Leita í fréttum mbl.is

Nú ríđur á ađ leggja Félagi sannra Íslendinga liđ gegn föđurlandssvikurunum

landi_sekkur.jpgJahá, svo Guđni Th. er ţá svona jargansmikill byltingarseggur og föđurlandssvikari. Ţetta hefir mig lengi grunađ. Ţađ er náttúrulega útilokađ ađ ţjóđin fái leyfi til ađ kjósa slíkan varg í véum forseta Íslands. Ţetta ástand minnir mest á ţegar hinir ćttjarđarlausu í Sviđinsvík undir Óţveginsenni gerđu ađsúg ađ Pétri Pálssyni og Félagi snannra Íslendinga um áriđ. Ţađ verđur fortakslaust ađ stoppa ţennan Guđna af áđur en honum tekst ađ gera eitthvađ af sér, - eđa vćri máske betra ađ stoppa hann upp? ...

Og föđurlandssvikin liggja ljós fyrir: Ţessi Guđni var ađ sögn jafn vingjarnlegur í garđ Icesave samningsins og meirihluti Sjálfstćđisflokksinns. Og tilrćđi hans viđ stjórnarskrána er í einu orđi sagt óverjandi. Nú verđum vér öll ađ leggjast á árarnar međ Félagi sannra Íslendinga, rétt eins og presturinn og prókúristinn í Sviđinsvík á sínum tíma, og afvopna byltingarvarginn og steypa honum í fangelsi, eđa ţađ sem betra er, fyrir björg, annars sökkur landiđ. Ţađ er nefnilega stór og miklil hćtta á, og ţađ borđliggjandi, ađ ef Guđni verđur kosinn forseti af fáfróđum og heimskum lýđnum, ţá lćtur hann ţađ verđa sitt fyrsta verk ađ taka margblessađa stjórnarskrána úr sambandi og afnema kvótakerfiđ og borga Icesve skuldina međ beinhörđum péníngum úr ríkissjóđi. Og hvađ verđur um okkur ţá? Ţađ sjá allir góđir og heilvita menn ađ soleiđislagađ má ekki gerast.

Viđ ţetta er nauđsynlegt ađ bćta, ađ Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmađur sást blind-dauđadrukkinn á tali viđ Guđna ţennan, sem allir eru ađ tala um í, kćrkvöldi. Ţetta er grafalvarleg mál, ţví ţađ bendir til ađ Framsóknarmenn sitji á svikráđum viđ Félag sannara Íslendinga og bíđi nú ađeins fćris ađ geta rekiđ blóđuga búrsveđjuna í bakiđ á hinu góđa félagi. Frú Ingveldi, eiginkonu Kolbeins, var ađ sjálfsögđu gert viđvart um andfélagslega iđju Kolbeins og kom hún undir eins á vettvang og rotađi bónda sinn međ leiftursnöggu höggi og dró hann ađ svo búnu á annarri löppinni heim á leiđ. Svona eru tímarnir válegir og erfiđir og líklegt ađ allt fari í handaskolum á versta veg. Stjórnarskrá sannra Íslendinga má ekki líđa undir lok, svo mikiđ er víst, og ţađ fyrir atbeina eins landlauss föđurlandssvikara og landráđamanns.


mbl.is Segir Guđna vilja kollvarpa stjórnarskránni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Ţú meinar vćntanlega hnífasettiđ sem stungiđ var í bakiđ á BInga?  Annars sammála ţér í ţví ađ Guđni er hinn versti skapvargur hef ég heyrt, hann tryllist ef hann fćr ekki ţađ sem hann vill og hatast út í menn áratugum saman ef honum finnst menn svíkja sig.  Hann fćr líka orma í eyrun ef hann hlustar á grasrótina ađ ţví mér er sagt.  

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 15.5.2016 kl. 22:26

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Guđni er áreiđanlega skađrćđisskepna, skapvondur og hefnigjarn.

Hnífasettiđ er ávallt til reiđu í Framsóknarfjósinu, brýnt uppúr fjóshaugnum á hverfisteininum gömlu Maddömunnar.

Jóhannes Ragnarsson, 15.5.2016 kl. 22:36

3 Smámynd: Anna Sigríđur Guđmundsdóttir

Ég kann nú ekkert á alla ţessa pólitísku flokka, hverju nafni sem ţeir nefnast. Mađur getur ekki flokkast eins og skođanakúguđ ósjálfstćđ sál.

En Guđni blessađur er víst líklega Hćstaréttar og Háskóla Íslands spottastýrđur "forsetaframbjóđandi", sem fjölmiđlar töluđu upp í hćđstu og ólýđrćđislegu hćđir.

Ţađ er ekki gćfulegt ađ vera forseta-strengjabrúđa svikula ćđstadómsstóls Íslands.

Ćtlar fólk virkilega ađ láta skođanakannana-fjölmiđla-plata sig til ađ kjósa gegn eigin sannfćringu?

M.b.kv. 

Anna Sigríđur Guđmundsdóttir, 15.5.2016 kl. 23:20

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Tja, ţađ er úr vöndu ađ ráđa, Anna Sigríđur, ţegar illrćđismenn ađ oss steđja úr öllum áttum eins og hungruđ villudýr í sauđargćrum. En á eyrunum skulum vér ţekkja ţá, ţá sjaldan ţau koman undan hárinu.

Jóhannes Ragnarsson, 15.5.2016 kl. 23:43

5 Smámynd: Steindór Sigurđsson

Já ţađ er skemmtilegt ađ ţú skulir mynnast á eyrun. Ţví ţau eru ekki af manneskju, heldur einhverju allt öđru fyrirbrygđi.

Steindór Sigurđsson, 16.5.2016 kl. 10:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband