Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Endemis kyndug frauka þessi ráðherra með langa nafnið þarna hjá Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki nóg með að aunginn geti lært nafnið hennar utanað, heldur er hún óskiljanleg með öllu þegar hún fer að tala um hluti, sem eiga að heyra undir hennar ráðuneyti, - já og poletik yfirleitt. Nú hefir hún tekið til máls og fimbulfambar um að fólk eigi að hætta að tala Ríótintófabrikkuna í Hafnarfirði niður.
Nú er það svo, að eigendur og talsmenn Ríótintósins hafa verið þeir einu sem talað hafa þetta mengunarbæli niður með óduldum hótunum um að þeir loki herlegheitunum og far, nema þeir fái enn ódýrari rafmagn en hingað til. Eflaust meina þeir, að Íslendingar eigi að hundskast til að greiða Ríóinu fyrir vilja nota rafmagn frá þeim. Það er ekki að tala niður þó einstaka maður sé bjartsýnn og nefni hvort ekki væri hægt að nota Straumsvíkurmannvirkin undir eitthvað geðslegra en eitrandi alúmíníumbræðslu. En ráðherrann með langa nafnið sem aunginn getur haft eftir verður að eiga það við sjálfa sig hvort hún geri sér það að leik að tala sjálfa sig niður í fjölmiðlum, - ég held að öllum sé barasta alveg nákvæmlega sama um það.
Álverið í Straumsvík var barn síns tíma, sona eins og Björn Bjarnason var barn síns tíma eina dagstund fyrir um það hálfri öld. Virtur læknir hefir gefið út það heilsufarsvottorð varðandi umrætt álver, að vegna bágrar heilsu hafi sjúklingurinn verið lagður inn á líknardeild þar eð aungin læknisráð geti bjargað því frá því að geispa golunni mjög bráðlega. Og ef lög leyfðu svokallaðan líknardauða væri fyrir nokkru síðan búið að gefa hinum fárveika inn lokalausnina með sprautu sem mundi ráða hann af dögum, ríða honum að fullu, steindrepa hann á nóinu. So getur langa nafnið sem aunginn man haldið áfram sínu hvimleiða óráðshjali um niðurtal og aðra vitleysu sem aungan varðar um.
![]() |
Hættum nú að tala þetta niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2020 | 17:27
Efrimillistéttarfémínístaávarpið
Efrimillistéttarfémínísmi er það lengsta í róttæknisátt sem undanrennuvesalingarnir í úrkynjuðum subbuflokkum eins og VG og Samfylkingu geta gengið. Þrátt fyrir þessa óhuggulegu staðreynd, þá gera eigendur VG og Samfylkingar tilkall til að á þá sé litið sem þinglýsta eigendur allrar vinstripoletikur í landinu, jafnaðarstefnu og sosislisma. Auðvaldskollan Katrín telur sig eflaust vera óskaplega hugrakka, jökulkalda, að skrækja eins og stéllaust hænsni yfir eina fyrirlitlegustu samkomu auðvaldsins, Viðskiptaráð Íslands, heimskulega froðu eins og þá að hún vilji sekta fyrirtæki sem ekki uppfylla krypplingslegan efrimillistéttarfémínísma um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Þetta er í fáum orðum sagt það efrimillistéttarfémínístaávarp úrkynjaðra poletikusa, sem er eins og vatnsblönduð undanrenna af gömlu góðu og heiðarlegu sósíalistunum á Íslandi. Á meðan ekki sekkur endanlega undan hinum undirförulu svikurum, sem stálu sósíalismanum, jafnaðarstefnunnu, starfar Katrín og VG á framfæri spilltasta hluta borgarastéttarinnar og þegir þunnu hljóði yfir skipulögðum stórglæpum allt í kringum sig, sem allt siðað fólk sér og viðurkennir að sé til staðar.
Það eru konur eins og frú Ingveldur og frú Andersen og frú Bjarniben sem kunna að meta Katrínu og VG, þótt þau hlægi eins og vitleysingar að þeim á bak. En andlegum föður Katrínar, sem og andlegum afa hennar, Stenngrimi og Swabbó Sendiherra er nákvæmlega sama um hlátra Engeyinga og annarra háttsettra péníngamanna og arðræningja, því þeir telja sig stand á sömu stétt og það fólk. Svo má spyrja hvort hægt er leggjast lægra og sýna af sér auvirðilegra siðferði en þetta subbulið hefir sýnt af sér í poletikinni.Það verður grafskrift VG að það hafi í upphafi verið stofnað af hreinni sosialiskri hugsjón sumra er að komu, en einberri tækifærismennsku, siðblindu og óþokkainnræti hinna sem þóttust vera koma á laggirnar alþýðlegri hreyfingu. Hinir fyrrnefndu hrukku flestallir fyrir borð á fyrstu tíu árum VG, en eftir sátu undir árum óheiðarlegir og siðblindir undanrennurakkar, sem sýnna er að sitja á veisluklæðnaði og með pípuhatt við rúllettuborð kapítalismans en að berjast með alþýðunni að sjálfsögðum hagsmunamálum hennar.
![]() |
Vill sekta fyrirtæki sem uppfylla ekki kynjakvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.2.2020 kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.2.2020 | 14:58
Draumurinn og axarskaftið í Nauthólsvík fór illa í blessaða konuna
Þegar frú Ingveldur vaknaði í morgun var hún rottimbruð og út hófi stygg á geðsmunum. Hún lét það verða sitt fyrsta verk þarna í morgunsárið að lúberja Kolbein eiginmann sinn sofnandi í rúminu og kasta honum æpandi af skelfingu fram á gólf. Ástæða harkalegrar vöknunar frú Ingveldar var óþverra draumur sem hana dreymdi undir morgun og hrökk upp af.
Frú Ingveldi dreymdi sem sé, að nokkuð margar persónur af betra standi, sem frú Ingveldur hefur velþóknun á, höfðu verið handteknir og dæmdir til hengingar, og hún hafði verið viðstödd aftökuna og horfði bálill að horfa á máttarstólpa þjóðfélagsins dingla í snörunni. Og um leið og henni tókst að rífa sig frá svefninum haldlagði hún Kolbein, sem fyrr segir, misþyrmdi honum, en allt í hófi samt og Kolbeinn fékk bara kúlu á ennið, blóðnasir og vinstri úlnlið úr liði. Á eftir hringdi hún í aldavinkonu sína, þá margfrægu kvinnu Máríu Borgargagn, og sagði henni að hún hefði veitt djöflinum Kolbeini snemmbúna ráðningu og kvikindi hefði hlaupið skrækjandi til læknisandskotans.
Þegar Kolbeinn hafði hypjað sig opnaði frú Ingveldur tölvuna og sá hina hrollvekjandi frétt af fjármálalegri framúrkeyrslu borgaródáma í Nauthólsvíkurbraggamálinu. Hún hrækti á tölvuskjáinn, í fullvissu um að þarna hefði verið framinn ófyrirgefanlegur stórglæpur og fyrir augum hennar dönsuðu hengdu stertimennin, skýrt og greinilega í snörum sínum. Þarna í stólnum tók frú Ingveldur þess dýran eið, að hefna grimmilega þeirra er hengdir vóru í draumi hennar, og búa svo um hnútana með dyggri aðstoð góðra manna og kvenna, að braggabófarnir muni fá makleg málagjöld fyrir verk sín ill, spillt og glæpsamleg. Svo hringdi hún í Ólaf trésmíðameistara og bað hann reisa fyrir sig sterkbyggðan hengingargálga að húsabaki við hús þeirra hjóna.
![]() |
Skjalavarsla vegna braggans ekki í samræmi við lög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2020 | 15:11
Hver mun skera hvern eða hverja niður úr snörunni? Í upphafi átti endirinn að skoða
Það vefst nú ekki fyrir honum Amríku-Vidda framkvæmdastjóra að vera kátur þótt fundi í kjaradeilu Eflingar við Reykjavíkurborg hafi verið frestað um óákveðinn tíma; en í þessu tilfelli gætu orðin ,,óákveðinn tími" einfaldlega þýtt að fundinum hafi verið frestað til eilífðarnóns. Ekki er að efa að Amríku-Vidda, sem aunginn hefir kosið til eins eða neins í Eflingu, og Bandaríkja-Solveigu þykir voða gaman að verkföllum, ekki síst eftir að þau sömdu fyrir megnið af sínum félagsmönnum fyrir nokkrum mánuðum um eitthvað allt annað og minna en þau gera kröfu um nú fyrir siggróna hönd verkamanna á leikskolum.
Nú er allt útlit fyrir að ríkisstjórn Katrínar Jákobsdóttur, þeirrar hinnar sömu og Bandaríkja-Solveig faðmaði sem mest að sér eftir hinn magnaða ,,Lífskjarasamning", mun bráðlega láta sverfa til stáls og setja lög á hina skemmtilegu vinnudeilu og verkföllin góðu, sem skemmta þeim Vidda og Solveigu so hjartanlega. Stenngrimur er tilbúinn með að láta Katrínu fara með fyrrnefnda lagasetningu inn í ríkisstjórn og úr ríkisstjórn inn á Alþingi, það sem samþykkt verður að svipta skötuhjúin verkfallsgleðinni. Og hvað gera bændur þá? Jú, þeir munu grénja og góla og stynja upp úr sér milli ekkasoganna valinkunnum frösum um kvenhatur og kvenfyrirlitningu og öðru sem slíku orðbragði heyrir til.
Og þótt besservisserar og 101. spekingar haldi að þeir hafi fundið upp hjólið í kjarabaráttu verkafólks, þá er það aldeilis rangt hjá þeim. Það hefur nefnilega gerst áður, að litlar einingar verkafólks hafa reynt til hins ýtrasta að ná hærri launatöxtum fyrir sig eftir að heildarkjarasamningar á vinnumarkaði hafa verið samþykktir. Stundum hafa einstaka félög fellt gerðan kjarasamning, eða hlutar verkamannahreyfingarinnar hafa reynt fyrir sér með verkföllum eftir undirritun aðalkjarasamnings, en því miður með engum árangri. Þannig mun fara með leikskolabardaga Bandaríkja-Solveigar og Amríku-Vidda. Í upphafi skal endirinn skoða og það mun svo koma í Katrínar Jákobsdóttur og ríkisstjórnar hennar að skera hið fyrirhyggjulausa fólk, Amríku-Vidda og Bandaríkja-Solveigu niður úr snörunni, sem þau hafa sjálf sér snúið. Að því loknu geta þau snúið sér óskipt að kosningabaráttu Demókrata-auðvaldsins í Bandaríkjunum.
![]() |
Myndi ekki skila árangri að funda í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2020 | 12:33
Skammhlaup varð í jafnréttistauginni, ríkisstjórnin vakti sig vitlausa og Íslendingar öskruðu: Gaman gaman!
Svo hún fékk Oskarsverðlaunin, ræfils kéllíngarkjökrið, það var áreiðanlega vel af sér vikið hjá henni. Þó það sem konan var verðlaunuð fyrir með Oskari séu víst mest nístandi óhljóð og skarkali, þá vöktu Íslendingar með sinni frauku langt fram eftir nóttu. Og þegar ljóst var hvur hampaði Oskarnum þá ruku Íslendingar á fætur allir saman og öskruðu og veinuðu ,,gaman gaman!"
Að sjálfsögðu vakti ríkisstjórn Íslands í nótt yfir þessum hégóma amríska kvikmyndaiðnaðarins og eins og ríkisstjórn broddborgarastéttarinnar sæmir þá sendi hún verlaunahafa Oskarsins hamingjuóskir, eða eitthvað því um líkt. Og ríkisstjórnin var svo undurglöð að hún sendi verkfallsfólki Eflingar á leikskolum í Reykjavík líka hamingjuóskir, kryddaðar bölbænum í garð borgarstjórnarinnar.
Nú, Katrín forsætisráherra, sem vissulega verðskuldar Óskarsverðlaun í leikaraskap og loddaratilburðum, upplýsti við þetta tækifæri að Oskarsverðlaunin til Íslands hefði snert hennar miklu jafnréttissinnataug. Það er nú það. Við höfum sjálf sé hvað Katrín er ógurlega jafnréttissinnuð, og jafnréttistaug sína beraði hún svo um munar þegar hún hljóp undir bagga með Engeyingum og tryggði völd þeirra og umsvif enn um sinn og ætlar sér nú í jafnréttisskyni að leyfa þeim að gefa sjálfum sér banka, sem ríkið eignaðist eftir að Engeyingar og Samherjar gengu af bankakerfinu steindauðu fyrir tíu árum. Svo ætlar Katrín líka, að skipun Stenngrims og Swabbóborgarastéttarinnar í VG, að gefa Engeyingum, Samherjum, Sjálfstæðisflokknum og auðvaldinu öllu Seðlabankann og seðlabankastjórann. Svo verður fólk að ráða við sig sjálft hvort það heldur að jafnréttistaug Katrínar hafi orðið fyrir skammhlaupi eða taugin sú hafi aldrei verið tengd, nema í mesta lagi við rassinn á auðvaldinu.
![]() |
Ríkisstjórnin sendi Hildi hamingjuóskir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2020 | 22:41
Opinbert guðlast framið á Skólavörðuholti í kvöld
Það er alltaf svo gaman að sálumessum, ekki síst sálumessum yfir jöklum. Og undur er sjarmerandi að fá sona sálumessu upp á vegg með borgarstjórakiðlinginn, sem sveltir leikskolakonur heilu hungri, ropandi upp úr sér einhverri gáfumannakássu úr 101 jafningi. Það segir að ,,kirkjan hafi breyst í listaverk" þó svo að húsameistari ríkisins hafi á sínum tíma rissað Hallgrímskirkju niður á blað sem listaverk og góðir menn síðan byggt hana upp sem listaverk. En nú eru nútímasnillingar farnir að breyta listaverkum í listaverk fyrir augunum á fólki. Já, þær láta ekki að sér hæða framfarirnar meðan nýsosialistar setja út leikskolaverkföll að hætti nýverkalýðseflingar.
En svo vér víkjum aftur að þessu með sálumessu jöklanna. Eru það jöklarnir sem flytja sálumessuna, eða eru það einhverjir til þess bærir aðilar sem syngja sálumessuna yfir jöklunum? Það hefir hvurgi komið fram að á hvurn veginn þessi sálumessa er. Svo héldum vér í vorri einfeldni að sálumessur væru kaþólskur siður og að það væri guðlast, sem varðaði við bannfæringu, að fremja sálumessu á útveggjum evanígélísk-lutherium guðshúss. Og það skulu með gjöra sér fulla grein fyrir, að bannfæringar eru aldeilis ekki úr sögunni á Íslandi, fjarri því.
Í einu framúrskarandi prestakalli hér á landi stafar prestur, sem tekið hefir upp bannfæringar með góðum árangri. Þeir er bannfærðir hafa verið fá ekki legstað í vígðri mold, heldur hefir presturinn sjálfur með sveinum sínum urðað þá bannfærðu úti á víðavangi, öðrum óþokkum til varnaðar. Og einn hinna bannfærðu, sérlega guðlaus uppskafningur með ýmiskonar glæpi á samviskunni sem hann iðraðist ekki, lét presturinn sveina sína fleygja í hlandforarvilpu og sökkva honum þar til botns. Það er því eins gott fyrir dárana, sem vörpuðu jöklasálumessu upp á hina virðulegu Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti, að verða ekki á vegi síra Baldvins prests og prófasts til Gemlufallaþinga.
![]() |
Sálumessu jöklanna varpað á Hallgrímskirkju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2020 | 17:22
Formenni róttæka ofurvinstriflokksins með grænskituna
Fyrst gróðinn af ríkisbönkunum er svona geðugur er ekki fuðra þótt formanni hinnar róttæku Vinstrihreyfingar grænu framboði, þyki mál til komið að afhenda fjármálamönnum, sem freklega elska féð, þessa banka til þess þeir geti nú tekið aðra umferð á að skræla þá og skafa innanfrá, þar til þeir velta á hliðina eins og skotin mjólkurkýr. Alveg eins og hér um árið þegar öll einkabánkelsin ultu steindauð og galtóm út í skurð.
Vissulega vænta margir góðs af bankasölum formanns róttæka vinstriflokksins á næstunni. Eftir að róttæki vinstriflokkurinn losnaði við Ögmund Jónasson, sem Katrínu, Stenngrimi og Swbbó þykir hið mesta leiðindaskáld og fornaldaramboð, þá ekki ekki lengur neinn sem hefur uppi kjafthátt gegn einkavæðingum og bankasölum. Leiðin er sem sé greið til að taka höndum saman við Bjarnaben og Engeyinga, Samherja og Óláf stórbónda að Miðhrauni I. og koma bankaskröttunum aftur í réttar höndur. Gamli og litli Björgólfur, Finnur, Siggi og hinir strákarnir eru að sögn tilbúnir í slaginn; þeir eru meira að segja búnir að hanna nýtt og fullkomið Icesave og koffortin undir seðlana úr Seðlibankanum er tilbúin á sínum stað.
Það er nú meira hvað hún Katrín okkar hérna, formaður róttæka ofurvinstrflokksins, hefir veist margar orður og nafnbætur á síðustu árum; þetta hefir liðið upp í höndurnar á henni fyrirhafnarlaust og allur galdurinn er bara að hlýða og vera í hvívetna undirgefin Stenngrimi, Álfheiði og Swabbóliðinu. Svo er hún, og trúlega Swandeesý Sendiherrans líka, búnar að fara í gegnum markþjálfun í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins í Valhöllu.
![]() |
Hagnaður Landsbankans 18,2 milljarðar í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2020 | 19:57
Frú Andersen er búin að vera og bráðum verður híað á hana
Frú Andersen er buguð. Hún hefir gefist upp. Hún horfir upp á að það verði híað á hana á Íslandi og á evrópuvísu fyrir að hafa klúðrað heilu dómstigi, glutrað því niður, eins og þegar mönnum og konum verður það á að missa farsímann ofan í klosettið, beint oní kukkinn og hlanið. Svo sem sjá má á myndum, er frú Andersen orðin áberandi föl, horuð og þreytuleg og afar taugaveikluð, enda ekki að furða því helvískur Mannréttindadómstóllinn hefir reitt upp hamarinn og hyggst keyra hann af feiknaafli ofan í skallann á frú Andersen svo kvarnirnar fara á flug inni í skallanum og glamri þar lengi á eftir.
En hvað getur frú Andersen gert? Ekki neitt, ekki neitt. Það er búið að setja hana af, Bjarniben hefir ekki neitt álit á henni og meira að segja Miðflokkurinn er ófáanlegur til að taka við henni. Hvað gerir frú Andersen þá? Ja, hún gæti reynt að raula sálminn ,,Maxwells silver hammer" eftir sálmaskáldið Pál McCartney frá Liverpool. Ef hún fær aungva huggun út úr silfurhamrinum hans Maxwells gæti hún reynt að fá vinnu í mötuneyti eða í saltfiski suður með sjó. En Sjálfstæðisflokkurinn vill ekkert með hana hafa lengur eftir útreiðina fyrir Mannréttindadómstólnum.
Nú jæja, oss er alveg nákvæmlega sama hvað um frú Andersen verður; það er bara Sjálfstæðisflokkurinn sem þarf að hafa móral og íllvígt hugarangur út af henni. Þó vitum vér að frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður mundu gjarnan vilja skjóta skjólshúsi yfir frú Andersen, það er að segja ef henni tekst að sitja á strák sínum og raska ekki alsherjarreglu á heimili þeirra hjóna. Frú Ingveldur sagði, þegar þetta var borið undir hana, að hún gæti vel hugsað sér að hafa frú Andersen sem herbergisþernu og stofustúlku um helgar þegar hin marg-margrómuðu helgarsamkvæmi fara fram að heimili frú Ingveldar og Kolbeins. - Þó gæti hugsast, bætti frú Ingveldur við, - að þorpararnir Brynjar Vondalykt og Indriði Handreður, já, og jafnvel Máría Borgargagn, væru líkleg til að koma illa fram við frú Andersen, móðga hana og græta með ónærgætinni framkomu og ýmsum sérkennilegum tiltektum sem það fólk hefir vanið sig á. - En við sjáum hvað setur, sagði frú Ingveldur að lokum.
![]() |
Á ekki von á viðsnúningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2020 | 17:32
Fémínístar hyggja á stórátak gegn körlum
Það er óþarflega vægt til orða tekið að fémínístar þoli ekki karlmenn. Hið rétta er að fémínístar hafa örgustu viðurstyggð og viðbjóð á karlkyninu, sem þeir segja að sitji um að nauðga þeim, niðurlægja, þræla út og kasti þeim loks eins og hundshræi í einhverja gjótu eða skurð. Hvað fémínístar ætla sér að gera til að karlmenn verði að siðuðum einstaklengum er trúlega ekki fastráðið, en sagt er að fémínístar hyggi á stórátak í að sarga andskotans gredduna úr kallafjöndunum, en að mati fémínísta greddan undirrót alls ílls í fari karlmanna.
Aunginn veit hvurnig fémínístarnir ætla að bera sig að við að taka ónáttúruna úr körlunum, en vísindafémínístar hafa lengi lagt nótt við dag að reyna að finna upp aðferð gegn greddu karla. Það hefir verið bent á, að áhrifaríkast sé að höggva undan endemunum, en það sé fremur sóðalegt og leiðinlegt í framkvæmd. Þá hafa ýmsar lyfjablöndur verið reyndar, með misjöfnum árangri. Einn kallsauðurinn sem sprautaður var með sona blöndu varð hreint og beint óður; lyfið virkaði nefnilega öfugt við það sem það átti að gera og kallgreyið sprakk af frygð er nú geymdur í leyniherbergi þar sem hann er ekki fyrir neinum.
Þó er sennilega Gottfreð Gottfreðsson læknir og vísindamaður komin lengst í þróun antígreddulyfs. Síðasta sumar varð honum á sú handvömm að sprauta saklausa konu með upplausn sem ætluð var til lægja öldurnar hjá kynóðum dónaköllum. Síðan hefir þessi frú verið óseðjandi og lét vera sitt fyrsta verk eftir heimsóknina til Gottfreðs, að rjúka í fataskápinn heima hjá sér, sópa öllum nærbuxunum sínum saman og bera þær út á lóð og kveikja í þeim og linnti ekki látum fyrr enn brækurnar voru brunnar upp til agna. Síðan hefir þessi kona ekki verið til friðs og gjörðist öfgafémíníst ofan í æðið sem rann á hana við sprautuna Gottfreðs. Það er sem sé allt vont að frétta af árangri fémínísta og Gottfreðs læknis í viðleitni þeirra við að stemma stigu við kynferðisnáttúru karla.
![]() |
Þola femínistar ekki karlmenn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2020 | 00:25
Hálfgerður mr. Bean í framboði í USA og heimsókn herforingjans til frú Ingveldar og Kolbeins
Hvaða hengilmæna ætli þessi maður sé?, Pete Buttigieg er hann víst kallaður, og furðu líkur meistara Bean. Hann gæti svosem verið hvaða íslenskum stjórnmálaflokki sem er, ekki síst þessum skringilegu félögum sem þykjast vera vinstri eitthvað, en er náttúrlega bara samansafn af loddurum, lukkuriddurum og andlegum ófétum. Okkur skilst að maður þessi, sem er á hugsjónapari við Gunnar Smára, frú Ólsen hjá VG, Thorgerði Katrínu, Bjarnaben og Sigmund Davíð, sé kominn í forsetaframboð í Bandaríkjunum fyrir auðvaldsflokkinn Demókrata, sem fífl á Íslandi halda að sé einhverskonar sosialistaflokkur.
Sem kunnugt er þá fer tveggjaflokka alræði auðvaldsins með öll völd í Bandaríkjunum. Saga þessa tveggjaflokka alræðisflokks, er að mörgu leyti hræðileg. Vopnaðar pólitískar árásir á önnur ríki, morð, arðrán og mafísk glæpastafsemi eru ær og kýr þessa viðundurs, sem því miður allt of margir nytsamir og einfaldir sakleysingjar hafa fallið fyrir.
Frú Ingveldur og Kolbeinn tóku eitt sinn bandarískan herforingja af Vellinum inn á heimili sitt. Maðurinn skartaði glæsilegu og vel ræktuðu yfirvaraskeggi og var hinn hressasti. Í upphafi heimsóknar sinnar átti Kanakallinn fullt af péníngum, dollararnir og gægðust upp úr öllum vösum hans og þau sæmdarhjónin og íslenskir vinir þeirra sáu um að dollurunum fækkaði jafnt og þétt í vösum foringjans uns ekkert var eftir. Þegar hinum glaðsinna Bandaríkjamanni varð ljóst að hann átti ekki svo mikið sem túskilding eftir í vösum sínum varð hann bandvitlaus, í dag væri sagt að hann hefði farið í geðrof. Nú voru góð ráð dýr, því fanturinn hafði komist í síma og kallað á lögregluna. Þá hugkvæmdist þeim hjónum að snúa foringjann niður, með dyggri hjálp Brynjars Vondulyktar, Indriða Handreðs og Máríu Borgargagns, færa hann úr öllum fötunum og raka helminginn af yfirvaraskeggi hans. Þegar Hálfdán Varðstjóri knúði dyra lauk Kolbeinn óðara upp fyrir honum að benti inn ganginn á berrassaðan mann með hálft yfirskegg og sagði að þessi náungi hefði ruðst inn eins og hann væri á sig kominn núna. Hann væri greinilega illa geðbilaður og ætti hvurgi betur heima en á Kleppi, helst í einangrun. Hálfdán Varðstjóri sá í hendi sér, einkum á hinu hálfa yfirvaraskeggi, að allt væri satt og rétt sem Kolbeinn sagði, maðurinn auðsjáanlega brjálaður, ef ekki sturlaður, og hann hafði svo sannarlega sært blygðunarkennd góðborgara með nekt sinni og voðalegu látæði. Og þannig fór, að Hálfdán Varðstjóri lagði herforingjann í járn og fór með hann með sér á stöðina, en þar fékk sá beri með hálfa yfirvaraskeggið aldeilis að kynnast íslenskum garpi af hálftröllakyni þar sem Hálfdán Varðstjóri var.
![]() |
Buttigieg með flest atkvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 14
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 89
- Frá upphafi: 1553946
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007