Leita í fréttum mbl.is

Mikill þó djöfull var að sjá

war2.jpgMikill þó djöfull var að sjá og heyra eiginir geggjaðra heimsvaldasinna vestrænu stríðsmaskínunnar í Silfri Ríkissjónvarpsins áðan. Önnur eins endemi eru vonandi vandfundin á Íslandi, en því miður er ekki því að heilsa þar eð gjörvöll flokkaendemin á Alþingi Íslendinga eru af sama sauðarhúsi aðstoðardrengur Gulla og Heiðrún Heimisdóttir.

Nú, það kom fram hjá hinum timbraða aðstoðardreng, að sjálf Vinstrihreyfingin grænt framboð væri alveg ágætlega sammála árásum, manndrápum og yfirgangi hinna fasísku og hálffasísku brjálæðinga Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands í Mið-Austurlöndum. Það er engu líkara en framvarðarsveit VG sé skipuð gersamlega siðblindum aumingjum; en það kemur svo sem ekki alveg á óvart, þar eð margt í fari þessara endema hefir bent til að þeim væri verulega áfátt á siðferðissviðinu.

Það hefur aldrei farið milli mála að pótentátar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og kratahænsnanna í Samfylkingar, ex. Alþýðuflokks, hafa síðan fyrir seinna stríð verið ófyrirleitnar og heimskar stengjabrúður stríðsæsingamanna vestræns kapítalisma og heimsvaldastefnu. Það er satt að segja fullkomlega andstyggilegt að Íslendingar hafi verið þeir ræflar, sem raun ver vitni, að skríða eins og sárasjúk nagdýr eða ormaveikir hundar fyrir glæpavilludýrum hins vestræna ,,lýðræðis." Víst er um það, að þessa dagana eru verstu afhrök Vesturlanda í essinu sínu.

   


mbl.is Óttast frekari harmleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband