Leita í fréttum mbl.is

Komið hefir í ljós að meinleg gjörð leikkonu á sér hliðstæðu hérlendis

ing16Okkur er öllum innilega fjandans sama um öll spjöll einhvers Einars og Dóru Bjartar. Við lítum á allar slíkar hundakúnstir sem einkamál viðkomandi hjúa og skiptu okkur ekkert af þeim. Hitt er aftur verra með leikkonuna í útlöndum sem gjörði sér hægt um vik og skítti bláköld í rúmið hjá eiginmanni sínum. Þessháttar framferði köllum við bölvaðan sóðaskap og hirðuleysi.

Annars er hin meinlega gjörð leikkonunnar ekki einsdæmi, - ekki alveg. Við munum eins og gerst hafi í gær þegar frú Ingveldur kom heim til sín um miðnætti eftir annasaman dag og komst þá að því, eftir hún var komin í náttkjólinn en farin úr nærbuxunum, að það var gerðarlegur manni í hjónarúmi þeirra Kolbeins. Þegar frú Ingveldur uppdagaði þennan fráhrindandi aðskotahlut í hvílu sinni var Kolbeinn frammi á baði og þóktist vera að bursta í sér tönnurnar. Frú Ingveldur snöri strax máli sínu að Kolbeini og ásakaði hann um að hafa skitið í rúmið, en Kolbeinn neitaði því harðlega og ýjaði að því frú Ingveldur hefði sjálf skilið eftir sig lortinn í bælinu. Hafði þá frú Ingveldur ekki fleiri orð og barði Kolbein eiginmann sinn og sprautaði úr tannkremstúpunni af krafti upp í blessaðan bláendann á Kolbeini svo honum lá við sturlun. Um nóttina svaf Kolbeinn á klósettgólfinu með buxur um ökklaliði og leið illa.

Morguninn eftir hóf frú Ingveldur formlega rannsókn á tilurð kukksins í rúminu. Eftir stutta eftirgrennslan komst hún að því, að það hafði verið Máría Borgargagn sem gert hafði stykkin sín í hjónarúm frú Ingveldar og Kolbeins eftir að hafa drýgt hór með Kolbeini í sama rúmi meðan frú Ingveldur var allan daginn úti á akrinum að berjast fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en þeirri merku vinnu lauk með stórfyrirlestri frú Ingveldar og fundi í Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Eftir að Kolbeinn hafði viðurkennt brot sitt fyrir frú Ingveldi og skítverk Borgargagnsins í rúminu tók frú Ingveldur leigubifreið að heimili Máríu Borgargagns og veitti henni þá ráðningu sem hún hafði unnið fyrir.  


mbl.is Persónulegt og pólitískt spjall við Einar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband