Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Það vinnur enginn sitt dauðastríð

x37Eins og við var að búast er fátt um varnir hjá undanrennuungunum í VG þegar kemur að því að verja flokkssmánina þeirra frá útrýmingu í næstu alþingiskosningum. Þegar Katrín hin burtflúða Jakkó er gagnrýnd heitir sú gagnrýni ,,kvenfyrirlitning" á máli undanrennulýðsins, væntanlega á það sama við þegar Swandeesý, Jólatréð og Álfheiður eru teknar til bæna. Og sennilega á hið sama við þegar gemlingurinn Stenngrimur Johoð er tekinn í gegn eins og hann hefir til unnið. Já, kæru félagar, þá Stengrimur er gagnrýndur er það kvenfyrirlitning, en ekki að hann hafi orðið uppvís um svik eða afglöp.

Reyndar er Jódís í undanrennunni allra skemmtilegasta fyrirbrigði og undur lík Álfheiði, Kolbrúnu Halldórs og Swandeesý. Ef svo ólíklega vill til að VG takist hið ómögulega, að vinna dauðastríð sitt, og fái að líkum sæti við hlið Frelsarans við hástól Drotins, má búast við því að Jódís fái í framtíðinni aðild að gullsölum gamla Flokkseigendafélagsins, sem á og rekur þrotabúið.

En að fela sig bak við orðið ,,kvenfyrirlitning" í hvert skipti sem eitthvað bjáta á er ósköp svona lítilmótleg, eiginlega asnalega hlálegt, ófyrirleitið og barnalegt. En þeir sem nota þetta orð, og aðra álíka orðaleppa, verða náttúrlega að eiga það við sjálfa sig, að með þessháttar framferði eru þeir í leiðinni að smána sjálfa sig og niðurlægja. Gagnrýni fyrrum flokksmanna í VG og annarra sósíalista á Katrínu Jakobsdóttur á nefnilega fullan rétt á sér og á ekkert skylt við kvenfyrirlitningu og obbinn af gagnrýni annarra á þá konu er á sama veg.
Það væri ugglaust best fyrir Jódísi og aðra undanrennuunga á svikatjörn Stengrims, Katrínar og Álfheiðar, að átta sig á því að enginn vinnur sitt dauðastríð, ekki heldur VG.    


mbl.is Orðræða um Katrínu einkennst af kvenfyrirlitningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðureign Hálfdáns Varðstjóra við mótmælendur í vetur leið

hrútur2Það urðu djöfull mikil slagsmál í bænum þegar þegar Heimdellingar og ungir jafnaðarmenn tóku sig saman og mótmæltu banni við hvalveiðum í vetur leið. Þá vildi svo illa til að Hálfdán Varðstjóri var á vakt og kom hann að vörmu spori til að skakka leikinn, sem var þó ekki auðvelt verk. Því þegar Hálfdán og menn hans mættu á svæðið höfðu þó nokkrir fullorðnir sjálfstæðismenn og framsóknarkratar bæst í hóp mótmælenda og voru drukknir.

Eins og hendi væri veifað laust varðsveit Hálfdáns mótmælenda saman. Hálfdáni Varðstjóra varð þá fyrst fyrir að rífa upp nokkuð gilda trjáhríslu, sem hann brúkaði fyrsta kastið sem barefli á óþjóðalýðinn. Heimdallsbörnin veinuðu upp yfir sig og tróðust hvurt um annað þvert, en ungu jafningsmennirnir fóru strax að grénja og lögðust ofan í blómabeðin á Austurvelli - þeim var ekki við bjargandi fremur en venjulega. Hins vegar voru fullorðu sjálfstæðismennirnir, sumir þeirra þingmenn og gott ef ekki einhverjir ráðherrar, og framsóknarkratarnir verri viðureignar; þeir steyttu görn og blésu af fólsku, svo Hálfdán mátti grípa til sterkara meðala til hemja þessi skaðræðis villudýr.

kol1Gjörðist þá í skjótri svipan að menn Varðstjórans sprautuðu bæði táragasi og kósangasi í lítratali í glyrnurnar á framsóknarkrötunum og voru þeir þá þar með úr sögunni. Hins vegar greip Hálfdán Varðstjóri sjálfur og með eigin hendi til eins sjálfstæðisfloksstuddans, það var langur sláni, luralegur, með belginn yfirfullan af sterkum bjór. Og Hálfdán hafði aungvar vöbblur á að þessu sinni, heldur jafnhattaði sjálfstæðisdurginn og kastaði honum sem heypoki væri yfir tveggja metra háa girðingu. En handan við girðinguna tók skríllinn við sjálfstæðismanninum og flengdi; er mælt að önnur eins húðstrýking hafi átt sér stað á Austurvelli síðan Gvendur Fjósarauður var böðull og rassskellti menn og konur, sem gert höfðu eitthvað af sér, fyrir valdstjórnina. Skömmu síðar var orrustunni og mótmælunum lokið með fullnaðarsigri Hálfdán Varðstjóra.  


mbl.is Blæs á fullyrðingar mótmælenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samanburður á ölvunaraksti Timburlaka annars vegar og Kolbeins hins vegar

drunk1_1048452.jpgSvo þeir tóku þá þennan andskotans Timburlaka draugfullan við akstur bifreiðar! Þvílíkur bölvaður ódráttur sem þessi mannaumingi er. Það er ekki nema ár síðan Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður ók Rangeróver bifreið sinni, blinda- augafullur, út í skurð, eða öllu heldur ofan í gryfju, sem áður geymdi fjóshaug en hefir um langt skeið verið hálffull af einhverri skuggalegri leðjudrullu, samblandi af mold, leir, kúaskít og dauðum hundum. Kolbeinn taldi að honum væri heimilt að aka um ölvaður eins og honum lysti, af því að hann er framsóknarmaður og góðkunningja ráðherra.

En Timburlaki söngmaður á sér aungvar málsbætur; hann settist af ráðnum hug undir stýri í óviðunandi ástandi og ók á brott í loftköstum. Það má þykja happ að þessi lúðulaki skuli ekki hafa keyrt yfir fjölda manns í þeirri ökuferð er hann stofnaði til með Bacchusi gamla konungi. Kolbeinn okkar skrifstofustjóri drap heldur aungvann þegar hann missti Rangeróverinn ofan í kúaskítsgryfjuna utan við Framsóknarfjósið. En þó allt hafi farið vel að lokum hjá þeim Timburlaka og Kolbeini má þó segja að hurð hafi skollið nálægt hælum.

Í eftirmála af fjóshaugskeyrslu Kolbeins kom í ljós hve vel hann var varinn og tryggður af ráðherrum og þingmennum í gömlu Framsóknarmaddömunnar, því þókt lögreglan kærði hann fyrir ölvunarakstur þá slapp hann frá valdstjórninni án þess svo mikið sem að borga örlitla sekt. Hins vegar má búast við því að Timburlaki verði leiddur til rafmagnsstólsins í New York og grillaður fyrir framlag sitt til ölvunaraksturs. Svona getur nú borgað sig að vera vel varinn af aldurhniginni Framsóknarmaddömu og húskörlum og griðkum hennar.  

 


mbl.is Justin Timberlake handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum og einum ber að axla sinn kross

spark2Hann slær ekki slöku við, karlauminginn hann Gwðne hérna Th. í að útdeila fálkaorðum og riddarakrossum þó svo hann sé að flæmast frá Bessastöðum. Í dag virðist sem karlinn hafi farið hamförum við útbýtinguna og hengt krossa villt, en aðallega þó galið, á brjóstið á allrahanda mönnum, án nokkurs skipulags eða reglu.

Má vera að þetta fitl orðujukk sé í megindráttum gott og blessað. Og þó. Það er eitthvað sjúkt við þennan andskota, fáránlegt eða ónormal. Það er til dæmis einkar hlálegt að sjá kross hengdan utan í Þór nokkurn Sigfússon, svo ekki sé meira sagt. Sennilega hefur nefndur afreksmaður verið krossaður fyrir óeigingjörn störf að tryggingamálum. Það er nú það.

kross1En mest er þó óskiljanlegt, í ljósi þess að Gwöðni Th, er að hrökkast úr embætti, að hann skuli ekki hafa tekið sig til og krossað Bjarnaben í annað sinn í dag, það hefði verið svo vel við eigandi. En ugglaust bætir frú Halla Tomm fyrir mistök Gwðne í sínu fyrsta fálkaorðublætiskasti og skelli góðum og efnismiklum timburkrossi á bakið á Bjarnaben svo honum skiljist að honum ber að axla sinn kross eins aðrir menn.   


mbl.is Sextán fengu fálkaorðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Fjallkvendi valdastéttarinnar nákomið skyldmenni Þorgeirsbola, Móra og Skottu ?

femma3Áratugum saman hafa fjölmargir Íslendingar velt vöngum yfir því hvaða ekkisens uppátæki og uppáfindnig þetta Fjallkonukvendi eiginlega er. Auðvitað hefur enginn komist að nokkurri niðurstöðu, allra síst vitrænni, hvaða bölvaður uppvakningur þer er á ferð sem Fjallkonan atarna. Af hverju við höfðum ekki Þorgeirsbola, Móra eða Skottu fyrir sona þjóðbilunarfígúru er öllum hulið, líka þeim sem tefla þessu óféti fram snemmsumars á hverju ári.

Á Austurvelli, þegar stertimenni auðvaldsins koma saman á 17. júní, er fastur liður að leiða ,,Fjallkonu" eins og kvígukálf á svið og láta hana klæmast á mærðarvoðarlegum ljóðmælum einhvers þeirra skálda, sem auðvaldsspírurnar sætta sig við og teljast jafnvel til þeirra. Kveðskapur sannarlegra þjóðaskálda á borð við Þórberg Þórðarson, Stein Steinarr, Halldór Kiljan og Megas eru að sjálfsögðu víðsfjarri hátíðardagskrám á þjóðhátíðardaginn, en embættismennirnir Bjarni Thorarensen, Matthías Jocc, Hannes Hafstein, ásamt Matta Jó á Mogganum, eru þuldir af Fjallkvendum vítt og breitt um landið, tilheyrendum til ómældra leiðinda.

ingólfurAuðvitað veit enginn hvar og hvenær þetta Fjallkvendi var vakið upp, en skyldleikinn við Þorgeirsbola og Glám hinn svenska er augljós. Máske hefir Fjallkonuauminginn komið upp fyrir misgrip hjá Galdra-Lofti þegar hann freistað þess að særa upp Gottskálk biskup grimma til að hafa af honum Rauðskinnu, en af því riti mun vera hægt að læra galdur sem kenndur var forðum í Svaraskóla. Þess ber að geta, að áður en Galdra-Loftur gerði sig til við að ná Gottskálki biskupi upp á yfirborðið hafði hann tekið þjónustustúlku foreldra sinna, járnað hana, lagt við hana beisli, og riðið henni síðan út og austur, heiman og heim. Ennfremur hafi Loftur barnað vinnukonu að Hólum og sálgað henni, er hann varð vís ásigkomulags hennar, með djöfullegum galdri. Má vera, að Fjallkonan eigi uppruna sinn í öðru eða báðum þessum fórnarlömbum Galdra-Lofts og hafi sloppið laus við áður frágreinda uppvakningartilraun Loft í Hólakirkju og orðið að engli í hugarheimi uppskrúfaðra valdsmanna, sem ráða öllu og eiga allt.      


mbl.is „Bókin er greinilega að rjúka út“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný tegund af vitleysu fundin

fundur3Hér fyrrum var flokkur á þingi, ógn líkur Píritíflokknum, sem hafði til siðs að mæta alltaf drukkinn til eldhússdagsumræðna. Moldfullir jusu þeir úr skálum visku sinnar yfir þingheim þannig að ekki stóð steinn yfir steini. Þetta var álitið léttvægt skítapakk og var enda oftast til vandræða. Svo tók Drotinn, sem oft áður, í taumana og sló þennan flokk til jarðar og hann hvarf blessunarlega út af þingi.

Það var eitt með öðru hjá þessum systur- og bróðurflokki Píríta, að þar gerðu menn oft æsing út af klósettferðum þingmanna Framsóknar, vildu meina að Framsóknamenn misnotuðu aðstöðu sína til salernisferða og héldu heilu og hálfu dagana til við skítverk og hlandaustur; þessa framkomu Framsóknarmanna kölluðu Pírítar spillingu og gjörspillinu. Einhverju sinni brutu tveir þingmenn Píríta upp klósetthurðina í Alþingishúsinu og drógu þaðan út manngarm með buxurnar á hælunum. En þar stungu Píríta fingri í rangan þumal: Maðurinn sem þeir drógu við heldur óvenjulega kringumstæður af salerni í þingsal var ekki Framsóknarmaður heldur róni af götunni, sem hafði laumast í þinghúsið til að hægja sér, því hann hafði satt best að segja verið að skíta í sig.

prestur7Og í gærkveldi kunngjörði þingmenni úr Pírataflokknum, sem er sem kunnugt er systur- og bróðurflokkur gömlu Pírítana, eitthvað sem það kallar ,,nostalgíustjórnmál" og engir aðrir en þeir vita hvað er og enginn hefir áður heyrt minnst á. Þessi sérstaka tegund stjórnmála, nostalgíustjórnmálin, ku að sögn þingmennisins, felast í því ungt fólk hafi vaknað á kjördag í forsetakosningunum og kosið, en þessháttar hefir aldrei gerst í sögu Pírata, sem hugsa sér gott til glóðarinnar því þeir telja að illa lögráða óvitar séu mjög líklegir til að kjósa Pírata ef svo óspilunarlega vill til að þeir vakni á kjördag og vafri á kjörstað.  


mbl.is Ungt fólk hafnaði nostal­g­íu­stjórn­mál­um
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munum við ekki öll eftir Veitingastaðnum Struensee við Amtmannstorg?

kokk2Við munum öll eftir því þegar allt tiltækt lögreglulið var kallað að veitingahúsinu Struensee  við við Amtmannstorg til að stöðva meinta mannakjötssölu, sem viðskiptavinir töldu sig hafa orðið vara við. Þetta var ekkert andskotans aumingjalegt mansalsbrask, heldur fullkomin sala á matreiddum mannaafurðum, hrygg, lærisneiðum og slátri. Allt starfsfólki og rekstaraðilarnir voru handteknir á einu bretti og stungið inn, utan einn þorpari sem reyndi að stinga af frá vettvangi, en á þann óforsjála náunga tókst Hálfdáni Varðstjóra að koma á skoti og fella hann.

Um nokkurt skeið hafði legið í lofti grunur og orðrómur um einkennilegi eldabrögð í veitingahúsinu Struensee, ketið þókti framandi að bragði og áferð og súpurnar og sósur grunsamlegar. Loks var matreiðsludómarinn Sjúrður Sckrall frá Færeyjum fenginn til að panta sér máltíð á Struensee, það voru grísalund, lærisneið í raspi og garðaslátur. Er skemmst frá að segja, að Sjúrður meitreiðsludómarai trompaðist við borðið og gaf málsverðinum þá einkunn að hann væri viðbjóðslegt drullubras úr einhverju ókennilegu hráefni. Ekki þókti Sjúrði borðvínið betra, því hann staðhæfði um leið og hann rauk í fússi frá borði, að þá skyldi hann hundur heita, tíkum .... og skít éta, ef vínið atarna væri ekki þvag úr manni, rosknum karlmanni með einhver sjúkdóm.

hálf10Svo var Hálfdán Varðstjóri og allur hans her kallaður til. Það verður lengi í minnum haft, og fært í letur á annála, að þegar Hálfdán og nokkrir röskir, vopnaðir sveinar undir hans stjórn, drógu vertinn, kokkana, þjónana og uppvaskarana út í járnhlekkjum og höfðu á brott með sér. Þetta var mikið sjónarspil og mörgum sinnum litskrúðugra en þó einhver déskotans grikkur sé tekinn úr umferð fyrir að geyma þrælinn sinn í kjallaranum og láta hann vinna fyrir fæðinu á daginn og kveldin. Hvað varð um veitingastaðinn Struensee og aðstandendur hans veit enginn með vissu, en vertinn og yfirkokkurinn hafa ekki sést síðan, en fullyrt er, að á þessum stað hafi mannakjöt og mannaslátur iðulega verið borið fyrir gesti.  


mbl.is Grunur um mansal ástæða lögregluaðgerða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nonnýboy í stuði í dag, en Jólatréð fallið og Flokkseigendafélagið með

x39Það er bara stuð á Nonnýboy í dag og nú er hann alveg í keng yfir meintri ósvífni! Og við sem héldum að karlskröggurinn væri svo mikið gefinn fyrir ósvífni, ekki síst við öreiga og börn á flótta. Nú er það Jólatréð sem er að ergja hinn siðavanda Nonnýboy og það svo mjök, að hann er við það að leggjast í rúmið undan álaginu sem ósvífninni fylgir.

Samt þorði Jólatréð ekki öðru en að láta undan freka karlinum í Hvalstöðinni og leyfa honum að sarga líftóruna úr á annað hundrað stórhvelum með fallstykkjum sem Stjáni í hvalnum skýtur úr skutlum í langreyðarnar, sem drepast síðan einhvern tíma eftir dúk og disk, - ef þær drepast þá nokkuð. En frú Ólsen í jólatrénu er skíthrædd við Stjána í hvalnum, hún er líka djöfull, logandi dauðhrædd við vesíra á borð við Nonnýboy, Brynjar, Diljá og Gölle, og veit ef hún gerir þeim ekki til geðs fær hún ekki að vera með í glimmerheiminum og jólaskrautsveröldinni. En því miður, frú Ólsen í jólatrénu og skrautinu mistókst herfilega að gera vesírunum til geðs í dag og er búin að vera.

x-vg2En það er líka gaman að sjá hvernig íhaldslarfarnir í Sjálfstæðisflokknum eru búnir að éta undanrennuungana og gamla Flokkseigendafélagið VG upp til agna og ganga nú um með vellíðunarropum, stangandi tægjurnar úr tönnunum á sér með hvalbeinastönglum. Niðurlæging VG-ingar er náttúrlega algjör, þar liggur allt hvað innan um annað í valnum, meðlimir Flokkseigendafélagsins, sem og undanrennuungarnir, og síðast en ekki síst málefnin sem þetta fallna stóð þóktist standa fyrir. Svo vappar Brúarlandsundrið kringum hræið af VG-gumsinu og muldrar um rætur og eitthvað ,,lengra til vinstri", sem hann veit auðvitað ekkert hvað er. 


mbl.is Jón orðlaus yfir ósvífni ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Settur flokksformaður kastar skít í nýráðinn starfsmanns sinn

xvgEkki bregst Brúarlandsundrið beinlínis gáfulega við orðum Sunnu Valgerðar, sem hann er réttbúinn að ráða í launaða vinnu hjá VG, þó svo orðin séu dagsönn, svo sem allir mega sjá. Jú, ég held að Mummurinn hafi verið látinn ganga í VG mjög fljótlega eftir stofnun þess flokks, en hann kom ekki til starfa svo um munaði þar á bæ fyrr hann var gerður, upp úr þurru, að ráðherra í hægristjórn Katrínar og Bjarnaben. 

Nú, en fyrr ekki, rumskar þessi drengstauli með andfælum eftir að Kata er flúin og fylgið nánast upp urið, aðeins þrjú prósent landsmanna telja sig hafa lyst á að styðja ,,róttæka félagshyggjuvinstriflokkinn" hans Stenngrims og hennar Árfheiðar og Swabbófamilíunnar. Og ekki er settur formaður VG, Mummi frá Brúarlandi, fyrr búinn að rifa glyrnunnar, en hann hefst handa við að kasta skít í nýráðinn framkvæmdastjóra sinn á VG kontórnum. Já, hvílík reisn yfir einum settum formanna gjaldþrota loddaraflokks; hann er vís með að reka Sunnu Valgerðardóttur og hýrudraga hana fyrir ólystilegt kjaftbrúk á opinberum vettvangi, þótt hún hafi bara verið að segja satt.

En það er víst sama hvað Mummi, Álfheiður, Swandeesý og undanrennuungarnir þeirra kvaka um hvað þau séu þau nú búin að færa sig ofurlangt til vinstri og orðin sannkölluð guðsbörn í vinstri róttækri félagshyggju, eins og hann Stenngrimur talaði svo oft um í blábyrjun VG, þá trúir þeim ekki nokkur einast maður. Enda er þetta ólánslið fyrst og fremst gríðarlega hámenntað og langskólagengið efrimillistéttar fémínístaskekti, háborgarlegt og snobbar niður fyrir sig af áfergju. Það býst enginn við neinu vitrænu, hvað þá vinstrisinnuðu, úr þeirri átt.  


mbl.is Guðmundur: Sunna ber ábyrgð á eigin orðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Ingveldur verður kærð fyrir kynbundið ofbeldi

ing2oUndir morgun dró til tíðinda á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar og skömmu síðar kom sjúkrabifreið sem sókti húsbóndann og ók honum undir ljósum og sírenublæstri beint á Landspítalann, þar sem hann gekkst þegar í stað undir aðgerð. Þarna var augljóslega um gróft heimilisofbeldi að ræða, sem varð til upp úr því að Kolbeinn, framsóknarmaður og skrifstofustjóri, talaði óvarlega um sigurvegara forsetakosninganna, en eiginkona hans, frú Ingveldur, er einarður stuðningsmaður frú Höllu Tómmassardóttur og sálufélagi. (Til glöggvunar skal þess getið að Halla þessi er dóttir Tómmassar Jónssonar, sem í eina tíð varð að kjallaraíbúð í Hlíðunum.)

Á Landspítalanum kom í ljós, sem menn grunaði, að leyndarlimur hins slasaða var tvíbrotinn, en um tíma var haldið að frú Ingveldur hefði hreinlega slitið liminn af, slíkur var atgangurinn og ofsinn. Ekki tjóaði að handtaka frú Ingveldi við þetta tækifæri fyrir ofbeldisverkið, en hún er sem kunnugt er hamrömm og einstaklega harðhent þegar út í snarpan leik er komið. Þegar Kolbeinn hafði verið í burtu borinn, og lögreglan létt umsátrinu um hús frú Ingveldar, snöri hún sér að Máríu Borgargagni, sem varð sem kunnugt er sjötug á dögunum, og klæddi hana viðstöðulaust úr hvurri spjör að eiginmanni hennar, Indriða Handreði, og Brynjari Vondulykt ásjáandi. En strákar lágu á gægjum á stofuglugg frú Ingveldar og horfðu á aðfarirnar, sem kættu þá verulega.

Þegar læknar höfðu gert að sárum Kolbeins og hann kominn úr bráðri lífshættu, sendu þeir hjúkrunarkonu með hann upp á stofu 21. þar sem honum var haldið sofandi fram eftir degi. Þegar hann rankaði við sér, rétt í þessu, spurði hann fyrst af öllu hvar ,,andskotans kérlíngarnybban" væri, því hann ætlaði sér að leggja fram kæru á það ómenni við fyrsta tækifæði, þar eð ekki væri nóg með að hún væri ofbeldissvín, heldur væri hún fullkomin óvætti, sem ekki ætti að fá að ganga laus í siðaðra manna samfélagi. Hann bætti því við, að ofbeldisverk frú Ingveldar væri kynbundið ofbeldi, byggt á fyrirlitningu á kynfærum karlmanna og því hefði farið sem fór í morgun. 


mbl.is „Heiður lífs míns“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband