Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
7.6.2022 | 21:23
Svipleg örlög Jónasar skálds, er orkti ljóðið um Borurnar
Þá Borurnar bárust að landi
var báturinn sokkinn í mar.
En aumingja kvendin vóru illa farin
og ein þeirra mesta skar.
Þeir drógu þær upp og demdu í bað,
því daunillar voru þær þá
og grenjuðu af íllsku og góluðu af kennd;
glenntar með kjaptinn á ská.
Sjá Borurnar hvæsa og byltast við strönd
bláar af kulda og drukk.
Allar fengu þær ærlegan skell
og allar þráðu sinn kukk.Svona orkti skáldið Jónas um Borurnar, sem hann þekkti persónulega, og voru honum sannur innblástur og áhrifavaldar í skáldskap hans. Sem kunnugt er fannst skáld þetta loks dautt í fjörunni undir Faxabótarkletti. Var talið að Borurnar hefði villt honum sýn, lokkað hann til undir klettinn og misþyrmt honum meðal annars með kynjuðu ofbeldi. Ekki vildu þó allir trúa þessari skýringu á fyrirvaralausu andláti Jónasar. Einn þeirra var síra Baldvin, prestur og prófastur til Gemsufallaþinga. Síra Baldvin vildi meina að skáldið hefði komist í kast við útsel þar í fjörunni, ef ekki hreinlega rosmhval. Síðar vöknuðu grunsemdir með síra Baldvini um að skáldið Jónas hefði verið myrtur á lúalegan hátt. Af því tilefni varð hinum stórbrotna kirkjuhöfðingja að orði:
Hvur myrðir skáld um myrka nátt
á morknum þarahaug?
Var þat Hálfdán eður Handreður?
Eða helvítið Kolbeinn sem saug?
![]() |
Bárurnar komnar í land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.8.2023 kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það mátti búast við þessu. Hún skítti í rúmið hjá honum, rífði kjaft og skítti aftur í bólið. Einhver sagði oss að kveld nokkuð hafi Jonni Depill, allsendis hrekklaus, gengið til hvílu, smeygt sér undir sæng og hafnað í klístrandi taðbeðju, ættaðri frá ektakærustu hans. Það sér hver maður að við slíkan djöfulskap er íllt að búa, og Depill auminginn velti sér upp úr hroðanum án þess að geta rönd við reist, enda vissi hann ekki hvers kyns var fyrr enn allt of seint og kukkurinn kominn upp í handarkríka.
Trúlega verður bið á því að frúin Amber, dregið af nafnorðinu amboð, nái sér í karlmann til búskapar og ugglaust mun aunginn heldur hætta sér út í einnar nætur ,,gaman" með þessu óhreinláta kvendi. Svo einkennilegt sem það nú er, þá hefir værðarklerkurinn Atgeir p. Fjallabakssen fylgst af áfergju með málaferlum Depils og Amboðs. Og þegar þar að kom að sagt var frá saurnum í sænginni, dró sálnahirðirinn djúpt að sér andann, sló sér á lær og sagði stundar hátt: - Gott gott! Upp á síðkastið hafa messur séra Atgeirs orðið æ undarlegri og torskildari. En þessi kyndugheit karlsins fóru að vekja áhuga og messusókn hjá honum jókst svo um munaði og nú er sóknarnefndin farin að tala um að stækka helgidóminn.Þegar síra Bandvin heyrði af því að séra Atgeir talaði um fátt annað í stólræðum sínum en einhverja kvikmyndaleikara, sem eru síra Baldvini með öllu ókunnir, fór hann að leggja betur við hlustirnar. Hann varð þess vís, að séra Atgeir væri orðinn rúmlega hálfbrjálaður, lagstur í geðrof, eins og það heitir, og byrjaður að væta rúmið að hætti blautbarna, þá var presti og prófasti þeirra í Gemsufallaþingum nóg boðið og hann hraðaði sér suður til að taka í taumana. Síra Baldvin kom að stéttarbróður sínum í áköfum faðmlögum eina af súlunum í kirkjunni. Nú, síra Baldvin greip aftan í hálsmálið á hinum geggjaða manni og skók hann til og frá svo annað slagið vissu iljar séra Atgeirs p. Fjallabakssen upp. En þegar síra Baldvin sleppti takinu á séra Atgeiri, leit sá síðarnefndi raunarmæddur upp á velgjörðamann sinn og mælti með kjökurhreimi röddinni: - En hún taddi í rúmið hjá honum og hann skeit sig allan út! Það getur Guð aldrei fyrirgefið.
![]() |
Dómurinn féll Depp í vil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það skal upplýst að maðurinn sem gekk berserksgang við hotél í Reykjavík í nótt heitir Brynjar Vondalykt og ástæðan fyrir géðvonsku hans og stjórnleysi var áfengisnautn og brundíllska á lokastigi. Áður en tókst að yfirbuga Brynjar hafði hann kastað grjóti í höfuð friðsams borgara og núið andlitinu á öðrum borgara upp úr hlandpolli á gangstéttinni. Hann var færður af starfsmönnum Hálfdáns Varðstjóra til vistar í fangaklefa við hliðina á skrifstofu Varðstjórans. Upp úr hádegi er búist við að Hálfdán mismuni Brynjari úr húsum sínum og út á strætið, það er að segja ef fyrrgreindur krankleiki Vondulyktarinnar hafi linast til muna frá því nótt. Í morgun þókti mönnum auðsýnt að Hálfdán Varðstjóri væri með glóðarauga eftir annir næturinnar og er líklegt að Vondulyktinni hafi tekist að koma höggi á Varðstjórann er þeir áttust við í fangaklefanum.
Undir morgun hringdi Hálfdán í frú Ingveldi og fór fram á að hún sækti fangann Brynjar Vondulykt og líknaði honum. Þá kom upp úr dúrnum að skapsmunir frúarinnar voru ekki í sem bestu lagi og þolinmæðin upp á fáa fiska. Hún sagði Hálfdáni sem sé að gæti haft sína aumingja og öfugugga sjálfur til síns eigin brúks, Brynjar Vondulykt sækti hún ekki að sinni. Svo bætti hún því við að hún hefði haft tvo ráðherra ríkisstjórnarinnar uppí hjá sér og Kolbeini í nótt og hún væri örþreytt eftir atganginn, því ráðherrarnir hefðu verið þurftafrekir en þó linjulegir og væmnir í hvílubrögðum.
Staðan í augnablikinu er því þannig að Brynjar Vonalykt liggur í járnum á gólfi fangaklefans, froðufellandi af geðtryllingi sem brjálæði er líkast. Þá er ástandið á Máríu Borgargagni ekki sem best þessa stundina, en hún lýsti því yfir við blaðamann, að henni liði eins og reyttri hænu að neðan eftir að hafa farið í kviðskeggsnyrtingu á föstudag síðasta. Annan eins djöfuls fant og fávita hefði hún ekki fyrirhitt lengi eins og þennan bölvaðan snyrti og hárskera. Maður Borgargagnsins, Indriði Handreður, lögfræðingur og veraldaraumingi, hefir og átt í mesta stappi við konu sínu og er nú svo illa komið að hann er farinn að hugleiða að selja Borgargagn sinn alfarið í höndur frú Ingveldar og Kolbeins, eða jafnvel Brynjars Vondulyktar. Af þessu öllu sést að víða er óáran og vandamál hjá yfir- og efrimillistétt þjóðfélagsins og ekki ólíklegt að ríkisstjórnin falli innan skamms vegna kerfislægrar ónáttúru hennar og hraksmánarlegs eðlis.
![]() |
Gekk berserksgang við hótel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2022 | 15:30
Nú hefur hún kallað biskupinn yfir Íslandi á sinn fund til örvunar og hughreystingar
Ekki er minnsta ástæða fyrir síra Davíð að láta fræðimenn og farísea af nöðrukyni stöðva sig. Og hvort sem í hlut á fyrrum heitkona eða biskup, þá er farísei farísei og naðra naðra. En Helvíti er hinumegin, hræðilegra en nokkur veit. Það að halda hlífiskildi yfir ódæðismönnum, fjárglæframönnum og bófum er illur gjörningur og Guði óboðlegur. Aftur á móti er Djöflinum, sem einnig heitir Sathan, ljúft að horfa upp á þegar illhryssingum er dillað og þeim gefið ríkisstjórnarlegt leyfi til að fá útrás fyrir græðgi sína og íllsku.
Svo hefir nú frú Ingveldur boðað biskupinn yfir Íslandi á sinn fund til að stappa í hana stálinu og hvetja hana til að gjöra aðra og áhrifaríkari aðför að Laugarnesklerki. Í rafbréfi sem frú Ingveldur sendi biskupi fyrir stundu, rifjar hún upp söguna af Jóni Gerrekssyni biskupi og hvernig sannir Íslendingar settu hann í strigapoka, bundu fyrir og köstuðu í Brúará. En segja má að með þeim aðgerðum bænda hafi umsvifum herra Jóns Gerrekssonar verið lokið. Frú Ingveldur tók þó fram, að með þessari dæmisögu væri ekki þar með sagt að hún væri að leggja til við biskup að hún pokaði Davíð Þór og færi með hann inn til Elliðaár eða niður að Tjörn. Nei nei, hún væri ekki leggja það til, hitt væri það, að biskup ætti að sýna á sér embættislegt rögg og slíta hempuduluna af manninum og reka hann úr starfi.
Síðast liðið fimmtudagskveld hvarf Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, eiginmaður frú Ingveldar, og gaf sig ekki fram fyrr en að mánudagsmorgni. Þá sást á honum að hann var orðinn sturlaður af trúarofstæki. Þegar betur varð að gáð, þá var greinilegt að hann var kominn með Skrauthólaveikina, því hann lét heldur dólgslega, var hálfberrassaður og hafði með sér sveppakakó á brúsa. Gottfreð læknir var kallaður til að líta á sjúklinginn og staðfesti hann að um Skrauthólaveiki væri að ræða og upplýsti frú Ingveldi um leið að slík veiki væri ekkert skárri en hjarðsveinasjúkdómur. Síðan sprautaði Gottfreð Kolbein í rot og tók honum blóð til skimunar. En Kolbeinn lá eins og fordæmdur syndaselur í dái í einn og hálfan sólarhring af hinni vænu innspýtingu læknisins.
![]() |
Lætur tiltalið ekki stöðva sig og gagnrýnir áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2022 | 13:17
Morgunafrek bysskubbs fór, þegar til kom, illilega út um þúfur
Þau voru drjúg morgunverkin að þessu sinni hjá blessaðri bysskubbsskepnunni okkar. Það sást til hennar árla mjög á þeysispretti inn í Laugarneskirkju til að fremja aðkallandi embættisverk á prestinum í þar. Það stóð helblár logi aftan úr kérlíngu hvar hún þeyttist eins og byssubrennd yfir stræti, torg, garða og bifreiðar. Inni í musteri Laugnesingar þrif byssgubb illilega til sóknarprestsins og hugðist veita honum verðuga ráðningu á bert rassgatið að beiðni ríkisstjórnarinnar. Því miður varð bysskubbunni heldur á í messunni að þessu sinni, því hinn seki illræðisklerkur brást til varnar, vildi ekki láta buxur sínar lausar og reif kjól bysskubbs upp fyrir höfuð henni og hnýtti fyrir. Síðan stjakaði hann boðflennunni út, nokkuð óblíðlega og lokaði kirkjudurum fast á eftir henni með skelli.
Það var ekki sjóna að sjá veslings bysskubbinn okkar skakklappast til baka, flækta í pilsum sínu og sá hvorki daginn né veginn. Ýmsir áhorfendur voru dauðhræddir um að hin stórfenglega embættiskona mundi villast í blindu sinni og verða undir strætisvagni á Kringlumýrarbraut, aðrir voru enn hræddari um að hún mundi hverfa ívið lengra frá réttri leið og steypast í hafið fram af Skarfakletti. Þetta leit mjög illa út á tímabili, allt þar til henni var bjargað upp í bifreið sem kom aðvífandi. Menn voru öldunis ekki á eitt sáttir á hvers vegum þessi bifreið væri; sumir sögðu hana vera senda af ríkisstjórninni, en aðrir að þetta hefðu verið drykkfelldir togarakarlar á fylliríi.
Nú er síra Baldvin, prestur og prófastur til Gemsufallaþinga, væntanlegur hvað úr hverju til höfuðborgarinnar þeirra erinda að veita bysskubbi formlegt tiltal og áminningu fyrir ávirðingar hennar í garð prestsins í Laugarnesi. Síðast, þá síra Baldvin heimsókti Bysskubbsstofu, greip um sig slík skelfing embættismanna og starfsliðs þar, að allt fór á hvolf. Síðan hafa innanstokksmenn þar verið með sífellda steinsmugu af áfallastreituröskun, sem aungin áfallahjálparmeðferð hefir unnið á. Auk þess er talið að síra Baldvin hafi skilið eftir vom á stofunni, sem fær hárin á starfsliðinu að rísa þegar hann exítérast því. Einn bysskubbsritarinn hefir látið hafa eftir sér, að vomur þessi sé fengin að láni hjá Sathani sjálfum og hafi síra Baldvin kúgað hann af Myrkrahöfðingjanum til æra liðsmenn bysskubbsstofu.
![]() |
Fékk formlegt tiltal biskups fyrir harkaleg skrif |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2022 | 23:15
- Hver kenndi yður að skjóta sendiboða guðsríkis?
Í stað þess að velta um borðum víxlaranna og braskara íhaldsins og moka þeim eins og pöddum út úr musterinu, eða hafa endaskipti á elskhugum mannvonskunnar, lætur bysskubbsnefnan okkar sér nægja að hnýta enn einn grýluhnútinn á sokkaböndin sín. Það er vandséð að pokabysskubb af slíkri stærðargráðu hljóti nokkurn tíma náð fyrir augum Drotins Alsherjar, hvað þá Jésú syni hans. Og í stað þess að fagna skýrum og kristilegu boðskap síra Davíðs Þórs þá snýst þessi svifaseini bysskubb gegn honum og hvæsir eins og naðra: - Þú stangast á við siðareglur Davíð Þór, þú verður settur í sérverkefi á Bysskubbsstofu í þrjú á og síðan rekinn hægt og hljótt úr þjónustu hins alvalda konungs hymins og jarðar. Já!
Er ekki brátt komið að því að fylgismenn litla sósíalistans frá Nazaret beri bysskubb þenna út af bysskubbsstofu? Hvað hefði Jésús Máríuson sagt um ríkisstjórn á norðurhjara veraldar, sem hefði ráðist að sínum minnstu bræðrum að hætti fúlmenna og fóla og rekið þá úr landi, jafnvel út í opinn dauðann, eins og hunda með hundaæði? Jú, ætli hann hefði ekki sagt eitthvað á þessa leið: - Þér nöðrukyn! Hver kenndi yður að koma fram við landflótta menn, aldraða og öryrkja eins og svín og sora jarðar? Hver sem rekur stríðshrjáða og örvinglaða af landi brott verða umsvifalaust reknir burt úr ríki föður míns um leið og þeir birtast.
Og við bysskub vorn mundi hann segja: - Hver kenndi yður að skjóta sendiboða guðsríkis, þér hræsnari? Varst þú meðal þeirra sem æptu og öskruðu ,,krossfestið hann" þegar Pílatus spurði lýðinn hvað hann ætti að gera við þennan Jésú sem kallaðist Kristur? Þér blindu leiðtogar, sem síið mýfluguna en svelgið úlfaldann, en látið yður réttvísina, miskunnsemina og trúmennskuna í léttu rúmi liggja. Þér höggormar, þér nöðruafkvæmi! Hvernig ættu þér að geta umflúið dóm helvítis? Þér fórnið mannorði yðar fyrir yfirdrottnun íhaldsstefnunnar.
![]() |
Orð Davíðs stangist á við siðareglur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2022 | 19:56
Hann bannfærði fyrrum heitkonu sína og íhaldshyski hennar
Mikið óskaplega var það vel að verki staðið hjá síra Davíði Þór Jónssyni að bannfæra fyrrum heitkonu sína, Katrínu Jakobsdóttur og íhaldshyski hennar. Slík bannfæring merkir að sjálfsögðu að Katrín og ríkisstjórn hennar eru hvorki kirkjuhæf né kirkjugræf og verður því það fólk allt urðað utangarðs í fyllingu tímans og því búinn samastaður í eilífðinni hvar Sathan ríkjum. Það er sannarlega gleðilegt að síra Davíð Þór hafi nú gengið rösklega til verks, fetað í fótspor hins mikla kirkjuhöfðingja, Síra Baldvins prest og prófasts til Gemsufallaþinga, og sett ríkisstjórn Íslands út af sakramenntinu og falið hana Sathani í Helvíti.
Nú á vordögum bannsöng síra Baldvin tvær óartarpersónur, karl og konu sem orðið höfðu hórnum að bráð, sem sé bæði gift en því miður ekki hvort öðru. Sjálfur hafði síra Baldvin staðið þessar skepnur að verki í hrörlegum og yfirgefnum skúr frammi á sjávarabakka. Við það tækifæri lagði hinn mikilvirki kennimaður höndur á aumingjana og kaghýddi þau á staðnum. Sunnudaginn næsta á eftir lýsti síra Baldvin úr predíkunarstóli við sérstaka hámessu þessar ólánsmanneskjur óalandi og óferjandi, Sathani merktar en Drotni viðbjóður. Bauð hann og að umræddum vandræðaskjátum verði útvistað úr mannlegu samfélagi almennt og þær flæmdar frá mannabyggðum og með því móti forðað að þær smiti út frá sér hinu vondslega eðli, sem dró þau lostanum á vald í einu hrörlegu skúrgreyi.
Og nú má ljóst vera að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er í vanda stödd, - trúlega meiri vanda en herjað hefir á nokkra íslenska ríkisstjórn frá landnámsöld, - því sjálft framhaldslíf hennar eftir dauðann er í uppnámi. Fjandinn er svo á sínum stað og gefur að öllu gætur og tilbúinn að læsa klóm sínum í hin óhamingjusömu ráðherrarassgöt og einhenda þeim í eldsofna Vítis og brennisteinspotta. Þetta getur vesöl og ófyrirleitin ríkisstjórn haft upp úr því að haga sér óguðlega og í trássi við Hymmnaföður Almáttkan.
![]() |
Segir sérstakan stað í helvíti fyrir VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2022 | 21:19
Á öðrum degi upp reis hann eins og Þorgeirsboli
Karl rörið, sem í dag nefnir sig Árna Þór en hér áður Árna Mór, var mikill stríðsmaður hér fyrrum og barðist um bitlingae fyrir sjálfan sig eins og soltinn pardusleon. Hans frægasta orrusta Dómkirkjubardaginn, sem háður var millum Dómkirkjunnar og Alþingishússins, en ár áttust við hamslaus skríll gegn fyrirmennum þjóðríkisins, en Árna Mór tilheyrið auðvitað fyrirmennunum og gekk fylktu liði með þeirri deild gegn hinum óarga lýð. Þennan dag gekk Árna Mór í gullofnum nærbuxum og tali sig mann með mönnum. En skjótt bregður sól sumri, því Árna litla varð fyrir fyrsta skotinu sem hleyp var af í þessu stríð og féll samstundis eins og stagkálfur ofan í grjótharða gangstéttina. Svo báru þeir hann í burtu dauðan.
En á öðrum degi upp reis hann eins og Þorgeirsboli og hét nú ekki lengur Árna Mór sem ein vafasöm kvinna heldur Árni Þór og var orðinn píslavottur og helgur maður. Skömmu síðar var hann orðinn sendiherra Ísland og fékk horn í utanríkisráðuneytinu til umráða; maðurinn gerði lengi vel ekki neitt nema vera áskrifandi af dágóðum launum, sem vor eins og sárabót fyrir hafa fallið fyrir þjóð sína í brávallabardaga við Alþingishúsið. Svo sendu þeir kauða til Rússlands og sendu honum áskriftarlaunin þangað. Sem betur fer hefir ekkert frést til þessa frækna stríðsmanns úr Flokkseigendafélagi VG langalengi; raunar svo lengi að hann hefði annaðhvort fallið aftur í orrustu eða verið sendur til Síberíu og þaðan í Gúlageyjaklasann til tyftunar.
Nú hefir Árni Þór, ex Árna Mór, rofið þögnina og mælt til þjóðar sinnar eins og Guð Ísraelsmanna gerði stundum hér í eina tíð. Boðskapurinn var innantómur sem áður, kerfakarlastagl, leirborið, borið fram af aungri sannfæringu. Æ, það er ósköp dapurlegt hlutskipti að hafa alla tíð verið baggi á bjargvættum sínum, Flokkseigendum VG, og njóta þar að auki engrar virðingar obbans af liðsmönnum VG. En þegar Árni Þór féll fyrir dyrum úti við Austurvöll var það mikið fall, sem að sögn endaði ekki fyrr en austur þar í Gúlaginu. Þegar Hrunið okkar góða varð fóru allir péníngarnir og fjárfestingarnar til hymmnaríkis Mammóns, en Árni Þór steig upp á hænsnaprik í horni utanríkisráðherra í boði mektarhunda VG.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2022 kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2022 | 18:04
Komið hefir í ljós að meinleg gjörð leikkonu á sér hliðstæðu hérlendis
Okkur er öllum innilega fjandans sama um öll spjöll einhvers Einars og Dóru Bjartar. Við lítum á allar slíkar hundakúnstir sem einkamál viðkomandi hjúa og skiptu okkur ekkert af þeim. Hitt er aftur verra með leikkonuna í útlöndum sem gjörði sér hægt um vik og skítti bláköld í rúmið hjá eiginmanni sínum. Þessháttar framferði köllum við bölvaðan sóðaskap og hirðuleysi.
Annars er hin meinlega gjörð leikkonunnar ekki einsdæmi, - ekki alveg. Við munum eins og gerst hafi í gær þegar frú Ingveldur kom heim til sín um miðnætti eftir annasaman dag og komst þá að því, eftir hún var komin í náttkjólinn en farin úr nærbuxunum, að það var gerðarlegur manni í hjónarúmi þeirra Kolbeins. Þegar frú Ingveldur uppdagaði þennan fráhrindandi aðskotahlut í hvílu sinni var Kolbeinn frammi á baði og þóktist vera að bursta í sér tönnurnar. Frú Ingveldur snöri strax máli sínu að Kolbeini og ásakaði hann um að hafa skitið í rúmið, en Kolbeinn neitaði því harðlega og ýjaði að því frú Ingveldur hefði sjálf skilið eftir sig lortinn í bælinu. Hafði þá frú Ingveldur ekki fleiri orð og barði Kolbein eiginmann sinn og sprautaði úr tannkremstúpunni af krafti upp í blessaðan bláendann á Kolbeini svo honum lá við sturlun. Um nóttina svaf Kolbeinn á klósettgólfinu með buxur um ökklaliði og leið illa.
Morguninn eftir hóf frú Ingveldur formlega rannsókn á tilurð kukksins í rúminu. Eftir stutta eftirgrennslan komst hún að því, að það hafði verið Máría Borgargagn sem gert hafði stykkin sín í hjónarúm frú Ingveldar og Kolbeins eftir að hafa drýgt hór með Kolbeini í sama rúmi meðan frú Ingveldur var allan daginn úti á akrinum að berjast fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en þeirri merku vinnu lauk með stórfyrirlestri frú Ingveldar og fundi í Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Eftir að Kolbeinn hafði viðurkennt brot sitt fyrir frú Ingveldi og skítverk Borgargagnsins í rúminu tók frú Ingveldur leigubifreið að heimili Máríu Borgargagns og veitti henni þá ráðningu sem hún hafði unnið fyrir.
![]() |
Persónulegt og pólitískt spjall við Einar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2022 | 16:45
Þið eruð ekki hæfar í húsum verkafólks
Já, það er tími til kominn að Ólöf Helga og Agníeska hætti þessu kjaftæði og hætti í leiðinni alfarið að láta skuggaliða úr verkalýðshreyfingu, samtökum atvinnurekenda og pólitík spila með sig og hafa sig að brjóstumkennanlegum fíflum. Þið ættuð, stúlkur mínar, að hafa vit á að setja skottin ykkar milli lappanna og hafa ykkur á brott úr húsakynnum Eflingar og láta aldrei sjá ykkur þar aftur. Þið hafið fyrir löngu gert nóg af ykkur gagnvart félagsmönnum Eflingar og flestum er orðið fullljóst að þið eruð ekki í hæfar í húsum verkafólks.
Það er eins og hvur önnur lýgi að félagsfólk í Eflingu sé reitt vegna einhvers dularfulls fordæmis, sem uppsagnir á óhæfu skrifstofustarfsfólki eiga að vera samkvæmt Ólöfu Helgu. Ég trúi mikið frekar að félagsmenn Eflingar séu, eftir allt sem á undan er gengið, upp til hópa samþykkir ákvörðun stjórnar um að segja öllum skrifstofusjakölunum upp á einu bretti. Það þjónar ekki hagsmunum eflingarfólks, að leyfa skrifstofuliðinu að vaða uppi lengur með þeim hætti sem við höfum séð; hagsmunir Eflingar og verkalýðshreyfingarinnar krefjast þess að óvitum, illþýði, eineltishrottum og verkfærum auðvalds og krataeðlis á skrifstofunni verði sópað út, - og út skal þessi ófénaður! Ef ný stjórn Sólveigar Önnu hefði látið undir höfuð leggjast að taka á skrifstofulýðsvandamálinu með þeim hætti sem hún gerði hefði hún verið að bregðast félaginu og svíkja það sem lofað var í aðdraganda stjórnarkosninganna.
Það er ósköp hlægilegt að sjá Ólöfu Helgu, sem Sólveig Anna bjargaði frá hremmingum á Reykjavíkurflugvelli, að hún vilji ,,hætta þessu kjaftæði og fara að vinna fyrir félagsmenn okkar" eins og hún orðar það. Fyrir það fyrsta eiga þær Agníeska og Ólöf Helga enga félagsmenn innan Eflingar og í öðru lagi höfnuðu eflingarfélagar fyrir stuttu síðan að þær og skrifstofuliðið stjórnuðu félaginu. Að öllu eðlilegu hefðu Agníeska og Ólöf Helga átt að segja sig frá öllu innan Eflingar um leið og úrslitin í stjórnarkosningunni lágu fyrir; en þær höfðu auðvitað hvorki reisn né vit til þess, ekki heldur siðferði, hvað þá hugsjón virkrar verkalýðsbaráttu.
![]() |
Ég vil bara hætta þessu kjaftæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
- Hann missti kerrunan með þremur hrossum niður í djúpt og brat...
- ,,Ef að illar vættir inn um myrkragættir bjóða svikasættir sv...
- Það er versti misskilningur að hún sé kölluð Togga
- Þekktir menn og ein kona í stjórnum KR og Vals láta til sín t...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.8.): 3
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 288
- Frá upphafi: 1553301
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 249
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007