Leita í fréttum mbl.is

Blótkonan sem fékk makleg málagjöld

xb9.jpgSigga Títa er líka svona blótneyti. Ţegar hún er tekur flugiđ, hćkkar blóđţrýstingurinn jafnvel í ćđum harđsvíruđustu sjóara, marghertra af óguđlegum munnsöfnuđi, viđ ađ hlusta á slíkt magn í einni lotu af krossbölvi og klámi. Ađ vísu hefir Sigga Títa, illu heilli, ekki starfađ sem alţingismađur, en hún hefir flutt margar leiftrandi tćkifćrisrćđur viđ ýmis  tilefni.

Ţegar Sigga var félagskona í Kvenfélaginu Rósalind hélt hún margar kyngimagnađar rćđur yfir hausamótunum á hinum kérlíngunum. Sáu Rósalindarkonur sér ekki annađ fćrt ađ lokum en ađ reka ţennan flugmćlska orđhák úr kvenfélaginu. Dropinn sem fyllti mćlinn var ćgileg eldmessa, sem Sigga Títa mćlti af munni fram í rćđupúlti Rósalindar, ţar sem hún veittist harkalega ađ velunnara kvenfélagsins, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni, sem ađ sjálfsögđu var ekki viđstaddur. Ţar hún Kolbeini á brýn flest ţađ sem einum manni getur veriđ til ćvarandi skammar og hneysu, međal annars, ađ hann vćri djöfulsins karlremba, gerđur út af feđraveldinu til ađ koma fram viđbjóđslegum vilja sínum viđ lítillátar konur, sem ekki gćtu boriđ hönd fyrir höfuđ sér frammi fyrir öđrum eins ónáttúrugradda. Í kjölfariđ fyldu síđan hrćđilegar lýsingar á meintu framferđi Kolbeins og hans félaga.

ingv45.jpgŢegar Rósalindarkonur voru búnar ađ reka Siggu Títu af hönum sér eftir virkilega stórorrustu viđ hana, fóru ţćr allar sem ein í heimsókn til velunnarans Kolbeins og skýrđu honum frá glćpsamlegu orđbragđi Siggu Títu um hann og báđu hann innilegrar fyrirgefningar á framferđi hennar. Eiginkona Kolbeins, frú Ingveldur, hlýddi andagtug á málflutning kvenfélagskvennanna međ sívaxandi ygglibrún. Svo greip hún kápu sína og hvarf međ miklu fasi úr húsi. Daginn eftir mátti lesa í fjölmiđlum, ađ kona nokkur lćgi á gjörgćsludeild eftir ađ hafa orđiđ fyrir árás annarrar konu; ennfremur ađ hin slasađa vćri eftil vill ekki í bráđri lífshćttu og árásarvargurinn vćri ekki enn fundinn. Fleiri fréttir bárust ekki af ţessu dularfulla máli, enginn var yfirheyrđur, hvađ ţá dćmdur eđa fangelsađur - og ekki orđ um ţađ meir.


mbl.is Bölvi og blóti ekki í rćđustólnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband