Leita í fréttum mbl.is

Hanaslagur og illir draumar

gogg2Ţeim er ekki fisjađ saman Eyjamönnunum ţegar frumstćđ villimennska er annar vegar. Kapphlaup ţeirra um ađ ná ,,bestu stćđunum" undir hvítu tjöldin er fyrirtaks sönnun á ţví. Hanaslagur og rottukapphlaup eru ţeirra ćr og kýr. En nóg af Eyjmönnum, hrćsni ţeirra og spjátrungshćtti, ađ sinni. Víkur sögunni nú beint ađ hrćđilegum draumförum Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns. Undanfarnar nćtur hefir Kolbeinn hvađ eftir annađ hrokkiđ upp öldungis skelfingu lostinn og helblár í framan, líkast ţví ađ ađ honum sćkti verulega illur andi. Ţađ má líka segja međ nokkrum sanni, ađ hann hafi orđiđ fyrir ađsókn djöfla og andskota úr ríki myrkranna.

Fyrir nokkrum nóttum síđan hrökk frú Ingveldur upp viđ hrođaleg öskur í Kolbeini, lík ţví ađ hann vćri ađ berjast viđ ađ losa sig út úr andarteppu. Ţá var hann búinn ađ rífa sćngina sína og koddann í tćtlur og jafna náttborđiđ viđ jörđu. Frú Ingveldur hringdi ţegar í neyđarnúmeriđ 112 og heimtađi lögreglan vćri send eftir Kolbeini til ađ fara međ hann á Klepp, ţví mannandskotinn vćri orđinn svo kolgeggjađur ađ ekki vćri viđlit fyrir eina varnarlausa konu ađ hafa svo hćttulega, stórbilađan mann inni á heimilinu. Sá er varđ fyrir svörum hjá 112 sagđi frú Ingveldi aftur á móti ađ hún gćti sjálf ekiđ sínum geđsjúklingi inn á Klepp og látiđ leggja sig sjálfa ţar inn í leiđinni, ţví ekki virtist vanţörf á. Ţetta svar varđ til ţess ađ athygli frú Ingveldar beindist frá Kolbeini og ađ neyđarţjónustumanninum. Hún kastađi kápu yfir sig og ók af ţríelleftum ofsa ađ bćkistöđ Neyđarţjónustunnar, óđ ţar inn og tókst ađ koma ţar öllu á tjá og tundur á augabragđi međ ofstopa sínum grimmd. Ţegar hún fór aftur var Neyđarţjónustan eins og vígvöllur ţar sem fólkorrusta hefir fram; allir símar hringjandi en starfsfólkiđ í öngviti.

mara1En aftur ađ draumförum Kolbeins: Honum dreymdi sem sé ađ hans bestu vinir, Máría Borgargagn og Indriđi Handređur kćmu skríđandi inn um gluggann og Handređurinn gripi strax um kverkar hans eins og hann hyggđist kyrkja hann, en á međan dró Borgargagniđ rauđglóandi járnsköndul upp úr pússi sínu og ţókti Kolbeini ađ hún rćki ţennan eldibrand beint upp um bláendan á honum so hann fékk meira ađ segja sviđabraggđ í munninn. Svo miklar vóru kvalirnar sem fylgdu ţessari misţyrmingu, ađ Kolbeini fannst sem augun vćru komin út úr tóftunum og ţađ eina sem hann gćti gert í málinu vćri, fyrir utan ađ öskra eins og naut, ađ rífa sćngina og koddadjöfulinn í tćttlur og reka hnefann af heljarafli í náttborđiđ. Ţessi vofeiflegi draumur hefir síđan yfirhellst Kolbein margsinnis á hvurri nóttu upp á síđkastiđ og hefir frú Ingveldur ţví komiđ honum fyrir í miđstöđvarkompunni, en ţar er fremur lítil hćtta á ađ hann geti valdiđ teljandi spjöllum. Hvađ ţessir draumar Kolbeins bođa er hreint ekki auđvelt um ađ spá, en varla vita ţeir á gott.


mbl.is Börđust um bestu stćđin
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband