Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.5.2024 | 16:09
Katrín Johoð Bjarna og Davíðsdóttir Gissurarson
Katrín Johoð Bjarna og Davíðsdóttir Gissurarson. Er henni ofgott, þessum ógurlega ,,sameignarsinna" sem Jón Steinar segir hana vera, að skapa sér hagnýta sameign með Sjálfstæðisflokknum; hún er nú, kérlíngin, af gömlu reykvísku borgarastéttarstandi.
Sem glæsileg dæmi um sameignarhyggju Katrínar Johoð Bjarna og Davíðsdóttur Gissurarson frá Valhöllu, er hrifning hennar á sameign Samherjafrænda á stórum stykkjum af fiskveiðiauðlindunum Íslands og sameign Gwöndar okkar hérna Kristjáns á Brimi á öðrum feykna stórum stykkjum af fiskveiðiauðlindinni með sjálfum sér. Þessi tvö litlu dæmi sýna og sanna svo ekki verður um villst, að Katrín Johoð Bjarna og Davíðsdóttir Gissurarson ef ,,sameignarsinni" á heimsmælikvarða, ekki síst í ljósi sölu hennar og Bjarnaben á hlutum í Íslandsbanka til föður Bjarna.Og nú er hún mætt til leiks í húsi föður síns að Hádegismóum, þessi annálaða sameignarjurt, ásamt með systur sinni úr auðvaldinu, henni Höllu Tomm. Á eftir verður andakt með kertaljósum, gulli, reykelsi og myrru. Brátt verða Bessastaðir svelgdir. ,,Morgunblaðið og Matti Jó, mister Benediktsson og NATO. Heill sé nýfrjálshyggjunni og nýtísku ránsaðferðum auðvaldsins. Fílí-Romm-Bomm-Bomm ...
![]() |
Forsetaframbjóðendurnir mættir í hús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2024 | 14:29
Fyrst Gnarrið, - svo fylgir Katrín á eftir
Déskoti er nú Gnarrið alltaf sniðugt og fyndið; það leikur bara allt í höndunum á þeim manni. Af bestu manna yfirsýn er svo að sjá að Gnarrið taki jafnvel Katrínu Jakobsdóttur fram þegar kemur að gamanmálum og hressilegheitum, Katrín er sem þjóð veit gríðarlegur hressari og ævinlega með spaugsyrði á vör, oft óafvitandi.
Og nú hefir Gnarrið gefið nærbuxurnar sínar og verður héðan í frá nærbuxnalaus og eftirvill skólaus líka. Nú standa vonir okkar allra að Katrín Jakobsdóttir fari að dæmi Gnarrsins og gefi sínar nærbuxur vandalausum og venji sig á að striplast um götur og göngustígi borgarinnar sem hana ól, innan um þá borgarastétt sem skapaði hana í sinni eigin mynd. Þó svo að þetta einkennilega fólk, Gnarrið og Katrín, séu þessa dagana í forsetaframboði þá vekja fréttir dagsins vonir fólksins í landinu um nærbuxnalausa daga á Bessastöðum og að næsta forseta Íslands auðnist að valsa um og gumsast úti og inni jafn innilega nærbuxnalaus og heimilishundurinn.Það lyftist brúnin á frú Ingveldi þegar hún leit augum fréttina um nærbuxnagjafmildi Gnarrsins og gjörði hún þegar ráðstafanir til að komast yfir umrædd nærhöld. Hún lét þess og getið að hún vildi einnig eignast samsvarandi fatnað Katrínar og væri krafa hennar að flíkurnar væru bæði notaðar og óþvegnar, til þess að hún gæti notið þeirra að fullu. Af þessu tilefni sagði frú Ingveldur nærstöddum unglingum að því þegar hún, á sínum yngri árum þaut aftur á bak og áfram um landið öldungis nærbuxnalaus og gjörði sér að leik að smita ölvaða strákadjöfla af leiðinlegum og óhrjálegum sjúkdómum, sem helst herjuðu á miðvígstöðvar þeirra.
![]() |
Jón Gnarr gefur nærbuxur sem keyptar voru of stórar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2024 | 23:32
,,Slysaskot í Palestínu" - enn og aftur
Nema hvað? Auðvitað var það slysakot. Um annað er ekki að ræða hjá mannvininum, mig langar til að segja mannkynsfrelsaranum, Benjímín Nethanyahu. En það þarf auðvitað sérstakan sálarþroska og andlegan styrk til að sprengja og brenna konur og börn á flótta í tætlur - þann styrk hefir hr. Netahanyahu og hans bræður. Ekki er verra að margir Íslendingar, sumir ósköp voldugir, halda með Nethanyahu og Ísrael í endalausri viðleitni þeirra í að útrýma því vonda villufólki, Palestínumönnum, Hamösum, konum og börnum.
Að hr. Nethanyahu sé með fulla fimm, eins og það er kallað, er heldur vafasamt og raunar með öllu útilokað. Það verður að segjast alveg eins og er, að það að skjóta, sprengja og brenna konur og börn er kaldranalegt sport og sannast sagna andstyggilegt. Og að vera landræningi þar að auki, gerir það að verkum að við liggur að maður fái óbeit á kallrassgatinu hr. Nethanyahu og hans hyski.
Skáldið Kristján frá Djúpalæk varð eitt sinn fyrir ljóðrænum innblæstri út frá verkum fyrirrennara hr. Nethanyahus - kannski var Nethanyahu þá þegar mættur á svæðið og tekinn til starfa. Ljóð Kristjáns á afskaplega vel við í dag, rétt eins og þegar skáldið orkti það á sínum tíma:
,,Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.
Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn".
![]() |
Hörmulegt slys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2024 | 19:56
Hið fordæmalausa heilindatröll
Á bestu auglýsingatímum sjónvarpsstöðva í dag má sjá frú Katrínu Jakobsdóttur, fyrrum forsæðisráðherra, glenna sig og gaspra um að hún sé svo uppfull af heilindum að slíkt hafi aldrei þekkst áður. Ýmsum er spurn hvernig á svona ógurlegum heilindum standi og hvurjum Katrín hafi sýnt þessi fordæmalausu heilindi, því heimildir um þessi ósköp hennar liggja víst ekki í augum uppi og því síður í augum úti.
Eftir nokkra eftirgrennslan kom þó í ljós að meint heilindi Katrínar Jakobsdóttur eiga eingöngu við yfirstéttina og efrimillistéttina, sægreifa, bilaða dólgafémínísta, og yfirleitt alla þá sem Katrín telur að hún geti grætt persónulega á péníngum og veraldlegri upphefð sem aðeins er í boði hjá burgeisastéttinni. Ekki er þörf á að taka fram að heilindin millum Katrínar betri borgara þjóðarinnar eru bæði hugheil og innileg. Snemma þókti Katrín sérlega meðfærileg og leiðitöm lævísum sjakölum á borð við Stenngrim Joð, Álfheiði í fiskeldinu og Swabbófjölskyldunnar. Og í örmum þessara gullslegnu eigenda sinna barst hún eins og olíubrák á vatni inn í töfraheima útgerðarauðvaldsins og annarra dugandi fjáraflamanna. Síðan hefir hún verið sameign auðvaldsins, bæði þess gamla og þess nýja, sem inniheldur meðal annars aumingjana úr Flokkseigendafélagi VG.Þetta er nú allur galdurinn á bak við heilindi Katrínar Jakobsdóttir. Og nú ætlar auðvaldið að planta leiguþýi sínu í líki Katrínar Jakobsdóttur niður á Bessastöðum til að ekkert verði til þess að stöðva nauðsynlegt fjármálabrall þess. Það er auðvitað alvarlegt mál ef svo slysalega tækist til að í embætti forseta Íslands mundi veljast einstaklingur sem tæki upp á þeim andskota að neita að skrifa undir lög sem heimiluðu sölu á ríkisgóssi eins og Landsvirkjun og Landsbanka, eða heimiluðu vopnakaup, stofnun íslensks hers, þátttöku í stríðlátum með NATO, inngöngu í ESB og öðru í svipuðum dúr. Af þessu má sjá að mikið er undir og því hefir auðvaldið sammælst um verðlauna Katrínu með forsetaembættinu, því henni er öðrum fremur treystandi til að þvælast ekki fyrir athafnaskáldum og dugnaðarhestum. Ef hin vanþakkláta og leiðinlega íslenska þjóð vill ekki kjósa Katrínu til Bessastaða, þá mun auðvaldið verðlauna hana með sendiherraembætti, rétt eins og það verðlaunaði Swabbó eitinn Sendiherra og Árna Þór.
![]() |
Forsetaembættið ekki valdaembætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.5.2024 | 23:49
Þá tók Drotin Allsherjar í taumana
Fyrst Hera hafði ekki vit á að segja sig úr keppninni þá tók Drotin Allsherjar í taumana og lét hana falla úr keppni með fyrstu ferð. Það fer enginn með fullu viti út að skemmta sér með blóðgrimmum barnamorðingja, eða er það nokkuð? Og að taka þátt í skemmtun evrópskra sjónvarpsstöðva með uppvakningum, sem ekki eru einusinni í Evrópu, er afar kúnstugt, að ekki sé sagt fáránlegt. Hvur fjandinn ætli það sé sem knýr Íslending til að taka þátt í þessháttar ófögnuði?
Að vísu sátu sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, hönd í hönd og horfðu á Heru af fullkominni lotningu og leyfðu sér að öfunda hana af gullkjólnum og þessum áleitnu sögusögnum að undir gullkjólnum hafa Hera verið í demantsnærbuxum. Og Kolbeinn tautaði útúr sér milli samanbitinna tannanna, að ,,djöfull mundi hún frú Ingveldur vera skæsleg í demantsnærbuxum og dragast nærri því að vera hálfpartinn sexí í soleiðis múndéríngu".
Í kveld hringdi svo Máría Borgargagn algjörlega ær í sína bestu vinkonu, frú Ingveldi, og hótaði henni og koma og brytja hana niður eins og rolluskrokk sem verðlaun fyrir drápuna sem frú Ingveldur orkti í háðungarskyni til hennar á vissum tímamótum í lífi Borgargagnsins. Því sannleikanum verður hver sárreiðastur. Og það er nú svo. Að afloknu símtali þeirra vinkvennanna, tók frú Ingveldur fram haglabyssuna og fyllti hana með skotum og bjó sig þannig til varnar undir hugsanlega árás Borgargagnsins. Enn er allt með kyrrum kjörum, þegar þetta er ritað, á og við heimili frú Ingveldar og Kolbeins, hvað sem kann að gerast þegar líður á nóttina.
![]() |
Hera komst ekki áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.5.2024 kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2024 | 17:36
Afmælisdrápa
Frú Ingveldur hefir nú orkt afmælisdrápu til heiðurs aldavinkonu sinni og samherja og er það nú birt hér, eða öllu heldur frumflutt, með leyfi höfundar:
Sjötug orðin Sathans drósin,
svínsleg á litinn, einnig ið neðra.
Glímdi hún stundum við gelti í rúmi;
gaf hún þeim ádrátt af breimandi losta.
Sveik hún að vonum seggi alla;
þeir sárlega grétu í einsemd á eftir;
Fjandinn þá eigi, sá ferlegi draugur,
frísi þá niður und réttarsteini.
Sjötug nú kérlíng sullast í mori
sveitt upp í hársrætur illum af gjörðum.
Skakklappast heima skjátan sú arna,
skríður um gólf með buxur um kálfa.
En á eldhrauni uppi hvar Andskotinn ríkir
átti hún sé bæli með illum nárum.
Vond er þar lyktin, verri eru ráðin,
verstur samt Handreður í geldingsbríma.
Kolbeinar nokkrir, klámfengnir ruddar,
kynntu upp þarminn að skjátunni þeirri.
Gjörðist hún fræg meðal gríðardólga,
er gatið þöndu prikum hörðum.
Gjörist nú aldin og grenjar árin,
sem geystust framhjá í yxnisblossa.
Lofar samt ætið lostann og hórinn
og líkamsins vessa er óðum nú þorna.
Því miður er ekki með nokkru móti hægt birta fjórða erindið í afmælisdrápunni, því það er svo óprenthæft að varðar við lög og stjórnarskrá að láta það birtast nokkurs staðar opinberlega þar sem það kanna að bera fyrir augu fólks. Í kristnirétti er og áréttað, að orðnotkun sú er frú Ingveldur brúkar í fjórða erindinu sé guðlast af því tagi sem útheimtir líflát þess er það lætur sé um munn fara eða hefir um hönd. Þó er mun leyfilegt að sýna upphaf þess fjórða, en það hljóðar svo í allraheilagra nafni: ,,Murrar og kurrar í nára Borgargagnsins blíða".
![]() |
Vill hafa ungan ráðgjafa sér við hlið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.4.2024 | 20:37
Nú er stuð á Mogga við að flagga nýju nytjatelpunni
Á Morgunblaðinu eru miklar annir þessa dagana. Ber þar hæst óeigingjörn barátta eigenda blaðsins og starfsmanna fyrir því að koma sinni konu, Katrínu Thoroddsen Jakobsdóttur á Bessastaði. Þetta streð Morgunblaðslærðra minnir okkur á hve eitursnjallt var af Sjálfstæðisflokknum að senda flugumann sinn, téða Katrínu Thoroddsen Jakobsdóttur, inn í innsta hring VG, sjálft Flokkseigendafélagið, láta hana leika á háborgaralega hégómagirnd Álfheiðar, Stenngrims og Svavarsfjölskyldunnar, sem ekki er lítil, og sitja loks uppi með heldur sigurstranglegan forsetaframbjóðanda Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins.
Á Mogganum er mikið stuð,
menn þar trúa þungt á Guð.
Með nytjatelpu úr nýrri átt
sem nefið flennir upp á gátt
ætla þeir gamalla harma að hefna.
Í hatursvímu á Álftanes stefna. Svo er nú með það. Hins vegar hafa gægsnin í VG enn ekki leyst frá skjóðunni og úttalað sig um hvernig í ósköpunum á því standi að þau hafi alið og uppfóstrað forsetaefni fyrir Sjálfstæðisflokkinn, efrimillistéttina og yfirstéttina. Og hvað ætla þau að gera af sér eftir að forsetakosningarnar eru búnar? Munu þau grafa sig í jörð að hætti hvimleiðra nagdýra og koma upp í Valhöllu Sjálfstæðisflokksins? Eða munu þau hverfa upp í heiðríkjuna og láta sem þau hafi aldrei verið til? Hvar var hinn raunverulegi tilgangur með öllu þessu VG-tralli, loddaraleiknum, óheiðarleikanum og svikunum?
![]() |
Afþakkaði orðuna en hyggst veita hana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2024 | 13:36
Stand á dómgreindarlausri hjörð. Annir og áskoranir fram undan.
Hvernig í fjáranum ætli standi á því að framsóknarhjörðin á flokksþingi gömlu Framsóknamaddömunnar skuli hafa látið sér detta í hug að endurkjósa Sigurð Ingi sem ráðsmann yir Framsóknarfjósinu og Fjóshaugnum líka? Er þessi villulýður gjörsamlega dómgreindarlaus? - og siðlaus og jafnvel siðblindur í ofanálag? Það vita svo margir að Sigurður Ingi er bölvaður slóði og lydda sem ætti alla daga að liggja í felum undir pilsum gömlu Maddömunnar, eins og pestin er nú dálagleg þar að sögn kunnugra manna og kvenna.
Það kemur engum á óvart þókt Litla Gula Hænan hljóti veglegt endurkjör, en að það skuli kjósa á nýjan leik dreng, sem kunnugastur er af slagsmálum við frændgarð sinn í Dölum vestur og þar fyrir utan að vera svo skelfilega róttækur kommúnist að hann hreinlega varð að ganga í Framsóknarflokkinn, hvernig sem það nú kemur heim og saman í hausnum á þessum kostulega pilti. En það er nú svo með þetta eins og annað sem fengið hefir að gerjast í Framsóknarfjóshaugnum og undir pilsum og nærhaldi Framsóknarmaddömunnar er allt saman meira og minna stórskemmt og eitrað.Nú stendur fyrir dyrum að vinna að því að sameina Framsóknarflokkinn og Samfylkinguna, með öðrum orðum, að gamla Framsóknamaddaman taki bróður sinn, Krataeðlisaumingjann á löpp, og stingi honum undir rófuna. Það held ég verði aldeilis geðslegur samvinnujafningur úr þeirri blöndu. Sjálfstæðisflokknum er fyrirhuguð sameining mjök at skapi og mun hafa verkfræðilega yfirumsjón með sameiningunni, því greindarvísitalan er almennt lág í Framsóknarfjósinu og á Krataeðlishjáleigunni. Það er margt að gerast þessa dagana í skriflabúðinni hjá auðvaldinu og og í mörg horn að líta, ekki síst hornið þar sem Davíð, Hanez, Finnur, Óli á Miðhrauni I., Nonný Boldwin of Sighvati hafast við.
![]() |
Sigurður Ingi endurkjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2024 | 17:08
Málaliði frá Kvikubanka. Merkisburður jafnaðarmennsku. Og samvinnuhugsjón Framsóknar
Ónei, Samfylkingin er ekki merkisberi jafnaðarstefnu af nokkru tagi, ekki nema Kristrún Frostadóttir eigi við þessa auðvaldsstefnu sem krataeðlisfólk hefur lengi uppnefnt jafnaðarstefnu. Samfylkingin er, eins og hinn dapri forveri hennar, Alþýðuflokkurinn, grjótharður markaðshyggjuflokkur, sem byggir grundvöll sinn á kapítalisma, auðvaldsþjóðskipulagi, arðráni og nýfrjálshyggju, með dálitlu af smáplástrajafningi, sem að áliti krataeðlispaura jafngildir ,,merkisburði jafnaðarstefnunnar". Ja, þeir geta verið gamansamir í blekkingavaðlinum þarna hjá krataeðlisflokknum, þókt sumum finnist gamanið grátt og heldur óviðeigandi.
Síðan framámenn, eða öllu heldur framákonur, í Samfylkingunni réðu sér kvenkyns málaliða frá Kvikubanka fínmannafélagsins hefir fylgi Samfylkingarinnar heldur en ekki rokið upp á við. Kvikuprinsessan er vel séð og tekur lítinn þátt þjóðmálaumræðu og þrasi á Alþingi sinnir hún lítið. Að sögn frú Sæland, sem er einn errilegur alþingiskvenmaður, þá lætur Kristrún málaliði sig hverfa þegar erfið mál eru til umfjöllunar til þess annað hvort fela vanþekkingu sína eða forðast á fá á sig stimpil hávaðaseggs og/eða rifrildisguddu. Þetta er nú merkisberi jafnaðarstefnunnar á Íslandi. Þá er ferilskrá merkisbera jafnaðarstefnunnar, Kristrúnar Frostadóttur, ekkert slor: Heimdallur, Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn, Samfylkingin, ásamt með góðri blöndu af lærdómi í háskólahagfræði yfirstéttarinnar og braskaranna og praktískri hagfræði fyrir sömu stéttir í Kvikubanka. - Það er ekki nema von að við borð liggi að hinir hugumprúðu ,,jafnaðarmenn" í Samfylkingunni haldi vart vatni yfir svo magnari ferilskrá nýútsprungins jafnaðarforingja þeirra. Enn þann dag í dag eru liðsmenn Framsóknar svo ófyrirleitnir og heimskir, að þeir hika ekki við að halda því fram að Framsóknarflokkurinn sé samvinnuflokkur og að þeir sjálfir séu samvinnumenn. Samvinnuhugsjón þessa forherta hyskis gengur þó einungis út á að vera í auðvalds- og arðránssamvinnu við Sjálfstæðisflokkinn, Þorstein Má og Óla útvegsbónda á Miðhrauni I. Þar með er samvinnumennska húskarla og griðkvenna gömlu Framsóknarmaddömunnar upp taldir. Sama má segja um viðrinin í Samfylkingunni sem halda því fram að þau séu ,,merkisberar jafnaðarstefnunnar": Þeirra jafnaðarstefna er að vera sem jafnastir Sjálfstæðisflokksaðlinum í auðvaldstilburðum og nýfrjálshyggju, ásamt óforskömmuðum sleikjuskap við skammstöfuð óþverrabatterý eins og NATO, ESB og USA. Fari sem nú horfir í skoðanakönnunum fáum við Íslendingar samstjórn auðvaldsflokkanna Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins eftir næstu kosningar; og allt fellur í sama rassfarið og áður.
![]() |
Kristrún varar flokksmenn við kæruleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.4.2024 kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2024 | 20:06
Af vettvangi dagsins
Berlæra í brunagaddi
blessuð dúfan á hækjur settist.
Stéttina ákaft ofan í taddi,
út frá henni hroðinn slettist.
Í snatri rauk inn í ráðherrabílinn,
rösk og glaðbeitt hún tryllir lýðinn.
En hver er berserkurinn á Langholtveginum? Mjög sennilega er um einn af þessum óðu nýfrjálshyggjumönnum að ræða. Kannski var þetta forsetaframbjóðandi í virkri kosningabaráttu? Það er vel trúlegt; eitthvað verða þessi óskabörn þjóðarinnar leggja á sig til að ná augum og eyrum þjóðarinnar. Hver man ekki eftir bæjarstjórnaroddvitanum sem vóð fyrir kosningar milli húsa og hótaði kjósendum eldi; bar sig til við að berja heimilisfeður og gilja mæður barnanna ef það andskotaðist ekki til að kjósa hann og hans flokk á kjördag. Þetta gekk eftir og bæjarstjórnaroddvitinn fékk glimrandi kosningu og hélt embætti sínu með auknum meirihluta.Nú tíðkast orðið hin stuttu pils innan ríkisstjórnarinnar, sem óvíst er að þungavigtarmenn stjórnarinnar fái staðist til lengdar. Það væri þriflegt afspurnar, svona útífrá, fyrir almennt stjórnarfar og siðferði í landinu, ef þinglið og ráðherrar færu í stórum stíl að klæða sig á lostafullan hátt í vinnunni. Það er ekki nema rétt á mörkunum að maður mundi trúa því ef forsetanefnan skerst ekki í þann ljóta leik og sviptir þingmenn stuttpilsum og g-strengjum áður en úr verðu ein allsherjar orgía.
![]() |
Gekk berserksgang á Langholtsvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.4.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 50
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007