Leita í fréttum mbl.is

Hann greiddi öll atkvæðin sjálfur

band1Já, aungvan þarf að undra þókt Sigmundur, garmskarnið, hafi fengið hundrað prósent atkvæða, því það var hann sjálfur sem skrifaði á alla atkvæðaseðlana sem komu til talningar í formanskjöri Miðflokksins. Þessi atkvæðagreiðsla var mikið starf og lá oft við að Sigmundur færi út af sporinu og krotaði eitthvað allt annað en ,,Sigmundur Davíð" á seðlana. En allt hafðist þetta nú að lokum og Sigmundur Davíð fékk þessa líka glimrandi kosningu.

Þá kunngerðu miðflokksmenn að hljómsveitin ,,Middle of the Road" væri hljómsveit Miðflokksins og lagið ,,Chirpy Chirpy Cheep Cheep" einkennislag flokksins. Nokkra furðu vekur að nokkur lifandi maður, og þá allra síst þeir sem hafa minni og greindarvísitölu miðflokksmanna, skuli muna eftir smábandi frá Hollandi, sem pissaði út fyrir hérumbil hálfri öld, og gera löngu dauð öskrin í því að sínum. Og þegar Sigmundur og Gunnsi Bragi og þau hin verða orðin augafull á landsfundarfagnaðinum í kvöld munu þau grénja og veina hið sérstæða nýja einkennislag Miðflokksins þar til allt verður komið í eina delerandi orgíu.

Svo er langt í frá vissa um að Miðflokkurinn lifi fyrsta landsfund sinn af, því innbyrðis er hjörðin sjálfri sér sundurlynd og soralegar hugsanir flokksmanna þess eðlis að óljóst er um framtíð þessa sjúklega tortóluflokks. Á meðan lofa húskarlar og griðkur gömlu Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu frelsarann í gríð og erg fyrir að vera laus við Sigmund og Gunnar Braga,- eins og frelsarinn hafi einhverntíma átt aðkomu að spillingarlíferni framsóknar- og miðflokksmanna. 


mbl.is 100% stuðningur við Sigmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Er þetta Vigdís Hauks sem er að öskra þarna í míkrafóninn ?

Níels A. Ársælsson., 22.4.2018 kl. 10:30

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, mér sýnist það, já. Þetta er áreiðanlega hún ...

Jóhannes Ragnarsson, 22.4.2018 kl. 19:52

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta er nú ekki alskostar rétt hjá þér, að Sigmundur hafi skrifað atkvæðaseðlana. Það voru nefnilega forystumenn Íslensku þjófylkingarinnar sem lögðu þarna gjörva hönd á plóg líkt og fyrrum og uppdiktuðu stórt hundrað atkvæðaseðla enda miklir stuðningsmenn Sigismundar hins mikla.

Þorsteinn Siglaugsson, 22.4.2018 kl. 23:30

4 Smámynd: Aztec

Láttu ekki svona, Jóhannes. Sigmundur er skömminni skárri en leiðtogar hinna flokkanna. Það er aðdáunarvert að þessi maður harkaði af sér árásir vinstrahyskisins út af Wintris-málinu sem skipti engu andskotans máli. Konan hans átti þessa peninga og mátti gera við þá sem hún vildi. Ekki dytti mér í hug að setja erlendar tekjur mínar (ef ég hefði einhverjar) inn á íslenzkan bankareikning, það væri af og frá. Svo vitlaus er ég ekki.

Hins vegar er ég þeirrar skoðunar að allt það ránsfé sem Björgólfsfeðgar og Sigurjón stálu af Bretum og Hollendingum í hinu illræmdu en vel skipulögðu IceSave-svindli verði tekið af þeirra Tortóla-reikningi og þeir kaghýddir á Trafalgar Square þangað til kýrnar koma heim eða until the fat lady sings. Jón Ásgeir mætti alveg vera í gapastokknum við hlið þeirra.

Það er ekki einu sinni hægt að kenna Sigmundi um hin sorglegu úrslit alþingiskosninganna 2009, sem greiddi veginn fyrir verstu ríkisstjórn síðan Alþingi var stofnað, þar eð hann skrifaði ekki á alla 240.000 atkvæðaseðla, þótt þú kynnir að halda það, Jóhannes. Og ekki leizt mér á leynimakkið með Reykjavíkurflugvöll meðan Hanna Birna var eitthvað, en í komandi borgarstjórnarkosningum er Miðflokkurinn þrátt fyrir allt skásti kosturinn.

Ef Vigdís og Eyþór ná meirihluta (kannski með aðstoð Framsóknar sem er lítið annað en slímugt fylliefni sem mætti hverfa mín vegna), þá verður hægt að sparka hálfvitunum, kretínunum, bjánunum og pólítísku viðrinunum (þessum fjóru aulaflokkum sem hafa rústað borginni undanfarin 8 ár) langt út í hafsauga.

Þótt ég kjósi ekki Sjallana af persónulegum ástæðum, vona ég að þeim vaxi fiskur um hrygg eftir 8 ára dugleysi í borgarstjórn. Við viljum ekki að ólýðræðislegir fábjánar og illa ættaðir jihadistar haldi borginni áfram í heljargreipum.

Það þarf enginn að hafa áhyggjur af Femínistaframbooði Sóleyjar og Hildar. Enginn mun kjósa þann flokk nema öfgafemínisturnar sjálfar, en í þeim hópi eru engar viti bornar konur, og jafnréttissinnar eru ekki femínistar. Ég spái því að það framboð fái milli 103 og 105 atkvæði. Þar af 95 auð og ógild. laughing

Aztec, 23.4.2018 kl. 10:08

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú ert alvarlega á vegi staddur, Aztec, sökum meðvirkni. Það er til dæmis ekki uppspuni úr einhverju óskilgreindu vinstrahyski að Sigmundur Davíð, þá forsætisráðherra, skrökvaði að þjóð sinni varðandi Wintris og reyndi að leyna hana bralli þeirra hjóna á Tortólu. Það þýðir víst lítið að reyna að minnka glæpinn með því að segja að eiginkonan hafi átt alla aurana á Tortólu, það hefir enda aldrei verið sannað, fyrir nú utan að forsætisráðherra og maki hans, hver sem hann er, eiga ekki að laumsat með háar fjárfúlgur í alræmdum skattaskjólum. Forsætisráðherra sem þannig hagar sér er of siðblindur það háa embætti. 

Jóhannes Ragnarsson, 23.4.2018 kl. 11:35

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er mikill búhnykkur fyrir Sigmund að hafa sona mikið að þjóðfylkingarbesefum kringum sig.

Jóhannes Ragnarsson, 23.4.2018 kl. 11:37

7 Smámynd: Aztec

Víst var þetta þeirra eigin peningur sem íslenzka skattstofan átti ekkert tilkall til. Og hvorki afdönkuðum vinstrivilltum Soros-strengjabrúðum eins og Jóhannesi Kr. Kristjánssyni né óþverrunum á Stundinni (sem áður voru í ritstjórn DV áður meðan það var sorprit) varðar ekkert um fjármuni í eigu annarra. Og hvað Sigmundur og frú gera með sína eigin peninga er þeirra mál. Búið mál. Vissirðu að sá sem sem sendi Panamáskjölin til ritstjórna hingað og þangað, hinn illræmdi George Soros, var versti þrjóturinn en hann hafði gaumgæfilega eytt nafni sínu og nöfnum allra bandarísku vina sinna úr skjölunum? Og Jóhanners Kr. var einn af þessum heimsku sauðum sem voru ekkert að velta því fyrir sér, því að hræsnin hjá vinstrahyskinu er svo yfirgengileg.

Hyskið gerði þetta líka gegn Dorritt sem hafði erft einhverja fjármuni eftir föður sinn. Af hverju ætti hún að setja þá inn í íslenzka hrunbanka? En málið kom í veg fyrir að bezti íslenzki forsetinn síðan Sveinn Björnsson var og hét bauð sig fram 2016 og í staðinn fengum við ESB- og IceSave-sinnann Guðna Th. illu heilli.

Ekki er ég í Þjóðfylkingunni, ég er ekki meðlimur að neinum flokki hér á Íslandi og hef aldrei verið. En það er staðreynd að Islam er mesta vá sem mannkynið stendur frammi fyrir. Aðeins þeir sem vilja vera blindir, sjá það ekki.

Og fasistaríkið ESB hefur þegar lagt Evrópu í rúst og reynir eftir megni að koma höggi á íslenzkt sjálfstæði sem vitleysingarnir í Samspillingunni og Viðrekstri keppast um að afhenda erlendum valdhöfum.

Það er til tvenns konar fólk í heiminum: Föðurlandvinir (patriots) og svikarar (traitors). Ég tilheyri fyrri hópnum. En þú?

En í Bandaríkjunum er allt í góðum farvegi. Það líður ekki á löngu fyrr en glæpahyskið Bill og Hillary Clinton verði sótt til saka fyrir spillingu, þjófnað og landráð. Ætli Obama fari ekki með þeim í fangelsi ásamt spilltu löggunni Comey? Happy days.

Hvað varðar sveitastjórnarkosningarnar, þá spái ég Miðflokknum góðri kosningu í Reykjavík. En hvað álítur þú að Alþýðufylkingin (sem ég kalla litla-VG) fái mörg atkvæði í borginni?

Aztec, 24.4.2018 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband