátíu og sjö gráður en púls og blóðþrýstingur eins og best verður á kosið.

 


mbl.is Brotthvarfið kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin taugabilaða nýja verkalýðsforusta stökkur fyrir borð í felmturröskunarkasti

hræddurÞá hrökkva þeir um borð, hvur um annan þveran, byltingarfrömuðirnir úr ,,nýju verkalýðsforustunni" í Alþýðusambandi Íslands og ef fer sem horfir verður skútan mannlaus eftir fáeina daga. Um skeið hefir verið kunnugt, að ,,nýja verkalýðsforustan" hefir öðlast háan sess sem vonarpéníngur ,,nýsosialistaflokks Gunnars Smára". En nú er endanlega úti um allar vonir tengdar ,,nýju verkalýðsforustunni" enda brátt hálf skipshöfnin hlaupin fyrir borð og sokkin til botns.

Það hefir verið einkennandi fyrir ,,nýju verkalýðsforustuna" hve taugaveikluð hún er. Þessir meintu forustusauðir rjúka upp eins og nöðrur, ef einhver dirfist að mótmæla þeim, að ekki sé talað um að gera grín af þeim, og froðufella þá eins og bestíur. Í fyrra var hin nýja hjörð komin í heljarinnar kjarasamningaham og allt ofan í smátelpur farnar að öskra og æpa um að taka helvítis auðvaldið og gera það höfðinu styttra, þetta vesalings auðvald væri karllægt svínarí, sem hefði sérstakt yndi af að kvelja og smána vinnukonurnar, sem malaði því gull með ógnar þrældómi. En þá vildi svo illa til að sápukúluflugfélag hr. Mogensen fór á hausinn og nýja verkalýðsforustan fór yfrum á taugum og skrifaði hálfrænulaus í felmtursröskunarkasti undir samninga, sem auðvaldið rétti að þeim, í hendingskasti. Eftir sat svo auðvaldið í hláturskasti.

Löngu seinna fór ,,nýja verkalýðsforustan" aftur á stúfana og fór í verkfall til að berjast fyrir verkakonurnar á leikskólum Reykjavíkur. Og aftur fór allt út um læri og maga, því að djöfulleg drepsótt fór allt í einu að herja á heiminn með þeim afleiðingum að hinni fémínsosialisku ,,nýverkalýðsforustu" tókst ekki að ljúka verkefni sínu að fullu, en þá guggnuðu stórmennin í Eflingu af ofsahræðslu við kóvíd19 og skildu verkamenn í leikskólum í nágrannafélögum Reykjavíkur eftir samningslausa. Og eins og allt hafði nú gengið í lukkunnar velstandi með vinavæðingar ,,nýju verkalýðsforustunnar" í vellaunaðar framkvæmdastjórastöður vítt og breitt um verkalýðskontórana, þá brast þessi uppúrspilaða forusta í taugaveiklunarkast so ofboðslegt, að Skaga-Villi er flúinn undir vængi klausturherrana í Miðflokknum en formaður VR valt lémagna út fyrir borðstokkinn og hvarf. Og eftir sitja fémínkrataaularnir í sosialistaglensi Gunnars Smára agndofa á áhorfendapöllunum og glápa á eftir vonarpéníngum sínum týna tölunni.


mbl.is „Versta leiðin var valin, að gera ekki neitt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband