Leita í fréttum mbl.is

Mun rannsóknarlögreglunni og ríkislögreglustjóra takast að upplýsa hvarf Sigurðar Inga?

með lögumÞað er ákaflega dularfullt að Sigurður Ingi hafi ekki mætt á áríðandi fund, sé horfinn eins og jörðin hafi gleypt hann. Þetta er sennilega lögreglumál, rannsóknarlögreglumál. Getur verið að Sigurður Ingi, þessi lítilláti sómapiltur, sé lagður á flótta frá Framsóknarmaddömunni eins og lukkuriddarastóðið sem hleypur hvað hraðast eftir Wintrisdrengnum? Hefir Sigurði Inga máske veri rænt af málaliðum og sætir nú ójöfnuði á afviknum stað? Það verður áreiðanlega handagangur hjá Víkingasveit Ríkislögreglustjóra ef hún þarf frelsa Sigurð Inga úr herkví Bíngóselskaparins. 

Frá því eldsnemma í morgun hefir Kolbeinn Kolbeinsson leitað dyrum og dyngjum að Sigurði Inga, en á árangurs. Og upp úr hádegi var hann orðinn svo skelfingu lostinn að hann drakk sig augafullan á Mónacó og ráfaði síðan berrassaður niður Laugaveginn og misbauð blygðunarkennd fjölda manns, karla, kvenna og barna, útlendum sem innlendum. Sem betur fer tókst frú Ingveldi að hafa upp á honum í tæka tíð áður en honum var stungið inn því lögreglan var á leiðinni með sírenugargi og ljósagangi. Og í sjálfu Framsóknarfjósinu er gludroðinn og ringulreiðin slík að líkja má við uppþot á geðveikrahæli, enda ekki á hvurjum degi sem yfirráðsmaðurinn hverfur á ögurstund og uppreistarmenn fari um fjósið með poletískum gripdeildum og mannránum.


ingv4_1240251.jpgAftur á móti sást til Máríu Borgargagns, sem er mikil og gegnheil framsóknargriðka, kasta af sér vatni á almannafæri af einskærum spenningi og uppgerð. Hvort hún veit eitthvað um aafdrif Sigurðar Inga er enn ekki vita, en Borgargagnið er kunn fyrir að hneppa menn í stofufangelsi án dóms og laga og fara misjafnlega með þá. Það fékk Brynja Vondalykt að reyna á sínum tíma og hefir verið allt að því vitfirrtur síðan. Ekki það að Brynjar hafi fyrir þetta einstæða atvik flækt sig í vitsmununum, heldur hefir vínhneigð hans og vífni keyrt svo úr hófi að hann veigrar sér ekki lengur við að ganga til miðstöðvarkompu í húsi frú Ingveldar og Kolbeins og láta þar öllum illum látum með Indriða Handreði, eiginmanna Máríu Borgargagns, og Kolbeini ræflinum skrifstofustjóra og framsóknarmanni, eins og hann er nú veikur fyrir á klámsvellinu.  


mbl.is Sigurður Ingi ekki á fundi formanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þarna lensar Máría við Fiskmarkað Íslands

Níels A. Ársælsson., 26.9.2017 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband