Leita í fréttum mbl.is

Eins og Baldur stjórnaði Konna

davi_3.jpgDásamlegur maður Davíð og Guði líkur,- að minnsta kosti er hann ósköp keimlíkur Frelsaranaum og gott ef ekki Múhámeði spámanni líka. Nú ætlar hann semsagt að starfa án launa á Bessastöðum fari svo að þjóðin feli honum að annast búskapinn þar á bæ eftir að félagi Ólafur Ragnar yfirgefur staðinn. Og Davíð ætlar að gera þjóðinni enn meiri greiða: Hann ætlar aldrei til útlanda á kostnað skattgreiðenda meðan hann verður forseti; hann ætlar líka að afleggja pjatt og prjál á Bessastöðum og snobb og glennur verða bannaðar þar, en þetta allt er reyndar í blóra við fyrri framgöngu karlsins og störf hans í þágu ójafnaðar, gráðuga peningahyggju yfirstéttarinnar, snobb hennar og úrkynjun.

Það mætti vel ætla, eftir orðum Davíðs að dæma, að hann ætli sér einungis að vera gluggaskraut á Bessastöðum í forsetatíð sinni og annað ekki, og að launaleysi hans og meinlætalifnaður í embætti eigi að tákna persónulega bótagreiðslu hans til þjóðarinnar fyrir Hrunið. Svo má líka spyrja sig að því hvort það sé þjóðinni boðlegt að gamall og værukær fressköttur leggist út í stofugluggann á Bessastöðum og segist vera hvort tveggja í senn, gluggaskraut og forseti íslenska lýðveldisins.

Sem vonlegt er hefir frú Ingveldur talsverðar áhyggjur af kosningabaráttu Davíðs. Hún hefir meðal annars látið hafa eftir sér að talsmáti forsetaframbjóðandans hennar sé barnalegur og ekki frelsara borgarastéttarinnar sæmandi og að líklega hafði skelmirinn Hanns hvíslað þessari vitleysu að honum. Orðrétt sagði frú Ingveldur, að það verði dálaglegur andskoti ef Davíð ætli að legjast svo lágt að láta Hannes, þann kepp og leiðindalepp, stjórna sér eins og Baldur stjórnaði Konna á sínum tíma.  


mbl.is Vill ekki þiggja forsetalaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ætli þetta sé smjörklípa?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2016 kl. 21:02

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mig minnir að Jesús hafi verið bæði grennri og hávaxnari.
Og svo auðvitað bæði skeggið og sandalarnir.

Árni Gunnarsson, 15.5.2016 kl. 21:16

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er ómögulegt að giska á hvað þetta á að þýða. Máske er þetta tilvísun í miskunsama Samverjann í guðspjöllunum eða í hann Jón okkar hérna skerínef á frönsku lóðinni, sem sagt er frá í Heimsljósi.

Jóhannes Ragnarsson, 15.5.2016 kl. 21:19

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér urðu á þau hörmulegu mistök þegar ég var að skrifa pistilinn að segja að Davíð væri líkur Guði, en það er auðvitað þveröfugt, það er Guð sem er líkur Davíð.

Jóhannes Ragnarsson, 15.5.2016 kl. 21:21

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahaha

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2016 kl. 21:27

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Munurinn á Guði og Davíð er sá, að Davíð lifir í jarðlífinu, en Guð almáttugur er góða alvitra orka allra vídda.

Við jarðlífsskepnurnar erum öll bara gölluð eintök, í skóla jarðlífsins.

Og svo rífumst við um hver sé bestur og verstur, þó við séum öll bæði best og verst, hvert á sinn hátt.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.5.2016 kl. 23:35

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Davíð er auðvitað bestur, Anna Sigríður mín, á því leikur aunginn vafi. Og guðlegrar náttúru er hann eins og Hjálpræðisherinn og Dónaldur Trump.

Jóhannes Ragnarsson, 15.5.2016 kl. 23:47

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes minn. Davíð Oddson hefur oft verið hafður fyrir rangri sök.

Ég trúi á Guðsorkuna óflokkanlegu, en ég trúi ekki lengur í blindni á nokkurn jarðlífsins einstakling. Hvorki á Davíð, Hjálpræðisherinn né Dónald Trump.

Það er mikið frelsi fólgið í að trúa einungis á sína eigin gölluðu en þó Guðsorkuvernduðu sálarsannfæringu :)

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.5.2016 kl. 00:17

9 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Já mörgu hefur verið logið uppá Davíð í gegnum tíðina og það nýjasta er að menn eru að ljúga því blákalt uppá hann að hann hafi verið Forætisráðherra þegar Bankarnir voru eikavinavæddir.

Hadiði að það sé. Það er eins gott að bakið sé breitt, ég segi nú ekki annað.

Steindór Sigurðsson, 16.5.2016 kl. 02:18

10 Smámynd: Aztec

Jóhannes, geturðu sagt mér hver er á myndinni með Davíð. Þú átt það til (í 100% tilfella) að notast við örmyndir (thumbnails) á síðunni þinn sem hafa enga upplausn. Í þetta skipti er myndatextinn ólæsilegur.

Árni, Jesús var talsvert grennri og skeggjaðri en Davíð, en hávaxnari var hann ekki. Allir menn frá Judeu á þessum tíma voru lágvaxnir. 

Aztec, 16.5.2016 kl. 02:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband